Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1994, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1994, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1994 Fréttir Telur steypustöð sina sniðgengna: Pólitískt steypustríð geisar í Grundarf irði - framsóknarmenn tóku möl í skjóli myrkurs Upp er komið nokkurs konar póli- tískt steypustríð í Grundarfiröi milli sveitarstjórnarmanna þar. Meiri- hluta stjómarinnar skipa Framsókn- arflokkur og Sjálfstæðisflokkur en Alþýðubandalagið er í minnihluta. Oddviti Alþýöubandalagsins er Ólaf- ur Guðmundsson sem á og rekur steypustöðina og hellusteypuna Styrk hf. en hún er sú eina sinnar tegundar í Grundarfiröi. Ólafur staðfestí í samtali við DV að hann væri ósáttur við vinnubrögð meirihlutamanna við ýmis steypu- verkefni sem fallið hafa til í bænum frá kosningunum. Ólafur vildi þó undirstrika að þessi mál tengdust ekki verkefnum sveitarfélagsins heldur verkefnum sem einstakhngar innan meirihluta sveitarstjórnarinn- ar tengdust með beinum eða óbein- um hætti. Ólafur nefnir fyrst til sögunnar það mál sem hann er ósáttastur við. Það er frágangur á símstöðvarlóð Pósts og síma í Grundarflrði sem fylgdi nokkur steypu- og hellulagningar- vinna. Ekkert útboð fór fram á því verki heldur var samið viö trésmið úr Grundarfirði sem síðan keypti alla steypuna frá Helhssandi. Þess má geta að trésmiðurinn er fyrsti varamaður Sjálfstæðisflokksins í hreppsnefnd og símstöðvarstjórinn annar varamaður flokksins í nefnd- inni. „Mér finnst það meira en lítið vafa- samt að opinbert fyrirtæki skuli ekki einu sinni gefa manni kost á því að vera þó með hærra tilboð. Þetta er ekkert annað en einkavinavæðing," sagði Ólafur. Annaö atvik nefnir Ólafur sem hann segir vera dæmi um „siöferðis- brest meirihlutamanna". Á dögun- um var verið að steypa plötu í hús- grunni með aöstoð oddvita hrepps- nefndarinnar sem er gröfumaður og jafnframt oddvití framsóknarmanna í Grundarfirði. „Þegar ég kem heim hringir í mig maöur seint um kvöld og segir að það sé verið að taka efni frá mér á steypu- stöðinni. Ég trúði þessu varla en síð- an kom í ljós að oddvitinn var þama að verki ásamt öðram framsóknar- manni. Hann viðurkenndi að hafa tekið möl frá mér og sagði örlítíð hafa vantað upp á hjá þeim tíl að klára steypuvinnuna. Hann bauðst til að bæta mér þetta en ég neitaði og féll frá kæru. Ég sagði honum að þetta snerist ekki um peninga heldur siðferði," sagöi Ólafur og bætti við að hann hefði aðeins eina skýringu áþessuatviki: „Þeir erujúallirfram- sóknarmenn." Enginn pólitískur áróður Friðgeir Hjaltalín er oddvití fram- sóknarmanna í Grundarfirði og tók mölina frá Ólafi. Hann sagði við DV að hann hefði ekki tekið hana í leyfis- leysi. Jafnframt kannaðist Friðgeir ekki við að meirihlutamenn í sveitar- stjórninni væru að sniðganga steypustöö Ólafs. „Það eru ýmsar hliðar á þessu með mölina. Málið er að Ólafur harpaði þetta efni fyrir mig í sumar. Það var samið um að ég keyrði fyrir hann upp í þessa mölun. Ég tók þama efni en það var ekki í skjóli myrkurs. Við höfum rætt þetta okkar á milli og komist aö niðurstöðu. Það er fjarri því aö einhver pólitískur áróður sé í gangi til að loka menn úti. Við þurf- um á öllum okkar fyrirtækjum að halda hér,“ sagði Friðgeir. Tæknideild