Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1994, Side 9
FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1994
9
Utlönd
Eyðslusjúklingar þurfa ekki að örvænta þótt jólin séu í nánd
VANTAR SKAPARYMI?
riTA
AT f rrn\ /
185 cm-
SERVERSIUN AAEÐ INNRETTINGAR OG STIGA
NÝBÝLAVEGI 12, SÍMI44011- PÓSTHÓLF 167, 200 KÓPAVOGI
Auglýsing um starfslaun listamanna árið 1995
Starfslaun handa listamönnum
Hér með eru auglýst til umsóknar starfslaun til handa listamönnum árið 1995, í
samræmi við ákvæði laga nr. 35/1991. Starfslaunin eru veitt úr fjórum sjóðum, þ.e.:
1. Launasjóði rithöfunda.
2. Launasjóði myndlistarmanna.
3. Tónskáldasjóði.
4. Listasjóði.
Umsóknir skulu hafa borist Stjórn listamannalauna, menntamálaráðuneytinu, Sölv-
hólsgötu 4, 150 Reykjavík, á þar til gerðum eyðublöðum fyrir kl. 16.00 mánudaginn
16. janúar 1995. Umsóknir skulu auðkenndar „Starfslaun listamanna" og tilgreina
þann sjóð sem sótt er um laun til. Umsóknareyðublöð fást hjá menntamálaráðuneyt-
inu.
Ath. Hafi umsækjandi áður hlotið starfslaun verður umsókn hans því aðeins tekin
til umfjöllunar að hann hafi skilað stjórn listamannalauna skýrslu um störf sín í sam-
ræmi við ákvæði 4. gr. laga um listamannalaun nr. 35/1991.
Reykjavík, 7. nóvember 1994
Stjórn listamannalauna
lögbrot
Douglas
Hurd, utanrík-
isráðherra
Bretlands, vís-
aði á bug kröf-
um um afsögn í
gær þótt hæsti-
réttur landsins
hefði úrskurð-
að að hann hefði brotið lög þegar
hann heimilaði aðstoö við bygg-
ingu umdeildrar stíflu í Malasiu.
Daginn áður úrskurðaði annar
dómstóll að Michael Howard inn-
anríkisráðherra hefði einníg
brotíð lög þegar hann skar niður
fébætur til fómarlamba glæpa.
Úrskurðir þessir eru mikið áfall
fyrir stjórn Johns Majors sem
hefur átt í vök að verjast vegna
aUs kyns kynlifshneyksla að und-
anfórnu.
„Þessi ríkisstjóm hefur verið
of lengi viö völd,“ sagði Robin
Cook, talsmaður Verkamanna-
flokksins í utanríkismálum, eftir
dómsúrskurðinn i gær.
Þótt Hurd ætli ekki að segja af
sér sagði hann að úrskurðurinn
yrðitekinnalvarlega. Reuter
Kirsten Dunst er 12 ára gömul og upprennandi barnastjarna i Bandaríkjun-
um. Kirsten hefur ástæðu til að brosa breitt því hún hefur nýlokið við að
leika á móti sjálfum stórleikaranum Tom Cruise í myndinni Samtöl við blóð-
suguna. Myndin var forsýnd i Hollywood nú í vikunni og fer senn á almenn-
an markað. Simamynd Reuter
Kastaði nýfæddu
barni sínu í ruslið
- bjargað á síðustu stundu úr ruslapressu
„Húsvörðurinn setti ruslapress-
una í gang en slökkti á henni strax
aftur því hann taldi sig heyra barns-
grát,“ segir talsmaöur lögreglunnar
í Bronx í New York um giftusamlega
björgun nýfædds piltbams í gær. Við
lá að drengnum væri kastað á haug-
ana eftir að móðir hans ákvað að
bera hann út.
Móðirin vafði son sinn í handklæði
og setti strangann í plastpoka. Enn
er óráðið hvaö gert verður í máli
hennar.
