Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1994, Page 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1994
Neytendur
DV kannar verð á GSM-farsímum:
Einungis sex tegund-
ir í verðsamkeppni
- símamir hafa flestir lækkað og úrvalið aukist
Ef marka má auglýsingar hefur verö
á GSM-farsímum farið hríðlækkandi
frá því aö þeir komu fyrst á markað-
inn og ekki síst vegna óvæntrar sam-
keppni frá Bónusi sem býður í mörg-
um tilfellum sömu símana og hinir á
mun lægra verði. Af þessu tilefni
gerði neytendasíðan nýja verðkönn-
un á þessum farsímum en sú síðasta
var birt þann 18. ágúst, rétt eftir að
símarnir komu á markað.
Söluaðilum hefur fjölgað til muna
og í sumum tilfellum hafa þeir sam-
einast um innkaup og bjóða því
nokkrir sama verð. Það á m.a. við
um íslensk íjarskipti (ÍF) en þeim
tilheyra Hátækni hf., Nýheiji hf. og
Radíómiðlun hf. Neytendasíðan
hafði samband við alls níu söluaðila:
íslensk íjarskipti, Póst og síma, Sím-
virkjann, Bónus, Rafhúsið hf. í Kefla-
vík, Símafl hf., Hljómco hf., Húsa-
smiðjuna og Radíónaust á Akureyri.
GSM-farsimar fást nú í mun meira
úrvali en áður og hjá fleiri söluaöil-
um. Almennt virðist verð þeirra hafa
lækkaö frá því þeir komu fyrst á
markað og virðist Bónus eiga þar
stóran hlut að máli. DV-mynd ÞÖK
50% verðmunur
Af þeim 16 GSM-farsímum, sem
kannað var verð á, reyndust einung-
is sex þeirra vera í einhverri verð-
samkeppni, þ.e. Ericsson GH 337,
Motorola 7200, AT&T 3240 og 3242,
Hagenuk 2000 og Orbitel 902. Hinir
fást eingöngu hjá einum aöila eða hjá
tveimur á sama verði.
Mestur var verðmunurinn á AT&T
3240 eða 50%. Kemur það til af því
að Símvirkinn býður nokkra síma á
tilboðsverðinu 39.900 kr. um þessar
mundir sem annars kosta 49.900 kr.
Seinni talan er þó ennþá lægsta verð-
iö því samkeppnisaðilamir bjóða þá
á annaðhvort 59.000 (Rafhúsið hf.)
eða 59.900 (Hljómco hf., Húsasmiðjan
og Radíónaust á Akureyri).
Bónus býður betur
í kringum 30% verðmunur var svo
á Ericsson GH 337, Motorola 7200 og
Hagenuk 2000 en þá síma býöur Bón-
us alla á lægsta verðinu. Þess má
GSM-símar sem einungis fást á einu verði
109.000
67.437 69 894
89.782 89.782 89.900
73.505
■ö ^
s-
tj 09
flr
I#
■*/
■it
'ó ▼
ti
getaaðBónusselurGSM-símanaein- tæknimaður í verslunina til skrafs keppni frá Bónusi var blaðamanni
ungis á fimmtudögum en þá kemur og ráðagerða. í tilefni óvæntrar sam- tjáð sérstaklega hjá Símvirkjanum
að tveggja kílóa kartöflupoki fylgdi
með í kaupunum þar.
Bæði Mobira 5000 símamir og Sony
CM-D200 fengust hjá tveimur aðilum
en var þó ekki hægt að tala um verð-
samkeppni þar sem verðið var nán-
ast það sama. Phihps símarnir fást
eingöngu hjá Radíónaust á Akureyri
en innifalið í PR 810 símanum er
mælaborðsfesting og tenging í
kveikjara og í verðinu á PR 747 sím-
anum er kortið innifahð.
Þeir fjórir aðilar sem selja AT&T
3242 á 79.900 kr. og nefndir eru í graf-
inu hér á síðunni eru: Rafhúsið hf.,
Hljómco hf., Húsasmiðjan og Radíó-
naust á Akureyri. Hjá Rafhúsinu
fengust þær upplýsingar að th stæði
að lækka þá síma niður í rúmar 71
þúsund krónur.
Verðið fer iækkandi
Ef þessi verðkönnun er borin sam-
an við verðkönnunina frá því í ágúst
kemur í ljós að í flestum tilfellum er
hægt að gera betri kaup núna og er
það ekki síst vegna tilkomu Bónuss.
Áöur var t.d. hægt að fá Ericsson 337
símann ódýrastan á 115.759 kr. en
nú á 91.200 kr. (verðmunurinn er
27%) og áður var hægt að fá Motor-
ola 2000 ódýrastan á 79.980 en nú á
56.900 kr. (41%). Að sama skapi var
AT&T 3240 áður ódýrastur á 59.850
kr. en nú á 39.900 kr. (50%) og er það
einkum vegna tilboðs Símvirkjans.
Þó eru þrír GSM-farsímar sem hafa
ekki tekið neinum verðbreytingum
frá því þeir komu fyrst á markað en
það eru Mobira 5000, Nokia 2110 og
Panasonic Euro 2000.
