Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1995, Blaðsíða 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR 1995
Fréttir
Þriðja ránið framið á tæpri viku:
Líkleg fjármögnun
á vímuef naneyslu
- segir Hörður Jóhannesson, yfirlögregluþjónn hjá RLR
„Þaö er hópur ungs fólks í Reykja-
vík sem þvælist um í auðnuleysi og
vímu. Þetta fólk vinnur ekki, hVort
sem það er atvinnu að fá eða ekki.
Þetta fólk hefur til þessa fjámagnað
neysluna' með auðgunarbrotum, til
dæmis innbrotum, búðarhnuph og
tékkafalsi. Það er kunnara en frá
þurfi að segja að búið er að þrengja
verulega að þeim hvað varðar tékka-
falsið. Úr því hefur verulega dregið.
Þetta fólk er samt til áfram og þörf
þess ennþá fyrir hendi og þá liggur
beinast við að segja að fólk gerir eitt-
hvað annað,“ segir Hörður Jóhann-
esson, yfirlögregluþjónn hjá Rann-
sóknarlögreglu ríkisins.
Á tæpri viku hafa þrjú rán verið
framin á höfuðborgarsvæðinu, þar
af tvö vopnuð. Á þriðjudagskvöld
réðust tveir menn, sem huldu andlit
sitt, inn í sölutum í Kópavogi rétt
fyrir lokun og hafði annar mann-
anna nokkur þúsund krónur á brott
með sér. Annar piltanna var hand-
tekinn á vettvangi en hinn náðist
daginn eftir. Báðum var þeim sleppt
að loknum yfirheyrslum. Á miðviku-
dagskvöld réðust síðan tveir grímu-
klæddir piltar, vopnaðir hnífum, inn
í söluturn í Breiðholti og höfðu á
brott með sér tugi þúsunda króna.
Þeir vom báðir handteknir í kjölfar-
ið, annar úrskurðaður í gæsluvarð-
hald en hinum sleppt að loknum yfir-
heyrslum.
í fyrrakvöld réöst síðan maður,
sem huldi andlit sitt, vopnaður odd-
hvassri þjöl, inn í sölutum við Ás-
garð í Reykjavík. Hann hafði 16 þús-
und krónur á brott með sér og var
enn leitað þegar þetta var skrifað.
I tveimur tilvikanna vom ungar
stúlkur einar viö afgreiöslustörf en
í einu tilvikanna var ung stúlka við
afgreiðslu og unnusti hennar, 17 ára,
í heimsókn í sjoppunni.
- Má búast við að atburðir sem þess-
ir verði algengari í framtíöinni?
„Það þarf aö taka hart á þessu. Sem
betur fer tókst að upplýsa fyrstu tvö
máhn og vonandi tekst að upplýsa
þetta síðasta, þannig að mönnum
lærist að þeir komast ekki upp með
þetta," segir Hörður.
-PP
RániðíÁskjöri:
HéHfyrstað
þetta væri grín
- segir ísabella Markan, 19 ára afgreiðslustúlka
„Ég var að gera upp þegar nokkrir
strákar úr hverfinu komu og ég
ákvað að afgreiöa þá. Þegar ég er
búin að því þá kom hettuklæddur
maður inn með hnif á lofti og heimt-
aði peningana. Ég hélt fyrst að þetta
væri eitthvert grín en hann varö eitt-
hvað pirraður og greip í mig og otaði
hníf að mér. Síöan hrifsaði hann
hluta af uppgjörinu úr höndunum á
mér, 16 þúsund krónur, og hljóp út,“
segir ísabella Markan, 19 ára af-
greiðslustúlka í Áskjöri.
Lögreglan leitar nú manns sem
raddist vopnaður inn í Áskjör í fyrra-
kvöld og hafði á brott með sér hluta
af uppgjörinu eftir að hafa ógnað ísa-
bellu með hníf.
Piltarnir sem voru í versluninni
hlupu út skelkaðir, enda einungis 11
til 12 ára. Þeir fóru heim til ísabellu
sem býr í næsta nágrenni og létu
vita af ráninu.
