Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1994, Qupperneq 10
10
FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 1994
Fréttir
Bamavemdarstofnanir lagðar niður og nýjum komið á fót:
Markvissara og faglegra starf
Ákveðiö hefur verið að leggja niður
Unglingaheimili ríkisins, meðferðar-
heimihð í Sólheimum, móttökudeild-
ina við Efstasund og vímuefnadeild-
ina Tinda á Kjalamesi og stofna í
stað þeirra nýjar ríkisstofnanir,
Barnaverndarstofu ríkisins og Mót-
töku- og meðferðarstöð fyrir ungl-
inga. Á næstu dögum verður lagt
fram á Alþingi frumvarp til laga um
stofnun Barnaverndarstofunnar og
vonast Guðmundur Árni Stefánsson
til þess að frumvarpið hljóti sam-
þykki í haust og að lögin taki gildi
um áramót. Móttöku- og meðferðar-
stöðin tekur til starfa í byrjun nóv-
ember.
„Segja má að Barnaverndarstofa
ríkisins sæki verkefni frá ráðuneyt-
inu, til dæmis eftirlit með barna-
verndarnefndum, og taki að ein-
hverju leyti að sér hlutverk Ungl-
ingaheimÚis ríkisins og hafi eftirht
með meðferð barna og unghnga. Fé-
lagsmálaráðuneytið mun hins vegar
sjá um yfirstjórn málaflokksins. Við
trúum því að breytingarnar verði til
þess að barnaverndarstarfið verði
markvissara og faglegra en áður þeg-
ar einn aðili hefur heildarsýn með
samhæfingu og sérhæfingu og mikih
fjölbreytheiki er í meðferðinni,"
sagði Bragi Guðbrandsson, formaður
nefndar um nýsköpun í barna- og
unglingamálum, á blaðamannafundi
í gær.
Samkvæmt tihögunum er gert ráð
fyrir að sveitarfélögin á höfuðborg-
arsvæðinu taki við göngudeildar-
þjónustu Unghngaheimhisins. Borg-
Auglýsingaþjónusta DV leiðir þig áfram
Þú hringir í síma 99-56-70 og velur eftirfarandi:
11 til þess að svara auglýsingu
^ til þess að hlusta á svar auglýsandans
“J. (ath.! á eingöngu viö um atvinnuauglýsingar)
«ef þú ert auglýsandi og vilt ná f svör
- eða tala inn á skilaboðahólfið þitt
44; í sýnishorn af svari
j til þess að fara til baka, áfram
eöa hætta aögerð
Við vinnum með þér!
Klippið út og geymið!
aukum við
Auglýsingaþjónusta DV opnar þér nýja möguleika
á aö auglýsa og svara smáauglýsingum DV.
Auglýsingaþjónusta DV er sjálfvirk símaþjönusta
sem sparar þér tlma og vinnu.
I beinu sambandi
allan sólarhringinn!
Þegar þú auglýsir í smáauglýsingum DV getur
Auglýsingaþjónusta DV tekiö viö svörum fýrir þig allan
sólarhringinn. Ef þú ert aö svara smáauglýsingum getur þú
tekiö upp símtóliö hvenær sem þér hentar. Allirí stafræna
kerfinu meö tónvalssíma geta nýtt sér þessa þjónustu.
í notkun!
Auglýsingaþjónusta DV er einföld og þægileg. Sem dæmi
er hér atvinnuauglýsing sem birtist í DV:
Söluturn og skyndibitastaður.
Oskum cftir fólki til
framtíðarstarfa \áð afgreiðslu (fullt
starf). Auglvaingaþjónusta DV,
s. 99-56-70, tílvrir. 67994>
Þú svarar auglýsingunni peð því að hringja í síma
99-56-70, slá inn tllvísuna£númer auglýsingar og að því
búnu leggja inn skilaboð. Þá færö þú uppgefið leyninúmer.
• Auglýsandinn getur síðan með einu símtali hlustaö á
svörin, flokkaö þau og gefið sitt svar.
# Þá getur þú hringt aftur, slegið inn leyninúmer
þitt og athugað hvort auglýsandinn hafi svarað þér.