Pósts og síma i Reykja- vík sá um framkvæmdina við sím- stöðina, sem kostaöi um 3 milljónir. Þar fengust þau svör að almenn regla væri hjá stofnuninni að bjóða ekki út verk undir 5 milljónum. í þessu tilviki hefði verið leitað til tveggja aðila á Snæfellsnesi til að fá þeirra kostnaðarhugmyndir. Tæknideildin hafði fengið þær upplýsingar frá heimamönnum aö eingöngu þessir tveir aðilar gætu framkvæmt verkið. Amgrímur Jóhannsson hjá Atlanta um samninginn við FÍA: Þrengir rekstrarumhverf i okkar / N - útilokar ekki að starfsemin fari úr landi „Við erum að kanna málin hjá okkur eftír að samningar tókust við FÍA. Þetta er í heildarendurskoðun. • Uppsagnimar verða dregnar til baka, að minnsta kosti einhverjar þeirra," sagði Arngrímur Jóhanns- son, forstjóri Atlanta, í samtah við DV, en vildi ekki greina nákvæmlega frá þvi hversu margir af þeim 82 starfsmönnum flugfélagsins sem fengu uppsagnarbréf í síðustu viku fengju vinnu áfram. Amgrímur sagðist ekki vera hættur að hugsa um að flytja starfsemina úr landi þótt samningar hefðu tekist við Félag íslenskra atvinnuflugmanna. Aðspurður hvort hann væri sáttur við samninginn sagði Arngrímur: „Þetta er á svipuðum nótum og viö lögðum fram daginn eftír að Félags- dómur úrskurðaði í málinu. Það var því dregið mjög lengi að komast að niöurstöðu. Eg get í sjálfu sér vel við unað að vera kominn aftur í frið. Samningurinn þrengir allt okkar rekstrarumhverfi. Okkar tilvera hef- ur byggst á sveigjanleika og skjótum viðbrögðum. Flugfélög hafa hringt og tveimur dögum seinna erum við komin af staö. Nú þarf að ráða fólk eftír kjarasamningum í stað þess að hafa verið í sambandi við áhafnaleig- ur áður.“ Eins og kom fram í DV á laugardag hefur Atlanta þegar misst eitt verk- efni vegna verkfallsumræðunnar. Um var að ræða flug í Grikklandi fyrir þýskt flugfélag sem átti að hefj- ast í byrjun næsta mánaðar. Arn- grímur sagði að fleiri verkefni væru ekki úr sögunni en verkfallið hefði haft lamandi áhrif á starfsemina. „Við erum með allar dyr opnar um hvað við eigum að gera næst,“ sagði Aragrímur en hann útilokar ekki aö starfsemi Atlanta flytjist úr landi í framtíðinni. Arngrímur var staddur á erlendri grund í síðustu viku, um það leytí sem sáttahljóð kom í deil- una við FÍA. Hann sagöist einmitt hafa verið að undirbúa flutning fé- lagsins úr landi en vildi ekki gefa upp á hvaða slóðum hann var. „Við erum komin með alla nauðsynlega pappíra og eigum þá ef við stígum skrefið til fulls.“ í dag mælir Dagfari Frúin í Hamborg Til er gamall og skemmtilegur orðaleikur fyrir börn sem heitír Frúin í Hamborg. Leikurinn geng- ur út á þaö að spyrja margra spurn- inga en ekki má svara með já eða nei og ekki heldur segja svart eða hvítt. Þessi leikur hefur smám saman verið að gleymast og týnast en nú getur Dagfari ekki betur séð en Sjálfstæðisflokkurinn sé búinn að taka þennan leik upp á arma sína í nýrri útfærslu. Formaður flokks- ins hefur haft forystu í þessum leik. Hann er frúin í Hamborg. Leikurinn hjá sjálfstæðismönn- um gengur út á það að það má fara í kosningabaráttu í vetur og í vor með einu skilyrði: það má ekki segja Evrópa og alls ekki Evrópu- samband. ESB er bannorð í kosn- ingabaráttunni og ef einhverjum verður á að segja ESB þegar minnst er á