Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1994, Qupperneq 31
ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1994
35
Fjöimiðlar
Himinfley
o§ danskur
húmor
RíWssjónvarpið hefur sýnt
nokkra prýðilega danska sjón-
varpsþætti á undanfornura miss-
erura. Þess vegna ákvað ég með
nokkurra daga fyrirvara að fylgj-
ast með a.m.k. fyrsta þættinum
af dönsku þáttaröðinni Þorpiö
sera sýndur var í gærkvöldi. En
svo varð ég bara ekkert hriflnn.
Þó held ég að þátturinn hafi
verið þokkalega leikinn og
kannski er handritið ágætt þegar
á heifdina er litið. En eitthvað
fannst mér vanta. Kannski hef ég
veriö með ósanngjarnar vænting-
ar um danskan húmor og þennan
dásamlega danska léttleika gagn-
vart tilverunni sem oftast snýst
um öl og dramm og smurt brauö
og stripl. Ekkert af þessum
dönsku vörumerkjum lét á sér
kræla í fyrsta þættinum af Þorp-
inu. En ætli maður horfi ekki
samt á næsta þátt á mánudaginn
kemur. Kannski að Eyjólfúr
hressist.
Að öðru leyti fannst mér þáttur-
inn minna helst á himinfley Þrá-
ins Bertelssonar sem sýnd voru
við góðar undirtektir nú í haust.
Nema hvað Danir geta ekki flagg-
að náttúrufegurð Vestmannaeyja
né lögunum hans Oddgeirs. Þar
stóð Þráinn mún betur að vigi -
hvað sem líður dönskum húmor,
drammi og stripli.
Kjartan Gunnar Kjartansson
Andlát
Þorbergur Sverrisson frá Brimnesi,
Grindavík, andaðist á sjúkradeild
Víðihlíðar, Grindavík, fostudaginn
18. nóvember.
Guðjón H. Árnason húsgagnasmiður,
frá Garði, Grindavík, Njálsgötu 75,
Reykjavík, lést 18. nóvember síðast-
liðinn.
Sigurjón Viðar Alfreðs flugumsjón-
armaður lést laugardaginn 19. nóv-
ember.
Tómas Bjarnason frá Teigagerði,
Reyðarfirði, til heimilis á Hrafnistu,
Reykjavík, lést á hjartadeild Borgar-
sjpítalans aðfaranótt 16. nóvember.
Utfór hans fer fram frá Langholts-
kirkju fimmtudaginn 24. nóvember
kl. 13.30.
Edda Filippusdóttir, Lynghaga 7, lést
á heimili sínu 18. nóvember.
Jarðarfarir
Kristrún Níelsdóttir, Sporðagrunn
17, Reykjavík, lést í Borgarspilalan-
um 20. nóvember. Jarðarforin fer
fram frá Áskirkju föstudaginn 25.
nóvember kl. 13.30.
Ólafur Skagfjörð Ólafsson, Þurra-
nesi, Saurbæjarhreppi, Dalasýslu,
lést í Borgarspítalanum að morgni
15. nóvember sl. af völdum meiðsla
sem hann hlaut í umferðarslysi í
Gilsfirði. Útför hans verður gerð frá
Staðarhólskirkju í Saurbæ fimmtu-
daginn 24. nóvember kl. 13.30.
Finbjörn Hjartarson prentari, Norð-
urbrún 32, verður jarðsunginn frá
Dómkirkjunni í dag, þriðjudaginn 22.
nóvember, kl. 15.
Örn Reynir Levisson, Hringbraut 76,
Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá
Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn
24. nóvember kl. 13.30.
Jóhanna Árnadóttir, Laugarásvegi
57, veröur jarðsungin frá Dómkirkj-
unni miðvikudaginn 23. nóvember
kl. 13.30.
Útför Sigurðar Valdimarssonar,
Neðstaleiti 4, Reykjavík, fer fram frá
Fossvogskirkju í dag, þriðjudaginn
22. nóvember, kl. 15.
