Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1995, Side 7
ÞRID.JUDAGUR 21. FEBRUAR 1995
7
Fréttir
Vegamálastjóri um vegi að Hvalflarðargöngum:
Eignarnámsheimildir
gilda við Akrafjall
- samningar um flármögnun á lokastigi, segja Spalarmenn
„Megnið af vegagerðinni kringum
Akraíjallið er verkefni Vegagerðar
innar og þar gilda þessar hefð-
bundnu eignarnámsheimildir vega-
laganna. í samningum Spalar við rík-
ið eru ákvæöi um að ríkið beiti sér
fyrir eignarnámi ef á þarf að halda
en ég vona aö það komi ekki til þess
að landið verði tekið eignarnámi,"
segir Helgi Hallgrímsson vegamála-
stjóri.
Samningar um ijármögnun á fram-
kvæmdum við Hvalfjarðargöng eru
á lokastigi þrátt fyrir andstöðu
bænda 1 Innri-Akraneshreppi. Gísli
Gíslason, varaformaður Spalar, segir
að fljótlega sé von á lokasvari frá
forsvarsmönnum bandaríska trygg-
ingafélagsins Prudential. Bygging
Hvalfjarðarganga kosti 3,5 til fjóra
milljarða króna, Prudential leggi
rúma tvo milljarða í púkkið og ýmsir
lífeyrissjóðir kaupi skuldabréf upp í
afganginn.
„Umferðin eykst verulega. Undir-
lendi meðfram fjallinu er lítið og
búskapurinn verður lítið spennandi
þegar jörðunum hefur verið skipt í
þrennt með tveimur vegum. Við telj-
um að ekki sé hægt að taka landið
eignarnámi því að það væri þá gert
í þágu einkafyrirtækisins Spalar.
Stjórnarskráin verndar okkur gegn
eignarnámi," segir Ólafur Sigur-
geirsson, bóndi á Þaravöllum undir
Akrafjalli.
„Við höfum ekkert við þessa bænd-
ur að tala því að Vegageröin á að
ganga frá samningum við þá. Þessi
vegur er bara eins og hver annar
þjóðvegur í eigu Vegagerðarinnar
sem cdmenningur fer um. Það stenst
ekki að ekki sé hægt að taka landiö
eignarnámi," segir Gísli Gíslason.
Spölur sf. er hálfopinbert fyrirtæki
í eigu Akranesbæjar, Sementsverk-
smiðjunnar, Járnblendisins, Vega-
gerðarinnar og fleiri aðila.
Óvænt flölgun aö Grund í Svínavatnshreppi:
Folald fæddist
í snjó og tíu
stiga gaddi
„Merin var ekki með folaldi í vor
og ég hélt sátt að segja að hún væri
geld. Ég átti alls ekki von á að hún
færi að kasta svona um hávetur. En
einn daginn í lok janúar var hringt
af næsta bæ og mér sagt að merin
væri að kasta úti í haga. Nágrann-
arnir, frændur mínir, komu fljótt að
merinni og folaldinu í snjóugum hag-
anum skömmu síðar og fylgdu þeim
heim í hús. Folaldið var á fæti og
þeim varð hvorugu meint af þessu.
Þeim heilsast alveg ágætlega í dag
þar sem þau eru inni í húsi,“ sagði
Þórður Þorsteinsson, bóndi á Grund
í Svínavatnshreppi, við DV.
Merin sem um ræðir er um 10 vetra
og hélt til í haga skammt frá bænum
þegar þetta gerðist. Sæmilegt veður
var en mikill snjór og 10 stiga gadd-
ur. Merin var í hvarfi við hól og sást
því ekki frá Grund en íbúar að Holti,
skammt frá, sáu í sjónauka hvar
merin var að kasta.
„Það var mjög heppilegt að þetta
skyldi gerast einmitt þennan dag.
Það komu þarna nokkrir dagar þar
sem veður var skaplegt og sást milli
húsa en dagana á undan og á eftir
var snælduvitlaust veður. Hefði mer-
in kastað í þvílíku veðri hefði hún
ekki komist sjálfviljug heim og fol-
aldið ekki lifað. Það er í lagi þótt
svona gerist í snjó og kulda en það
verður að koma skepnunum í hús
mjög fljótt á eftir," sagði Þórður.
Þórður er á níræðisaldri, að mestu
hættur búskap en á nokkra hesta
með syni sínum og um 70 rollur sem
hann hefur sér til gamans.
Mál Guðjóns Andréssonar gegn ríkissjóði:
Forsetinn þarf
ekki að vitna
- enn deilt um forsætis- og íj ármálaráðherra
Ljóst er að forseti íslands þarf ekki
að mæta sem vitni fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur í máli Guðjóns Andrés-
'sonar gegn dómsmálaráðherra og
fjármálaráðherra fyrir hönd ríkis-
sjóðs.
