Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1994, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1994, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 1994 Fréttir______________________________________^ Blóðug átök fyrir utan heimili Halims Als í Istanbul í gærkvöld: Halim réðst á blaðamann DVogókbfl aðhonum - tók myndavélina og reyndi að seilast eftir vopni við mjöðm 1 átökunum Óttar Sveinsson, DV, Istanbul: Halim A1 réðst að blaðamanni DV fyrir utan heimili hans í Istanbul í gærkvöldi, vopnaður skammbyssu að því er talið er, með svívirðingum og gauragangi og reif af honum myndavél eftir talsverð átök. Sá sem þetta skrifar varð fyrir minniháttar meiðslum en á meðan mestu átökun- um stóð sat Sophia Hansen í leigubíl um tvo metra frá. Málavextir voru þeir að nokkrum klukkustundum fyrir árásina hafði ætlun blaðamanns verið að hitta Halim með lögmanni sínum á hóteli í hverfl heittrúaðra í borginni. Sop- hia hafði fullan hug á að hitta Halim með blaðamanni til að ræða málin á „hlautlausum stað“ en Hasip Kaplan, lögmanni hennar, leist ekki á ráða- gjörðirnar vegna fundarstaðarins. Var því ákveðið að hætta við fundinn á hótelinu. Þegar reynt var að koma boðum til Halims og lögmannsins um breytta áætlun náðist ekki samband við þá þar sem þeir biðu á hótelinu. Þrátt fyrir að þeir biðu þar sagði símastúlka að þeir væru ekki á staðnum. Þegar líða tók að kvöldi fór blaða- maður með Sophiu í leigubíl að heim- ili Halims. Myndir voru teknar af henni við útidyr og síðan úti á götu fyrir framan húsið sem stendur við mjög þrönga götu. Þegar því var lok- ið gekk Soplúa að leigubílnum en blaðamaður gekk að tröppunum, var að setja myndavélina í tösku sína og hugðist hringja dyrabjöllunni til að ræða við Halim. Þegar Sophia var að setjast inn í leigubílinn um 20 metra frá var annar bíll kominn að húsinu þar sem blaðamaður stóð. Halim á vettvang „Hvað ert þú að gera þarna?" heyrðist kallað. „Hvað ert þú að gera þama?“ Þegar blaðamaður sneri sér við sá hann Hahm A1 koma á bíl sínum. Hann hafði skrúfað niður rúðuna farþegamegin. Blaðamaður gekk í áttina að leigu- bílnum til aö gera Sophiu viðvart en ræddi við Halim þegar hann bakkaði bíl sínum og skýrði honum frá at- burðarás dagsins. Þegar blaðamaöur kom að leigubílnum var skrúfaö nið- ur hjá Sophiu en í þeim svifum kom Halim á sínum bíl. „Ég skal segja þér að þetta er alveg bannað. Það má ekki taka myndir héma á götunni. Þú skalt koma þér í burtu frá húsinu," öskraði Hahm. Að því loknu jós hann svíviröingum yfir Sophiu, á íslensku um hana við blaöamann og á tyrknesku við Sop- hiu sjálfa. Rúmur einn metri var á mhli þeirra þar sem þau sátu sitt í hvorum bílnum við þrönga götuna. í þann mund sem Halim öskraði að Sophiu tók blaðamaður eina mynd af honum þar sem lá við að svívirð- ingarnar dyndu á henni með neista- flugi og drápsaugnaráði. „Hvað ert þú að gera?