Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1995, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1995, Blaðsíða 33
LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 1995 41 Stórhættuleg fíkniefni í sakleysislegum umbúdum: LSD-nevsla er stórhættuleg Laugardaginn 15. janúar 1994 lagöi fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykja- vík hald á 347 skammta af LSD. Tveir karlmenn um tvítugt voru handtekn- ir í framhaldi af því og úrskurðaðir í gæsluvarðhald. A síðará stigi rann- sóknarinnar viðurkenndu mennirn- ir að hafa í upphafi farið til Bretlands með flugi frá Keflavíkurflugvelli, keypt þar 1000 skammta af LSD og smyglað þeim síðan til íslands. Kváð- ust mennirnir vera búnir að selja rúmlega 600 skammta og þá aðallega til unglinga. Átta mánuðum síðar voru mennirnir dæmdir af héraðs- dómi til 24 og 18 mánaða fangelsis- vistar. Sl. fímmtudag þyngdi Hæsti- réttur dóm þess sem hlaut 18 mánaða fangelsisdóm í héraði í 24 mánaða fangelsi. LSD og skyldar efnasamsetningar falla undir lög um ávana- og fíkni- efni. Hvað er LSD? Efnið, sem á íslensku heitir Korndrjóli, er unnið úr sveppi sem vex einkum á rúgi, aðallega á Spáni og í Portúgal en 'einnig í nokkrum öðrum löndum. Ýmis sambönd'sem síðar hafa verið unnin úr sveppnum hafa verið notuð til lækninga. Upphaf kemískrar framleiðslu á LSD hófst árið 1938 í framhaldi af uppgötvun svissnesks vísindamanns á samtengingu þess og virkni. Leikur að rússneskri rúllettu! í septembermánuði sl. lá við stór- slysi hjá nokkrum reykvískum ung- mennum. Þeir höfðu neytt eitraðra sveppa til þess að komast í vímu. í tæka tíö tókst að koma þeim á sjúkra- Neyslu LSD hefur oft verið líkt við rússneska rúllettu. Við neyslu brenglast veruleikaskyn fólks og þess eru meðal annars dæmi að fólk hafi drepið sjálft sig á „trippi". Oft endurupplifa neytendur vímuna löngu eftir að hafa neytt efnisins. Nokkrum dögum síðar voru þrír pilt- ar á aldrinum 15-16 ára teknir af lög- reglu fyrir að selja LSD. Er neyslan áhættunnar virði? Á sjöunda áratugnum hættu lækn- ar að ávísa LSD til sjúklinga þar eð sannað þótti að með notkun þess kæmu í Ijós ýmsar skaðlegar auka- verkanir. Dæmi: geðveikikennd við- brögð, slysahætta, árásarhneigð, geðveiki, sjálfsvíg, morð, þunglyndi, neytandinn missir möguleikann á að greina á milli staöreynda og ímynd- ana. Fjölmörg dæmi eru um að neyt- endur hafi beðið varanlegt tjón á geðheilsu sinni eftir LSD-neyslu í eitt skipti. Þekkt eru dæmi um neytend- Þetta barmmerki innihélt nokkra skammta af LSD en farþegi sem kom frá Amsterdam bar merkið utan á jakkaboðungi sínum. hús og dæla upp úr þeim. Engu mun- aði að eitt ungmennanna týndi lífi. Þannig líta LSD „töflur" nútímans út - eins og límmiðar sem börn líma í limmiðabækur. Stórhættulegt efni með saklaust útlit. Víðtæk þjónusta fyrir lesendur og auglýsendur! Aðeins 25 kr. mínútan. Sama verö fyrir alla landsmenn. 99*56*70 ur sem hafa misst stjórn á sér, talið sig geta flogið og í þeirri vissu stokk- ið fram af svölum húsa. Vímu frá 40-70 míkrógramma- skammti verður vart eftir eina klukkustund og getur hún varað í allt að 5 klukkustundir. LSD getur kallað fram tímabundna geðveiki sem með endurtekinni neyslu leiðir oft til varanlegrar geðveiki. Líkamleg ávanahætta af völdum efnisins er talin lítil en andleg ávanahætta er hins vegar veruleg. Svokallað „flash back“ er algengt. Dæmi er um að neytandinn upplifi aftur síðustu neyslu löngu eftir að líkamlegum áhrifum efnisins lauk og án þess að það sé tekið á ný. Endurhvarfið stendur oftast stutt. Brenglaðar sýnir eru algengustu einkennin. Hvert stefnir? LSD á markaði hérlendis kemur að mestu frá Hollandi í gegnum Bret- land. Efnið er iðulega í formi vökva sem hefur veriö látinn síast í gegnum ýmis efni, svo sem: sykurmola, sæl- gæti, pappír, kökur, áfengi o.fl. Sölumenn efnisins hérlendis hafa iðulega verið staðnir að því að full- yröa um skaðleysi þess. Það er að um sé að ræöa allt aðrar sýrur (efna- blöndur) en áður þekktust, í þeim tilgangi að slá ryki í augu neytend- anna sem oftast reynast vera þeir sem landið eiga að erfa. Algengt er í dag að sýran sé seld síuð í pappírs- örkum með myndum af skrautlegum teiknimyndafígúrum. Lyfjafræðing- ar fullyrða að sögur sölumannanna um skaðleysi LSD séu tilbúningur einn og fái ekki staðist. Aldrei hefur verið til nema eitt form af LSD og er það stórhættulegt andlegri heilsu manna. Elías Kristjánsson, fíkniefnadeild tollgæslunnar á Kefla- víkurflugvelli. TH1 Stálvaskar Besta verð á íslandi 11 gerðir af eldhús- vöskum á frábæru verði Frá kr. 3.950 Einnig mikið úrval af blöndunartækjum Verslun fyrír alla -tnjg Faxafeni 9, s. 588-7332 Opið: mánud.-föstud. 9-18 laugard. 10-14 Vli orua li'J ÚjMÍR El-f-f vuð jlrihraun Bílaspítalinn er fluttur í stærra og betra húsnæði • Vélastillingar • Allarviðgerðir • Hjólastillingar • Réttingar og sprautun • Ljósastillingar Shell • Hemlaprófun smurþjónusta JÚJbílaspítaunnIþ (E) Kaplahrauni l • 220 Hafnarfirði • S. 555-4332,565-4332 • Fax: 565-4336
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.