Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1994, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1994, Síða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 22. NÖVEMBER 1994 Menning Myndlistarmenn æfir vegna niöurskurðar Myndskreytingasjóðs: Pökkuðu SóKarinu inn í mótmælaskyni - ekki útilokað að fleiri listaverkum verði pakkað inn HauksMorthens öm EagnaiasQn, DV, Hðum; Leikfélag Fljótsdaishéraðs hef- ur sett saman sérstaka dagskrá utan um lög Hauks Morthens og berhúnheitið„Hérstóöbær. . .“ Undir söngnum leikur hljóm- sveitin EB-sextettinn en meðal söngvara í þessari dagskrá eru Margrét Lára Þórarinsdóttir og Ingibjörg Ingadóttir. Þá syngur Sigurborg Hannesdóttir lagið Til eru fræ á mjög áhrifarikan hátt. Fyrir hlé samanstendur dag- skráin af söngvum sem Sveinn Herjólfsson tengir saman með gamansömura kynningarpistl- um. Þá birtist Simbi á gulri skyrtu og Capri Katrínu er sung- ið lof. Eftir hlé rennur dagskráin meira inn í kabarettformið þar sem söngvarnir eru fléttaðir inn í leikþætti Arndisar Þorvalds- dóttur. Ingibjörg Ingadóttir og Broddi Bjarnason í hlutverkum sinum i „Hér stóð bær. . . “ Tónleikar ftil styrktarAlnæm- issamtökunum Miklir tónleikar til styrktar Al- næmissamtökunum eru í undir- búningi í Undirheimum Fjöl- brautaskólans í Breiðholti. Tón- leikarnir verða á fóstudagskvöld. Hefst dagskráin kl, 19.40 og endar á miðnætti. Á tónleikunum kem- ur fram fjöldi hljómsveita og skemmtikrafta; Maus, Curver, Olympia, Talz Gizur, Wool, Sig- urrós, Drome, Muleskinner, Haf- dís og Sigurrós. „Frá því fjárlagafrumvarpið var lagt fram og ljóst var að leggja ætti Listskreytingasjóð niður höfum viö veriö í aðgerðum og beitt ráðamenn þrýstingi. Menn hlusta og segjast haifa skilning en ekkert gerist. Sjóð- urinn fellur undir ráðuneyti mennta- mála en ráðherra segir að sjóðurinn sé ekki í sínum höndum og fríar sig allri ábyrgð," sagði Hrafnhildur Sig- urðardóttir, stjómarmaöur í Sam- bandi íslenskra myndlistarmanna, viö DV. Félgar í Sambandi íslenskra mynd- listarmanna, SÍM, fjölmenntu við Sólfar, listaverk Jóns Gunnars Árna- sonar við Sæbraut, í gær og pökkuðu því inn í mótmælaskyni við niður- skurð Listkreytingasjóös. Á þann hátt segjast félagar í SÍM fara í eins konar verkfall. Ekki er útilokað að fleiri listaverkum verði pakkaö inn á næstunni. í yfirlýsingu SÍM er niöurskurður Myndskreytingasjóðs kallaður menningarslys sem ekki varði ein- ungis myndlistarmenn heldur hinn almenna borgara í landinu. Mynd- listarverk í opinberri eigu séu eign almennings en Listskreytingasjóður leggi til stóran hluta þess ijármagns sem ríkið hefur haft til hstaverka- kaupa. „Þetta er menningarfjandsamleg ákvörðun og alvarleg tíðindi fyrir myndlist á íslandi. Því viljum við leita stuðnings allra þeirra sem láta sig þessi mál varða til að koma í veg fyrir að þessi niöurskurður á fram- lagi til myndlistar verði samþykktur á Alþingi," segir í opnu bréfi Sólveig- ar Eggertsdóttur, formanns SÍM. „Ef sjóðurinn verður lagður niður verður fjárhagur skrifstofu SÍM lagður í rúst. Það athugðu ráðamenn ekki en skrifstofan rekur Listkreyt- ingasjóð. Ég held að þegar menn skoða málið í alvöru gangi þessi nið- urskurðaráform til baka. Enda er hér verið að brjóta