Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1994, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1994, Side 4
4 MÁNUDAGUR 3. OKTÓBER 1994 ' Fréttir Skoðanakönnun DV um fylgi ríkisstjómarinnar Minni tiltrú kjósenda - uppsveifla síðustu mánaða hefur fjarað út á ný Ríkisstjórn Davíðs Oddssonar nýt- ur ekki sömu tiltrúar kjósenda og hún hefur gert undanfarna mánuði, samkvæmt skoðanakönnun sem DV framkvæmdi um helgina. Af þeim sem afstöðu tóku í könnuninni nýtur ríkisstjómin stuðnings 39,1 prósents kjósenda meðan 60,9 prósent eru andvig henni. Niðurstöður könnunarinnar urðu annars á þann veg að 34,0 prósent sögðust fylgjandi ríkisstjórninni, 53,0 prósent sögöust andvíg, 11,0 prósent sögðust óákveðin og 2,0 prósent neit- uðu að gefa upp afstöðu sína. Úrtakið í könnun DV var 600 manns. Jafnt var skipt á milli kynja og eins á milli landsbyggðar og höf- uðborgarsvæðisins. Spurt var: „Ertu fylgjandi eða andvígur ríkisstjóm- inni?“ Skekkjumörk í könnun sem þessari em 3 til 4 prósentustig. Miöað við skoðanakönnun DV í ágúst hefur fylgið við ríkisstjórnina minnkað um 5,3 prósentustig. í ágúst hafði fylgiö hins vegar ekki mælst meira frá því ríkisstjómin var mynd- uð vorið 1991. Þá mældist fylgið 44,4 prósent samanborið við 53,3 prósent í maí 1991. Minnst mældist fylgi ríkisstjórnar- innar í ársbyrjun 1993, eða 26,2 pró- sent. Miðaö við sama tíma í fyrra hefur fylgi ríkisstjórnarinnar aukist um 9,3 prósentustig. Sé miðað við september 1991 og 1992 er munurinn hins vegar ekki marktækur. Sam- kvæmt könnunum DV hefur fylgi ríkisstjómarinnar jafnan dalað verulega þegar líða tekur á haust og þing hefst. Fylgi ríkisstjórnarinnar Niðurstöður skoðanakönn- Ef aðeins eru teknir þeir sem tóku afstöðu unarinnar urðu þessar: verða niðurstöðurnar þessar: Óðkveðnlr 2% Svaraekkl Niðurstöður skoðanakönnunarinnar urðu þessar (í %): sept. des. febr. apr. júní sept. nóv. jan. mars júní sept. des. mars júní ág. nú Fylgjandi 33,8 38,2 30,5 34,7 34,7 35,3 30,8 22,3 28,7 , 29,5 25,5 29,7 30,8 36,8 36,8 34 Andvígir 47,0 44,6 55,7 53,8 50,3 53,2 55,7 63,0 57,2 56,5 60,2 57,0 54,7 49,5 46,2 53,0 Óákveðnir 17,0 12,7 11,1 10,2 12,7 11,2 11,2 12,7 12,2 10,5 12,2 10,3 12,7 11,7 14,7 11,0 Svara ekki 2,2 1,8 2,7 1,3 2,3 0,3 2,3 2,0 2,0 3,5 2,2 3,0 1,8 2,0 2,3 2,0 Ef aðeins eru teknir þeir sem tóku afstöðu verða niðurstöðurnar þessar (í %): sept. des. febr. apr. júní sept. nóv. jan. mars júní sept. des. mars júní ág. nú Fylgjandi 41,9 44,6 35,4 39,2 40,8 39,9 35,6 26,2 33,4 34,3 29,8 34,2 36,1 42,7 44,4 39,1 Andvigir 58,1 55,4 64,6 60,8 59,2 60,1 64,4 73,8 66,6 65,7 70,2 65,8 63,9 57,3 55,6 60,9 Kosningar á Hólmavík; Óbreytt frá í vor Niöurstaöa sveitarstjómarkosn- kjöma, H-listi almennra borgara inganna á Hólmavík um helgina er hlaut 79 atkvæöi og 1 mann kjörinn nánast sú sama og í vor. Kjörsókn og N-listi nýs framboðs sjálfstæðis- var svipuö eða um 87 prósent. manna og óháðra hlaut 74 atkvæði L-listi framíaraslnnaðra borgara og 1 mann