Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1995, Qupperneq 17
LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 1995
17
Bridge
Bridgehátíð 1995:
Tvímenningskeppnin hófst í gær
Tvímenningskeppni Bridgehátíðar
hófst í gær á Hótel Loftleiðum og er
spilað í fjórum 18 para riðlum. Mik-
ill fjöldi erlendra og innlendra
bridgemeistara er á meðal þátttak-
enda. Frægastir þeirra eru án efa Zia
Mahmood og Tony Forrester, Larry
Cohen og David Berkovvitz, nýbakað-
ir Bandaríkjameistarar, George
Mittelman og Fred Gitleman, nýbak-
aðir Kanadameistarar, nýkrýndir
Evrópumeistarar yngri spilara frá
Englandi, Jason og Justin Hackett,
Tom Townsend og Jeffrey Alleton og
ekki má gleyma okkar eigin stjörn-
um, fyrrverandi heimsmeisturum
sem allir eru þátttakendur.
Keppmsformið í ár er ólíkt fyrri
árum en svipaður spilaíjöldi. Spilað-
ar eru þrjár 30 spila lotur og var sú
fyrsta í gærkvöldi. Keppni hefst í dag
kl. 11 árdegis en síðasta lotan hefst
kl. 16.30. Ohætt er að hvetja allt
bridgeáhugafólk að fjölmenna til
þess að sjá marga af bestu bridge-
mönnum heimsins sýna listir sínar.
Á morgun hefst síðan Opna Flug-
leiðamótið í sveitakeppni með þátt-
töku 96 sveita, sem er metþátttaka.
Spilamennska hefst kl. 13 og verða
valdir leikir sýndir á sýningartöflu í
ráðstefnusal. Mótsstjóri er fram-
kvæmdastjóri Bridgesambandsins,
Elin Bjarnadóttir, en keppnistjórar
eru Kristján Hauksson, Sveinn R.
Eiríksson og Einar Guðmundsson.
Larry Cohen, sem kemur í annað
sinn á Bridgehátíð, er afkastamikill
og vinsæll bridgerithöfundur ásamt
að vera einn albesti spilari Banda-
ríkjanna. Hann og félagi hans
Berkowitz eru nýlega búnir að vinna
Grand National keppnina 1994 ásamt
Jimmy Cayne og Alan Sontag.
Keppnin veitir þeim rétt til þess að
Tveir góðir gestir Bridgehátiðar: Larry Cohen og Zia Mahmood.
keppa um landsliössæti auk þess sem
þeir eru Bandaríkjameistarar. Raun-
ar var sigurinn ekki þrautalaus því
sigurinn kom þegar Cayne var gefið
geim í síðasta spili keppninnar og
það duggði til sigurs.
Þetta var spilið sem skipti sköpum.
V gefur, A-V á hættu
* G10643
¥ 82
♦ 8
4» Á9754
♦ 2
V KD9643
♦ ÁG62
+ KD
♦ Á87
V Á75
♦ 954
+ G632
* KD95
V GlO
♦ KD1073
+ 108
Á öðru borðinu varð suður sagn-
hafi í fjórum hjörtum eftir gervi-
Umsjón
Stefán Guðjohnsen
sagna sagnröð. Reyndar voru þar að
verki engir aðrir en Rodwell og
Meckstroth, eitt besta bridgepar
Bandaríkjamanna. Cohen spilaði
náttúrlega út tíguleinspilinu og fékk
siðan stungu þegar Berkowitz komst
inn á trompás. Einn niður.
Á hinu borðinu opnaði Cayne á
einu hjarta og varð að lokum sagn-
hafi í fjórum hjörtum. Austur spilaði
út laufaþristi sem vestur drap með
ás og spilaði tíguláttu til baka. Cayne
drap á kónginn í blindum og spilaði
hjartatíu. Austur drap á ásinn og
spilaði tígulfimmu til baka. Vestur
trompaði og spilaði LAUFI til baka.
Auövitað var austur sökudólgurinn,
hann gat tekið spaðaásinn áður en
hann gaf félaga stunguna.
TVEIR McGOÐBORGARAR
(Venjulegt verð: kr. 784.-)
Gildir til og með 14. febrúar 1995.
Veitingastofa og Beint-í-bílinn,
Suðurlandsbraut 56.
Nýr umboðsaðili SCANIA
Frá og með 11. febrúar 1995 er Hekla hf. nýr umboðsaðili fyrir SCANIA bifreiðar á íslandi.
Hekla býður SCANIA eigendur velkomna í hóp viðskiptavina sinna.
Við munum kappkosta að veita nýjum og eldri SCANIAeigendum góða þjónustu.
Véladeild Heklu mun sjá um alla þjónustu við SCANIAeigendur.
Símanúmer véladeildar eru eftirfarandi:
• Söludeild 569 5710 • Verkstæði 569 5740 • Varahlutir 569 5750 • Fax 569 5788
SCANIA
HEKLA
-////e///a
Laugavegi 170-174, sími 569 5500