Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1994, Blaðsíða 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 22. NÖVEMBER 1994
Menning
Myndlistarmenn æfir vegna niöurskurðar Myndskreytingasjóðs:
Pökkuðu SóKarinu
inn í mótmælaskyni
- ekki útilokað að fleiri listaverkum verði pakkað inn
HauksMorthens
öm EagnaiasQn, DV, Hðum;
Leikfélag Fljótsdaishéraðs hef-
ur sett saman sérstaka dagskrá
utan um lög Hauks Morthens og
berhúnheitið„Hérstóöbær. . .“
Undir söngnum leikur hljóm-
sveitin EB-sextettinn en meðal
söngvara í þessari dagskrá eru
Margrét Lára Þórarinsdóttir og
Ingibjörg Ingadóttir. Þá syngur
Sigurborg Hannesdóttir lagið Til
eru fræ á mjög áhrifarikan hátt.
Fyrir hlé samanstendur dag-
skráin af söngvum sem Sveinn
Herjólfsson tengir saman með
gamansömura kynningarpistl-
um. Þá birtist Simbi á gulri
skyrtu og Capri Katrínu er sung-
ið lof. Eftir hlé rennur dagskráin
meira inn í kabarettformið þar
sem söngvarnir eru fléttaðir inn
í leikþætti Arndisar Þorvalds-
dóttur.
Ingibjörg Ingadóttir og Broddi
Bjarnason í hlutverkum sinum i
„Hér stóð bær. . . “
Tónleikar ftil
styrktarAlnæm-
issamtökunum
Miklir tónleikar til styrktar Al-
næmissamtökunum eru í undir-
búningi í Undirheimum Fjöl-
brautaskólans í Breiðholti. Tón-
leikarnir verða á fóstudagskvöld.
Hefst dagskráin kl, 19.40 og endar
á miðnætti. Á tónleikunum kem-
ur fram fjöldi hljómsveita og
skemmtikrafta; Maus, Curver,
Olympia, Talz Gizur, Wool, Sig-
urrós, Drome, Muleskinner, Haf-
dís og Sigurrós.
„Frá því fjárlagafrumvarpið var
lagt fram og ljóst var að leggja ætti
Listskreytingasjóð niður höfum viö
veriö í aðgerðum og beitt ráðamenn
þrýstingi. Menn hlusta og segjast
haifa skilning en ekkert gerist. Sjóð-
urinn fellur undir ráðuneyti mennta-
mála en ráðherra segir að sjóðurinn
sé ekki í sínum höndum og fríar sig
allri ábyrgð," sagði Hrafnhildur Sig-
urðardóttir, stjómarmaöur í Sam-
bandi íslenskra myndlistarmanna,
viö DV.
Félgar í Sambandi íslenskra mynd-
listarmanna, SÍM, fjölmenntu við
Sólfar, listaverk Jóns Gunnars Árna-
sonar við Sæbraut, í gær og pökkuðu
því inn í mótmælaskyni við niður-
skurð Listkreytingasjóös. Á þann
hátt segjast félagar í SÍM fara í eins
konar verkfall. Ekki er útilokað að
fleiri listaverkum verði pakkaö inn
á næstunni.
í yfirlýsingu SÍM er niöurskurður
Myndskreytingasjóðs kallaður
menningarslys sem ekki varði ein-
ungis myndlistarmenn heldur hinn
almenna borgara í landinu. Mynd-
listarverk í opinberri eigu séu eign
almennings en Listskreytingasjóður
leggi til stóran hluta þess ijármagns
sem ríkið hefur haft til hstaverka-
kaupa.
„Þetta er menningarfjandsamleg
ákvörðun og alvarleg tíðindi fyrir
myndlist á íslandi. Því viljum við
leita stuðnings allra þeirra sem láta
sig þessi mál varða til að koma í veg
fyrir að þessi niöurskurður á fram-
lagi til myndlistar verði samþykktur
á Alþingi," segir í opnu bréfi Sólveig-
ar Eggertsdóttur, formanns SÍM.
