Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1994, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1994, Blaðsíða 27
ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1994 31 Sviðsljós Veiðimenn eru byrjaðir að æfa fluguköst þó stutt sé síðan þeir lögðu stöng- unum upp í hillu. Þetta er svo gaman. DV-mynd G.Bender Fluguköstin byrjuð á fullu „Þaö hefur verið fullt hjá okkur upp á síðkastið en Landsvirkjun var með sína starfsmenn í fuguköstum og það gekk vel,“ sagði Kolbeinn Ing- ólfsson, einn af kennurum hjá Ár- mönnum í fluguköstum, í íþróttahúsi Kennaraskólans í vikunni. En í Laugardalshöllinni er Kastklúbbur Reykjavikur með kastæfingar. „Veiðimenn sitja ekki auðum höndum þó svo vetur sé genginn í garð og þeir sem ekki æfa köst hnýta flugur og segja veiðisögur. Það stytt- ir biðina," sagði Kolbeinn í lokin. Síma- klefi í pósthúsi í nýja pósthúsinu á Selfossi stendur sívalur turn á miðju gólfi afgreiðsl- unnar sem starfsmenn hafa kallað „Yngingarvélina". Hrefna Kristins- dóttir, starfsmaður P&S, er í klefan- um en þar verður settur sími fyrir viðskiptavini. DV-mynd Kristján Einarsson, Sel- fossi. S Bílartilsölu ____________Menning Framhald á himnum Fyrir tveim árum gaf Kristín Steinsdóttir út bók sem hét Draugar vilja ekki dósagos og var um draug sem ekki komst til himna af því að beinin hans voru týnd og hann varð að hanga í meira en heila öld í Hafnar- firði. En beinin fundust í lok þeirrar bókar, og þegar nýja bókin um Móra, Draugur í sjöunda himni, hefst er hann kominn í langþráða himnaríkisvist. En himna- ríki er ekki eins og hann hélt, þar er ekki sæla og frelsi fljúgandi englaskara heldur hanga allir í fárán- legum reglum og skyldum. Til dæmis verða allir nýir englar að læra urmul af sálmum á neðstu hæöinni áöur en þeir fá leyfi til að flytja á efri hæðir, og Móri á alveg hrikalega erfift með að læra. Auk þess vilja himneskir embættismenn endilega vita hvað hann Bókmenntir Silja Aöalsteinsdóttir heitir og það man Móri ekki. Þá var nú munur að búa í Hafnarfirði hjá Elsu sem hafði reynst honum svo vel. Himnaríki sögunnar er mikið sköpunarverk á sjö hæðum og nær yfir óþrjótandi himinflæmi. Neðsta hæðin er eins konar bernska; við komum inn um hlið- ið sem Lyklapétur vaktar og forum beint í þjálfunar- búðir fyrir nýja engla. Enginn fær starf fyrr en hann hefur lokið námi! En þegar englar flytjast á efri hæðir geta þeir sinnt sínum áhugamálum, jarðyrkju, íþrótt- um og þvíumlíku. Þó er heldur ekki allt fullkomið þar, því englar hafa kosti og galla eins og mannfólkið og víða skortir á eftirlit og viðhald í þessu mikla ríki (einkum almenningsfarartækja). Meira að segja rignir í himnaríki, og þar eru bæði áfengisvandamál og ýmis persónuleikapróblem! Móri fer mörg söguleg ferðalög í sögunni, út í ýmsa kima himnaríkis og aftur til Hafnarfjarðar, en aðalæ- vintýrið í sögunni er ferð hans upp í sjöunda himin til að ræða vanda sinn við Guð sjálfan, hundeltur af regluóðum eftirlitsengli af neðstu hæð. Á leiðinni eign- ast hann töfragripi sem bjarga honum áleiðis; hann er ekki einn í ráðum, karl karl. Eftir því sem ofar dregur verður umhverfiö meira gamaldags, og Sigur- hæðir eru ímynd sæluríkis í augum Móra: reisulegur torfbær í undursamlegu umhverfi. Hér byggir höfund- ur á rammíslenskum hugmyndum úr „Sálinni hans Jóns míns“ og „Gullna hliðinu" en lagar þær að