Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1995, Side 24
24
LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 1995
Dagur elskenda er á þriðjudag:
Rómantíkin
liggur í
loftinu
Það er til siðs að gefa þeim sem maður ann mest gjafir á Valentínusardag.
Gjafirnar eru misstórar og dýrar. Konfekt og rósir munu vera vinsæustu
gjafirnar.
allt frá fomu fari, sumir segja að
hann hafi verið til fyrir Krists
burð. Ságan segir að í eina tíð hafi
siðurinn verið þannig að fyrsti
ókvænti maðurinn sem ung stúlka
mætti á Valentínusardaginn myndi
verða eiginmaður hennar.
Fyrr á öldum var meiri léttúð í
kringum Valentínusardaginn og
gift fólk gerði sér dagamun jafnt og
þeir ógiftu. Gjafimar gátu verið
mjög dýrar og era til sögur af
hertoga á sautjándu öld sem færði
sinni heittelskuðu skartgripi fyrir
800 pund en sú upphæð væri um 47
þúsund pund í dag.
Það liggur mikil rómantík í
loftinu enda er Valentínusar-
dagurinn á þriðjudag, 14. febrúar.
Sá dagur er nefndur dagur
elskenda. Þá senda menn sínum
útvöldu ástarjátningar. Sumir
senda sérstök Valentínusarkort
aðrir senda konfekt eða aðrar
fallegar gjafir. Siður þessi hefur
aðallega verið í enskumælandi
löndum en virðist vera að breiðast
út til annarra landa, m.a. til
íslands. Dagurinn er helgaður
kaþólska dýrlingnum og
píslarvættinum Valentínusi sem dó
píslarvættisdauða í Róm á 3. öld.
Undanfarna daga og jafnvel
vikur hafa bresk og bandarísk blöð
auglýst Valentínusardaginh,
verslanir hafa skreytt glugga sína
af þessu tilefni og blómasaiar búa
sig undir mikla rósasölu.
Ástarkortin fylla nú hillur
bókabúðanna. Margir vilja meina
að kaupmenn séu famir aö notfæra
sér þennan dag og auglýsi orðið
stíft. Þá má ekki gleyma að
póstþjónustan þénar stórfé á
ástarkortunum.
Bleikar verslanir
Bandarikjamenn hafa haldið
sérstaklega mikið upp á þennan dag
og flestar verslanir verða bleikar og
rauðar til að undirstrika hvað sé í
vændum. Rauð hjörtu era hvar sem
litið er og þau skreyta jafnt lok á
konfektkössum sem heilu
verslunardeildirnar.
Valentínusargjafirnar eru þó
alltaf að verða stærri og stærri. í
fyrstu vora það aðeins kortin en í
erlendum tímaritum má nú sjá
auglýsingar um heldur dýrari gjafir
eins og farsíma handa honum og
silkinærföt 'handa henni. En
hjartalaga konfektkassar og rauð
rós eru þó vinsælustu gjafirnar.
Á íslandi hefur ekki verið haldið
Nælonsokkar þykja ekki verri gjöf
en hvað annað en margar
undirfataverslanir auglýsa fyrir
Valentínusardaginn.
upp á Valentínusardaginn nema í
einhverjum örfáum
undantekningartilfellum hjá fólki
sem hefur búið erlendis og kynnst
siðnum þar. Þó mun Bylgjan hafa
haldið Valentínusardansleik á
Hótel íslandi í gærkvöldi en það er
náttúrlega alls ekki rétti dagurinn.
Dagur bónorðanna
Hér áður fyrr þýddi
Valentínusarkort eða gjöf til dömu
sama og bónorð en í dag er það
varla meira en daður. Enn þá mun
það þó algengt að menn biðji sér
konu á þessum degi.
Það era ýmsar sögur til varðandi
Valentínusardaginn enda hefur sá
dagur verið helgaður elskendum
í einum hluta Englands var það
t.d. til siðs fyrr á öldum að skilja
gjafir eftir við dyr elskunnar,
banka á hurðina og hlaupa í burtu.