lög. Reyndar hefur það lengi verið gert þar sem fjár- framlagið hefur aldrei verið meira en 25^30 prósent af lögbundnu fram- lagi. í fyrra átti framlagið aö vera 36 milljónir en varð ekki nema 12 millj- ónir. Það er miklu meira í húfi en sparnaöur í kaupum listaverka. Fjár- hagsgrundvöllur okkar myndlistar- manna er í húfi þar sem þetta er eini sjóðurinn sem ætlað er að kaupa listaverk. Tólf milljónir eru ekki stór tala í fjárlagafrumvarpinu en skiptir okkur höfuðmáli." A einni sýningu Danshöfundakvölds Islenska dansflokksins gáfu listamenn og aðrir aðstandendur vinnu sina. Innkoma sýningarinnar var 108 þúsund krónur og rann hún til Alnæmissamtakanna á íslandi. Á myndinni sést hvar Vilborg Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri íslenska dansflokksins, afhendir Björgvini Gíslasyni, formanni Al- næmissamtakanna, innkomu sýningarinnar. Á myndinni er einnig David Greenall, danshöfundur og dansari. Olafur Jóhann Ólafsson um Sniglaveisluna, sína þriðju skáldsögu: Þetta er skollaleikur með r gamansömu ívafi „í upphafl bókarinnar legg ég upp með þá staðreynd að heimurinn hafi breyst mikið, ekki sé hægt að reiða sig á neitt sem áður var tekið gott og gilt. Öll valdahlutfóll hafa hrunið. Fyrrum fjandvinir eru orðnir bræð- ur. Ef menn ætla aö skrifa um jafn víðfeðmt viöfangsefni verður að gera það á mjög knappan hátt, annars gengur það ekki upp. Ég leik mér með mynd af heiminum á svolítið ólíkindalegan hátt þar sem skolla- leikur er áberandi; leikur kattar að mús eða dans tveggja músa sem báð- ar halda að þær séu kettir. Sagan gerist aðallega á einu kvöldi í Reykja- vík þar sem menn hittast í veislu. I veislum eru menn glaðir en eins og segir í kvæði Gríms Thomsens; í bróðemi vega menn hver annan. Þetta er skollaleikur með glettnu ívafi, persónusaga sem gæti gerst hvar sem er,“ segir Ólafur Jóhann Ólafsson rithöfundur sem nú sendir frá sér sína fjórðu bók, Sniglaveisl- una. Ólafur Jóhann Ólafsson. Ólafur er löngu þekktur sem rithöf- undur og forstjóri Sony í Bandaríkj- unum. Fyrri skáldsögur hans, Fyrir- gefning syndanna og Markaðstorg guðanna, fengu yfirleitt mjög góðar viðtökur hér heima og erlendis og eins smásagnasafniö Níu lyklar sem kom út 1986. Það vekur jafnan furðu hvemig Ólafur getur sinnt hvom tveggja, aö stjóma stórfyrirtæki eins og Sony og skrifa metsölubækur. Ólafur hefur nýverið skrifað undir fimm ára starfssamning við Sony. Þar er sér- staklega kveðið á um að hann fái meiri tíma til skrifta en áður. „Þetta er farið að taka svo mikinn tíma. Ég þarf að lesa yfir þýðingar, eiga í samskiptum við erlend útgáfu- fyrirtæki en kem þó ekkert nálægt samningum. Þá eru ótalin viðtöl og önnur kynningarstarfsemi. Bækur era í samkeppni við svo margt annað þar sem frítími fólks er annars veg- ar.“ Alltaf þörf fyrir að skrifa Ólafur segist alltaf hafa haft þörf fyrir að skrifa enda fengist við skrift- ir frá þvi hann var strákur. „Ég fór í eðlisfræði aðallega til að kynnast raunvísindum. En stuttu eftir að ég lauk prófi slysaðist ég inn í viðskipti. Ég ætlaði aldrei að fara í viöskipti og hafði aldrei látið mér koma til hugar aö ég myndi enda í viðskiptum. Það er því miklu nær að segja að ég hafi dottið i viðskiptin fremur en skriftirnar. Það hefur síð- an gerst með árunum að skriftinar eru mér enn mikilvægari en áður.