“ öskraði Halim og reif í myndavéhna og náði henni með því að teygja sig út um bhgluggann og grípa snöggt í hana. Blaðamaður fylgdi á eftir og hélt í óhna á vél- inni. Urðu nú mikil átök þar sem togast var hraustlega á. Hahm sat í bílnum og hélt báðum höndum um véhna á meðan blaðamaður hélt dauöahaldi í óhna. Átökin stóðu yflr í nokkra stund og hvorugur gaf sig. Á meðan var Hahm sífeht að reyna að seilast eftir einhverju við hægri mjöðm sína. Hann gat það ekki því hann þurfti að hafa báðar hendur á véhnni tU að geta haldið henni í átökunum. „Ég ætla að drepa þig“ Þegar Hahm horfðist í augu við Sophiu stuttu áður öskraði hann tíl hennar á tyrknesku: „Ég ætla að drepa þig og ganga frá þér. Ég ríf af þér aht hárið og tek svo af þér höfuðið. Um þetta sagði Sop- hia: „Ég er viss um að hann var að teygja sig eftir byssunni í hólknum á mjöðminni um leið og hann var að berjast við þig. Hann var svo stjórn- laus að hann hefði skotið á okkur ef hann hefði náð því. Maðurinn var viti sínu fjær þegar hann hélt í myndavélina. Hann sagði við mig á tyrknesku að hann ætlaði að fara út úr bUnum. Hann gleymdi sér við að reyna að ná byssunni þegar hann var að berjast við þig til að ná myndavél- inni og filmunni úr henni. Ég er mjög hissa á hvað hann var bijálaður. Hann átti engan rétt á að banna myndatöku fyrir utan húsið sitt á almannafæri - shkt hefur oft verið gert áður. Ég skh ekki hvers vegna hann leit þetta alvarlegri augum en áður. Hann er greinUega orðinn mjög taugastrekktur yfir því að dagsetn- ing er komin á réttarhöldin og öUum hennsóknum mínum með lögreglu á heimih hans að undanfómu. Hann sér að það er boröleggjandi að ég er búin að vinna þetta mál lagalega séð. Ég skU ekki hvað varð tU þess að ég hreyfði mig ekki út úr bílnum til að hjálpa þér - það er senrúlega okkar guös lán að ég skyldi ekki hafa gert það. Annars hefði hann gripið til byssunnar. Venjulega get ég verið fljót upp en þama fraus ég algjörlega inni í leigubílnum. Svívirðingamar sem hann æpti tU mín eru ekki haf- andi eftir,“ sagði Sophia Hansen. Reyndi að aka á blaðamann Eftir veruleg átök á götunni þar sem Halim sat í bUnum og blaðamað- ur hálfhékk á ólinni bakkaði Tyrkinn í burtu og sá fyrmefndi fylgdi á eft- ir. Úr þessu var skynsamlegast að sleppa ólinni tíl að komast hjá ófyrir- sjáanlegum atburðum. Halim bakk- aði yfir gatnamót þar sem blaðamað- ur stóð eftir og setti svo í fyrsta gír og ók rakleiðis á fuUri ferð að undir- rituðum sem stökk undan. Hahm beygði síðan fll hægri og ók í burtu - með myndavélina. Blaðamaður, sem hafði rispast og skrámast á báð- um höndum og fengið högg á kinn- bein, hraðaði sér síðan inn í leigubfl til Sophiu og var bUnum strax ekið á brott. „Hasip Kaplan, lögmaöur minn, sagði við mig eftir þennan atburð í gærkvöld að hann gæti vel ímyndað sér að Halim reyni að skjóta mig við réttarhöldin sem hafa verið ákveðin þann tíunda nóvember,“ sagði Sop- hia. „En ég hræðist ekkert. Ég er orðin dofin fyrir öhum hótunum. Ég vU ekki beygja mig og tek því sem kem- ur. Börnin mín eru það sem ég lifi fyrir,“ sagði Sophia Hansen. Stuttar fréttir Háaldraðar kúskeljar Kúskeljar í hafinu við ísland eru aht að 200 ára gamlar. Líkur eru á aö nýliðun í stofninum sé hæg og þvi þurfi að fara varlega í veiðar á þessum skeldýrum. Sjónvarpiö greindi frá þessu. Skattayfirvöld hafa gert Þró- unnarsamvinnustofnun Íslands að borga starfsmönnum sínum erlendis staðaruppbót vegna veru erlendis undanfarin tvö ár. í íjáraukafrumvarpi eru 7,5 núllj- ónir áætlaðar tíl þessa. íhuga veritfall Kaupmáttur launa hjá launþeg- um innan ASÍ hefur rýrnað um 1,3 prósent á einu ári. Samkvæmt Sjónvarpinu ákváðu sjúkrahðar í gær að greiða atkvæði um hvort boða eigi tU verkfaUs. Verðbæturtilbænda Fjármálaráðherra hefur farið fram á