Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1994, Qupperneq 21
ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1994
25
Fréttir
Réttarhöld heflast á morgun í stóru ofbeldismáli á hendur fimm 15-17 ára piltum:
Grímuklæddir með hnífa
og tannbrutu með meitli
- fimm ognvekjandi og gróf ofbeldismál sem höföu í för meö sér miklar líkamsmeiðingar
Tveggja daga réttarhöld hefjast á
morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur
þar sem fimm 15-17 ára piltar munu
svara til saka fyrir ákæru á hendur
þeim fyrir samtals fimm gróf ofbeld-
isverk fyrr á árinu. Málið er um-
fangsmikið og ógnvekjandi fyrir þær
sakir að brotin eru gróf og framin
af ungum piltum.
Tveir af piltunum eru ákærðir fyr-
ir að hafa brotist inn í söluturninn
Straumnes í Breiðholti í mars og stol-
ið þar sígarettum. Þegar þeir forðuðu
sér frá innbrotsstaðnum á hlaupum
ásamt þriðja piltinum veitti rúmlega
þrítugur vegfarandi þeim eftirför.
Stöðvaði hann og handsamaði þann
síðastnefnda en þá réðust hinir tveir
að honum. Þeim er gefið að sök að
hafa slegiö hann hnefahögg og spark-
að í síðu hans með þeim afleiðingum
að maðurinn kinnbeinsbrotnaði, rif-
beinsbrotnaði og vinstra nýrað rifn-
aði.
Einn af framangreindum þremenn-
ingum er einnig ákærður fyrir að
hafa ráðist á mann og brotið fram-
handlegg hans í slagsmálum sem
áttu sér stað skammt frá mótum
Smiðjustígs og Hverfisgötu í apríl.
Vegna sömu átaka er fjórði aðilinn,
sem þá var 16 ára, ákærður fyrir
stórfellda líkamsárás á 27 ára karl-
mann sem var í félagi með þeim sem
framhandleggsbrotnaði með því að
hafa slegið hann í andlitið með 30
sentímetra löngum meitli með þeim
afleiðingum að 13 tennur í honum
brotnuðu.
Tveir af piltunum sem brutust inn
í Straumnes og réðust síðan á vegfar-
andann eru einnig ákærðir fyrir
grófa ránstilraun að kvöldi 16. sept-
ember ásamt fimmta aðilanum í
þessu máh. Þeim er gefið að sök að
hafa í félagi ruðst grimuklæddir inn
í söluturn að Seljabraut 54, tekið í
handlegg afgreiðslustúlku, ógnað
henni með hnífi, ýtt viö vörugrind
þannig að hún féll yfir stúlkuna og
síðan leitað peninga. Þeir hurfu á
brott um kvöldið án þess að finna
fjármuni.
Allir framangreindir piltar, að
undanskildum þeim sem tannbraut
mann með meitíinum, eru auk þessa
ákærðir fyrir rán og einn þeirra fyr-
ir að hafa ógnað 18 ára afgreiöslu-
stúlku með hnífi í Nóatúni í Kleifar-
seh fjórum dögum eftir árásina á
Seljabraut samkvæmt fyrirfram-
gerðri áætlun. Á staðnum var einnig
piltur við afgreiðslu með stúlkunni.
Einn af piltunum greip í stúlkuna og
skipaði henni að opna afgreiöslu-
kassa á meðan annar ógnaði með
hnífi. Piltunum tókst að ræna 113
þúsund krónum en mest af þeim íjár-
munum komst til skila.
Sverrir Einarsson, héraðsdómari í
Reykjavík, mun dæma í máli fimm-
menninganna.
Ólafsflörður:
Aka ölvaðir þegar
lögregluvakt lýkur
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Við höfum það á tilfinningunni
að það sé fylgst með því hvenær við
hættum störfum þegar við erum á
næturvöktum um helgar og grunur
okkar er sá að þá fari menn af stað
og aki ölvaðir. Það er a.m.k. hálfein-
kennilegt að í þeim tilfellum þegar
við höfum verið kallaðir út eftir að
vaktinni er lokið skulum við vera að
tína upp ölvaða ökumenn," segir Jón
Konráðsson, yfirlögregluþjónn á Ól-
afsfiröi.
Svo virðist sem ölvaðir menn á
Ólafsfirði, sem hyggjast aka bílum
sínum, bíði með það þangað til lög-
reglumenn eru farnir heiin að vakt-
inni og segir Jón að grunur um þetta
byggist m.a. á því að hringt sé heim
til vakthafandi lögreglumanns og
þegar hringingunni er svarað sé lagt
á. Það sé eins og verið sé að athuga
hvort lögreglumaðurinn sé ekki ör-
ugglega heima og óhætt sé að fara
af stað. Jón segir þetta einungis vera
grun en hann segir það furðulegt að
þegar lögreglan sé á vakt og ástand
ökumanna sé kannað virðist aht vera
í lagi en ef lögreglan þurfi að fara í
útkall eftir að vakt lýkur rekist hún
á ölvaða.menn í umferðinni.
Á undanfórnum árum hefur yfir-
vinnukvóti hjá lögreglunni á. Ólafs-
firði verið skorinn niður um þriöjung
eins og víða annars staðar og því
ekki hægt aö hafa menn á vakt og á
aukavöktum lengur en raun ber
vitni, eða þar til opinberu samkomu-
haldi lýkur um helgar. Lögreglu-
menn á Ólafsfirði og Dalvík, sem
hafa mikla samvinnu sín á milh,
hafa rætt hvað hægt sé aö gera til
að ráða bót á þessu ástandi sem m.a.
lýsir sér í stórhættulegum ölvuna-
rakstri í jarðgöngunum í Ólafsfjarð-
armúla sem hvenær sem er getur
leitt til stórslyss. Niðurstaðan er hins
vegar sú að óhægt sé um vik vegna
lítils yfirvinnukvóta og að einungis
sé einn maður á vakt eða á bakvakt
á hvorum stað hverju sinni.