Ágúst Óskar Guðmundsson, Furu-
gerði 1, verður jarðsunginn frá Foss-
vogskirkju miðvikudaginn 23. nóv-
ember kl. 13.30.
Drögum úr hraða €o>
-ökum af skynsemi!
yuJJEBOW
]
©1993 King Featuras Syndicate. Inc. World rights reserved
Jólainnkaupin þreyta ekki Línu því hún er að
undirbúa sig allt árið.
Lalli og Lína
Slökkvilið-lögregla
Reykjavík: Lögreglan sími 11166 og
0112, slökkvilið og sjúkrabifreið sími
11100.
Seltjarnarnes: Lögreglan s. 611166,
slökkvilið og sjúkrabifreið s.11100.
Kópavogur: Lögreglan sími 41200,
slökkvilið og sjúkrabifreið sími 11100.
Hafnarfjörður: Lögreglan sími 51166,
slökkvilið og sjúkrabifreið sími 51100.
Keflavík: Lögreglan s. 15500, slökkvilið
s. 12222 og sjúkrabifreið s. 12221.
Vestmannaeyjar: Lögreglan s. 11666,
slökkvilið 12222, sjúkrahúsið 11955.
Akureyri: Lögreglan s. 23222, 23223 og
23224, slökkvilið og sjúkrabifreið s.
22222.
ísafjörður: Slökkvilið s. 3300, brunas.
og sjúkrabifreið 3333, lögreglan 4222.
Apótek
Nætur- og helgidagaþjónusta apótekanna
í Reykjavík 18. nóv. til 24. nóv., að báðum
dögum meðtöldum, verður í Breið-
holtsapóteki, Mjódd, sími 73390. Auk
þess verður varsla í Austurbæjarapó-
teki, Háteigsvegi 1, sími 621044, kl. 18
til 22 vtrka daga og kl. 9 til 22 á laugar-
dag. Uppl. um læknaþjónustu eru gefnar
i síma 18888.
Mosfellsapótek: Opið virka daga frá
kl. 9-18.30, laugardaga kl. 9-12.
Apótek Garðabæjar: Opið mánudaga-
fóstudaga kl. 9-18.30 og laugardaga kl.
11-14. Sími 651321.
Apótek Kópavogs: Opið virka daga frá
kl. 8.30-19, laugardaga kl. 10-14.
Hafnarfjörður: Norðurbæjarapótek
opið mánud. til fimmtud. kl. 9-18.30,
Hafnarfj arðarapótek kl. 9-19. Bæði hafa
opið fóstud. kl. 9-19 og laugard. kl. 10-14
og til skiptis helgidaga kl. 10-14. Upplýs-
ingar í símsvara 51600 og 53966.
Apótek Keflavíkur: Opið frá kl. 9-19
virka daga, aöra daga frá kl. 10-12 f.h.
Nesapótek, Seltjarnarnesi: Opið virka
daga kl. 9-19 nema laugardaga kl. 10-12.
Apótek Vestmannaeyja: Opið virka
daga kl. 9-12.30 og 14-18. Lokað laugar-
daga og sunnudaga.
Akureyrarapótek og Stjörnuapótek,
Akureyri: Á kvöldin er opiö í því apó-
teki sem sér um vörslun til kl. 19. Á
helgidögum er opið kl. 11-12 og 20-21. Á
öðrum tímum er lyfjafræðingur á bak-
vakt. Upplýsingar í síma 22445.
Heilsugæsla
Slysavarðstofan: Sími 696600.
Sjúkrabifreið: Reykjavík, Kópavogur
og Seltjarnarnes, sími 11100;
Hafnarljörður, sími 51100,
Keflavík, sími 20500,
Vestmannaeyjar, sími 11955,
Akureyri, sími 22222.
Krabbamein - Upplýsingar fást hjá fé-
lagsmálafulltrúa á miðvikudögmn og
fimmtudögum kl. 11-12 í síma 621414
Læknar
Læknavakt fyrir Reykjavík, Seltjarn-
arnes og Kópavog er í Heilsuvemdar-
stöð Reykjavíkur alla virka daga frá kl.
