Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1994, Side 13
ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1994
13
dv Fréttir
Framboðsmál á Norðurlandi vestra:
Sótt að Vilhjálmi og
Höllustaðabóndamim?
•.
Páll Pétursson. Margir telja aö Vilhjálmur Egilsson. Andstæðing-
hann geti ekki gengió aö 1. sætinu arnir segja hann „þingmann i
sem vísu. hlutastarfi“.
Mikil óvissa er varöandi framboös-
málin í Noröurlandskjördæmi
vestra vegna kosninganna til Al-
þingis í vor. Frambjóðendur sem
voru í „öruggum“ sætum fyrir
kosningarnar 1991 geta ekki verið
öruggir meö sæti sín á listunum
nú og á þetta ekki síst við um Pál
Pétursson og Vilhjálm Egilsson.
Lítiö hefur heyrst um væntanlegt
framboð Kvennahstans í kjördæm-
inu, en konurnar fara væntanlega
að vinna að framboðsmálum eftir
ákvörðun landsfundar þeirra að
bjóða fram í öllum kjördæmum.
Páll Pétursson, oddviti framsókn-
armanna í kjördæminu, virðist
ekki öruggur með sæti sitt. Vitað
er að í Skagaíirði, á „heimavelli"
Stefáns Guðmundssonar, er ekki
mikið fylgi við hann og heimafylgið
í Húnavatnssýslum þykir hafa
minnkað. Margir segja að PáU sé
mun minna heima við en áður og
sinni kjósendum ekki eins vel og
áður. Það verður heldur ekki til að
auövelda Páli róðurinn að Elín
Líndal úr Húnavatnssýslu stefnir á
annað af tveimur efstu sætunum.
Útkoman gæti orðiö sú að Stefán
Guðmundsson hreppti 1. sætið og
Páll yrði að gera sér 2. sætið að
góðu. Framsóknarmenn hafa ekki
tekið ákvörðun um hvernig þeir
standa að röðun á Usta, hvort þeir
efna tU prófkjörs eöa viðhafa upp-
. stiUingu á vegum kjörnefndar, en
prófkjörsleiðin er talin koma sér
Ula fyrir Pál.
Spenna hjá íhaldinu
Þá er spennan ekki minni meðal
Sjálfstæðismanna eftir að Pálmi
Jónsson, oddviti flokksins í kjör-
dæminu, ákvað að hætta í pólitík í
vor. Vilhjálmur Egilsson sem var í
2. sæti 1991 og feUdi Jón Sæmund
Sigurjónsson krata út af þingi,
sækist ákveðið eftir 1. sætinu, og
það gerir einnig Hjálmar Jónsson
varaþingmaður sem var í 3. sæti
síðast.
Báðir eru þeir taldir vera þing-
menn Skagfirðinga og þá sérstak-
lega Sauðárkróks, og flokksmenn
annars staðar í kjördæminu una
því illa þess vegna aö þeir skipi tvö
efstu sætin. Siglflrðingar hafa
ákveðið að tefla fram Runólfi Birg-
issyni sem „sínum" frambjóðanda
í annað efstu sætanna. Þá vilja
Húnvetningar örugglega hafa eitt-
hvað um það að segja hver taki
sæti Pálma á listanum og er nafn
Ágústs Sigurðssonar, bónda á
Geitaskarði, aðallega nefnt í því
sambandi.
Talið er að Hjálmar hafi sterkara
fylgi utan Skagafjarðar en Vil-
hjálmur, m.a. í Húnavatnssýslum,
en þar þjónaði Hjálmar sem prest-
ur áður en hann fluttist til Sauðár-
króks. Þá er það tahð spiUa fyrir
Vilhjálmi að hann sé „þingmaður
í hlutastarfi" eins og einn viðmæ-
landi DV orðaði það, og sinni kjör-
dæminu ekki nógu vel. Sjálfstæðis-
menn efna tU prófkjörs 26. nóvemb-
er næstkomandi.
Ragnar í eitt ár?