Valentinusarkortin munu hafa
rutt sér til rúms á átjándu öld og
var þá oft lögð mikil vinna í að
skreyta kortin með fallegum
hjörtum.
Breska blaðið Cosmopolitan
bendir á uppástungur að gjöfum og
má þar sjá nælonsokka, farsíma,
ávexti, Amaretto líkjör, tannkrem
sem gerir brosið enn fallegra og
konfekt.
Rauðar rósir
Svo virðist sem þessi gamli siður
sé hægt og sígandi að ryðja sér til
rúms á íslandi. Blómasalar hafa
fundið fyrir aukningu í sölu á
rauðum rósum sl. tvö ár á þessum
degi. Þeir hafa þó ekki gert neinar
sérstakar ráðstafanir vegna þess
enda er stutt í konudaginn (19.
febrúar) en það er áratuga gamail
siður á íslandi að gefa konum blóm
á þeim degi. Blómasalar, sem flytja
inn blóm, finna þó fyrir hversu
mjög rósir hækka í verði rétt fyrir
Valentínusardag enda er þá
eftirspurnin gifurleg. „Undanfarin
tvö ár hefur verið aukning í sölu á
rauðum rósum þennan dag, þannig
að við finnum mun,“ segir Sigurður
Moritzson, framkvæmdastjóri
Blómamiðstöðvarinnar.
Verslunarstjóri
Konfektbúðarinnar í Kringlunni
segist hafa tekið eftir því I fyrra að
aukning varð á konfektsölu í
kringum Valentínusardaginn. „Við
erum meö hjartalaga kassa en
einnig höfum við útbúið sérstakar
körfur. Það er ekki spuming að
þetta er að færast inn á dagatalið
héma.“
Skrifstofustjóri Nóa-Siríusar
Bleikur litur og rauður verða allsráðandi á þriðjudaginn en þá halda
enskumælandi þjóðir upp á Valentínusardaginn - dag elskenda. Hjörtun slá
áreiðanlega hraðar þann dag hjá þeim ástföngnu og margir munu stynja
upp bónorðinu.
segir að fyrirtækið hafi ekki enn
hafið framleiðslu á
hjartakonfektkössum í tilefni
Valentínusardags en sérstakir
kassar með rósum hafa hreyfst í
sölu. „Salan hefur ekki aukist eins
og gerist í öðrum löndum þannig að
blómin virðast hafa verið vinsælli.
Við finnum þó merkjanlega
breytingu og ég gæti vel trúað að
eftir tíu til fimmtán ár verði þetta
orðið svipað og í öörum löndum,“
segir Öm Hauksson.
Amaretto líkjör er sagður gjöf
ástarinnar og er því upplagður sem
Valentínusargjöf, a.m.k. stingur
breska blaðið Cosmopolitan upp á
því.
Áhrifagjarnir
íslendingar
í versluninni Tokyo hefur hinum
ýmsu vörum, svo sem hjörtum af
öllum gerðum, böngsum og kortum
verið stillt í glugga ásamt
útlistunum á
Valentínusardeginum. Að sögn
afgreiðslustúlku þar hefur alltaf
verið nokkuð um að fólk á
aldrinum tvítugu til þrítugs komi
og kaupi slíkar vörur og hún sagði
að það væri alltaf að aukast. „Við
erum með alls kyns
. Valentínusarkort og höfum selt
talsvert af þeim á undanfómum
árum og ég býst við að það verði
meira á þessu ári því áhuginn er
alltaf að aukast.“
Þá eru íslenskar
undirfataverslanir farnar að
auglýsa Valentínusamærfótin. Það
er alveg ljóst á þessu að íslendingar
eru afar áhrifagjamir og það þari
ekki mikið til að þeir taki upp siði
annarra þjóða. Búast má við að
börn dagsins í dag skrifi
Valentínusarkort þegar þau komast
á þann aldur að verða ástfangin og
finnist það sjálfsagt - þannig
breytist tíðarandinn.