kjörinn. hlaut 140 atkvæði og 3 menn Árskógsströnd: Ávísanafalsarar teknir Lögreglan á Dalvík handtók á fóstudagskvöldið þrjá menn á Ár- skógsströnd, en mennirnir voru eft- irlýstir vegna ávísanafals sem þeir höiðu stundað víða um Norðurland. Tveir mannanna eru Hafnfirðingar og einn ísfirðingur. Saman höfðu þeir ferðast um Norðurland undan- farna daga og gefið út falsaðar ávís- anir og er talið að á þann hátt hafi þeir komist yfir talsvert á annað hundrað þúsund krónur. Mennirnir voru færðir í fanga- geymslu á Akureyri og til yfirheyrslu þar á laugardag. Umntælifólks íkönminmni „Ég var ekki fylgjandi Davíð eftir að ríkissljómin var mynduð en hann er vaxandi stjórnmála- maöur og mér líst alveg ágætlega á hann,“ sagði karl í Reykjavik. „Daviö er ansi seigur,“ sagði karl á Vestfjörðum. „Sjálfstæðis- mennirnir í ríkisstjórninni eru voöalega slappir," sagöi kona á Suðurnesjum en önnur sagði: „Ég er á móti öllum ríkisstjómum enda em þær hver annarri verri.“ Þessi rikisstjóm er búin að gera marga góða hluti," sagði kona á Norðurlandi. „Ríkis- stjórnin ætti að segja af sér og það strax,“ sagði kona á Austur- landi. „Éger sjálfstæðismaöuren mér finnst Davíð hálfgerð skræfa og þaö er ekki gott fyrir neina ríkisstjóm að hafa slíkan fcrsæt- isráðherra," sagði karl í Reykja- vik. „Mér fmnst ríkisstjómin hafa unniö á og mér líst ekki illa á að hafa hana önnur ijögur ár,“ sagðí karl á Suðurnesjum. „Þetta er slæm rikisstjórn og á aö fara frá,“ sagði kona á NorðurlandL „Ég er atvinnulaus og mér finnst ríkisstjómin ekki vinna fyrir mig,“ sagði konaí Reykjavík. „Er nokkuð hægt að fá betri ríkis- stjórn við þessar aðstæður,“ sagði karl á Vestfjörðum. „Þessi ríkisstjóm er ekki ríkisstjórn vinnandi fólks. Meöan hlaðið er undir þá ríku verða hínir fátæk- ari alltaf fátækari,“ sgði kona á Norðurlandi. Fylgi ríkisstjórnarinnar — frá maí '91 til sept. '94 — 80 Í----- Andvíglr Fylgjandi Maí '91 Okt. '94 SkoðanakönraHi DV í dag mælir Dagfari____________________ Þjóðhetjan í Hafnarfirði Hafnfirskir kratar hittust á fundi í síðustu viku. Þegar Guðmundur Árni birtist bmtust út gífurleg fagnaðarlæti. Ráðherrann var hylltur sem þjóðhetja. Gamlir kratar táruðust og fundarmenn risu úr sætum og fögnuðu sínum manni með langvinnu lófataki. Það sama gerðist á flokksstjórn- arfundi Alþýðuflokksins um helg- ina. Þar sameinuöust flokksmenn undir merkjum siðbótarinnar og er ekki annað að skilja af sam- þykktum fundarins en frammi- staða Guðmundar Áma hafi hmndið af stað atburðarás og hreinsunareldi sem Alþýðuflokk- urinn muni hafa forystu fyrir. Þannig hafa verk Guðmundar Árna markað tímamót í siðferðis- málum stjórnmálanna. Guðmundar Áma mun lengi verða minnst sem frumkvöðuls í endurhæfingu og siðvæðingu í op- inbemm embættisfærslum. Hann er maðurinn sem tók af skarið og sagði hingað og ekki lengra. Það er Guðmundur Ámi sem steig fyrsta skrefið og hafði kjark til að stööva þann ósóma sem viðgengist hefur. Fyrir það á hann skilið hrós og