ísabella, sem starfað hefur í tvö ár
í Áskjöri, segir að sú venja hafi skap-
ast í versluninni að peningar séu
fiarlægöir úr kassanum með reglu-
legu millibili þannig að óverulegar
fiárhæðir séu í honum hverju sinni.
Lögreglan leitaði í nágrenni vett-
vangs mannsins sem rændi verslun-
ina en án árangurs. Rannsóknarlög-
regla ríkisins fer nú með rannsókn
málsins. -pp
Þjófurinn náði einungis að hiaupa á brott með 16 þúsund krónur enda sú
vinnuregla viðhöfð í Áskjöri að starfsfólk fjarlægi söluna reglulega úr sjóð-
vélinni. Þannig er reynt að hafa verslunina sem minnst aðlaðandi fyrir þjófa
og ræningja. DV-mynd.Sveinn
ÓmarSmári:
Kaupmenn
komipen-
ingunum
ískjól
„í ljósi þessa
og miðað við
þaðsemviðget-
um átt von á er
full ástæða fyr-
ir eigendur
söluturna að
skoöa það sér-
staklega hvort
ekki sé þörf á að hafa fúllorðið
fólk við afgreiðslu á þeim tíma
sem mest hætta er á atburðum
sem þessum," segir Ómar Smári
Ármannsson, aðstoðaryfirlög-
regluþjónn Ifiá lögregiunni í
Reykjavík.
Funda með
kaupmönnum
Ómar segir aö lögreglan muni
væntanlega kalla til fúndar með
Kaupmannasamtökunum og
hlutaðeigandi aðiljum. Þegar hafi
verið haft samband viö nokkra
eigendur söluturna.
„Við þurfum að upplýsa með
hvaða hætti er hægt að draga úr
líkum á svona löguðu og hvemig
á að bregðast við. í kjölfar tveggja
fyrstu ránanna beindum við þeim
tilmælum til forsvarsmanna
sölutuma að afgreiöslufólk
geymdi ekki sölu dagsins í sjóð-
vélunum heldur kæmi peningun-
um í skjól þannig að erfitt væri
að komast að þeim. Það hafði ein-
mitt verið gert í Ásbúö við Ásgarð
þar sem ránið var framið á
sunnudagskvöld enda komst
ræninginn ekki undan með nema
um 16 þúsund krónur," segir
Ómar Smári.
Ekki táragas
Með þessu segir hann að hægt
verði að draga úr líkum á sjoppu-
ránum. Aðspurður hvort lögregl-
an hvefii starfsfólk sölutuma til
að hafa táragas eða önnur verk-
færi til vamar við höndina segir
Ómar Smári umræðuna ekki
komna á það stig en fariö verði
yfir málin með hlutaðeigandi að-
iljum. -pp
I dag mælir Dagfari
Háskóhnn hefur verið að tækni-
væða sig eins og háskólar eiga að
gera ef þeir ætla að standa undir
nafni. Eitt af því sem Háskólinn
hefur lagt í er að koma sér upp
Intemeti þar sem aðgengilegar em
margvíslegar upplýsingar um
landsins gagn og nauösynjar fyrir
háskólakennara og nemendur og
hefur Háskóh íslands verið afar
stoltur af þessu neti sínu eins og
vera ber.
Svo gerist það um daginn að ein-
hver alvömmaðurinn kjaftar frá
því að á netinu sjáist klámmyndir.
Þetta var auðvitað á aUra vitorði
og hafði einmitt gert Intemetið eft-
irsóknarvert. Hins vegar höföu
menn haft vit á því að halda klám-
myndunum í þagnargildi og há-
skólayfirvöld höfðu sett kíkinn fyr-
ir bhnda augað svo ekki þyrfti að
hafast að gegn þessari óvæntu en
nýstárlegu menntun sem fólgin er
í kláminu. Ef að Ukum lætur mátti
sjá í þessum myndum margvísleg-
ar útfærslur á kynlífi mannskepn-
unnar og ekki veitir háskólamönn-
um af, svo afskiptir sem þeir em
og fiarri þeim tíöaranda sem fylgir
frelsinu utan veggja Háskólans.