Verðsamanburður
á GSM-farsímum
Ericsson GH337
115.900115.800 27%
94.1129i.200
AT&T3240
59.900 59.000
50%
39.900*
AT&T3242 8%
79.900
74.300
* ðrfálr eftir, venjulegt verö 49.900
Hagenuk 2000
30%
47.900
36.900
cn
3
C
'O
CQ
Orbitel 902
74.643
73.900
DV
••99^56^70m
Tekur við svörum fyrir þig!
Aöeins 25 kr. mínútan.
Sama verö fyrir
alla landsmenn.
T
Verð á vetrardekkjum
Gömlu
dekkin
Skipting, umfelgun ogjafnvæg-
isstilling á fjórum dekkjum kost-
ar á bihnu 3,300-3.740 kr. ef
marka má nýlega verðkönnun
Samkeppnisstofnunar. Munur á
hæsta og lægsta verði er 13,3%.
Könnunin náðí til 17 fyrirtækja á
höfuðborgarsvæðinu og af þeim
var Barðinn, Hjólbarðaviðgerðir
B.G. og Hjólbarðaviðgerðir á
Skemmuvegi með lægsta verð en
Sólning, Hjólbarðahöllm' og
Dekkiahúsið með hæsta verö.
Stærð 155x13
Kannað var verð á nýjum Kum-
ho- og Michelin-hjólbörðum og
sóluðum hjólbörðum frá Sóln-
ingu og Norðdekk. í dekkjastærð-
inni 155x13 voru nýir Michelin-
hjólbarðar á verðbhinu 5.230-
5.300, lægsta verðið var hjá Hjól-
barðastöðinni Bíldshöfóa en
hæsta verðið hjá ehefu aðilum.
Nýir Kumho voru á verðbihnu
4.320-4.390 kr., lægsta verðið var
hjá Hjölbarðastöðinni Bhdshöfða
en það hæsta hiá sjö aðhum. Þessi
dekk fengust ekki nema hjá níu
aöhum af sautján. Sóluð dekk frá
Norðdekk voru á verðbihnu
3.155-3.320 kr., lægsta verð hjá
Barðanum en það hæsta hjá sjö
aðilum. Sóluð dekk írá Sólningu
voru á verðbihnu 3.154-3.310 kr„
Borgardekk og Barðinn voru
lægstir en sex aðilar hæstir.
Stærð 165x13
Nýir Michelin-hjólbarðar í
stærðinni 165x13 voru á veröbil-
inu 5.307-5.550 kr. Lægsta verðiö
var hjá Gúmmívinnustofunni en
það hæsta hjá ehefu aðhum. Nýj-
ir Kumho í sömu stærð voru á
verðbilinu 4.720-4.790 kr., lægsta
verðiö var hjá Hjólbarðastöðinni
Bíldshöfða en þaö hæsta hjá sjö
aðilum. Sóluö dekk frá Norðdekk
voru á veröbihnu 3.200-3.365 kr.,
lægst hjá Baröanum en hæst hjá
sjö aðilum. Sóluð dekk frá Sóln-
ingu voru á verðbilinu 3.200-3.450
kr., Barðinn og Borgardekk með
lægsta verð en það hæsta hjá
Hjólbaröahöhinni.
Stærð
175x70x13
Nýir Michelin-hjólbaröar voru
á verðbihnu 6.190-6.250 kr„
lægsta verö var hjá Hjólbaröa-
stöðinni Bíldshöfóa en það hæsta
hjá Barðanum og Dekkjahúsinu.
Verðbihð á Kumho-hjólbörðum
var 4.890-4.970 kr„ lægst hjá Hjól-
baröastööinni Bhdshöfóa en hæst
hjá átta aðilum. Sóluö dekk frá
Norödekk voru á verðbhinu
3.585-3.780 kr„ lægsta verð var
hjá Barðanum en það hæsta hjá
sjö aðilum. Sóluð dekk frá Sóln-
ingu voru á verðbilinu 3.584-3.761
kr„ Borgardekk og Barðinn voru
með lægsta verð en það hæsta hjá
Sólningu, Hjólbarðaviögeröum
B.G. og Híólbarðaverkstæði Sig-
urjóns.
Stærð 175x14
Ný Michelin-dekk voru á verð-
bilinu 6.659-6.715 kr„ lægsta verð
hjá Gúmmívínnustofunni en
hæsta verö hjá Dekkinu í Hafnar-
firöi. Ný Kumho-dekk voru á
veröbilinu 5.520-5.570 kr„ lægsta
verö var þjá Hjólbarðastööinni
Blldshöfóa en það hæsta hjá sjö
aðhum. Sóluö dekk frá Norðdekk
voru á verðbihnu 3.830-4.020 kr„
lægsta verð lyá Barðanum en þaö
hæsta hjá sjö aðhum. Sóluð dekk
frá Sólningu voru á veröbilinu
3.829-4.020, Borgardekk og Barö-
inn voru með lægsta verö en þaö
hæsta hjá sex aðilum.