Meiri möguleikar!
Ef auglýsandi vill koma frekari upplýsingum á framfæri um
þá vöru eöa þjónustu sem hann auglýsir í smáauglýsingum
DV getur hann nýtt sér Auglýsingaþjónustu DV enn frekar.
Sem dæmi er auglýsing um bíl sem birtist í DV:
Óska eftir staðgreiðslutilboði i VW
bjtíllu, árg. 71, ekinn 119 þús. km,
þarfnaat lagfæringa, einn eigandi
frá upphafi. Auglýsipgaþjúnusta
DV, s. 99-56-70, tiWraT45678. '
Þú hringir í síma 99-56-70, og slærð inn tilvísunarnúmer
auglýsingar. Þá heyrir þú skilaboöin sem auglýsandinn
hefur lagt inn til viðbótar þeim upplýsingum sem eru í
auglýsingunni sjálfri.
Ef þú vilt fá meiri upplýsingar um
Auglýsingaþjónustu DV getur þú haft samband
viö smáauglýsingadeild DV í síma 91-63-27-00
aryfirvöld hafa ákveðið að taka þátt
1 að koma á fót fjölskylduráðgjöf og
sagðist Bragi gera ráð fyrir að hin
sveitarfélögin gæfu endanlegt svar í
þessum mánuði. Ákveðið hefur verið
að setja 13 milljónir á næsta ári í að
koma slíkri ráðgjöf í gang og verða
fimm milljónir veittar til sveitarfé-
laga á Norðurlandi í sambærilegt
verkefni.
Gert er ráð fyrir að kostnaöur við
húsbyggingu fyrir Móttöku- og með-
ferðarstöðina í Grafarvogi nemi sam-
tals 70 milljónum króna. Samkvæmt
fjárlagafrumvarpinu fara 35 milljón-
ir króna í bygginguna auk þess sem
húseignir í eigu ríkisins verða seld-
ar. Framkvæmdir hefjast strax á
næsta ári og er stefnt að því að húsið
verði tilbúiö næsta haust. Ekki er
gert ráð fyrir því að viðbótarfjár-
magn þurfi að öðru leyti vegna þess-
ara breytinga.
Brimvörn á
Langasandi
Garðar Guöjónsson, DV, Akranesi:
Framkvæmdir við brimvarnargarð
á Langasandi hér á Akranesi hófust
fyrir nokkrum dögum og er gert ráð
fýrir að þeim ljúki fyrir áramót. Nýr
garður verður gerður frá Faxabraut
að íþróttavellinum á Jaðarsbökkum.
Gamla brimvömin á þessu svæði er
að mestu leyti komin ofan í sandinn
og sjórinn hefur höggvið stór skörð
í bakkana.
Grafið á Langasandi.
DV-mynd Garðar
Akranes:
Kaupa f isk
af eriendum
togurum
Garðar Guðjónsson, DV, Akxanesi:
Vinnsla hjá Krossvík hf. er hafin
að nýju efíir nokkurt hlé. Aflinn
kemur þó ekki úr skipi fyrirtækis-
ins, Höfðavík, heldur úr færeyskum
og rússneskum togimim.
Færeyskur togari lagði upp 150
tonn af úthafskarfa 9. október og nú
í vikunni er von á rússneskum tog-
ara með 80 tonn af ýsu. Fáum dögum
áður en færeyski togarinn landaði
karfanum af Reykjaneshrygg hafði
Höfrungur ni. landað 70 tonnum af
þorskafurðum úr Smugunni.
Gísli Gíslason, bæjarstjóri og
stjómarformaður Krossvíkur, segir
að fyrirtækið eigi von á að fá fleiri
erlend skip í viðskipti á næstunni til
að tryggja vinnslu í frystihúsinu.
Bæjarráð ákvað nýlega aö auka
hlutafé sitt í fyrirtækinu um 22 milij.
kr. Gísli segir ljóst að auka verði
hlutaféö um 60 miUjónir á næstu
árum. Bærinn er eini hluthafinn í
fyrirtækinu og það hefur verið rekið
með hagnaði þaö sem af er ári.