Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1994, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1994, Page 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1994 Fréttir Skvettu málningu og brenndu þjóðfánann mynd af skátahöfðingjanum rifin 1 sundur Aðkoman var ljót þegar skátar í Skátafélaginu eina í neðra Breiðholti komu í skátaheimilið sitt á sunnu- dag. Brotist hafði verið inn í heimilið með því að brjóta rúðu. Unnið hefur verið að endurbótum á heimilinu undanfarið en ekki er nema ár síöan skátarnir fengu hús- næðið til afnota. Innbrotsþjófamir stálu engu en reyndu að brenna ís- lenska fánann, sem hékk á stöng inni í heimilinu, þannig að hann er ónýt- ur. Þá rifu þeir myndir frá skáta- starfinu niður af veggjum, þar á meöal var mynd af Gunnari Eyjóifs- syni skátahöfðingja rifin í sundur. Málningu hafði verið skvett á úti- dyrahurð og hún síðan borist með skósólum á gólfíjalir inni í heimihnu sem höfðu nýlega verið gerðar upp. Helga Hauksdóttir, skáti og móðir skáta í Skátafélaginu eina, segir að þetta sé ekki í fyrsta skiptið sem skemmdir séu unnar á húsnæðinu. Iðulega komi það fyrir að rúður séu brotnar og rimlar hafi verið settir fyrir glugga öðrum megin. Meðal annars hafi ein rúða veriö brotin aðfaranótt laugardags, nóttina áður en ofangreint atvik kom fyrir. Nauð- synlegt sé að setja rimla fyrir glugg- ana hinum megin til að koma í veg fyrir að menn komist inn í skáta- heimilið annars staðar en inn um dyrnar. Mikið er um að unglingar í hverf- inu hangi fyrir utan verslunarmið- stöðina en engin félagsmiðstöð er í neðra Breiðholti. Hún segist hafa grun um hverjir hafi verið þama að verki. Lögreglan sé með málið í höndunum og vinni aö skýrslugerð. Helga hvetur gamla skáta í hverf- inu til að koma og hjálpa til við að koma heimilinu í samt horf og jafn- framt til að starfa með félaginu eða, eins og hún segir: „Eitt sinn skáti, ávallt skáti.“ Níræður Reykvlkingur: Kemst ekki í bað vegna verkfallsins „Eg hef ekki treyst mer til þess að fara í sturtu í Hafnarbúðum - það gerir sjónin - en auðvitað geta þeir farið í bað sem eru nógu duglegir og treysta sér til þess án þess að fá að- stoð. Konan sem sér um baðið er sjúkraliði og þess vegna hefur enginn getað farið í bað. Ég hef ekki getað farið í bað nema hjá skyldfólki. Syst- urdóttur minni finnst ekki mikið að hjálpa mér með baðiö en það er ómögulegt fyrir því,“ segir Helga Finnbogadóttir, tæplega níræður Reykvíkingur. Helga býr í vesturbænum og sækir dagdeildina í Hafnarbúðum þrjá morgna í viku, frá 10 til 12. Hún hef- ur farið í bað, fengið heita bakstra og handsnyrtingu hjá sjúkraliöunum þar en þessi þjónusta hefur falhð niður undanfarna viku vegna verk- falls þeirra. Helga sækir áfram Hafn- arbúðir en segist vonast til að stjórn- völd semji við sjúkraliðana sem fyrst því að ástandið sé „ómögulegt". „Mér finnst algjör hneisa að stjóm- völd semji ekki við sjúkraliðana og borgi þeim almennilegt kaup. Ég hef verið rúmt ár í Hafnarbúðum og það er yndislegt að vera þar en þetta verkfall hlýtur að koma sér míög illa fyrir fólkið sem er rúmliggjandi þar og þarf á hjálp sjúkraliðanna að halda,“ segir hún. St. Jósefsspítali: Rúmunum fækk- að um helming „Við höfum þurft að skera starf- semi spítalans geysilega mikið niður og getum bara sinnt bráðaþjón- ustunni. Viö þurftum að fækka rúm- um um 60 prósent á lyflækningadeild og 30 prósent á handlækningadeild í byijun verkfalls og erum nú með helminginn af öllum rúmum á spíta- lanum í notkun," segir Gunnhildur Sigurðardóttir, hjúkrunarforstjóri á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði. Yfir 500 manns eru nú þegar á biö- lista á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði og lengjast listarnir stöðugt þar sem spítalinn er hálflamaður vegna verk- falls sjúkraliða sem staðið hefur á aöra viku. Aðeins átta rúm eru notuð á handlækningadeild í stað 24 þegar ekkert verkfall er og 18 rúm á lyf- lækningadeild í stað 29. Reykjalundur: Jaðrar við Helga Finnbogadóttir er tæplega niræður Reykvíkingur sem sækir dagdeild- ina i Hafnarbúðum þrisvar i viku. Helga sér llla og