Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1995, Blaðsíða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR 1995
Utlönd
Yfimiaður í
frönsku lög-
reglunni hefur
í;sagt::;^|;:ilr:;;ÍEIíí
að Eduard
Balladur, l'or-
saitisráöhcrra
Frakklands,
dró tíl baka
fyrri ununæli sín um síinahleran-
ir sem vtíðast ætla aö hafa mjög
neikvæð áhrif á kosningabaráttu
hans fyrir komandi forsetakosn-
ingar, Yfirmaðurinn hætti eftir
að Balladur dró skyndilega til
baka stuöning sinn við lögregl-
una og hætti við að samþykkja
reglur sem leyfa áttu lögreglunni
aö hlera síma, án dómssamþykkt-
ar, í neyðartiifellum. Balladur
hafði áður lýst yfir stuðningi við
aðgerðir lögreglunnar í hlerunar-
máli sem tengdist stjómmála-
manni. Skoðanakannanir sýna
að Balladur er enn tíklegastur til
að taka víð af Mitterand sem for-
seti þó dregið hafi úr stuðningi
við hann.
Líkamsleifar
konufínnastvíða
Einn eða fieiri morðingjar viit-
ust vilja að lögreglan í E1 Paso í
Texas fyndu lík konu einnar sem
þeir myrtu. Líkamspartar kon-
uimar hafa verið að finnast á al-
mannafæri síðust daga og hafa
þeir oft verið málaöir í ýmsum
litum. Sl. föstudag fundust fót- og
handleggur og svo höfuð og fing-
ur um helgina þangað til lögregl-
an fann afganginn í gær. Þegar
líkið fannst var það málað gulllit-
að ög vafið inn í teppi sem var
málað silfurlitað og grænt.
- Heuter -
Sjö ára drengur og bamfóstra hans stungin til bana á Englandi:
Blóðslettur voru um
allt svef nherberqið
Sjö ára drengur og fimmtán ára
barnfóstra hans voru myrt á hroða-
legan hátt í Little Horton í Bradford
á Englandi á laugardagskvöld og hef-
ur ódæðismaðurinn ekki enn fund-
ist. Móðir drengsins og systur fundu
líkin þegar þær komu heim úr veislu
skömmu eftir miðnætti og sagði lög-
reglan að blóðslettur hefðu verið um
allt svefnherbergið þar sem hin látnu
fundust.
Lögreglan lýsti verksummerkjum
þannig að svo virtist sem ódæðis-
maðurinn heíði gengið berserksgang
og stungið fórnarlömbin, Jonathan
Copley og Rachel Rooney, hvaö eftir
annað með hníf með fimmtán sentí-
metra löngu og rúmlega sentímetra
breiðu blaði. Morðvopnið hefur ekki
fundist.
Ekki voru nein merki þess að brot-
ist hefði verið inn í húsið. Lögreglan
telur að morðinginn eða morðingj-
arnir hafi annaðhvort platað börnin
til að hleypa sér inn eða að hann eða
þeir hafi þekkt annað eða bæði fórn-
arlömbin.
Malcolm Mawson varðstjóri, sem
stjómar rannsókninni, sagði að fjöldi
manns hefði verið yfirheyrður og
yfirheyrslum yrði haldið áfram.
Lögregla á Englandi leitar enn morðingja þeirra Jonathans Copleys, 7 ára,
og barnfóstrunnar Rachel Rooney, 15 ára. símamyndir Reuter
Mawson óskaði eftir aðstoð almenn-
ings og hafði sérstakan áhuga á að
heyra af ferðum ungs manns á skelli-
nöðru sem sást fyrir utan húsið laust
eftir klukkan hálfellefu á laugar-
dagskvöld.
„Það bendir ekkert til þess að kyn-
ferðisglæpur hafi verið framinn og
ekki er vitað til þess að neinu hafi
verið stolið,“ sagði Mawson.
Nágrannar fjölskyldunnar vissu
ekki sitt rjúkandi ráð og lýstu frú
Copley, móður Jonathans, og börn-
um hennar sem „indælisfiölskyldu
sem enginn ætti að vilja vinna mein“.