Ekki verður hróflað við Ragnari
Arnalds í 1. sæti hjá Alþýðubanda-
laginu. Slagurinn verður hins veg-
ar um 2. sæti Ustans, ekki síst
vegna þess að fuUyrt er að Ragnar
ætU sér aðeins að sitja á þingi í eitt
ár, hann hafi ætlað að hætta nú í
lok kjörtímabUsins en falUst á að
gefa kost á sér að nýju tíl aö koma
í veg fyrir átök um efstu sætin. Þau
sem aðallega eru orðuð við 2. sætið
eru Anna Kristín Gunnarsdóttir,
bæjarfulltrúi á Sauðárkróki, og
Sigurður Hlöðversson, bæjar-
tæknifræðingur á Siglufirði. Upp-
stillingarnefnd mun að öllum lík-
indum gera tiUögu um skipun list-
ans.
Barátta hjá krötum
Alþýöuflokkurinn tapaði þing-
manni sínum í kjördæminu í kosn-
ingunum 1991 mjög naumlega. Jón
Sæmundur Sigurjónsson skipaði
þá 1. sæti á lista kratanna og hann
var orðaður við það sæti nú. Þó
þóttust menn sjá einhver merki
Fréttaljós
Gylfi Kristjánsson
þess að hann væri e.t.v. ekki ákveð-
inn í að sækjast eftir sætinu því
hann mætti ekki á kjördæmisþing
flokksins á dögunum og nú hefur
hann tilkynnt að hann hafi gengið
fil Uðs við framboð Jóhönnu Sig-
urðardóttur.
Kristján Möller, forseti bæjar-
Ragnar Arnalds. Hættir hann eftir
eitt ár?
stjórnar á Siglufirði, sækist eftir 1.
sætinu og Jón Hjartarson, skóla-
meistari á Sauðárkróki, mun einn-
ig vilja það sæti. Þá hefur nafn
Björns Sigurbjörnssonar, skóla-
stjóra og bæjarfuUtrúa á Sauðár-
króki, einnig verið nefnt en minni
lýkur eru þó taldar á að hann fari
fram. Kjördæmisráð flokksins á
eftir að ákveða hvort efnt verður
tU prófkjörs eða hvort stillt verður
upp á Ustann á annan hátt.
Spennandi uppgjör
Það hefur oft reynst erfitt að
Kristján Möller sækist eftir 1. sæti
á lista kratanna.
sætta sjónarmiö í flokkunum á
Norðurlandi vestra þegar setja hef-
ur átt saman framboðslista. Veldur
því aðaUega að nokkuð skörp skil
eru milli Húnvetninga, Skagfirð-
inga og Siglfirðinga en þessir aðilar
hafa oft eldað grátt silfur saman
pólitík er annars vegar og vilja veg
„sinna frambjóðenda“ sem mestan.
Ekki er sjáanleg nein breyting á
þvi nú og þess vegna er óhætt að
segja að spennandi uppgjör sé
framundan á Noröurlandi vestra.
Island
Sækjum
þaö heim!
Ferðaáskriftargetraun DV
hefur þegar veitt mörgum
áskrifendum nýja og skemmtilega
reynslu af þeim ferðamöguleikum
sem landið hefur upp á að bjóða.
Áfram munum við draga út
ferðavinning í viku hverri,
íslandsferð fyrir 2 að verðmæti 60.000 kr.
30. nóvember kemur síðan rúsínan í
pylsuendanum:
Óskablanda af ævintýraferð um ísland
fyrir 2, að verðmæti 150.000 kr.!
Vinningshafinn (e.t.v. einmitt þú)
raðar einfaldlega saman því sem
honum líst best á af þeim ferða-
vinningum sem í boði hafa verið frá
því í vor! Þannig má sameina jökla-
ferðir, siglingar, afslöppun, golf, veiði
og gönguferðir - eða eitthvað allt annað
eftir því sem hugurinn girnist.
Þuattenn
möguleika
á glæsilegum
íefðavinningi!
Ferðaáskriftargetraun D V lýkur 30. nóvember.
ÞAðeta.}T
^eð
?sk»fðd
Áskriftarsfminn er 63 27 00 • Grænt númer er 99-6270