það við Alþingi að fá 17 miUjónir tíl að verðbæta bem- greiðslur tU kúabænda. Ávísunáójöfnuð Fjárlagafrumvarpið er ávísun á enn frekara kjaramisrétti og ójöfnuð í þjóðfélaginu. Sjónvarp- iö segir þetta samdóma álit helstu forystumanna Iaunþega, þeirra Ögniundar Jónassonar, Bene- dikts Davíðssonar og Páls Hall- dórssonar. Nýttumsýslugjald Nýtt umsýslugjald verður inn- heimt með brunatryggingmn fasteigna frá áramótum. Mbl. seg- ir gjaldið skUa Fasteignamati rík- isins 35 miþjónum króna. Milljónatjón í flóðum á Siglufirði: Líklegt að brjóta þurf i upp nokkrar götur - Vatn, aur og grjót þeyttist yfir suðurhluta bæjarins . „Við sjáum ekki núna hversu mik- ið tjónið er, það fer eftir ýmsu eins og t.d. því hvernig gengur aö hreinsa holræsakerfið. Því miður htur það ekki vel út og allt bendir til að bijóta þurfi upp götu eða götur tíl að kom- ast að stíflum í holræsunum. Tjónið er því mikið," sagði Björn Valdimars- son, bæjarstjóri á Siglufirði, í gær- kvöldi um mikið tjón sem varð í suð- urhluta bæjarins í fyrrinótt. Miklar rigningar að undanfórnu gerðu það að verkum að aurskriður fóru að stað í fjalhnu ofan bæjarins í fyrrinótt. íbúar í syðstu húsunum við Laugarveg urðu varir við vatn í kjöUurum húsa sinna og tilkynntu það til Guðna Sölvasonar bæjarverk- fræðings. Guðni segir að þegar hann og bæjarstarfsmenn komu á vett- vang um klukkan hálffimm hafi mik- ið gengið á í fjallinu, miklar drunur heyrst og vatnið steypst niður fjallið. Guðni segir að aurskriðumar hafi nánast sprengt upp farveg Hafnar- lækjarins sem aha jafna er mjög lít- ill ofan bæjarins. Vatnið í farvegi lækjarins var þó mjög mikið með 111- heyrandi grjót-, aur- og malarburði, og stíflaði stokk sem lækurinn fellur í síðustu 500 metrana til sjávar. Vatn- ið flæddi því á mörgum stöðum yfir lóðir efstu húsanna í suðurbænum, inn í kjahara þriggja húsa, holræsa- kerfið stíflaðist strax og vatnið flæddi um göturnar," að sögn Guðna bæjarverkstjóra. , Að sögn Björns Valdimarssonar bæjarstjóra varð ekki mikið tjón í kjöllurunum þremur sem vatn komst í. Hins vegar varð talsvert tjón á fiskvinnsluhúsi niðri við Hafnar- veg eftir aö hár bakki gaf sig undan vatnsflaumnum og féh á húsið. Öflug bifreið útbúin þrýstibúnaði kom til Siglufjarðar í gær og var unnið látlaust í gærkvöld og til stóð að vinna fram á nótt. Um kvöldmat- arleytið í gær var aht fast í holræsinu undir Laugarveginum og því líkleg- ast að brjóta þurfi upp götuna. Slíkt getur þurft að gera í Suðurgötu einn- ig og að öllum líkindum á löngum kafla við höfnina. Guðjón lokar á Guðjón Magnússon, skrifstofu- stjóri í 'heílbrigðis- og trygginga- bladamenn DV fyrir hann 1 heild og honum boðið að gera athugasemdir viö efnisatr- ráðuneytinu, neitaði aö tala við blaðamenn DV í gær þegar leitað iði þeirra. Ritari Guðjóns svaraði skhaboð- yy t av r uvlU sem voru í vinnslu hjá blaðinu. Viðbrögð Guðjóns velga undrun vikinu fengust þau svör að Guðjón talaði ekki við umræddan blaða- þar sem fréttir þær sem DV birti vegna launamála hans voru lesnar mann en í hinu tilvikinu að hann yröi ekkí við þann daginn. Einu Siglfirðingarnir sem fögnuöu flóðunum þar í bænum voru bömin s< notfærðu sér óspart að leika sér í lækjunum sem mynduðust og steypti niður yfir lóðirnar i suðurhluta bæjarins. DV-mynd

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.