„Ef sjóðurinn verður lagður niður
verður fjárhagur skrifstofu SÍM
lagður í rúst. Það athugðu ráðamenn
ekki en skrifstofan rekur Listkreyt-
ingasjóð. Ég held að þegar menn
skoða málið í alvöru gangi þessi nið-
urskurðaráform til baka. Enda er hér
verið að brjóta lög. Reyndar hefur
það lengi verið gert þar sem fjár-
framlagið hefur aldrei verið meira
en 25^30 prósent af lögbundnu fram-
lagi. í fyrra átti framlagið aö vera 36
milljónir en varð ekki nema 12 millj-
ónir. Það er miklu meira í húfi en
sparnaöur í kaupum listaverka. Fjár-
hagsgrundvöllur okkar myndlistar-
manna er í húfi þar sem þetta er eini
sjóðurinn sem ætlað er að kaupa
listaverk. Tólf milljónir eru ekki stór
tala í fjárlagafrumvarpinu en skiptir
okkur höfuðmáli."
A einni sýningu Danshöfundakvölds Islenska dansflokksins gáfu listamenn og aðrir aðstandendur vinnu sina.
Innkoma sýningarinnar var 108 þúsund krónur og rann hún til Alnæmissamtakanna á íslandi. Á myndinni sést
hvar Vilborg Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri íslenska dansflokksins, afhendir Björgvini Gíslasyni, formanni Al-
næmissamtakanna, innkomu sýningarinnar. Á myndinni er einnig David Greenall, danshöfundur og dansari.
Olafur Jóhann Ólafsson um Sniglaveisluna, sína þriðju skáldsögu:
Þetta er skollaleikur með
r
gamansömu ívafi
„í upphafl bókarinnar legg ég upp
með þá staðreynd að heimurinn hafi
breyst mikið, ekki sé hægt að reiða
sig á neitt sem áður var tekið gott
og gilt. Öll valdahlutfóll hafa hrunið.
Fyrrum fjandvinir eru orðnir bræð-
ur. Ef menn ætla aö skrifa um jafn
víðfeðmt viöfangsefni verður að gera
það á mjög knappan hátt, annars
gengur það ekki upp. Ég leik mér
með mynd af heiminum á svolítið
ólíkindalegan hátt þar sem skolla-
leikur er áberandi; leikur kattar að
mús eða dans tveggja músa sem báð-
ar halda að þær séu kettir. Sagan
gerist aðallega á einu kvöldi í Reykja-
vík þar sem menn hittast í veislu. I
veislum eru menn glaðir en eins og
segir í kvæði Gríms Thomsens; í
bróðemi vega menn hver annan.
Þetta er skollaleikur með glettnu
ívafi, persónusaga sem gæti gerst
hvar sem er,“ segir Ólafur Jóhann
Ólafsson rithöfundur sem nú sendir
frá sér sína fjórðu bók, Sniglaveisl-
una.
Ólafur Jóhann Ólafsson.
Ólafur er löngu þekktur sem rithöf-
undur og forstjóri Sony í Bandaríkj-
unum. Fyrri skáldsögur hans, Fyrir-
gefning syndanna og Markaðstorg
guðanna, fengu yfirleitt mjög góðar
viðtökur hér heima og erlendis og
eins smásagnasafniö Níu lyklar sem
kom út 1986.
Það vekur jafnan furðu hvemig
Ólafur getur sinnt hvom tveggja, aö
stjóma stórfyrirtæki eins og Sony og
skrifa metsölubækur. Ólafur hefur
nýverið skrifað undir fimm ára
starfssamning við Sony. Þar er sér-
staklega kveðið á um að hann fái
meiri tíma til skrifta en áður.
„Þetta er farið að taka svo mikinn
tíma. Ég þarf að lesa yfir þýðingar,
eiga í samskiptum við erlend útgáfu-
fyrirtæki en kem þó ekkert nálægt
samningum. Þá eru ótalin viðtöl og
önnur kynningarstarfsemi. Bækur
era í samkeppni við svo margt annað
þar sem frítími fólks er annars veg-
ar.“
Alltaf þörf fyrir að skrifa
Ólafur segist alltaf hafa haft þörf
fyrir að skrifa enda fengist við skrift-
ir frá þvi hann var strákur.
„Ég fór í eðlisfræði aðallega til að
kynnast raunvísindum. En stuttu
eftir að ég lauk prófi slysaðist ég inn
í viðskipti. Ég ætlaði aldrei að fara í
viöskipti og hafði aldrei látið mér
koma til hugar aö ég myndi enda í
viðskiptum. Það er því miklu nær
að segja að ég hafi dottið i viðskiptin
fremur en skriftirnar. Það hefur síð-
an gerst með árunum að skriftinar
eru mér enn mikilvægari en áður.“
Ólafur segir ritstörfm koma sér vel
í starfi sínu sem aöallega felst í sam-
böndum við fólk í hvers kyns hug-
verkagerð á vegum Sony, handrits-
höfunda og fleiri. En hann segir enn-
fremur að það eigi engan veginn við
sig að stjórna fyrirtæki sem framleið-
ir bíla eða slíkt.
