Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1994, Blaðsíða 9
MÁNUDAGUR 3. OKTÓBER 1994
9
Utlönd
DV
&óhGmGsJza(íu>i
JImh, cvdeqi kókamankcuhvi, /l<JMuhutncvi eA, kafjUm
á kákalbfjtmu, iJía^iaMbœtl 4.
MikilL IjöldU eJanJ/ia ióka, alLan á /00 k/i.
ALlaft, íbL. kœku/i á / 00-200 kn>.
^uqþúAuHdiA, td. oq, ehL&idria Ltóka ÚA, ölUtm
(pieuuuu, óJeáblbleapa, oa Uœía,.
50% afáióMu^i
á öilum Lókunt, í ue/iAluHÍHHÍ þá /0 daqa,
bem mankatíusiúui ótencLai.
Vwta/tit otj, iit/iaSiA, piá 'áLUun twuun.
&óhci4JG/U$CUt
HœkuA, á öLLun oLJaí - JLaptaMbœtl 4 - óimi 29720
ALLIR
FINNA
EITTHVAÐ!
heim til Fergie
„Eins og aðra
stáka hér um
borð langar ;
mig oft til að :
geta fariö heim til konu og \
barna í fríum,“ K~"' :
segir Andrés 0 w
viö breska blaöið Indipendent.
Hann viðurkennir þar í fyrsta
sinn opinberlega að hann sakni
konu sinnar, Söru Ferguson. Þau
eru skilin aö borði og sæng og
væntanlega veröur gengið frá
lögskilnaði fyrir áramót.
Sagt er að Sara vilji lika taka
saman við Andrés en Elísabet
drottning og Filiþus maður henn-
ar geta ekki hugsað sér að taka
við bersyndugn tengdadóttur.
NýtainnyfSiiiúr
myrfum dreng
Ákveðið hefur verið að nýta
hjarta og lifur úr sjö ára gömlum
dreng sem myrtur var á Ítalíu.
Dengurinn var skotinn afókunn-
um byssumönnum þar sem hann
var á ferð með foreldrum sínum.
Læknum tókst að halda i honum
lífl í nokkra daga en urðu að lok-
um að játa sig sigraða.
Foreldrar drengsins féllust á að
liffæri hans yrðu nýtt til að bjarga
lifi tveggja ítala. Fjórtán ára
drengur fær hjartað og 19 ára
stúlka lifrina.
Rændidúfum
ogkrafðist
lausnargjalds
Taívanski leigubilstjórinn
Chen Yung-chen á yflr höfði sér
fangavist fyrir að ræna bréfdúf-
um og krefjast lausnargjalds fyrir
fuglana. Hann tók jafnvirði tvö
þúsund íslenskra króna fyrir að
sleppa hverri dúfu.
Vinsælt er að veðja á dúfur á
Taívan. Leigubílstjórinn reyndi
að auka sigurlíkur sínar í dúfna-
lottóinu með því að fanga þær
dúfur sem hann veðjaði ekki á
auk þess sem hann fékk lausnar-
gjald íyrir þær. Einn dúfueigandi
hafði keypt dúfu simii tíu sinnum
frelsi.
Saksóknari
stelursenunni
af Simpson
„Eg er alveg í
rusli. Ég get
ekki einu sinni
farið út í búð,
segir Marcia
Clark, sak-
sóknari í máli
ruðningshetj-
unnar og leik-
arans O.J. Simpson. Hún hefur
nú stolið senunni af sakborn-
ingnum og er lent í klónum á
fréttaþyrstum almetmingi.
Nú vita allir sem vilja vita að
hún hljóp frá fyrri manni sínum
fyrir nokkurm árum og er nú að
skilja viö síðari manninn. Sá mun
vera ofsatrúarmaöur og hrútleið-
inlegur.
Læknum þykir undarlegt hve mörg böm og gamalmenni létust í ferjuslysinu
Aðeins ungt fólk og
hraust lifði slysið af
- myndir af flakinu sýna aö það hefur brotnaö og stafnhlerinn er farinn af
„Það er svo undarlegt að við höfum
aðeins fengið ungt fólk til meðferðar.
Svo virðist sem öll böm og gamal-
menni hafl farist," segir Stefan Tön-
gren, læknir í Stokkhólmi. Hann hef-
ur annast marga þeirra sem komust
lífs af úr ferjuslysinu mikla á Eystra-
saiti í fyrri viku. Töngren segir að
flestir þeirra sem komust af hafi ver-
ið á aldrinum milli tvítugs og fertugs.
Frásögn læknisins kemur heim og
saman við reynslusögur þeirra sem
komust af úr slysinu. Fólkið var að
velkjast í björgunarbátum alla nótt-
ina eftir að ferjan sökk og á þeim tíma
létust bömin og gamalmennin.
í gær tókst að senda dvergkafbát
niður að flaki ferjunnar. Myndirnar
hafa ekki verið birtar opinberlega en
rannsóknarmenn segja að þær sýni
að stafnhlerinn hafi farið af ferjunni.
Allar athuganir á orsökum slyssins
benda til að sjór hafi komist inn á
Myndavélar voru sendar niður að flaki ferjunnar í gær. Þær sýna að stafn-
hlerinn er af. Simamynd Reuter
bílaþilfarið og ferjunni hvolft af þeim
sökum. Ekki er þó enn vitað með
vissu af hverju stafnhlerinn gaf sig.
Um helgina hafa stafnhlerar á öll-
um norrænum ferjum verið rann-
sakaðir. í flestum tUvikum hafa þeir
reynst í lagi. Ein ferja var þó stöðvuð
um tíma meðan verið var að bæta
úr smávægilegum ágalla á hlera.
í gær voru minningarguðsþjón-
ustur í fiölmörgum kirkjum á Norð-
urlöndunum og í Eistlandi. í Stokk-
hólmi voru konungshjónin í dóm-
kirkjunni og báðust fyrir. i Noregi
hélt Gro Harlem Brundtland forsæt-
isráðherra ræðu og vitnaði í skáldið
Nordahl Grieg.
„Við erum svo fá,“ sagði Gro og
minnti á að nánast hver einasti mað-
úr á Norðurlöndum hefði í það
minnsta þekkt af afspurn einhvern
þeirra sem lét lífið í slysinu.
FNB, TT og NTB
Klámdrottningin Moana Pozzi.
Moana Pozzi:
Dójafngömul
og Jesús
„Hún dó jafngömul og Jesús ef
marka má skirf Ágústínusar kirkju-
föður,“ segir í minnigargrein ítalska
stórblaðins L’Espresso um klám-
drottninguna Moönu Pozzi. Hún er
nú látin úr krabbameini 33 ára göm-
ul. Moana var lagskona Cicciolinu í
ítölskum stjórnmálum og oft í fram-
boði fyrir Astarflokkinn.
Jafnvel kirkjunnar menn hafa far-
ið fögrum orðum um hana látna.
„Látum líf hennar minna okkur á að
guð fyrirgefur öUum,“ sagði erki-
biskupinn af Napólí. Sjálf sagði Mo-
ana aö „maðurinn heföi líka verið
skapaður vegna kynlífsins." Það
þótti trúmönnum óþörf athugasemd.
L