Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1994, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1994, Blaðsíða 28
36 FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 1994 Brynjar Harðarson. í forsvari til að svala valdafíkn íþróttahreyfingin er öll á villi- götum, rekstrarkostnaöur henn- ar er allt of hár og hvert ár er tekið fyrir í einu og engu skeytt um framtíðina. Enda er algengt að menn séu í forsvari fyrir félög- in til að svala einhverri persónu- Ummæli legri valdafikn og um leið og þeir þurfa að standa fyrir máh sínu hverfa þeir úr stjóm," segir Brynjar Harðarson í Morgun- póstinum. Hræðilegir áhorfendur „Áhorfendur voru hræðilegir. Maður var hálfhræddur við að koma inn á leikvanginn í upphit- uninni. Eyjólfur var búinn að vara okkur við að hlaupa beint inn á miðjan völlinn til að fá ekki flöskur 1 höfuðið,“ segir Rúnar Kristinsson í DV. Með samanklemmdar varir „Þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég tek eftir því að afrekslið ann- arra þjóða taki undir þegar þjóð- söngurinn þeirra er leikinn og þetta er heldur ekki í fyrsta sinn sem ég tek eftir samanbitnum svip íslenskra leikmanna," skrif- ar Leo Löve í Tímann. Félagslegir og til- finningalegir örðugleikar grunnskólabama Félag íslenskra sérkennara stendur fyrir ráöstefhu á morgun sem ber yfirskriflina Félags- og tilfinningalegir örðugleikar ; grunnskólabarna. Aðalfyrirles- . arar ráðstefnunnar er Terje Odg- Fundir en, og nefnist erindi hans Góður skóli-líkafyrirhöm. Ráðstefnan er í Súlnasal Hótel Sögu og hefst kl. 9.00. Útbreiðsla kristiiegs boöskapar John Bramström frá Gautaborg verður með námskeið í kvöld um það hvernig við getum á áhrifa- rlkari hátt útbreitt kristilegan boðskap. Námskeiðið stendur yf- ir frá kl. 20.00-23.00 og kostar kr. 900. Er það haldið í húsnæði Orös lífsins að Grensásvegi 8 og eru allir veikomnir. umhverfissíðfræði Siðfræðistofnuh hefurákveðiðað halda kvöldnámskelð um um- hverfissiðfræði sem munu hefj- ast 19. október. Kennt verður á hveijum miðvikudegi í átta vik- ur. Markmiðiö er að veita undir- stöðuþekkingu á helstu keiming- um og viöfangsefnum umhverf- issiðfVæöi. Sagtvar: Fólkinu þykir vænt hvert um annað. Gætuxn tungunnar Rétt væri: Fólkinu þykir vænt hveiju um annaö. Veður fer kólnandi i 3 0 3 3 -1 1 4 8 7 9 10 10 6 8 8 10 15 11 6 14 8 9 í dag verður norðan- og norðaustan átt, víðast kaldi eða stinningskaldi. Um norðanvert landið verða él, en úrkomulaust og öllu bjartara veður sunnaniands. Veður fer kólnandi og verður kaldast á Norðurlandi en hlýj- ast á Suöurlandi. Á höfuðborgar- svæðinu verður norðan- og norðaust- an kaldi. Léttskýjað. Hiti 0 til 3 stig í dag, en vægt frost í nótt. Sólarlag í Reykjavík: 18.12 Sólarupprás á morgun: 8.23 Veðrið í dag Síðdegisflóð í Reykjavík: 15.03 Árdegisflóð á morgun: 03.37 Heimild: Almanak Háskólans Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyrí snjóél Akurnes alskýjað Bergsstaöir úrkoma í grennd Keflavíkurflugvöllur léttskýjað Kirkjubæjarklaustur skýjað Raufarhöfn snjóél Reykjavik léttskýjað Stórhöföi skýjað Bergen rign. á síð. klst. Helsinki léttskýjað Kaupmannahöfn þokumóða Berlin þokumóða Feneyjar léttskýjað Frankfurt léttskýjað Glasgow súldásíð. klst. Hamborg þokumóða London þokumóða Nice heiðskírt Róm heiðskírt Vín skýjaö Washington alskýjað Winnipeg skýjað Þrándheimur rigning Veðrið kl. 6 i morgun „íþróttabandalag Reykjavíkur er nokkurs konar samnefnari íþrótta- félaganna i borginni gagnvart Reykiavikurborg og sér um ýmis verkefni, eins og að úthluta timum í íþróttamannvirki og aö útdeila styrkjum en í gegnum bandalagið fer heilmikið fjármagn. Styrkir Maður dagsins borgarinnar til félaganna, sem eru í formi húsaleigustyrkja og ferða- styrkja, fara í gegnum skrifstofu ÍBR og einnig lottótekjumar," segir Reynir Ragnarsson sem síöasthðið mánudagskvöld var kosinn for- maöur lþróttabandalags Reykja- víkur. Sigraði hann Jón Zoéga í fprmannskösningu en fráfarandi formaður, Ari Guðmundsson, gaf ekkí kost á sér áfram. „Ég er búinn