Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1994, Qupperneq 12
12
FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 1994
Spumingin
Hvaða skemmtistað stund-
arðu helst?
Sigríður Brynjólfsdóttir: Ég fer á öll
kafílhús bæjarins.
Óskar Pétursson: Sjallann.
Sigurður Jónsson: Glaumbar og
Lundagötu 6.
Edda Torfadóttir: Ingólfskaffi og
kaffihús bæjarins.
Elisa Jóhannsdóttir: Ég fer aöallega
í Ingólfskaffi en áður fór ég í Casa-
blanca.
Sigurlaug Jónsdóttir: Ingólfscafé og
Casa.
Lesendur_______
Hverjum á
að f órna?
Mér finnst barnið eiga meiri rétt til heilsu og heilbrigðis en nágranninn i
stigaganginum til að hafa kött, segir bréfritari m.a.
Guðrún Aðalsteinsdóttir skrifar:
Undanfariö hef ég fylgst með um-
ræöum og skrifum í kjölfar lagasetn-
ingar um kattahald í flölbýlishúsum.
- Mig langar aö reyna að útskýra
málið aöeins frá mínu sjónarhorni,
þ.e. móöur barns sem er með astma
frá unga aldri.
Astmi er lúmskur og erfiöur sjúk-
dómur og oft illt að varast áreitin sem
koma köstum af stað. Maður reynir
þó í samráði við lækna að gera um-
hverflð eins „hreint" og hægt er með
góðu móti, t.d. með því að fjarlægja
alla óæskilega hluti eins og t.d. dún-
sængur, teppi í svefnherbergjum og
að sjálfsögöu getur hvorki bamið né
aðrir íjölskyldumeðlimir leyft sér aö
halda húsdýr - og síst af öllu ketti.
Staðreyndin er sú að þótt viðkom-
andi sé ekki stöðugt í astmakasti
lækkar þröskuldurinn, þ.e. sífellt
þarf minna til að koma kasti af stað,
ef áreitið er alltaf til staöar, sem er
staöreynd ef köttm- er í íbúö í sama
stigagangi og hinn astmaveiki.
Við erum ekki að tala um lungu
og heilsu bamsins í dag, þetta er
einnig spuming um heilsu á fullorð-
insárum og að reyna eins og hægt
er að koma í veg fyrir varanlegar
skemmdir. - Mér finnst að mitt bam
eigi meiri rétt til heilsu og heilbrigö-
is heldur en nágranninn í stigagang-
inum til að hafa kött.
Ég þekki fjölskyldu sem átti kött,
en svo fékk eitt barnanna slæman
astma (hafði þó lengi haft óljós óþæg-
indi af sama toga). Þegar í ljós kom
að kötturinn var sökudólgurinn
spurði læknirinn hvort það væri
Hjörtur skrifar:
Þrátt fyrir digurbarkaleg ummæli
flestra ef ekki allra ráðherra núver-
andi ríkisstjórnar um að stöðugleiki
efnahagslífsins sé fðrsenda bættrar
afkomu og sóknar upp á við úr öldu-
dal atvinnuleysis og kyrrstöðu í
framleiðslu eru nú sömu menn að
boða váleg tíðindi í efnahagslífinu. -
Þeir telja bráðnauðsynlegt aö hækka
skammtímavexti og svo síðar lang-
Einar Árnason skrifar:
Mér sem ökumanni á götum höfuð-
borgarinnar og í næsta þéttbýli
stendur stuggur af þeim mörgu bif-
reiðum sem enn em í umferð óskoð-
aðar. Á þessu er auðvelt að átta sig
þegar maður t.d. bíður í biðröö bif-
reiða og horfir á bifreiðanúmerin
sem sýna árið ’94 eða jafnvel '93. og
aftasti stafur hvers númers segir til
um skoðunarmánuðinn. - Það virðist
ekkert átak vera í gangi á þessum
tíma eins og stundum áður til að ná
til sökudólganna sem aka þessum
bílum.