Drengurinn er nú á sjúkrahúsi.
Hann var orðinn kaldur og hrakinn
í ruslinu en læknar segja að hann
muni lifa raunina af. Að sögn lögregl-
unnar var drengurinn aðeins fárra
klukkustunda gamall þegar honum
var lient í ruslið. Líklegast er að hon-
um hafi verið kastað þegar eftir fæð-
inguna. Reuter
Hver kannast ekki við þessa sjúk-
legu þörf að opna seðlaveskið sitt upp
á gátt og eyða og eyða, einkum síð-
ustu dagana og vikurnar fyrir jól
þegar kaupmenn lokka okkur til sín
með ótrúlegum kostaboðum? Sumir
eru veikari fyrir en aörir og standast
alls skki freistingarnar, með tilheyr-
andi háum greiðslukortareikningum
og kannski einhverju þaðan af verra,
svo sem innstæðulausum ávísunum
og gjaldþroti. Þeir þurfa þó ekki að
örvænta lengur því hægt er að lækna
menn af kaupsýkinni.
„Árangurinn er framúrskarandi,"
sagði Donald Black, geðlæknir við
læknaháskólann í Iowa í Bandaríkj-
unum, í viðtali viö tímaritið New
Scientist. Hann hefur nefnilega kom-
ist að því að þunglyndislyfið fluvox-
amine slær duglega á verslunarár-
áttuna.
Donald Black gerði tilraun þar sem
sjö manns með sjúklegt kaupæði
tóku áðumefnt lyf í átta vikur. Ár-
angurinn lét ekki á sér standa. Kaup-
sýkin minnkaði til mikilla muna en
um leið og tilraunadýrin hættu að
taka lyfið fóru einkennin að láta aft-
ur á sér kræla.
Eini karlmaðurinn í tilraunahópn-
úm minnkaði t.d. fatakaup sín úr 200
dollurum á viku í tuttugu dollara.
Þá fóra sumar konumar aðeins einu
sinni í viku í innkaupaferðir í stað
þess að fara á hverjum degi áður.
Annar geðlæknir, Susan McElroy
við háskólann í Cincinnati, fékk svip-
aða niðurstöðu með að prófa önnur
þunglyndislyf gegn kaupsýkinni.
Donald Black sagði að lyfjameðferö
við innkaupasýki væri þó sjaldnast
við hæfi.
„Við eyðum öll um efni fram ein-
staka sinnum. En flestir þeirra sem
hafa aðeins væg einkenni geta tekið
skynsamlegum ráðum, eins og að
klippa greiðslukortin sín í sundur,"
sagði Donald Black.
IRA hafnar ábyrgð á morði
írski lýðveldisherinn (IRA) vísaði
því á bug að hann bæri ábyrgð á
tveimur mönnum sem drápu starfs-
mann póstþjónustunnar í misheppn-
aöri tilraun til ráns í gær. Grunur
leikur á að mennirnir tilheyri IRA.
írska stjórnin hefur frestað lausn
IRA-fanga vegna þessa.
í yfirlýsingu sem ERA sendi frá sér
sagði að vopnahléið frá 31. ágúst í
sumar væri enn í fullu gildi.
Reuter
• Ný fataskápalína, sem nýtir plássið
fullkomlega.
• Nýtt hurðakerfi á hjólabraut í gólfi.
• Margvíslegt útlit og speglar.
• Hver skápur er sniðinn eftir máli án
aukakostnaðar fýrir kaupanda.
• Mældu rýmið sem þú hefur til ráðstöfunar
og komdu til að fá tilboð í nýjan fataskáp.
• Þú getur einnig fengið nýjar hurðir fyrir
gamla skápinn, athugaðu það.
Nýtt hurðakerfi -
Þetta erí boði:
250 cm
ótal möguleikar
Kaupsýkin læknuð
með þunglyndislyfi
- einkennin koma aftur um leið og lyfíatökunni er hætt