17 til 08, á laugardögum og helgidögum
allan sólarhringinn. Vitjanabeiðnir,
símaráðleggingar og tímapantanir í
sími 21230. Upplýsingar um lækna og
lyfjaþjónustu í símsvara 18888.
Borgarspítalinn: Vakt frá kl. 8-17 alla
virka daga fyrir fólk sem ekki hefur
heimilislækni eða nær ekki til hans (s.
696600) en slysa- og sjúkravakt (slysa-
deild) sinnir slösuðum og skyndiveik-
um allan sólarhringinn (s. 696600).
Seltjarnarnes: Heiisugæslustöðin er
opin virka daga kl. 8-17 og 20-21, laugar-
daga kl. 10-11. Sími 612070.
Hafnarfjörður, Garðabær, Álftanes:
Neyðarvakt lækna frá kl. 17-8 næsta
morgun og um helgar, sími 51328.
Kefla vík: Neyöarvakt lækna frá kl. 17-8
næsta morgun og um helgar. Vakthaf-
andi læknir er í síma 20500 (sími Heilsu-
gæslustöðvarinnar).
Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna í
síma 11966.
Akureyri: Dagvakt frá kl. 8-17 á Heilsu-
gæslustöðinni í síma 22311. Nætur- og
helgidagavarsla frá kl. 17-8, sími (far-
sími) vakthafandi læknis er 985-23221.
Upplýsingar hjá lögreglunni í síma
23222, slökkviliðinu í síma 22222 og
Akureyrarapóteki í síma 22445.
Heimsóknartími
Landakotsspitali: Alla daga frá kl.
15-16 og 18.30-19. Barnadeild kl. 14-18,
aðrir en foreldar kl. 16-17 daglega. Gjör-
gæsludeild eftir samkomulagi.
Borgarspítalinn: Mánud.-fostud. kl.
18.30-19.30. Laugard.-sunnud. kl. 15-18.
Heilsuverndarstöðin: Kl. 15-16 og
18.30-19.30.
Fæðingardeild Landspitalans: Kl.
15-16 og 19.30-20.00.
Sængurkvennadeild: Heimsóknartími
frá kl. 15-16, feður kl. 19.30-20.30.
Fæðingarheimili Reykjavíkur: kl.
15-16.30
Kleppsspítalinn: Kl. 15-16 og 18.30-
19.30.
Flókadeild: Kl. 15.30-16.30.
Grensásdeild: Kl. 16-19.30 virka daga
og kl. 14-19.30 laugard. og sunnud.
Hvítabandið: Frjáls heimsóknartími.
Kópavogshælið: Eftir umtali og kl.
15-17 á helgum dögum.
Sólvangur, Hafnarfirði: Mánud.-laug-
ard. kl. 15-16 og 19.30-20. Sunnudaga
og aöra helgidaga kl. 15-16.30.
Landspítalinn: Alla virka daga kl. 15-16
og 19-19.30.
Barnaspítali Hringsins: Kl. 15-16.
Sjúkrahúsið Akureyri: Kl. 15.30-16 og
19-19.30.
Sjúkrahúsið Vestmannaeyjum: Kl.
15-16 og 19-19.30.
Sjúkrahús Akraness: Kl. 15.30-16 og
19-19.30.
Hafnarbúðir: Kl. 14-17 og 19-20.
Vífilsstaðaspítali: Kl. 15-16 og 19.30-20.
Geðdeild Landspítalans Vífilsstaða-
deild: Sunnudaga kl. 15.30-17.
Tilkyimingar
AA-samtökin. Eigir þú við áfengis-
vandamál að stríða, þá er sími samtak-
anna 16373, kl. 17-20 daglega.
Blóðbankinn. Móttaka blóðgjafa er op-
in mán.-miöv. kl. 8-15, fimmtud. 8-19 og
föstud. 8-12. Sími 602020.
