Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1994, Page 3
ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1994
3
Fréttir
Starfsmaður Rannsóknarstofu i lyfjafræði skoðar sýni. Hægt er að sjá með
nokkuri vissu allt að nokkrum vikum aftur i tímann hvort um er að ræða
eiturlyfjaneyslu hjá þeim sem sýnið er frá. DV-mynd GVA
Lyfjapróf Lindu Pétursdóttur:
Hægt að sjá kanna-
bisef ni nokkrar vikur
aftur í tímann
- segir Jakob Kristinsson
„Við getum sagt til um þaö hvort
um er að ræöa einhver tiltekin
ávana- og fíkniefni, lyf eða áfengi í
þessum sýnum. Það er hægt að sjá
jafnvel nokkrar vikur aftur í tímann
ef um er að ræða kannabisefni. Það
er samt háð þvi hvað neyslan er mik-
il. Varöandi amfetamím og kókaín
er tíminn skemmri; sólarhringur eða
nokkrir sólarhringar. Það er ekki
hægt að gefa neina almenna reglu
um það,“ segir Jakob Kristinsson,
deildarstjóri réttarefnafræðideildar
Rannsóknarstofu í lyfjafræði.
Linda Pétursdóttir hefur sent sýni
til rannsóknar til Rannsóknarstofu í
lyfjafræði til að fá úr því skorið hvort
eitthvað finnist sem bendir til lyija-
notkunar af hennar hálfu en í lög-
regluskýrslu og kæru á hendur
henni kemur fram að hún hafi við
handtöku verið undir annarlegum
áhrifum. Niðurstöðu lyfjarannsókn-
ar er að vænta um miðja vikuna.
Jakob Kristinsson vildi taka skýrt
fram að hann gæfi ekki upplýsingar
um einstakar prufur sem bærust inn
til rannsóknar.
Hraðakstur og innbrot
Lögreglan í Reykjavík stöðvaði
ökumann á 122 kílómetra hraða á
Breiðholtsbraut í nótt. Ökumaður-
inn var fluttur á lögreglustöð og
sviptur ökuréttindum enda ók hann
á tvöfoldum leyfilegum hámarks-
hraða.
Einnig var brotist inn í hljóm-
tækjaverslun við Ármúla í nótt og
stolið tveimur hátölurum. Þjófarnir
voru á brott þegar lögregla og nætur-
verðir komu á vettvang.
Þá var brotist inn í söluturn í Graf-
arvogi í fyrrinótt og stohð tóbaki fyr-
ir á annað hundrað þúsund krónur.
Sveit Tryggingamiöstöövarinnar, bikarmeistari i bridge 1994. Frá vinstri eru
Bragi Hauksson, Sigurður Sverrisson, Sigtryggur Sigurðsson og Hrólfur
Hjaltason en Val Sigurðsson vantar á myndina. DV-mynd Sveinn
Bikarkeppni í bridge:
Sannfærandi sigur Trygg-
ingamiðstöðvarinnar
Um síðustu helgi fóru fram undan-
úrsht og úrslit í bikarkeppni Bridge-
sambands íslands. í undanúrshtum
áttust við sveitir Tryggingamið-
stöðvarinnar og Ghtnis annars vegar
og S. Ármanns Magnússonar og
Ragnars T. Jónassonar hins vegar.
Sveit TM vann sigur á Glitni 121-92
og sveit Ragnars náði, nokkuð
óvænt, að vinna sigur á sveit S. Ár-
manns með 105 impum gegn 103. í
úrshtum áttust því við sveitir TM og
Ragnars og þar var nánast um ein-
stefnu að ræða. Eftir 48 spil af 64 var
staðan orðin 163-50, TM í hag og þá
sáu spilarar í sveit Ragnars sér þann
kost vænstan að gefa leikinn. Sveit
Tryggingamiðstöðvarinnar er því
bikarmeistari í bridge árið 1994 og
spilarar í sveitinni eru Bragi Hauks-
son, Siguröur Sverrisson, Sigtryggur
Sigurðsson, Hrólfur Hjaltason og
Valur Sigurðsson. Kristján Hauks-
son var keppnisstjóri í úrslitum.
Samsung SP-R914S
Þráðlaus sími með 10 númera minni,
innanhúss-samtali, auka-rafhlöðu, endur-
vali á síðasta númeri, 20 tíma ending á
rafhlöðu o.m.fl.
0 ko^ir !
Panasonic EU2000
Handhœgurog
nettur GSM-
farsími til
að taka
með sér
hvert
sem
59.900,-
Samsung SP-R915S
Þráðlaus sími með 10 númera minni, innanhúss-
samtali, auka-rafhlöðu, endurvali á síðasta
númeri, 20 tíma ending á rafhlöðu o.m.fl.
/////////////////////////niiijiifiííiiin
Samsung SF-40 er faxtœki með
síma, hágœðaupplausn, tengjan-
legt við símsvara,10 nr. minni o.fl.
^ .......
.0). Af j
31900,:
mm
wmm
m BJÓDUM ÖRVALS-TÆKIÁ SÉRLE6A
HA6STÆDU VERDI06
c
MUNALÁN
6REIDSLUKJ0R VID ALLRA H/EFI!
Siemens S-3 plus
Sérlega nettur GSM-farsími, '95
línan og fœst aðeins hjá okkur!
Hraðþjónusta við landsbyggðina:
Grœnt númer:
996 886
(Kostar innanbœjarsímtal og
vörumar eru sendar santdœgurs)
igi 11
Sími: 886 886 Fax: 886 888