þakklæti enda bendir flest til þess að Guömundur Ámi Stefáns- son sé með vinsælli og áhrifameiri stjórnmálamönnum samtímans eftir atburöi síðustu vikna. Þetta hefur ekki gengið þrauta- laust fyrir sig. Ráöherrann hefur mátt þola margar andvökunæturn- ar og eiginkona Guðmundar segir að hann hafi ekki matast síðustu dægrin og gífurlegt álag hefur bitn- aö á honum. En hvað gera ekki hetjur og hugsjónamenn? Guð- mundur Arni hefur lagt á sig æði mörg embættisverkin til að ná hylli kjósenda og berjast fyrir siðvæð- ingunni. Guðmundur Árni hefur þurft að ráða mág sinn í tólf launaðar nefndir til að sýna fram á hvað það er rangt að ráða mága sína i störf. Hann gerði meira. Hann útvegaði frænkum sínum og frændum bæði íbúðir og ýmiss konar störf til að draga það fram í dagsljósiö hversu varasamt það er þegar stjórnmál- menn eru að gera nákomnum venslamönnum sínum greiða. Guömundur Ámi réð upplýs- ingafulltrúa í ráöuneytiö á rífleg- um ráöherralaunum og hann réð yfirtryggingalækni til starfa hjá Tryggingastofnun eftir að sá síðar- nefndi varð uppvís að stórfelldum skattsvikum og hvorutveggja gerði Guðmundur til að geta viðurkennt mistök sín við þessar ráðningar og leiða þannig opinberlega í ljós hversu mikil mistök ráðherrar geti gert. Ekki vegna þess að Guðmund- ur Árni hafi að yfirlögðu ráði viljað hygla þessum mönnum heldur til að geta að yfirlögðu ráði sýnt fram á að ráðherrar geta gert mistök án þess að þau mistök séu mistök, nema vegna þess að fólkið vill endi- lega túlka slíkar ráöningar sem mistök. Meö þessum hætti hefur Guð- mundur Árni dregið fram í dags- ljósið að ráðherrar eru mannlegir og allt orkar tvímælis þá gert er og með þessu er Guðmundur Ámi ekki að gera mistök eða játa á sig mistök, heldur er þetta gert til að vara aðra við aö gera slík mistök. Hann hefur beint kastljósinu vilj- andi að slíkum mistökum til að þau gerist ekki aftur. Guðmundur Ámi ákvað líka að reka Hafnarfjarðarbæ með tapi, til að sýna fram á að hafnfirksir kratar vilja frekar reka bæinn með tapi og gera ýmislegt gott fyrir Hafnfirðinga fremur en að reka bæinn með hagnaði og gera ekki neitt. Þetta sýnir manngæsku Guð- mundar og þess vegna er hann hylltur sem hetja þegar hann sést á almannafæri meðal kratanna í Hafnarfiröi. Ef mál Guömundar Árna er skoð- að í samhengi má öllum vera ljóst að þessar embættisfærslur Guð- mundar og meintar ávirðingar hans em einmitt það sem fólkiö vill og kjósendur kunna að meta. Þetta er leiðin að hjarta og atkvæð- um fjöldans. Þannig verða menn vinsæhr og sterkir í pólitíkinni og vei þeim stjórnmálamönnum sem hafa ekki kjark til að brjóta af sér og ráða mága sína og játa á sig mistök vegna þess að slíkir stjórn- málamenn eiga ekki upp á pall- borðið og verða aldrei hetjur eins og Guðmundur Árni. Siðvæðing Alþýðuflokksisn er hafin. Hún hófst með aðgerðum Guömundar Árna í bæjarstjóra- stólnum og hélt áfram í ráðuneyt- inu. Þessi maður er sönn hetja. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.