“ Ólafur segir ritstörfm koma sér vel í starfi sínu sem aöallega felst í sam- böndum við fólk í hvers kyns hug- verkagerð á vegum Sony, handrits- höfunda og fleiri. En hann segir enn- fremur að það eigi engan veginn við sig að stjórna fyrirtæki sem framleið- ir bíla eða slíkt. - Ertufarinnaðhugaaðnýrribók? „Sniglaveislan er enn ekki komin út úr kollinum á mér. Persónumar eru það nátengdar manni að það er erfitt að losna við þær úr höfðinu. Ég hamaðist í Sniglaveislunni áður en ég lauk henni, endurskrifaði hana mjög oft, þétti hana og skar niður þannig að það líður smátími áður en ég get byijað á nýrri. Ég byrja síðan ekki að skrifa fyrr en sögumar eru nokkuö fullmótaðar í höfðinu á mér. Þannig er meðgöngutíminn lengri en áður,“ segir Ólafur. Listasafníslands: Sýning á stof n- gjöfsafnsins Listasafn Islands opnar á laug- ardag sýningu á stofngjöf saihs- ins en safnið á 110 ára afmæli um þessar mundir. Er sýningin hald- in í tilefni þess og eins til að heiðra minningu stofnanda þess, Björns Bjarnasonar, fyrrmn al- þingismanns. Á sýningunn verða aðallega dönsk málverk frá síðari hluta 19. aldar. Bamabókaráðið: Verðlaun afhent ísmásagnasam- keppni Barnabókaráðið, íslandsdeild IBBY, verðlaunar í dag þrjá höf- unda í smásagnasamkeppni sem efnt var til í tilefhi af ári fjölskyid- unnar og afmæli íslenska lýð- veldisins. Um leið verður bókin Omiagull gefin út. Hún hefur að geyma 14 bestu sögumar i smá- sagnasamkeppninni en þær eru allar byggöar á þjóðlegum sagna- minnum. Hvað um Leonardo? Boðið á leiklistar- hátíðíSlóveníu Leikfélag Reykjavíkur hefur verið boðið aö koma á leiklistar- hátíð í Ljubljana með leikritið Hvað um Leonardo? eftir Evald Flisar. Leikritið gerist á heimili fyrir fólk með taugatruflanir og vekur upp margar spurningar um leið og það er fyndið. Leik- stjóri er Hallmar Sigurðsson. Leikbrúðuland: íslenskirjóla- sveinartil London Leikbrúðuland er á leið til Lon- don með leikritið Jólaveinar einn og átta eftir Jón Hjartarson. Því verða fáar sýningar á leikritinu hér heima, þrjár á íslensku og ein á ensku. Sýningarnar á íslensku veröa að Fríkirkjuvegi 1127. nóv- ember og 3. og 4. desember. Þjóðleikhúsið Fávitinnjóla- leikrit Æfingar á Fávitanum eftir Fod- or Dostojevskí standa nú yfir í Þjóðleihúsinu. Er Fávitinn jóla- leikrit Þjóðleikhússins. Meðal leikenda í Fávitanum eru Hilmir Snær Guönason, Baltasar Kor- mákur, Tinna Gunnlaugsdóttir, Steinunn Ólína Þorsteínsdóttir, Helga Bachmann, Edda Amljóts- dóttir, Halldóra Bjömsdóttir, Stefán Jónsson og Sigurður Skúlason. Leikstjóri er Kaisa Korhonen. Hafnarfjörður fyrrognú Lýðveldisnefnd Hafharfjarðar og Byggðasafn Hafharftarðar standa fyrir Ijósmyndasýning- unni „Hafnarijörður fyrr og nú“. A sýningunni, sem verður í Hafn- arborg og verður opnuð á laugar- dag, era Ijósmyndir eftir ijós- myndarana Guðbjart Ásgeirsson og Herdísi Guðmundsdóttur frá árunum 1920-1940 og síðan ljós- myndir eftir Magnús Hjörleifsson sem teknar voru frá sama sjónar- horni á þessu ári. Varpar sýning- in ljósi á þær raiklu breytingar sem orðið hafa á Hafnarfirði á síðustu 50-70 árum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.