- Ertufarinnaðhugaaðnýrribók?
„Sniglaveislan er enn ekki komin
út úr kollinum á mér. Persónumar
eru það nátengdar manni að það er
erfitt að losna við þær úr höfðinu.
Ég hamaðist í Sniglaveislunni áður
en ég lauk henni, endurskrifaði hana
mjög oft, þétti hana og skar niður
þannig að það líður smátími áður en
ég get byijað á nýrri. Ég byrja síðan
ekki að skrifa fyrr en sögumar eru
nokkuö fullmótaðar í höfðinu á mér.
Þannig er meðgöngutíminn lengri en
áður,“ segir Ólafur.
Listasafníslands:
Sýning á stof n-
gjöfsafnsins
Listasafn Islands opnar á laug-
ardag sýningu á stofngjöf saihs-
ins en safnið á 110 ára afmæli um
þessar mundir. Er sýningin hald-
in í tilefni þess og eins til að
heiðra minningu stofnanda þess,
Björns Bjarnasonar, fyrrmn al-
þingismanns. Á sýningunn verða
aðallega dönsk málverk frá síðari
hluta 19. aldar.
Bamabókaráðið:
Verðlaun afhent
ísmásagnasam-
keppni
Barnabókaráðið, íslandsdeild
IBBY, verðlaunar í dag þrjá höf-
unda í smásagnasamkeppni sem
efnt var til í tilefhi af ári fjölskyid-
unnar og afmæli íslenska lýð-
veldisins. Um leið verður bókin
Omiagull gefin út. Hún hefur að
geyma 14 bestu sögumar i smá-
sagnasamkeppninni en þær eru
allar byggöar á þjóðlegum sagna-
minnum.
Hvað um Leonardo?
Boðið á leiklistar-
hátíðíSlóveníu
Leikfélag Reykjavíkur hefur
verið boðið aö koma á leiklistar-
hátíð í Ljubljana með leikritið
Hvað um Leonardo? eftir Evald
Flisar. Leikritið gerist á heimili
fyrir fólk með taugatruflanir og
vekur upp margar spurningar
um leið og það er fyndið. Leik-
stjóri er Hallmar Sigurðsson.
Leikbrúðuland:
íslenskirjóla-
sveinartil
London
Leikbrúðuland er á leið til Lon-
don með leikritið Jólaveinar einn
og átta eftir Jón Hjartarson. Því
verða fáar sýningar á leikritinu
hér heima, þrjár á íslensku og ein
á ensku. Sýningarnar á íslensku
veröa að Fríkirkjuvegi 1127. nóv-
ember og 3. og 4. desember.
Þjóðleikhúsið
Fávitinnjóla-
leikrit
Æfingar á Fávitanum eftir Fod-
or Dostojevskí standa nú yfir í
Þjóðleihúsinu. Er Fávitinn jóla-
leikrit Þjóðleikhússins. Meðal
leikenda í Fávitanum eru Hilmir
Snær Guönason, Baltasar Kor-
mákur, Tinna Gunnlaugsdóttir,
Steinunn Ólína Þorsteínsdóttir,
Helga Bachmann, Edda Amljóts-
dóttir, Halldóra Bjömsdóttir,
Stefán Jónsson og Sigurður
Skúlason. Leikstjóri er Kaisa
Korhonen.
Hafnarfjörður
fyrrognú
Lýðveldisnefnd Hafharfjarðar
og Byggðasafn Hafharftarðar
standa fyrir Ijósmyndasýning-
unni „Hafnarijörður fyrr og nú“.
A sýningunni, sem verður í Hafn-
arborg og verður opnuð á laugar-
dag, era Ijósmyndir eftir ijós-
myndarana Guðbjart Ásgeirsson
og Herdísi Guðmundsdóttur frá
árunum 1920-1940 og síðan ljós-
myndir eftir Magnús Hjörleifsson
sem teknar voru frá sama sjónar-
horni á þessu ári. Varpar sýning-
in ljósi á þær raiklu breytingar
sem orðið hafa á Hafnarfirði á
síðustu 50-70 árum.