Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1994, Qupperneq 7
MÁNUDAGUR 3. OKTÓBER 1994
7
x>v
Húsaleigubætur:
Fréttir
BIFREIÐASTILLINGAR
BÍLDSHÖFÐA 20 - 112 REYKJAVÍK - SÍMI 91-871199
Sauðárkróksbær
greiðir bæturnar
Bæjarstjórn Sauöárkróks hefur myndir sem Samband íslenskra úttekt á því. Okkur sýnist aö þetta
ákveðiö að greiöa húscdeigubætur
samkvæmt nýrri reglugerð félags-
málaráðuneytisins.
„Við tókum ákvörðun um að greiða
þessar bætur frá næstu áramótum.
Engu að síöur styðjum við þær hug-
sveitarfélaga hefur sett fram þess
efnis að lögin um bæturnar verði
endurskoðuð. Við höfum reynt að
gera okkur grein fyrir því hvað þetta
muni kosta Sauðárkróksbæ þótt það
hafi ekki farið fram nein fullkomin
muni kosta okkur um 2,5 milljónir
króna á ári,“ segir Jónas Snæbjörns-
son, forseti bæjarstjórnar Sauðár-
króks.
NICOLAI
Faxafeni 12, sími 882455
VÉLASTILUNG 4.800 kr.
Akureyrarbær og húsaleigubætumar:
Veruleg tortryggni
í garð ríkisvaldsins
„I mínum huga er þetta hið
versta mál. Ekki það að aðstoða eigi
láglaunafólk sem þarf að leigja hús-
næði, heldur það hvernig þetta er
lagt upp. Á sama tíma og veriö er að
einfalda samskipti ríkis og sveitarfé-
laga er verið að koma á flóknu og
kostnaðarsömu endurgreiðslukerfi,"
segir Jakob Björnsson, bæjarstjóri á
Akureyri, um reglugerð félagsmála-
ráðuneytisins um húsaleigubætur.
Endanleg ákvörðun um það hvort
Akureyrarbær mun greiða bæturnar
hefur ekki verið tekin og verður það
skoðað áfram eftir að ráðuneytið
framlengdi frest þann sem sveitarfé-
lögin hafa tii að taka ákvörðun. Jak-
ob Björnsson segir það sína persónu-
lega skoðun aö hann vilji ekki verk-
efni af þessu tagi. „Úrbætur í þessum
málaflokki eiga að fara inn í skatta-
kerfið og það er illa að þessu staðiö.
Einnig gætir verulegrar tortryggni
gagnvart ríkisvaldinu um alla fram-
kvæmd þessa máls,“ segir Jakob.
3ja sæta sófi teg.3413/18 kr. 74.190,- 2ja sæta sófi teg.3411/18 kr. 68.390,-
Winger hægindastóll frá kr. 37.190,- Mismunandi áklæði.
Vantage Oak borðstofa með 2 armstólum, 4 stólum, skáp með
glerhurðum og skenk kr. 210.650,-
- Mesfa úrval landsins af amerískum húsgögnum
Staðgreiðsluafsláttur eða
góð greiðslukjör
Allt er þegar þrennt er
segir í máitækinu og það á svo sannarlega við
um amerísku húsgögnin sem Húsgagnahöllin
er einkasöluhafi fyrir hér á landi. Þvi það eru
helst þrjú atriði sem eru mest áberandi með
þessi amerísku húsgögn og það er hvað þau eru:
FALLEG - VÖNDUÐ & ÞÆGILEG
Húsavíkurbær greiðir ekki húsaleigubætur:
Mótmælum þeim óskapn-
aði sem þetta kerfi er
- segir Einar Njálsson bæjarstjóri
„Það sem fyrst og fremst veldur
afstöðu bæjarstjórnar Húsavíkur í
þessu máli er að mótmæla því að
þetta kerfi, sem ætlað er að taka upp
til greiðslu húsaleigubótanna, er afar
kostnaðarsamt og óskiivirkt," segir
Einar Njálsson, bæjarstjóri á Húsa-
vík, en bæjarstjórn Húsavíkur hefur
samþykkt samhljóða að taka ekki
upp greiðslu húsaleigubóta.
Einar segir að í sjálfu sér geri menn
sér grein fyrir þeirri þörf að jafna
húsaleigukostnað þeirra sem búa í
leiguhúsnæði á sama hátt og hús-
næöiskostnaður þeirra sem búa í eig-
in húsnæði er jafnaður með vaxta-
bótum. „En við teljum hins vegar að
þessar húsaleigubætur eigi að taka í
gegnum skattakerfið á nákvæmlega
sama hátt og vaxtabætumar því þar
er til kerfi til að framkvæma þetta.“
Um það hvort þessi afstaða bæjai'-
stjómarinnar bitnaöi ekki á þeim
sem síst skyldi sagöi Einar að það
mætti segja það aö sumu leyti. „Bær-
inn á nokkuð af íbúðum og fólk sem
býr í þeim fær niðurgreidda leigu og
það verður óbreytt. En það er líka
'athyglisvert að samkvæmt þessu
nýja kerfi fær fólk sem býr í hús-
næði í eigu ríkis og sveitarfélaga
engar húsaleigubætur. Lögin bitna
að því leyti líka á þeim sem síst
skyldi."
Samkvæmt nýju lögunum er sveit-
arfélögunum gert að annast fram-
kvæmdina en ríkið greiði síðan 60%
upphæðanna. „Andi laganna er í
sjálfu sér góður en ef enginn hreyfir
mótmælum og vekur athygli á því
hvílíkur óskapnaður er þarna á ferð-
inni í þessum lögum þá kalla menn
yfir sig óskilvirkt og kostnaöarsamt
kerfi sem til lengri tima htið verður
leigjendum ekki til góðs. Menn verða
að mótmæla og krefjast þess að kerf-
ið verði lagfært," segir Einar Njáls-
son.
Heimdallur:
Þórður f ormaður
Aðalfundur Heimdallar, félags
ungra sjálfstæðismanna í Reykja-
vík, var haldinp sl. fóstudagskvöld.
Þorsteinn Davíðsson, sonur forsæt-
isróðherra, lét þar af embætti form-
anns félagsins. Var Þórður Þórar-
insson, sem verið hefur varaform-
aður, kjörinn í hans stað. Engin
mótframboð komu fram.
I miklu úrvali
Perur, Ijós, lampar, heimilistæki,
dyrasímar og loftnet
Raflagnaverslunin
RAFSÓL
Löggiltur rafverktaki
Skipholti 33, sími 35600