Auðvitað neyddist háskólaráð til
að taka máUð fyrir þegar einhver
Klám á Interneti
hálfviti fór að kjafta frá þessum
klámmyndum og segir svo frá í DV
á laugardaginn að „miklar umræð-
ur hafi farið fram í ráöinu um hina
meintu misnotkun á kerfinú*.
Ekki er greint 1 smáatriðum frá
innihaldi umræðunnar en hugsan-
legt er að ráðsmenn hafi horft á
nokkrar spólur til að kynna sér
efni og innihald og síðan hafi menn
rætt það í þaula hvort ástæða væri
til að banna útsendingamar. Það
sýnir auðvitað frjálslyndið í Há-
skóla íslands að útsendingin skyldi
ekki stöðvuð samstundis, enda em
akademískir borgarar útverðir
fijálsrar fiáningar, frjálsrar um-
ræðu og frjálsra ásta. Útverðir
fijálsræðisins hafa þeim skyldum
að gegna að ræða og útkljá slík mál
með lýðræðislegum og fordóma-
lausum hætti.
í raun og vera má endalaust um
það defia hvort klám og kynlíf falU
ekki undir þau einkunnarorð Há-
skólans að vísindin efli aUa dáö,
enda getur varla nokkur maður
borið brigður á að fiölbreytni í kyn-
lífi og klámfengnar myndir séu
innlegg í margbrotnara og auðugra
lif. Ætlar HáskóU íslands að ganga
fram fyrir skjöldu og banna ber-
söglar myndir af lífinu eins og það
kemur fyrir í hnotskum? Ætla
Háskólans menn að skerða frelsið
og ætla þeir að nota Intemetið tíl
að mata námsmenn og aðra þá sem
hafa aðganga aö netinu tU aö
skerða þau sjálfsögðu mannrétt-
indi að fólk fái sjálft að velja og
hafna?
Intemetið er einmitt sett upp tU
að opna hug og heim fagidíóta og
einangraðra fræðimanna fyrir fiöl-
breytileika hins mannlega lífs, efla
upplýsingastreymi og gefa notend-
um kerfisins kost á því að kynnast
öUum hliðum og áður óþekktum
stærðum. Hvað er þá ljótt við það
þótt einhverjir framúrstefnumenn
í Háskólanum hafi taUð það eðUlegt
að klámmyndir birtust á Intemet-
inu í bland? Ekki síst ef það örvar
útbreiðslu þess og vinsældir!
Nú er háskólaráð hins vegar ekki
háleitara og hnarreistara en svo aö
þaö fer undan í flæmingi og kennir
einhveijum óþekktum mönnum
úti í bæ um að klámmyndirnar séu
á Intemetinu. Þeir hafa ekki einu
snrni dug í sér til að viðurkenna
að hafa sjálfir keypt spólurnar til
að spfia þær! Er enginn manndóm-
ur lengur í Háskólanum? Þurfa
menn að fara á flótta undan smni
eigin tæknivæðingu, bara af því
einhveijir siöapostular hafa ekki
smekk fyrir kynlífi eins og það ger-
ir fiölskrúðugast?
Það á að fara að kenna tilteknum
námsmanni um klámið. Og náms-
maðurinn fer líka á undan á flótta
og segir að einhver hafi stolist inn
á kerfið í sínu nafni tíl að koma
kláminu inn.
Þessi viðbrögð valda vonbrigð-
um. Nær hefði verið að námsmað-
urinn hefði viðurkennt að hann
hafi fengið viðurkenningu frá
stjóm Intemetsins um klámið og
sfióm Intemetsins viðurkenni að
hún hafi fengið viðurkenningu hjá
háskólaráði um birtingu klám-
myndanna. Þá hefði Háskóli ís-
lands risið undir nafni og loksins
verið tU einhvers brúks. Þá hefði
þjóðin borið virðingu fyrir
kennslugögnum og skUið þýðingu
Intemetsins til fuUs.
Dagfari