Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1994, Qupperneq 18
18
íþróttir
NorðmaðurtilStoke
Gisli Gudmundsson, DV, Engtondi:
Stoke City hefur boöiö norska
fraraherjanum Trond Egil
Soltvedt frá SK Brann aö koma
til liðsins. Hann hefur sex vikur
til aö sýna hvað í honum hýr.
Þorvaldur Örlygsson lék með
Stoke í 3-0 sigri liðsins á Grimsby
í ensku 1. deildinni á laugardag.
Unitedívandræðum
Manchester United, sem leikur
gegn Gautaborg í Evrópukeppn-
inni nk. miðvikudag, á i miklum
erfiðleikum vegna meiðsla leik-
manna. Peter Schmeichel mark-
vörður, semmeiddist um helgina,
bættist í hóp þeírra Pauls Par-
kers, Lees Sharps, Ryans Giggs,
Roys Keanes og Garys Walsh,
varamarkmanns liðsins. United
verður að vinna leikinn ef liðið á
að eiga möguleika á að komast
áfram.
Sheringhamkyrr
Orðrómur um að enski lands-
iiðsmaðurinn Teddy Shering-
ham, leíkmaður Tottenham, sé á
förum til Manchester United er
ekki á rökum reistur. Gary
Francis, stjóri Tottenham, segir
að ef hann fái einhverju ráðið sé
Sheringham ekki á förum og
veröi um kyrrt. Francis hefur
hins vegar sagt að hann fái enga
peninga til að kaupa nýja leik-
menn nema hann selji einhverja
fyrst.
Wolvesaðkaupa
Graham Taylor, framkvæmda-
stjóri Wolves, hefur boðið .600
þúsund pund i Ron Jonsen, 24 ára
leikmann norska Uðsins Lyn og
landsliösins. Wolves hefur einnig
keypt Paul Stewart frá Liveriiool
fyrir eina milljón punda en hann
hefur verið í iáni hjá féiaginu í
þijá mánuöi.
-■ ■" ” ' / '
Það mátti reyna
Forráðamenn verðbankans
Wilham Hill greindu frá því að
einn maður hefði veðjaö fimm
pundum á aö Bruce Grobbelaar,
markvörður Southampton, skor-
aði sjálfsmark í leik liðsins gegn
Arsenal á laugardaginn, Hefði
spá mannsins gengið eftir væri
hann nú 1.250 pundum ríkari.
Swindon rekur stjóra
Enn einn framkvæmdastjórinn
í ensku knattspyrnunni hefur nú
fengið reisupassann. John Gor-
man, stjóra Swindon, var vikið
frá störfum í gær. Hann tók viö
liðinu i júni 1993 og stjórnaði þvi
í fyrsta skipti í úrvalsdeildinni i
fyrra. Þar hafnaöi Swindon í
neðsta sæti. Á þessari leiktíð hef-
ur liðinu gengið brösuglega og er
sem stendur í 15. sæti eftir 3-2 tap
gegn Bristol City, einu af botnlið-
unum, um helgina.
9 9*17*00
Verö aöeins 39,90 mín.
í±\ Fótbolti
2 j Handbolti
[3| Körfubolti
4 j Enski boltinn
: 5 j ítalski boltinn
6 j Þýski boltinn
7 j Önnur úrslit
[8 1 NBA-deildin
ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1994
Landsliðið í handknattleik:
Rúmenar koma ekki
- líkur á að Slóvakar leiki hér milli jóla og nýárs
„Rúmenar hafa sent okkur þau
skilaboð að þeir treysti sér ekki til
að koma til íslands og leíka gegn
okkur á milli jóla og nýárs. Við höf-
um sett okkur í samband við Slóvaka
og erum bjartsýnir á að þeir komi í
staðinn," sagði Þorbergur Aðal-
steinsson, landshðsþjálfari í hand-
knattleik, í samtali við DV í gær-
kvöldi.
Næsta undirbúningstímabil lands-
liðsins hefst þann 17. desember og
stendur óslitið til 9. janúar. Væntan-
lega verður leikið tvívegis gegn Sló-
vökum á fyrrgreindum tima. Strax
um áramótin heldur landsliðið út til
Svíþjóðar á Norðurlandamótið en
það fer fram dagana 2.M. janúar.
Fljótlega eftir heimkomu liðsins taka
við tveir leikir hér á landi gegn Þjóð-
verjum, 7. og 8. janúar.
Leikið heima og heiman
í Evrópukeppninni?
Handknattleikssamband íslands fór
þess á leit á dögunum við Rússa,
Rúmena og Pólverja að þjóðirnar
lékju báða leikina gegn íslendingum
hér á landi. Svör hafa borist þar sem
þessum óskum íslendinga er hafnað
og eins og staðan er í dag bendir aht
til þess að íslendingar leiki heima og
heiman gegn þessum þjóðum næsta
haust í Evrópukeppni landshða.
Fjarri góðu gamni
Ljóst er að íslendingar geta ekki teflt
fram sínu sterkasta hði í landsleikj-
unum milli jóla og nýárs og eins á
Norðurlandamótinu og gegn Þjóð-
verjum. Héðinn Ghsson var skorinn
upp í gærkvöldi vegna meiðsla á fæti.
