Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1994, Qupperneq 18
26
FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 1994
íþróttir unglinga
Fyrirliði íslandsmeistara 4. flokks Keflavikur 1994, Bjarni Lúðvíksson, tekur hér við upphæðinni sem fyrstu íslandsmeistarar Keflavikur í 4. flokki 1959 lögðu
í sjóð fyrir 10 árum og var orðin 167-þúsund krónur.
DV-mynd Ægir Már
Fyrstu íslandsmeistarar ÍBK14. flokki karla 1959:
Eitt albesta lið sem
ég hef leikið með
segir Magnús Torfason, fyrrverandi landsliðsmaður 1 knattspymu
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
„Þetta er eitt albesta lið sem ég hef
hef spilað með - og samstaðan í hópn-
um var einstök," sagði Magnús
Torfason þegar hann rifjaði upp at-
vikið þegar Keflvíkingar fögnuðu
sínum fyrsta íslandsmeistaratith í
knattspymu í 4. flokki karla árið
1959.
Þeir ellefu leikmenn sem léku með
því liöi komu saman fyrir 10 árum
Umsjón
Halldór Halldórssort
að frumkvæði Magnúsar og yfir
kaffibolla var sú ákvörðun tekin að
hver leikmaður skyldi borga 3000
krónur í sjóð og söfnuðust alls 33
þúsund krónur. Þessir peningar voru
síðan lagðir inn á bankareikning.
Andvirði bankareikningsins ætti síð-
an að renná til þeirra pilta sem næst
yrðu íslandsmeistarar í 4. flokki.
Verðlaunuðu íslandsmeistara
ÍBK í 4. flokki 1994
Það var síðan 10 árum síðar, eða nú
í sumar, að 4. flokkur Keflavíkur
varð íslandsmeistari - og þá fóru
kempurnar á kreik og leystu út upp-
hæöina sem nú var orðin 167 þúsund
krónur. Þá upphæð afhentu þeir síð-
an fyrirliða 4. flokks í hálfleik þegar
Keflavík og Akranes áttust við í sum-
ar í 1. deildinni.
í 4. flokki Keflavíkur 1959 voru
margir snjallir knattspyrnumenn
sem áttu langan og góðan feril sem
slíkir, eins til að mynda þeir Rúnar
Júlíusson, Gunnar Þórðarson, Karl
Hermannsson, Guðni Kjartansson og
Magnús Torfason. Allt eru þetta vel
þekkt nöfn úr knattspyrnunni.
Reykjavíkurmeistarar Vals, A-iifl, í handknattleik karla í 5. tlokki 1994. Liðið er þannig skipað: Birgir Birgisson (1), Davið Höskuldsson (5), Fannar
Þorbjörnsson (13), Grétar Þorsteinsson (8), Halldór Stefánsson (14), Jóhannes Sigurðsson (3), Jón Guðmundsson (16), Markús Michael (2), Ólafur
Gíslason (12), Snorri Guðjónsson (10), Steinarr Guðmundsson (15) og Styrmir Hansson (6). - Þjálfarar liðsins eru þeir Jón Halldórsson og Sigurð-
ur Sigurþórsson. DV-mynd Hson
Handbolti - 3. flokkur:
ÍRReykjavíkur-
meistari 1994
Reykjavíkurmótinu í 3. flokki
karla lauk sunnudaginn 9. októb-
er. ÍR-strákarnir urðu meistarar,
sigruðu KR í úrslitaleik. 17 15.
Leikurinn var geysispennandi,
eins og tölurnar sýna. Þetta er
aðeíns einn af mörgum titlum ÍR
í Reykjavíkurmótinu. Úrslit
leikja ui-ðu sem hér segjr.
Riðlakeppnin:
Víkingur-KR...........15-23
Fylkir-IR 10-24
Fíölnir-Valur.........16-19
ÍR(b)-Fram...
Víkingur-Fylkir
KR-ÍR
Fjölnir-IR (b)
Vikingur-lR..
Valur-Fram
KR-Fylkir
FjöinirrFram
Valur-ÍR(b)
.9-15
.24-25
.21-24
13- 17
21-24
.18-14
.20-16
14- 19
„25-17
Undanúrslitin:
ER-Fram
Valur-KR.
18-16
,.13-18
Leikið um efstu sætin:
1.-2.IR-KR
17-15
3.-4. Valur-Fram.........18-16
Reykjavikurmeistari: ÍR.
á sunnudaginn
Unglingasundmót sunddeildar
Ármanns verður haldið í Sund-
höll Reykjavíkur sunnudaginn
16. október. Sundmótið verður
haldið í tveimur hlutum, fyrri
hlutinn fyrir hnokka, hnátur,
sveina og meyjar og seinni hlut-
inn fyrir drengi, telpur, piita og
stúlkur. - Fyrri hlutinn hefst með
upphitun kl. 8.30 og keppni byrjar
kl. 9.30. Seinni hlutinn hefst með
upphitun kl. 13.30 og keppni byij-
ar kl. 14.30.
Lára Hrund Bjargardóttir, Ægi,
verður meðal þátttakenda á
Sundmóti Ármanns.
Styttist í
leiki4.flokks
Dregið hefur verið í 32-liða úr-
slitin í bikarkeppni HSÍ í 4. flokki
karla og kvenna 1994 en leikið
verður 26. október. Eftirtalin lið
drógust saman.
4. ílokkur karla:
Vikingur-Fjölnir, ÍR-FH (b),
Fylkir (b)-KR (b), HK (b)-Aftur-
elding, ÍR (b)-Stjaman (b), Fylk-
ir-KR, FH-HK, Fram-Grótta,
Vikingur (b)-Va!ur og Þór, V,-
Grótta (b).
Liðin sem sitja yflr í 32-liöa úr-
slitunum: Keflavik, Sijaman.
Breiðablik, Haukar, Fram (b) og
Völsungur.
4. flokkur kvenna:
Fylkjr (b>-Grótta (b), KR (bHBV,
Fram (b)-Völsungui-, Keflavík-
Haukar, Vaiur-Umf. Bess., Aftur-
elding-ÍR og Stjarnan-Fram.
Lið sem sitja yfír i 32-liða úrslit-
unum: Vikingur, Fjölnir, KR,
Grótta, Fylkir, FH (b), ÍR (b),
Stjaman (b) og FH.