Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1995, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1995, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 1995 Dagur í lífí Eiríks Jónssonar, formanns Kennarasambands íslands: Kjaramálin fýrirferdarmest 14.30 gafst tækifæri til þess að setjast við skrifborðið og fara yfir málefni næstu daga sem eru mörg og flókin. Einnig höfðu safnast upp mörg skila- boð um að hafa samband við hina og þessa sem hringt höfðu meðan ég sat á fundum yfir daginn og reyndi ég að ganga frá þeim málum. Annasamt hefur verið að undanförnu hjá Eiríki Jónssyni, formanni Kennarasambands Islands. Eðh málsins samkvæmt hafa kjaramáUn verið fyrirferðarmest í Ufinu undanfama daga. Mánudagur- inn 6. febrúar var engin undantekn- ing frá því. Þegar ég vaknaöi þann dag um klukkan hálfátta fór ég í huganum yfir það sem gera þyrfti þann daginn jafnframt því að klæða mig og sinna hefðbundnum morgun- verkum. Ég var kominn til vinnu þann dag miUi klukkan 8 og 9 og hófst þá handa við að fullvinna gögn sem ég hafði verið að vinna yfir helgina. Hér var um að ræða vinnugögn sem tengjast þeirri vinnu sem verið hefur í gangi í vinnuhópum kennarafélaganna og fuUtrúa samninganefndar ríkisins. Tíminn milli klukkan 9 og 11 þennan dag fór í þessa vinnu en hún gekk frekar hægt vegna þess að mjög margir hringdu á þessum tíma til þess að leita svara við spumingum sem á einn eða annan hátt tengjast yfirvofandi verkfalli kennara. 150símtöládag í framhaldi af þessu má nefna að á degi hverjum hringja að meðaltali 100 til 150 einstaklingar til Kennara- sambandsins samkvæmt könnun sem við gerðum á skrifstofunni í haust. AUnokkur hluti þessara er- inda snýst um kjara- og réttindamál og lendir verulegur hluti þeirra á mínu borði ásamt þeim erindum sem er beint til mín sem formanns Kennarasambandsins. Þannig verð- ur vinnutíminn oft nokkuð sundur- slitinn þegar meiningin er að sökkva sér niður í pappírsvinnu eða annað þess háttar. Klukkan 11 var haldinn fundur með fulltrúum frá Hinu íslenska kennarafélagi til þess að fara yfir afrakstur helgarinnar og undirbúa fund með fulltrúum úr samninga- nefnd ríkisins sem boðaður var klukkan rúmlega eitt. Hádegismat- urinn þennan daginn var ein rækju- samloka sem var óvanalega þurr. Sérmál námsráðgjafa Tíminn frá klukkan tólf til eitt fór í fundahöld með stjórn Félags náms- ráðgjafa sem vildi koma ýmsum hug- myndum um sérmál námsráðgjafa á framfæri við formenn kennarafélag- anna. Klukkan 13.15 hófst svo fundur í vinnuhópum með fulltrúum úr samninganefnd ríkisins. Á þeim fundi var farið yfir gögnin sem til urðu í vinnuhópunum og reynt að leggja mat á niðurstöðu vinnunnar. Nokkrir ágaUar komu fram og var ákveöið að reyna að ráða bót á þeim fyrir miðvikudaginn en þann dag DV-mynd Brynjar Gauti haíði verið boðaður fyrsti formlegi samningafundur aðila frá því að verkfall kennara var boöað. Fundur- inn var annars frekar afslappaður og aðilar sammála um að nú væri kominn tími til þess að færa umræð- una inn á sjálft samningaborðið. Eftir að þessum fundi lauk um kl. Lopapeysa sótt Um hálffjögurleytið kom svo að því skemmtilegasta sem ég upplifði þennan dag en þá fór ég niður á Umferðarmiðstöð til þess að sækja lopapeysu sem amma mín hafði prjónað á mig og var að senda mér. Tilkoma lopapeysunnar var sú að fyrir rúmri viku fór ég í heimsókn til foreldra minna og systkina sem búa í Reykholtsdalnum í Borgarfirði og að sjálfsögðu heimsótti ég ömmu Lullu í leiðinni en hún býr einnig þar. Amma vildi endilega gefa mér lopapeysu en átti því miður enga sem passaði alveg. Hún sagði mér að hún skyldi bæta úr því og prjóna nýja og það geröi hún á sex dögum þrátt fyr- ir að hún sé orðin 86 ára gömul. Ég er viss um að samningaviðræður gengju mun betur ef viðsemjendur okkar hefðu áræðiö og dugnaðinn hennar ömmu því þá væri örugglega ekki verið að hanga yfir hlutunum. Síðasti fundur dagsins var haldinn milli klukkan fjögur og hálfsex og snerist efni hans um væntanlegar breytingar á löggjöf um grunn- og framhaldsskóla og þá ekki síst um stöðu mála varðandi flutning á öllum rekstrarkostnaði grunnskóla frá ríki til sveitarfélaga en að mínu viti eru alltof mörg mál enn óljós varðandi það mál. Að loknum vinnudegi, sem lauk að þessu sinni óvenjusnemma, var ekk- ert eftir annað en að koma sér heim, borða, vaska upp, horfa á fréttir og fleira, slappa af í heitu baði og hugsa um verkefni morgundagsins og svífa svo inn í draumalandið. Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemur í Ijós að á myndinni tíl hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á myndinni til hægri og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum liðnum birtum við nöfn sigurveg- aranna. Ég skil ekki að það skuli ekki vera neinir peningar inni á reikn- ingnum. Bankinn auglýsir varasjóði upp á hundruð milijóna. 5620 Nafn: Heimili: Vinningshafar fyrir tvö hundruð nítugustu og fjórðu getraun reyndust vera: 1. Baldvin Þór Bergþórsson?. Petrína Sigurðardóttir, Melbraut 29, Hásteinsvegi 39, 250 Garði. 900 Vestmannaeyjum. 1. verðlaun: Zodiac Sigma 300 sími að verðmæti kr. 4.950 frá Hljómbæ, Hverfisgötu 103, Reykjavík. 2. verðlaun: Úrvalsbækur. Bækumar sem eru í verð- laun heita: Líki ofaukið og Bláþjálmur úr bókaflokknum Bróðir Cadfael aö verð- mæti kr. 1.790. Bækurnar eru gefhar út af Frjálsri fjölmiölun. Vinningarnir verða sendir heim. Merkiö umslagiö með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 296 c/o DV, pósthólf 5380 125 Reykjavík Finnur þú fimm breytingar? 296
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.