Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1995, Síða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR 1995
Fréttir
Benedikt Davíðsson, forseti Alþýðusambandsins, um nýju kjarasamningana:
Framlag ríkisstjórnar-
innar er rýrt í roðinu
„Þaö veldur mér vonbrigöum
hversu rýrt í roðinu það var sem kom
frá ríkisstjóminni. Samt sem áður
mátu menn það svo að ekki væri
ástæða til að fara enn einu sinni á
fund ríkisstjórnarinnar. Það væri
ekki líklegt til að gefa mikið af sér.
Við munum síöan fylgjast mjög
grannt meö því hvernig veröur spilað
úr þeim efnisatriðum sem ekki eru
verðlögð inni í því sem að ríkisstjó-
irnin gaf út. Þar getur skipt verulegu
máli hvernig er á haldið í fram-
kvæmdinni," sagði Benedikt Davíðs-
son, forseti Alþýðusambands ís-
lands, aðspurður um nýju kjara-
samningana.
- Það hefur verið staðið með nokkuð
öðrum hætti að gerð þessa kjara-
samnings en verið hefur á undan-
förnum árum þegar um samflot ASÍ
félaga hefur verið aö ræða. Hvernig
þykir þér útkoman?
„Ég ætla nú ekki að leggja mat á
það efnislega. Framkvæmdalega er
það miklu meiri vinna að gera þetta
svona heldur en með samflotinu. Við
getum hins vegar aldrei bundið okk-
ur alveg við eitthvert eitt form í gerð
kjarasamninga. Ég er alveg sammála
þeim sem hafa tjáð sig um aö það
hafi verið nauðsynlegt að félögin og
einstök sambönd gætu komist beint
að samningum við sína viðsemjend-
ur með sérkjörin. Ég var talsmaður
þess þegar lagt var upp með þetta í
haust. Ég held hins vegar að það
hefði verið minni vinna í sameigin-
legu málunum, bæði hvað varðar
kaupið og samskiptin við ríkisstjórn-
ina ef samstarfið heföi veriö þétt-
ara,“ sagði Benedikt Daviösson.
Að lokinni undirritun nýrra kjarasamninga í nótt tókust forystumenn samningsaöila í hendur. Hér handsala Magn-
ús Gunnarsson, formaður Vinnuveitendasambands íslands, og Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Dagsbrún-
ar, nýju samningana en Þórarínn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ, fylgist með. DV-mynd GVA
Er ekki verð-
bólguhvetjandi
- segir Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ
Guðmundur Þ. Jónsson:
Égerekkert
óánægður
með útkom-
una
„Það þýðir ekkert annað en að
sætta sig við orðinn hlut og því
get ég sagst vera sæmilega
ánægður. Eg er enda ekkert
óánægður með útkomuna,“ sagði
Guömundur Þ. Jónsson, formað-
ur Iðju og Landssambands iön-
verkafólks, i samtali við DV í
nótt.
„Vissulega eru kauptaxtamir
lágir og við vonuðumst til aö geta
hækkað þá lægstu meira en oröið
er. Þó eru hækkanir á lægstu
taxta frá 11 og allt upp í 15 pró-
sent í þessum samningum. Það
sem kemur frá ríkisstjóminni er
að vísu rýrara í roðinu en við
vonuðumst eftir. Samt eru þar
ávinningar sem eiga aö vera bún-
ir aö skila sér um það bil sem víö
setjumst niður til aö gera næstu
kjarasamninga. Þetta stefnir því
allt heldur í rétta átt“
Kristján Gunnarsson:
Maðurnær
aldrei öllu
fram
„Þaö má segja aö ég sé þokka-
lega ánægður. Þetta er búinn að
vera krappur dans og maður nær
aúðvitaö aldrei öllu fram sem
maður ætlar. Þó telst okkur til
að við höfum náð um það bil 65
prósentum af þeim kröfum sem
við lögðum tram í upphafi. Auk
þess tel ég vera marga góða
áfanga í þessum samningum. Þá
vil ég taka alveg sérstaklega fram
hvaö við höfum náð mörgum
ágætum atriðum fhun í sérkjara-
samningum. Það er orðið mjög
langt síöan við höfum getað skoð-
að okkar sérkjarasamninga. Við
tókum þá flesta upp núna og lög-
uðum marga hnökrana," sagöi
Kristján Gunnarsson, formaöur
Verkalýös- og sjómannafélags
Keflavíkur, í samtali við DV.
Kristján var spurður hvort
hann væri ánægður með sara-
vinnu þá sem verið hefur í Flóa-
bandalaginu svokallaða?
„Já, ég held að það hafi komiö
félagslega séð vel út fyrir okkur.