að vera i stjórn ÍBR í sex ár, verið ritari í stjóminni," segir Reynir. „Ég gaf kost á mér í Reynir Ragnarsson. formannsstarfið frekar seint, Áður en kom að kosningu hafði ég veriö búinn að kanna hug manna sem sátu þingið og leita eftir stuöningi 2i ns og gerist og gengur. Reynir sagði aðspurður að styrk- ir frá Reykjavíkurborg til íþróttafé- laganna i Reykjavík væru yfir 200 milljónir og þaö væri því i mörg hom að líta þegar úthlutað er, svo kæmu lottótekjumar ofan á þessa upphæö. Reynir sagöi að margt væri fram undan hjá IBR: „Við munum til að mynda auka útgáfustarfsemi á veg- um bandalagsins með því að gefa út fréttabréf og handbók er í smíð- um, einnig eru fyrirhuguð nám- skeið 1 tengslum við að veriö er að tölvuvæða íþróttahreyfmguna og svo er ætlunin að ná meiri sam- vinnu við íþrótta- ogtómstundaráð borgarinnar, en stundum er eins og við séum að gera sama hlutinn í æskulýösmálum. Reynir Ragnarsson er endur- skoðandi, kvæntur Halldóru Gísla- dóttur kennara og eiga þau þijú börn. Reynir sagði aö áhugamál sín snera flest að íþróttum og útiveru. Myndgátan Skýtur í tvö hom FH leikur í Evr- ópukeppni Stærsti viðburðurinn hér á landi í dag er viðureign FH og Prevent frá Slóvaníu, en þau leika fyrri leik sinn i Evrópu- keppni félagsliða í Kaplakrika í kvöld kl. 20, en báðir lcikirnir verða leiknir hér á landi og fer sá síðari fram á sunnudaginn. FH hefur átt ágætu gengi að fagna í íslandsmótinu það sem af er, en er þó ekki spáð að verði í aðal- salnum um íslandsmeistaratitil- inn, þó möguleikar þeirra séu vissulega fyrir hendi. Hvernig þeim gengur á móti Prevent er spurning, þar sem lítið er vitað um mótheijana, en heimavöllur ætti að geta skipt sköpum. Einn leikur er í úrvalsdeildinni i körfubolta, ÍR leikur gegn Tindastóli. Þá má geta þess að kvennalið ÍBV á að leika gegn franska liðinu Gagny í Frakk- landi í dag. Skák Verkefni lesandans í meðfylgjandi stöðu er dálítið óvenjulegt: Hvemig fer hvítur, sem á leik, að þvi að þvinga svart- an til þess að máta sig í sjötta leik? Þrautin er eftir G. Jordan. Hvítur þarf að tefla „nákvæmt" til þess að tapa tafl- inu í svo fáum leikjum: Fyrsti leikurinn er lykillinn að lausn- inni en hann er ekki auðfundinn: 1. Hhl! Svartur á aldrei nema eitt svar og áfram teflist: 1. - Bh7 2. g8=R + ! Bxg8 3. Bh7 Kxh7 Svartur reynir að tefja mátið eins og kostur er. 4. h6 Kg6 5. h7 Bxh7 6. Hh6+ Kxh6 og loks er hvítur mát. Jón L. Árnason Bridge Bridgefélag Reykjavíkur er langvinsæl- asti spilaklúbbur landsins og siðustu ár hefur oftast verið fullt út úr dyrum þegar keppni er. Síðasta miðvikudag hófst hraðsveitakeppni félagsins og að venju komust færri að en vildu. Aðeins komust 30 sveitir að enda rúmar húsnæðið ekki meiri fjölda með góðu móti. Á fyrsta spilakvöldinu náði sveit Landsbréfa risa- skori, 663 stigum (meðalskor 504) en næsta sveit (Glitnir) skoraði 594 stig. Spil- uð er forgefin spil í þessari keppni og þetta spil frá síðasta miðvikudagskvöldi er áhugavert. Flest pörin í NS enduðu í bút í öðrum hvorum háhtanna eftir opn- un suðurs og dobl vesturs. Einhver pör náðu þó alla leið í úttekt (game) í spaða eöa jafhvel hjarta. Erfitt er að hnekkja fjórum spöðum en sagnhafi verður að vera vel á verði ef austur spilar út ein- spili sínu í hjarta: * D98632 * ÁD1092 * G + 3 * ÁGlO V G864 ♦ K109 + Á102 * K7 t K73 * Á654 + D875 Sagnhafi á fyrsta slaginn heima og sér að ef spaðinn hggur ekki illa (4-1) eru miklar likur á að standa fjóra spaða. Aðalhættan byggist á því að austur fái trompun og vestur fái að auki 2 slagi á tromp. Sagnhafi getur fært sér í nyt þær upplýsingar að vestur sýndi opnunar- styrk með dobh sínu. DobUð gerir það að verkum að liklegt er að spaðaásinn sé í vestur. Eftir hjartaútspU frá austri er því skynsamlegt að spila tigli á ás og lág- um spaða úr blindum. Rjúki vestur upp með ás til að gefa félaga trompun í hjarta fær hann engan slag að auki á spaða. Ef hann gerir það ekki fær austur enga trompun. ísak Örn Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.