Fyrir stuttu ofbauð mér eftir að
hafa séð fjóra bíla með löngu út-
mnnin skoöunarmerki, og hringdi
því í Bifreiðaskoðun íslands til að
kanna viðbrögðin. Þau voru ekki
önnur en að svara því til að þetta
Hringið í síma
63 27 00
miilikl. 14 og 16
-eðaskrifið
Nafin ogsfmanr. verður að fylgja bréfum
nokkur spuming, hvomm ætti að
fóma - barninu eða kettinum? í
þessu tilfelli var það auðvitað engin
spuming, kötturinn var svæfður. En
þegar um er að ræða annarra manna
böm er spurningin greinilega stór
og oftar en skyldi hefur kötturinn
vinninginn.
Ég get vart skihð við þetta án þess
aö segja frá því að þegar í ljós kom
að mitt barn þolir ekki ketti, átti vin-
kona þess kött sem þeirri fjölskyldu
og mínum börnum þótti mjög vænt
um. Það liðu u.þ.b. 15-20 mínútur frá
því ég sagöi mömmu þessarar vin-
tímavexti. - Að vísu hefur einn fram-
kvæmdasfjóri ’ verðbréfamarkað-
anna verið beðinn um að tilkynna
þetta fyrst á sinn hátt og slíkt er oft
gert í tækifærisræðu á einhverri ráð-
stefnunni. Þetta gerði Sigurður B.
Stefánsson framkvæmdastjóri á ráð-
stefnu hjá íslandsbanka nýlega.
Honum fórst þetta svo vel úr hendi
að aðeins einum degi síðar töldu ráð-
herrar sér fært að taka sjálfir undir
kæmi Bifreiðaskoöun íslands ekkert
við, það væri lögregluembættið sem
alfarið væri með eftirlit á því hvort
bílar væru óskoðaðir.
Ég hringdi í lögregluembættið og
náði sambandi við umferðardeild.
Ekki tók betra við þar. Mér var fjáð
að þeir vissu vel af þessu og sögðust
vita af bílum svo hundruðum ef ekki
þúsundum skipti sem væru óskoðað-
ir og komnir langt fram yfir skoðun-
konu niðurstöðuna, þar til hún
hringdi til mín, sagðist vera búin að
tala við sitt fólk og kötturinn yrði
svæfður og íbúðin gerð hrein. - Auð-
vitað er sárt að verða þess valdandi
að kötturinn þurfti aö fara, sérstak-
lega fyrir barnið sem orsakaði það,
en þama var tekið á málunum á já-
kvæðan og skynsamlegan hátt og ég
held að bömin hafi öll staðið heilli
og þroskaðri eftir. Ég bið kattaeig-
endur að hugsa vel sinn gang, láta
skynsemina ráöa og athuga að þessi
lagasetning er til komin og sett af
hreinni neyð.
þetta „brýnasta" hagsmunamál ís-
lensks efnahagslífs um þessar mund-
ir. - Engum blandast hugur um að
verði af skammtímahækkun vaxta á
næstunni og síöar hækkun langtíma-
vaxta mun sá stöðugleiki sem við
höfum státað af hingað til springa
með miklum hvelli sama dag og til-
kynningar um þetta birtast.
ardag. Ekkert sérstakt átak væri í
gangi nú en þetta væri alltaf undir
eftirliti lögreglumanna ef þeir sæju
óskoðaða bíla. Mér finnst nú að þetta
gæti kannski verið sá tími sem reglu-
lega væri þörf á að gera átak og
khppa númer af óskoðuðum bílum
þegar myrkur og ófærð á götum er í
nánd, frekar en að vorinu eins og oft
hefur átt sér stað. - En þetta kemur
kannski engum við lengur?