sögu- hetju sinni. Meira að segja Guð almáttugur er lagaöur að hugmynd Móra um gott og viturt fólk. Hver skapar sér sjöunda himin eftir sínum eigin hugmyndum, segir sagan, og Móri ætlar að nota þær hugmyndir líka á neðri hæðum. Þar á framvegis ekki að banna neitt og engan skal þvinga til að gera meira en hann getur. Fyrir höndum er bylting í ríki út- valdra! Þessi saga var eiginlega pöntuð. Ungur lesandi fyrri bókarinnar kom fram í bókmenntaþætti í sjón- varpi og bað um framhald af henni sem gerðist á himn- um. Hann og aðrir aðdáendur Móra fá hér einstaklega frumlega og óvænta barnabók sem gefur ótal tilefni til umræðna - um trú, reglur og frelsi og margt fleira. Kristin Steinsdóttir: Draugur i sjöunda himni 142 bls. Vaka-Helgafell 1994 1 Bronco ‘91, (79 grind), plastboddí, 351 w, sjálfsk., læstur framan/aftan + 4,88, lengdur á milli hjóla, allt nýtt. Toppbíll. S. 91-672277/93-11418 e.kl. 17. Subaru Justy, árgerö ‘91, ekinn 73 þús., skoðaóur ‘96, ný nagladekk fylgja, gott staðgreiósluverð. Upplýsingar í síma 98-23214 eftir kl. 20. Pallbílar Ford 4x4 pickup, árg. ‘84,250 dísil, 6,91, skoóaður ‘95. Upplýsingar í síma 98-75922 eftir kl. 16. Blíðlátur fuglasöngur Nýlega kom út á vegum BlS-útgáfunnar í Svíþjóð geislaplata með leik Manuelu Wiesler flautuleikara þar sem hún leikur verk sem eiga það sameiginlegt að vera að einhveiju leyti innbiásin af fuglasöng. Plat- an ber heitið Oiseaux tendres, en það er einmitt titill fyrsta verksins, eftir Frakkann Jean Rivier. Verkið er frá 1948 og er ágætlega skrifuð flaututónlist, þótt ekki beri hún beinlínis sterk höfundareinkenni. Konsert fyrir flautu, strengi og fylgirödd eftir Vi- valdi, sá í D-dúr, op. 10 no. 3 „II Cardellino" frá árinu Tónlist Áskell Másson 1728 hljómar næst og leikur kammersveitin Musica Vitae ásamt Ulf Söderberg semballeikara með Manu- elu í því verki. Verkið er hér vel leikið af þessum frá- bæru listamönnum og enda þótt margir hefðu kannski kosið að heyra það leikið á „upprunaleg" hljóðfæri, þá er vera þess hér hluti af þeim fjölbreytileik sem greinilega var stefnt að með þessari útgáfu. Einleiksverkið Laconisme de l’aile frá 1982 eftir finnska tónskáldið Kaiju Saariaho kemur næst og er það sannarlega snilldarlega leikið hjá Manuelu. Síðan er Nightingale Serenade op. 447 (já, 447...) fyrir flautu og pianó og er meðleikari Manuelu þar Mats Widlund. Þetta er fremur bragðdauft verk, þótt vel sé það leik- ið, en öðru máh gegnir um Le Merle noir eftir Olivier Messiaen, sem að dómi undirritaðs er sterkasta verkið á þessari plötu. Flutningurinn er og frábær. Konsert fyrir flautu og strengi eftir Adinu Izarra frá Venesúela er síðasta verkið á þessari plötu. Þótt í þessu verki, sem er frá árinu 1987, séu vissulega fallegar stemningar, hljómar þaö fremur laust í reipunum. Manuela leikur það geysivel og spilar „af fingrum fram“ skemmtilega kadensu, en kammersveitin Musica Vitae leikur með. Þetta er ansi sundurleitur samsetningur í heildina, en frábærlega leikinn og eru bæði upptakan og frá- gangur umslags lýtalaus. Talaðu við okkur um BÍLARÉTTINGAR BÍLASPRAUTUN jÍifkBns Varmi Auðbrekku 14, sími 64 21 41 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1.5 a( 5 0 4.445.453 2.^'s5? wn 89.819 3. 4af 5 ' 105 7.378 4. 3 al 5 3.851 469 Heildarvinningsupphæð: 7.475.357 J & W BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.