Við styrktum hver annan í_þessu
og lærðum hver af öðrum. I heild
er því ekki liægt að segja annaö
en að þetta hafi gengið ljómandi
vel. Ég er aö minnsta kosti mjög
sáttur við félaga mína í Flóa-
bandalaginu,“ sagði Kristján
Gunnarsson.
„Nei, þetta eru að okkar dómi ekki
verðbólguhvetjandi samningar. Við
teljum að fyrirtækin eigi að geta axl-
að þá án þess að verðbólga veröi
hærri hér en í þeim löndum sem viö
miðum okkur við. Heildar meðaltals
launabreytingamar á þessu ári
verða samkvæmt samningnum 3,6
prósent, meiri í samkeppnisgreinun-
um, sjávarútvegi og iðnaði, en minni
í ýmsum öðrum greinum. Þetta á
ekki að leiða til meiri verðbólgu en
í löndunum í kringum okkur," sagði
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitendasam-
bandsins, í nótt þegar undirskrift
nýju kjarasamninganna fór fram.
Hann var spurður hvort niður-
staða þessara samninga væri nær því
sem vinnuveitendur buðu í upphafi
eða því sem verkalýðshreyflngin
kraföist?
„Ég hef nú ekki verið að leita eftir
slíkum niðurstöðum í þessu. Það
hefur verið tekið á mjög mörgum
áhersluatriðum verkalýðshreyfing-
arinnar og fundin þar varanleg
lausn, að ég vona. Þar má nefna fast-
ráðningsamning fiskvinnslufólks,
sem er mjög stórt mál að hálfu
Verkamannasambandsins. Þannig
að ef þetta er allt metið hygg ég að
farið hafi verið bil beggja. Það er hins
vegar afar mikilvægt að það skyldi
takast að finna leið sem skerðir ekki
samkeppnishæfni íslenskra atvinnu-
vega. Samningurinn teygir verulega
á samkeppnishæfninni og er án vafa
í efsta kanti þess sem gerist í okkar
heimshluta. Þess vegna er mikilvægt
að fyrirtækjunum takist að auka
framleiðnina til að standa sig í þessu
bæði hvað varðar verðsamkeppni
hér heima og erlendis," sagði Þórar-
inn V. Þórarinsson.
Stuttar fréttir
Mikiðafloðnu
Mjög mikíð hefur fundist af
loðnu við Suðausturland. Engu
að siður telja fiskifræðingar að
stofninn sé hálfri mil^jón tonna
minni en þeir höföu spáö. Sjón-
varpið greindi frá þessu.
Stjórnin héSdi veíli
Sijórnarflokkamir fengju um
helming atkvæða ef kosið væri
núna skv. skoðanakönnun Fé-
lagsvísindastofnunar HÍ. Alþýöu-
flokkur fengi 10,3%, Framsókn-
arflokkur 18,7%, Sjálfstæðis-
flokkur 39,8%, Alþýðubandalag
15,6%, Kvennalisti 3,9% og Þjóð-
vaki 10,5%. Mbl. greindi írá.
Forgangsverkefni Ólafs
Ólafur Ragnar Grímsson, for-
maður Alþýðubandalagsins, seg-
ir það forgangsverkefni í kom-
andi kosningum að fella ríkis-
stjómina og koma í veg fyrir
stjóm íhalds og Framsóknar.
Tíminn greindi frá þessu.
Ófærðtafðilista
Ófærð á Norðurlandi vestra
kom 1 veg fyrir að hægt væri að
ganga frá framboðslista Þjóðvaka
um síðustu helgi. Alþýðublaðið
greindi frá þessu.
Spurning um úrsögn
Guðmundur Bjarnason, vara-
formaður Framsóknarflokksins,
segir sérframboð Péturs Bjama-
sonar á Vestgörðum jafngilda
úrsögn úr flokknum. í Alþýðu-
blaöinu kemur fram að Pétur tel-
ur sig hins vegar vera í flokknum.
Hagnaður af rekstri Kaupþings
á síðasta ári nam 44,3 miUjónum,
en 256 milljónum eftir skatta.
Heildarveltan á árinu var 257
milljónir. Mbl. greindi frá þessu.
Aðskilnaðar kraf ist
Póstur og sími eiga að skilja að
póstþjónustuna sem háð er
einkarétti og aðra póstþjónustu
sem stofnunin innir af hendi.
Samkeppnisstofnun hefur úr-
skurðað að þetta eigi að gerast
fyrir 1. janúar 1996. RÚV greindi
frá.
Hreinsun gagnrýnd
íbúar í Súðavík eru óánægðir
með hreinsunarstörf á snjóflóða-
svæðinu. í fréttum á Stöð tvö kom
fram að þeir telja aö ýmsir per-
sónulegir munir hafi tapast þar
sem ekki hafi gefist tími til að
leita þeirra í rústum húsanna.