Söfnin
Ásmundarsafn við Sigtún. Opið dag-
lega kl. 13-16.
Ásgrimssafn, Bergstaðastræti 74: Op-
ið láugard og sunnud. kl. 13.30-16.
Árbæjarsafn: Opið í júní, júlí og ágúst.
Upplýsingar í síma 84412.
Borgarbókasafn Reykjavíkur
Aðalsafn, Þingholtsstræti 29a, s. 27155.
Borgarbókasafnið í Gerðubergi 3-5, s.
79122.
Bústaðasafn, Bústaðakirkju, s. 36270.
Sólheimasafn, Sólheimum 27, s. 36814.
Ofangreind söfn eru opin sem hér segir:
mánud.-fimmtud. kl. 9-21, fóstud. kl.
9-19, laugard. kl. 13-16.
Aðalsafn, lestrarsalur, s. 27029. Opið
mánud.-laugard. kl. 13-19.
Grandasafn, Grandavegi 47, s.27640.
Opið mánud. kl. 11-19, þriðjud.-fostud.
kl. 15-19.
Vísir fyrir 50 árum
Þriðjud: 22. nóvember:
Kvikmynd af lýðveldistökunni verður
gerð í Ameríku.
Spákmæli
Þegar maður er orðinn áttatíu ára eru allir
jafnaldrar vinir.
Igor Stravinski
Seljasafn, Hólmaseli 4-6, s. 683320.
Bókabílar, s. 36270. Viðkomustaðir víðs
vegar um borgina.
Sögustundir fyrir börn:
Aðalsafn, þriðjud. kl. 14-15. Borgar-
bókasafnið í Gerðubergi, fimmtud. kl.
14-15. Bústaðasafn, miðvikud. kl.
10-11. Sólheimar, miðvikud. kl. 11-12.
Lokað á laugard. frá'1.5.-31.8.
Kjarvalsstaðir: opið daglega kl. 11-18.
Listasafn íslands, Frikirkjuvegi 7:
er opiö daglega nema mánud. kl. 12-18.
Listasafn Einars Jónssonar. Opið
laugard. og sunnud. kl. 13.30-16. Lokað
í desember og janúar.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar á
Laugarnesi er opið mánud.-fimmtud.
kl. 20-22 og um helgar kl. 14-18. Kaffi-
stofan opin á sama tíma.
Náttúrugripasafnið við Hlemmtorg:
Opið sunnud., þriðjud., fimmtud. og
laugard. kl. 13.30-16.
Norræna húsið við Hringbraut: Sýn-
ingarsalir í kjallara: alla daga kl. 14-19.
Bókasafn Norræna hússins: mánud. -
laugardaga kl. 13-19. Sunnud. kl. 14-17.
Sjóminjasafn íslands er opið daglega
kl. 13-17 júm-sept.
J. Hinriksson, Maritime Museum, Sjó-
og vélsmiðjuminjasafn, Súðarvogi 4, S.
814677. Opið kl. 13—17 þriðjud. - laugard.
Þjóðminjasafn íslands. Opið þriðjud,
fimmtud, laugard. og sunnudaga kl.
12-17.
Stofnun Árna Magnússonar: Hand-
ritasýning í Árnagarði viö Suðurgötu
opin virka daga kl. 14-16.
Lækningaminjasafnið í Nesstofu á Sel-
tjarnarnesi: Opið kl. 12-16 þriðjud.,
fimmtud., laugard. og sunnudaga.
Minjasafnið á Akureyri, Aðalstræti 58,
sími 96-24162, fax. 96-12562. Opnunar-
tími 1. júní-15. sept. alla daga frá 11 til
17.15. sept. til 1. júní sunnud. frá 14-16.
Bilanir
Rafmagn: Reykjavík, Kópavogur og
Seltjamarnes, sími 686230.
Akureyri, sími 11390.
Suðurnes, sími 13536.
Hafnarfjörður, sími 652936.