Rodney Beck, 47 ára granni fiöskyld-
unnar, sagði að Elisabeth, fimmtán
ára systir Jonathans, hefði venjulega
gætt bróður síns en henni hefði verið
boðið í veisluna í þetta sinn og því
hefði hún beðið Rachel um að hlaupa
í skarðið fyrir sig.
„Við komum heim klukkan eitt og
þá var allt morandi í lögregluþjón-
um. Þetta er hrikalegur harmleik-
ur,“ sagði Beck.
Bílaskemman hf., Vellir, Ölfusi, 801 Selfoss
(YOKO ferðaútvarpstæki með segulbandi)
Áslaug Fjóla Guðmundsdóttir, Akurgerði, 801 Selfoss
(Fataúttekt í Blu di BIu)
Helgi Pétursson, Hlíðarbyggð 28, 210 Garðabæ
(Armbandsúr)
, Guðjón Jónsson, Helgalandi 3, 270 Mosfellsbæ
(ABC hraðsuðukanna)
Páll Kári Pálsson, Vallarbraut 7,170 Seltjarnarnes
(AIWA vasadiskó með útvarpi)
—< Vinningar verða
sendir til vinningshafa auglýsingar
- skila árangrí!
Tsjetsjensk flóttakona hvilir sig fyrir utan rústirnar af íbúðarblokkinni þar sem hún áður bjó í höfuðborginni Grosní.
Rússar lögðu borgina nánast í rúst með sprengjuárásum sinum og núna vilja þeir að Tsjetsjenar afhendi vopn
uppreisnarmanna. Símamynd Reuter
Mánudagur
20. februar
Ása Dóra Ragnarsdóttir, Skeljagranda 6, 107 R.
(SEVERIN Espresso kaffivél)
Steinþór Skúlason, Efstalundi 13, 210 Garðabæ
(TELEFUNKEN útvarpsvekjaraklukka)
Örvar Árnason, Kambahrauni 52, 810 Hueragerði
(Fataúttekt í LEVTS búðinni)
Jóhannes Norðfjörð, Kópavogsbraut 95,200 Kóp.
(TEFAL matvinnsluvél)
Aðalsteinn Þ. Jónsson, Ásbúð 43,210 Garðabæ
(SCORPION bakpoki)
Vinningar verða
sendir til vinningshafa
AUGLYSINGAR
- skila árangrí!
Deilan um færeyska bankamálið er enn í hnút:
Poul Nyrup býður Færeying-
unum að koma á sáttafund
Færeyingar og Danir eru enn við
sama heygarðshornið í deilu sinni
um bankamálið. Færeyska lands-
stjómin ítrekaði í gær ósk sína um
að fram færi dómsrannsókn. Blaðið
Berlingske Tidende segir aftur á
móti að Poul Nyrup Rasmussen, for-
sætisráðherra Danmerkur, ætli að
reyna enn einu sinni að telja Færey-
inga á að láta nefnd sérfræðinga
rannsaka það þegar Den Danske
Bank lét hlutabréf í Færeyjabanka í
skiptum um fyrir hlut í Sjóvinnu-
bankanum árið 1993.
í nýju bréfi sem Poul Nyrup hefur
skrifað er Edmund Joensen, lög-
manni Færeyja, boðiö að koma til
sáttafundar í Danmörku. Um leið
slær Nyrup því fostu að ekki verði
látin fara fram dómsrannsókn.
Stjórnmálamenn í Færeyjum vildu
ekkert tjá sig um málið í morgun,
heldur vildu bíða niðurstöðu fundar
dönsku ríkisstjórnarinnar í dag.
Poul Nyrup varði mestum parti
gærdagsins í að sefia niður tillögur
að lausn deilunnar með embættis-
mönnum sínum. Blaðið Jyllands-
Posten sagði að Færeyingar væru
reiðubúnir að falla frá kröfu sinni
um dómsrannsókn ef hæstiréttur
væri spurður og svaraði neitandi.
Heimildarmenn í danska stjómkerf-
inu vísa því hins vegar á bug að leit-
að verði til hæstaréttar.
Ritzau