Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1995, Page 3
ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR 1995
Fréttir
Síbrotamaður á ferð og flugi:
Tekinn þrívegis á
jaf n mörgum dögum
- var nýlega dæmdur og er með tvö mál á sig hjá héraðsdómi
Tæplega þrítugum manni, sem hef-
ur þrívegis veriö handtekinn af lög-
reglu undanfarna daga vegna inn-
brota og þjófnaðar, hefur í öll skiptin
verið sleppt lausum eftir nokkrar
klukkustundir í haldi lögreglu og
gengur nú laus.
Maðurinn var handtekinn á föstu-
dagsmorgun fyrir innbrot i fyrirtæki
í Austurstræti. Þegar komið var aö
honum var hann með þýfi í poka og
haföi brotið sér leið inn í húsnæðið.
Hann var fluttur á.lögreglustöö en
var sleppt eftir yfirheyrslur.
Síðdegis á laugardag var maðurinn
handtekinn fyrir þjófnað á víni á
veitingastað. Hann var íluttur á lög-
reglustöð en var sleppt eftir yfir-
heyrslu'r.
Síðdegis á sunnudag var maðurinn
handtekinn í þriðja skipti eftir að
hann braust inn í bíl við Laugaveg.
Skýrsla var tekin af manninum og
honum sleppt í kjölfarið.
Maðurinn hefur ítrekað komið við
Fjarðarkaup:
aðreka
bensínstöð
Forsvarsmenn stórmarkaðarins
Fjarðarkaupa í Hafnarfirði hafa ósk-
að eftir leyfi til að starfrækja bensín-
afgreiðslu á ióð Fjarðarkaupa við
Hólshraun í Hafnarfirði. Erindið var
lagt fyrir bæjarráð á fimmtudag og
sent til skipulagsnefndar.
Sveinn Sigurbergsson, verslunar-
stjóri í Fjarðarkaupum, segir að for-
svarsmenn verslunarinnar hafi átt í
viðræðum við Olís um rekstur bens-
ínstöðvar en ekki sé ljóst hvort versl-
unin sjálf starfrækir bensínafgreiðsl-
una eða hvort stofnaö verður sér-
stakt fyrirtæki um reksturinn.
„Þetta var í rauninni bara könnun.
Lóðin liggur vel viö og við erum með
gríðarlega stórt plan þannig aö okk-
ur fannst rétt aö kanna málið. Við
ætlum að hafa þennan möguleika í
handraðanum ef það kemst í tísku
að starfrækja bensínstöðvar. Við
höfum ekki verið í samningaviöræð-
um við Irving Oil. Það stendur allt
opiö með Olís og Essó en eftir því sem
ég hugsa máliö betur held ég aö það
sé ekki fýsilegt fyrir verslunina sem
slíka að fara út í þetta,“ segir Sveinn
Sigurbergsson, verslunarstjóri í
Fjarðarkaupum.
Suðumes:
Kosið um bæj-
arnaf n í þing-
kosningunum?
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum;
„Við munum sækja um leyfi til yf-
irkjörstjórnar á Reykjanesi að fá að
kjósa um nafn á sveitarfélagið sam-
hiiða þingkosningunum 8. apríl. Ég
vona að það fáist. Kjörsókn verður
betri og þá þurfa íbúar ekki að kjósa
tvisvar á stuttum tíma,“ sagði Jónína
Sanders formaður bæjarráðs Kefla-
víkur, Njarðvíkur og Hafna.
Yfirkjörstjóm Reykjaness mun
taka beiðnina til skoðunar á næstu
dögum. Samkvæmt heimildum DV
verður kosið um nöfnin Reykjanes
og Suðurnes.
sögu lögreglu seinustu tvö ár vegna
innbrota, þjófnaða, ölvunar og lík-
amsmeiðinga. Árið 1994 var hann
dæmdur af Héraðsdómi Reykjavíkur
í skilorðsbundið fangelsi í þrjá mán-
uði til þriggja ára. Nú eru tvö þjófn-
aðarmál á hendur honum til með- __________
ferðar hjá héraðsdómi og í hvorugu níI'USHÖFDA2n ’112 reykjavík - sími 587ii99
þeirrahefurdómurfallið. -pp -----------------------------------
★ ★ ★ ★
Dýniu Gallerí
Húsgagnahallarinnar
-ekki bara stórkostlegt
úrval heldur -þjónusta.
★ ★ ★
Húsgagnahöllin
it/fj*
Frá fimmtudegi til fimmtudags
Opið virka daga 9 - 20 laugardag 10-17 sunnudag 13-17
I húsi Ingvars Helgasonar hf. að Sœvarhöföa 2.
Þar fœrð þú
á frábæru
og jafnvel
fyrstu 6-8 mánuðina.
Visa eða Euro greiðslukjör.
fyrsta hálfa árið fylgir bílnum og
frítt bensín fram á sumar
miðað við meðalakstur á meðalbíl.
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöfða 2
Sími 674848