Tekist á um eyðijörð í Jökuldalshreppi:
Hreppurinn vill
ógildingu á eignar-
rétti dánarbúsins
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Hreppsnefnd Jökuldalshrepps í N-
MúlaSýslu hefur ákveðið að höfða
riftunarmál á hendur dánarbúi Ein-
ar Eiríkssonar, fyrrum bónda á
Laugavöllum, en hreppnum var ekki
boðinn forkaupsréttur aö jörðinni
þegar Einar féh frá. Jörðin fór í eyði
skömmu eftir aldamót en við andlát
Einars um 1940 var hún þinglýst eign
dánarbúsins. Við afgreiðslu málsins
í hreppsnefndinni var þremur af
fimm hreppsnefndarmönnum gert
að víkja vegna skyldleika eða tengsla
við eigendur dánarbúsins.
Vilhjálmur Snædal, bóndi á Skjöld-
ólfsstöðum, er einn hreppsnefndar-
mannanna þriggja sem gert var að
víkja við afgreiðslu málsins og sagði
hann í samtali við DV að þremenn-
ingarnir hefðu verið taldir vanhæfir
að taka þátt í afgreiðslu málsins í
hreppsnefndinni. Samkvæmt upp-
lýsingum Vilhjálms eru liðnir ára-
tugir síðan jörðin var þinglýst eign
dánarbúsins og athugasemdir við
þinglýsinguna hafa ekki verið gerðar
fyrr en nú.
Jörðin er ekki talin verðmæt eins
og sakir standa en verðmæti hennar
er talið verða allnokkurt ákveði
stjórnvöld að ráðast í byggingu Kára-
hnjúkavirkjunar á Brúaröræfum
sem jörðin á land að. Samþykkt
hreppsnefndarinnar miðar að því að
fá þinglýsingu eignaraðildar dánar-
búsins ógilda og mun hreppurinn í
framhaldi af því hugsanlega ætla að
nýta sér forkaupsrétt að jörðinni sem
hann er talinn hafa haft rétt á á sín-
um tíma.
Unnið við grjótvörn hafnarinnar á Hofsósi. DV-mynd Örn
Hafnarframkvæmdir á Hofsósi:
Grjótvörnin styrkt og
fjárhagsáætlun stóðst
Öm Þórarinsson, DV, Fljótum:
í haust og vetur hefur verið unnið
við lagfæringar á grjótvöm hafnar-
innar á Hofsósi. Varnargarðar um-
hverfis höfnina voru styrktir og end-
urbættir og í þá ekið 5000 tonnum
af gijóti og öðru fyllingarefni. Segja
má að þarna hafi bæði verið um end-
urbætur og lokafrágang að ræða.
Ekki var lokið við varnargarðana
þegar síðast var unnið við þá og því
hefur hafrót náð að skola nokkru
efni úr þeim.
Að sögn Jóns Guömundssonar,
sveitarstjóra Hofshrepps, tókst verk-
ið vel og var haldið innan íjárhags-
áætlunar sem var 9 millj. króna.
Hofshreppur greiðsir 10% en ríkis-
sjóður og hafnabótasjóður afgang-
inn. Aðalverktaki var Rögnvaldur
Árnason á Sauðárkróki og efniö að
mestu sótt upp í Hjaltadal.
Jón sveitarstjóri segir þessa fram-
kvæmd bæta höfnina verulega. Hún
sé þó enn opin fyrir suðvestanátt. Til
að bæta úr því þarf frekari fram-
kvæmdir en þær eru ekki komnar
enn á fjárhagsáætlun þess opinbera.
Hagvagnar:
Skulda leigu fyrir vagnana
Samningar vegna kaupa Hag-
vagna hf. á tíu vögnum úr eigu SVK
og síðar Hagvirkis-Kletts eru á
lokastigi og er hugsanlegt að þeir
verði undirritaðir í lok vikunnar.
Bæjaryfirvöld í Kópavogi kreíjast
þess að fá 19 milljónir króna
greiddar með vaxtalausu verðbréfi
eða skuldabréfi með vöxtum fyrir
vagnana en það er sama upphæð
og Hagvirki-Klettur átti eftir að
greiða þegar fyrirtækið varð gjald-
þrota í haust.
„Ég á ekki von á því að bærinn
tapi neinum peningum því að full-
trúar Kópavogsbæjar og Hagvagna
eru að ræða saman. Þegar strætis-
vagnamir vom boðnir út á sínum
tíma var Hagvirki-Klettur lægst-
bjóðandi. Að kröfu Almennings-
vagna var fyrirtækið Hagvagnar
stofnað. Við kröfðumst þess að nýja
fyrirtækiö keypti vagnana en Hag-
virki-KÍettur vildi fá aö vinna upp
í kaupverðið og þess vegna létum
við undan,“ segir Gunnar I. Birgis-
son, formaður bæjarráðs í Kópa-
vogi.
Samkvæmt heimildum DV
skulda Hagvagnar þrotabúi Hag-
virkis-Kletts um fimm milljónir
króna í leigu fyrir vagnana. Það
jafngildir því að Hagvagnar hafi
ekki greidd Hagvirki-Kletti neina
leigu á þessu ári.