Vestmannaeyjar, sími 11321.
Hitaveitubilanir:
Reykjavík og Kópavogur, sími 27311,
Seltjarnarnes, sími 615766, Suðurnes,
sími 13536.
Vatnsveitubilanir:
Reykjavík sími 27311.
Seltjarnarnes, sími 621180.
Kópavogur, sími 985 - 28078.
Akureyri, sími 23206.
Keflavík, sími 11552, eftir lokun 11555.
Vestmannaeyjar, símar 11322.
Hafnarijörður, sími 53445.
Símabilanir: í Reykjavík, Kópavogi,
Seltjarnarnesi, Akureyri, Keflavík og
Vestmannaeyjum tilkynnist í 05.
Bilanavakt borgarstofnana, sími
27311: Svarar alla virka daga frá kl. 17
síðdegis til 8 árdegis og á helgidögum
er svarað allan sólarhringinn.
Tekið er við tilkynningum um bilanir á
veitukerfum borgarinnar og í öðrum
tilfellum, sem borgarbúar telja sig þurfa
að fá aðstoö borgarstofnana.
Stjömuspá
Spáin gildir fyrir miðvikudaginn 23. nóvember.
Vatnsberinn (20. jan.-18. febr.):
Vertu staðfastur og gættu þess að missa ekki af þeim tækifærum
sem bjóðast. Reyndu að efla sjálfstraust þitt.
Fiskarnir (19. febr.-20. mars.):
Ýttu öðrum ekki frá þér þótt þú viljir helst vera heima. Gestir
eru alltaf kærkomnir. Gerðu ekki of mikið úr smáatriðum.
Hrúturinn (21. mars-19. apríl):
Gættu tungu þinnar innan um ókunnuga. Reyndu að leggja þig
eins vel fram og þú getur. Nýttu þér sambönd þín við aðra.
Nautið (20. apríl-20. maí):
Taktu fjármálin sérstaklega fyrir. Gerðu það sem hægt er í dag
en frestaðu því ekki þar til síðar. Hætt er við einhverjum vanda-
málum.
Tvíburarnir (21. maí-21. júni):
Breytingar eru að verða á ýmsum sviðum. Sumar þessara breyt-
inga hafa mjög truflandi áhrif á þig. Þú sækir þér hvíld og slökun
í félagsmálastarfi.
Krabbinn (22. júní-22. júlí):
Þér finnst erfitt að taka ákvarðanir núna. Láttu það ekki á þig
fá. Auðvelt ætti að vera að leiðrétta mistök. Ástandið skánar inn-
an tíðar.
Ljónið (23. júlí-22. ágúst):
Sýndu öðrum þolinmæði. Láttu ekki smávægileg mál spUla sam-
starfi TnUli manna. Reyndu að ná samkomulagi.
Meyjan (23. ágúst-22. sept.):
Ákveðið starf veldur þér streitu. Það er erfitt að vera aUtaf spenn-
ur. Þú verður því að læra að slaka á. Happatölur eru 3,15 og 21.
Vogin (23. sept.-23. okt.):
Kynntu þér málin gaumgæfilega áður en þú ségir álit þitt á þeim.
Einhver kemur þér óvænt tU hjálpar þegar iUa stendur á.
Sporðdrekinn (24. okt.-21. nóv.):
Reyndu að sjá í gegnum þá sem vUja aðeins græða á þér án þess
að gefa nokkuð af sjálfum sér. Þú mættir vera heldur víðsýnni.
Bogmaðurinn (22. nóv.-21. des.):
Þú þarft að berjast fyrir þínu eins og oft áður. Láttu aðra ekki
draga þig niður á lægra plan. Þú ættir að hafa sigur að lokum.
Steingeitin (22. des.-19. jan.):
Eitthvað truflar þig árla dags. Það kemur þó ekki í veg fyrir það
að þú getir hrint áæUunum þínum í verk þegar á daginn llður.
63 27 00
- skila
árangrí