DV
Haustkosningar
hefðu bjargað
Halldór Sigurjónsson hríngdi:
Það kemur sifellt betur og betur
í ljós hve mikil mistök það voru,
fyrst og fremst pólitísk mistök,
að efna ekki til haustkosninga nú
eða þá fljótlega eins og rætt var
um í sumar og ailt þar til þing
kom saman. Meö því hefði margt
unnist Sú upplausn sem nú er
ríkjandi í stjórnmálum hér væri
ekki, ný ríkisstjórn hefði fengið
umboð til að útkljá ýmis mál sem
brýnt er að ganga í og síðast en
ekki síst - umræðan ura siðvæð-
inguna í ráðuneytunum hefði
ekki náð aö breiða úr sér á sama
hátt og nú er raunin. Nú gráta
einhverjir ákvöröun forsætisráð-
herra um að láta stjórnina sitja
til vors.
HSægilegur
málflutningur
Erna Jónsdóttir hringdi:
Fólk hlær sig máttlaust að mál-
flutningi verjanda fyrrum trygg-
ingalæknis vegna sakargifta um
að hafa ekki taliö fram til skatts
margra milljóna tekjur. Ég skil
ekki að nokkur maður myndi
vildi hafa svona verjanda. En að
öllu samanlögðu standast rök-
semdafærslur veijanda ekki í
neinu tilliti. - Eins og t.d. að sak-
borningur hafi málsbætur vegna
starfa sem opinber embættismað-
ur og vegna þess að hann sé orð-
inn 68 ára gamall! Eða vegna þess
að fjölmiölar hafi komið orðróm-
inum af staö og ýtt rannsóknar-
ferh af stað!
Málsbæturískatt-
svikamáli
Gunnar Gunnarsson skrifar:
Mér blöskraði að heyra í frétt-
um af málfiutningi í máli fyrrver-
andi'tryggingayfirlæknis þegar
verjandi hans taldi upp málsbæt-
ur sakbornings. - Sakborningur
væri orðinn 67 ára gamall og
hefði starfað sem opnber starfs-
maður i 38 ár. Helst finnst mér
nú að þetta ætti fremur að meta
til þyngri refsingar en hitt. Nú
væri sakborningur atvinnulaus
og allt þetta ætti að meta honum
til málbóta. Ég hugsa að fleiri en
ég undrist hve mikla rækt verj-
andi lep^ir við að koma meintum
skattsvikara undan þeim dómi
sem verður þó aldrei þyngri en
þeirra sem dæmdir eru th
greiðslu sinna skatta möglunar-
laust.
Reykjanes:
Skipfa um alla
þingmennina
Sjálfstíeðismaðlu• í kjördæmirju
skrifar:
Framboðsfrestur er runninn út
fyrir prófkjör sjálfstæðismanna á
Reykjanesi. Af 9 mönnum, sem
gefa kost á sér, eru 4 nýir. Þetta
eru Sigurrós Þorgrímsdóttir,
fjölmiðlafræöingur í Kópavogi,
Stefán Tómasson, útgerðarsfjóri
í Grindavík, Viktor B. Kjartans-
son, tölvunarfræöingur í Kefla-
vík, og Kristján Pálsson, fyrrver-
andi bæjarsljóri í Njarðvík. -
Þetta fólk aht vildi ég fá I stað
núverandi þingmanna fyrir
Reykjaneskjördæmi. Hvers
vegna? Jú, þeir gömlu hafa ekki
gert neitt fyrir kjördæmið en hin-
ir nýju lofa góðu hver á sínu sviði.
Kristnin setur
niður
Áslaug skrifar:
Mér þykir fuflvíst að kristnin í
landinu hafi sett verulega niður
vegna ákvörðunar biskups um að
setja séra Solveigu Láru Guð-
mundsdóttur aftur í embætti sem
prest. Þetta er mál sem ekki
gleymist í bráð.
Fá ökumenn óskoðaðra bifreiöa að aka að vild óáreittir?
Vaxtahækkun sprengir stöðugleikann
Óskoðaðir bflar í umferð