treystir sér ekki hjálpar- laust i sturtu í Hafnarbúðum enda hefur hún alltaf fengið hjálp sjúkraliða i baðinu. DV-mynd BG „Framkvæmdir á Laugavegi verða ekki á framkvæmdaáætlun borgarinnar á næsta ári. í sum- um tilvikum geta eigendurnir sjálfir hafið breytingar á götunni en í flestum tilvikum þarf ákveðnar aðgerðir af hálfu borg- ai'innar til að framkvæmdimar getí. hafist. Það verður ekki farið í þær framkvæmdir á næsta ári,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri. í DV á mánudag var greint frá tillögu sem liggur fyrir skipulags- nefhd borgarinnar um yfirbygg- ingu gangstétta við Laugaveg og yfirbyggt torg við Kjörgarð en forráðamenn Laugavegssamtak- anna hafa rætt við borgarfulltrúa um aö taka framkvæmdimar á fjái-hags- og framkvæmdaáætlun næsta árs. Rétt er að taka fram að hönnuð- urinn að breytíngunum á LaUga- vegi heitir Örn Sigurðsson, ekki Örn Ólafsson eins og sagt var í DV á mánudag. - Stuttar fréttir Of margiríbóknám Tæplega fiórfalt fieiri vefia bóknám en iðnnám hér á landi og er það mun hærra hlutfall en í nágrannalöndunum. I gær var iðnfræðsluátaki hleypt af stokk- unum sem ætlað er að breyta við- horfi fólks til iönnáms. Meira fæst fyrir f iskinn Verð sjávarafurða hefur hækk- að um 17% frá því í október. Skv. Mbl. jafhgildir hækkunin 2 milfi- örðum krónum á ári. Dregnir á asnaeyrum Ólafur Ragnar Grímsson, for- maður Alþýðubandalagsins, seg- ir Jóhönnu Siguröardóttur hafa dregiö þá á asnaeyrunum sem vildu sameina félagshyggjuöflin. Sjónvarpið hafði þetta eftír Ólafi. Óvissaumkostnað Evrópska atvinnumiðlunin Eu- rek hefur enn ekki tekið til starfa hér á landi þrátt fyrir aö Isiend- ingar hafi tekið fullan þátt í und- irbúningnum. Sjónvarpið segir ástæðuna þá að upplýsingar um kostnað liggi ekki fyrir. DavíðtiiKína Davíö Oddsson hefur þegið boð forsætisráðherra Kína um að koma í opinbera heimsókn þang- að sunnudaginn 27. nóvember til laugardagsins 3. desember. I fylgd með Davið verður 7 manna sendisveit. ísland úr NATO Baráttan gegn aðild íslands að NATO og veru hersins á Miðnes- heiði er enn brýnt verkefni, segir í ályktun herstöðvaandstæðinga sem héldu landsráðsstefhu um helgina. aðvera neyðarástand „Það jaðrar við neyðarástand hér á Reykjalundi því að sjúkrahðamir eru ákaflega mikilvæg stétt fyrir okkur. Samstarfið milh okkar og Sjúkrahðafélagsins hefur verið mjög gott. Við höfum sótt um undanþágur fyrir það sem við teljum brýnustu nauðsyn og þær hafa komið til móts við okkur. Meira geta þær ekki gert,“ segir Gréta Aðalsteinsdóttir, hjúkr- unarforstjóri á Reykjalundi. Áhrifin af verkfalh sjúkrahða skiptast nokkuð jafnt á dehdirnar á Reykjalundi en sambýh fyrir ofur- fatlaða er undanþegið verkfahinu. Starfsmenn á Reykjalundi hafa dreg- ið verulega úr starfseminni og segjr Gréta að aöeins það brýnasta sé gert. Ekki hafi komiö til umræðu að kaha hjúkrunarfræðinga á aukavaktir í stað sjúkrahða. Alþýðubandalagið: Andstaða við f orval á Reykjanesi „Ég held að það sé frekar mikh andstaöa viö forval í kjördæminu því að fólk virðist almennt vera þeirrar skoðunar að reynslan af forvali sé ekki góð. Niðurstöður í forvali gefa í raun ekki alltaf lýð- ræðislegustu niðurstöðuna heldur eru það frekar þeir sem hafa sterk- ustu aðstöðuna th aö smala sem ná bestri úrkomu og ungt fólk og konur verða undir,“ segir Sigríöur Jóhannesdóttir, varaþingmaöur Alþýðubandalagsins á Reykjanesi. Miklar umræður eru innan al- þýðubandalagsfélaganna á Reykja- nesi um hvort halda skuh forval um skipan efstu manna á hsta flokksins fyrir alþingiskosningam- ar. Tahð er að andstaðan gegn forv- ali sé mest í nýja sveitarfélaginu á Suðurnesjum en flokksmenn í sveitarfélögunum kringum Reykjavík séu frekar hlynntir því. Kjördæmisráð Alþýðubandalags- ins tekur ákvörðun um forval eða uppröðun á lista um mánaðamótin. „Ég er ekki búin að taka endan- lega ákvörðun um hvort ég gef kost á mér í annað sæti á hstanum enda er ekki búiö að ákveða hvort haldið verður forval. Ég reikna þó frekar með því þar sem ég var í þessu sæti í síðustu kosningum," segir Sigríður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.