kosningar, þá hefur hann tap- að, þá er hann úr leik. Þá er hann örugglega ekki lengur góður og gildur í Sjálfstæðisflokknum. Fyrir utan skemmtunina sem formaöur flokksins hefur af þess- um leik, liggja líka sterk og póhtísk rök að baki þessum orðaleik for- mannsins og flokksins. Hann segir að Evrópa verði ekki á dagskrá fyrr en í fyrsta lagi á næstu öld. Evrópu- sambandið er eitthvað sem íslend- ingum kemur ekki við og það er alveg sama hversu mikið fólkið suður í Evrópu talar um Evrópu og það er alveg sama hvað Norður- landabúar greiöa oft atkvæði um Evrópusambandiö. Evrópusam- bandið er ekki á dagskrá á íslandi. Flestir flokkar hér á landi hafa tekið þetta alvarlega og minnast ekki einu orði á Evrópusambandið. Enda eru þeir ahir á biðilsbuxun- um hjá íhaldinu og vonast til að komast í eina sæng með Davið eftir kosningar. Framsókn segir ekki Evrópa, ahabahar minnast ekki einu oröi á Evrópusambandið og hjá Kvennahstanum er Evrópu- sambandiö algjört tabú, eins og reyndar flest það sem snertir út- lönd. Sjálfstæðismenn hafa verið trúir þesum fyrirmælum frá for- manni sínum og neita að tala um Evrópusambandið nema í laumi. Ungir sjálfstæðismenn ætluðu að fara að tala um Evrópusambandið nýlega á þingi hjá sér og þá kom formaðurinn og gaf þeim gula spjaldið og varaöi þá við að nefna Evrópusambandið á nafn. At- vinnurekendur 1 Sjálfstæðis- flokknum munu hafa haldið leyni- fund fyrir austan íjall fyrir skömmu til að ræða Evrópusam- bandiö og fengu bágt fyrir. Enda þorir ekki nokkur maður að kann- ast viö að hafa verið á þessum fundi. Frúin í Hamborg ræður sem sagt ríkjum í Sjálfstæðisflokknum. For- maðurinn hefur ljáð máls á því að fala megi hugsanlega um Evrópu- sambandið eftir tvö ár, en alls ekki fyrr og ahs ekki í kosningunum í vor. Sjálfstæðismenn veröa strang- lega að vara sig á því. Alþýðuflokkurinn hefur einn flokka vogað sér að tala um Evr- ópusambandið, enda er Jón Bald- vin ódæll og erfiður í samskiptum og frúin í Hamborg hefur í raun- inni sett hann út af sakramentinu og það er nánast formsatriði að ljúka kjörtímabilinu. Það er ekki púkkandi upp á krata lengur sem tönglast á Evrópusambandinu, þvert gegn fyrirmælum frúarinnar í Hamborg. Kratarnir eru að tala um eitthvað sem ekki má. Þeir brjóta leikreglurnar. Þetta er í sjálfu sér ekki spuming um það hvort Evrópa er að samein- ast eða hvort íslendingar eða aðrar þjóðir hafa hagsmuni af því að ganga til samstarfs við ESB. Þetta er ekki spurning um póhtík eða afstöðu íslendinga til þeirra viö- horfa sem efst eru á baugi í útlönd- um eöa þá hér heima. Þetta er spurning um að gegna formannin- um sem tekið hefur að sér að vera frúin í Hamborg. Formaðurinn er margbúinn að segja íslenskum kjósendum og ís- lenskum stjórnmálaflokkum frá því að hann telji Evrópusambandið ekki vera á dagskrá fyrr en eftir aldamótin í fyrsta lagi (vonandi eru það næstu aldamót en ekki þau þar næstu) og það er hann sem er frúin í Hamborg og ræður leikreglunun og ræöur því hvað íslendingar tala um í kosningabaráttu. Þess vegna eiga alhr að gegna formanninum. Annars eru þeir ekki með í leikn- um og verða stikkfrí í kosningun- um. I kosningunum má bara tala um það sem frúin í Hamborg ákveður. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.