Þýskir sérfræðingar töldu að Héðinn
væri meiddur á hásin en hér heima
kom í ljós að beinvöxtur í hæl hefur
haft áhrif á hásin Héðins og verður
hann frá næstu vikurnar. Þá verða
þeir Júhus Jónasson, Ólafur Stefáns-
son og Einar Gunnar Sigurðsson
ekki með vegna meiðsla.
„Þetta er auðvitað mjög slæmt og
í raun eru meiðsh þessara leikmanna
mjög alvarlegt mál fyrir okkur og
okkar undirbúning," sagði Þorberg-
ur Aðalsteinsson i gærkvöldi.
Einar Gunnar
eru
-segirE
„Það er komið í ljós að liðþófi í hnénu
er rifinn og ég fer í uppskurð næsta
mánudag. Ég veit ekki hve lengi ég verð
frá æfmgum og keppni en það verða
örugglega einhverjar vikur,“ sagði Einar
Gunnar Sigurðsson, leikmaður Selfoss
og landshðsmaður í handknattleik, í
samtali við DV í gærkvöldi.
Óheppni Selfyssinga og Einars Gunn-
ars virðist engan enda ætla að taka. Liö-
ið hefur misst mjög marga leikmenn
undanfarnar vikur vegna meiðsla og
Einar Gunnar er ekki sáttur við lífið
þessa dagana: „Ég er orðinn mjög þreytt-
ur á þessum endalausu meiðslum og
skil reyndar ekkert í þessu. Þessi síðustu
meiðsli voru kannski sérstaklega
svekkjandi vegna þess að þetta var góða
hnéð,“ sagði Einar Gunnar, en hann
meiddist í síðasta leik Selfyssinga gegn
KR og lék aðeins með í 3 mínútur.
„Enginn sáttur við
að verma bekkinn“
Einar Gunnar hefur ekki frekar en aörir
lykilmenn Selfossliðsins farið varhluta
af óvenjulegum innáskiptingum þjálfara
Selfossliösins. Þjálfarinn hefur látið Ein-
Kristján Helgason tryggði sér sigur í sínum riðli á HM
i Jóhannesarborg í gærkvöldi.
HM áhugamanna 1 snóker:
Kristján líka
í úrslitin
Kristján Helgason tryggði sér í gær sigur í sínum riðli
á heimsmeistaramóti áhugamanna í snóker sem nú stend-
ur yfir í Suður-Afríku. Kristján vann auðveldan sigur á
Mohammed frá Pakistan, 4-0, og lauk því keppni í riðlin-
um með 8 sigra og eitt tap. Heimsmeistarinn undir 21-árs,
Quinterhann frá Ástralíu, varð jafn Kristjáni en með lak-
ari útkomu.
Jóhannes R. Jóhannesson, sem þegar hafði unnið sinn
riðil, lagði Ho Hon Kee frá Hong Kong í lokaleiknum í
gær, 4-0, og vann því alla 7 leikina í riðlinum.
Kristján og Jóhannes eru fyrstu íslendingarnir sem
komast í 16-manna úrslit á heimsmeistaramótinu en ís-
lenskir snókermenn hafa tekið þátt í því undanfarin átta
ár.
Ágúst f ór til
Brann í gær
Ágúst Gylfason, knattspyrnumað-
ur úr Val, hélt í gærmorgun til Nor-
egs en hann er þar að líta á aðstæður
hjá úrvalsdeildarliðinu Brann. Hann
mun æfa með liðinu og ræða við for-
ráðamenn félagsins og kemur aftur
til íslands á fimmtudaginn.
Það var Bjarni Sigurðsson, fyrrum
markvörður Vals og landsliðsins,
sem benti forráðamönnum Brann á
Ágúst en Bjarni lék í marki norska
liðsins á síðasta keppnistímabili.
Stjórnarmenn hjá Val, sem DV
ræddi við í gær, sögðu að forráða-
menn Brann hefðu verið áhugasamir
um að ræða við Ágúst og hefðu boðið
honum út en að allt væri á byrjunar-
stigi hvað varðar samningstilboð.
Grobbelaar fær að sjá gögnin
Breska lögreglan samþykkti í gær
að afhenda gögn varðandi meintar
mútugreiðslur til knattspymumark-
varðarins Bruce Grobbelaar. Hún
hafði neitað lögfræðingi Grobbelaars
um aðgang að þeim en hann þrýsti
mjög á um að fá að sjá þau til að
geta undirbúið vörn Grobbelaars og
lögreglan gaf eftir þegar hún haíði
rætt málið við enska knattspyrnu-
sambandið. Grobbelaar þarf að vera
búinn aö skila greinargerð um málið
fyrir næstu helgi og reiknað er með
aö það verði tekiö fyrir hjá knatt-
spyrnusambandinu íljótlega eftir
mánaðamótin.
Þú getur svaraö þessari
spurningu meö því aö
hringja í síma 99-16-00.
39,90 kr. mínútan.
Stjarnan jj
Valur 2]
Jafntefll jj
r 9 i
FÓLKSINS
99-16-00
Hvernig fer handboltaleikur
Stjörnunnar og Vals á miðvikudaginn?
Aftelns þelr sem eru í stafræna kerflnu og eru me6 ténvalssíma geta teklð þátt.
James Robinson, leikmaður Portland, sendir boltann fram hjá varnarmönnum De-
troit, Lindsay Hunter og Mark West, i NBA-leik liðanna í fyrrinótt. Símamynd Reuter
4-