Jón Oddsson, lögmaður Guðjóns,
stefndi til vitnis í málinu forseta ís-
lands, forsætisráðherra, dómsmála-
ráðherra, fjármálaráðherra og vara-
ríkissaksóknara. Ríkislögmaður
mótmælti þessari kröfu lögmanns
Guðjóns og var ágreiningur leystur
að hluta til í þinghaldi fyrir helgina.
Lögmaður Guðjóns féll frá því að
stefna forseta íslands í réttarhaldi
fyrir helgina og ákveðið var að vara-
ríkissaksóknari gæti uppfyllt vitna-
skyldu sína með vottorði og þyrfti
því ekki sjálfur að mæta.
Hins vegar er enn deilt um hvort
forsætisráðherra og fjármálaráð-
herra þurfi að bera vitni. Ríkislög-
maður mótmælir því á þeirri for-
sendu að vitnisburður þeirra sé þýð-
ingarlaus og varði ekki ágreinings-
atriði málsins.
Dómarinn tók sér að minnsta kosti
vikufrest til að úrskurða um þetta
deiluatriði málsins. -pp
Norðurland vestra:
Anna Dóra leiðhr Kvennalista
sæti listans skipa:
2. Anna Hlín Bjamadóttir, Varma-
hlíð, 3. Ágústa Eiríksdóttir, Sauðár-
króki, 4. Jófríður Jónsdóttir, A-
Húnavatnssýslu og 5. Eygló Ingadótt-
ir, Hvammstanga.
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Anna Dóra Antonsdóttir, kennari
í Skagafirði, leiðir framboð Kvenna-
listans á Norðurlandi vestra fyrir
kosningarnar í vor. Fjögur næstu
Þórður Þorsteinsson, bóndi á Grund í Svínavatnshreppi, með folaldið sem
fæddist úti í haga, i miklum snjó og 10 stiga gaddi.
DV-mynd Magnús Ólafsson
Grindavíkurbær:
Krefsttug-
milljóna í
fasteigna-
gjöld
-afhitaveitunni
Grindavíkurbær hefur endur-
vakið hátt í tíu ára gamla deilu
milli sveitarfélaganna sem
standa að rekstri Hitaveitu Suð-
umesja og krafist þess að Hita-
veitan greiði samtals 20-30 millj-
ónir króna með dráttarvöxtum í
fasteignagjöld af orkuverinu í
Grindavík þrátt fyrir samkomu-
lag frá árinu 1985 um að Hitaveit-
an sé undanþegin hvers konar
gjöldum til sveitarfélaganna.
Málið er til umsagnar hjá lög-
fræðingi bæjarins og er vonast til
að lausn fáist með vorinu.
„Skiptar skoðanir eru um hvort
það hafi orðið samkomulag um
þetta milli sveitarfélaganna.
Menn hafe ýtt þessu máli á undan
sér frá árinu 1985 en nú vonumst
við til að menn átti sig á því að
þaö er ekki á færi eins að dæma
þegar tveir deila. Ef ekki tekst að
ná sáttum leita menn réttar síns
hjá dómstólum. Það er kominn
tími til að fá lok í þetta mál,“ seg-
ir Jón Gunnar Stefánsson, bæjar-
stjóri í Grindavík.
„Þetta er ekkert stórkostlegt
hitamál en menn eru ekki sáttir.
Ég er búinn að senda lögfræðingi
Grindavíkur bréf og hann er að
funda meö þeim. Þetta er í
vinnslu í mesta bróðerni og menn
reyna aö finna eðlilegan flöt á
þessu,“ segir Júlíus Jónsson, for-
stjóri Hitaveitu Suðurnesja.
Norðurland eystra:
ir í efstu
sætunum
Gylfi Kiistjánsson, DV, Akuieyri:
Guðmundur Bjarnason, alþing-
ismaður á Húsavik, skipar efsta
sæti á lista Framsóknarflokksins
í Noröurlandskjördæmi eystra en
framboðslistinn var kynntur um
helgina.
í næstu sætum listans eru: 2.
Valgerður Sverrísdóttir, Grýtu-
bakkahreppi, 3. Jóhannes Geir
Sigurgeirsson, Eyjafjarðarsveit,
4. Ingunn St. Svavarsdóttir,
Kópaskeri, 5. Guðmundur Stef-
ánsson, Akureyri og 6. Helga Ei-
riksdóttir, Dalvík.
VEGNA HAGSTÆÐRA SAMNINGA, GETUM VIÐ NU UM SINN
BOÐIÐ FLESTAR GERÐIR DÖNSKU GRAM KÆLISKÁPANNA Á
FRÁBÆRU VERÐI, T.D. NEÐANGREINDAR:
GRAM gerð: Ytri mál mm. br. x dýpt x hæð Rými kæl. + Itr. fr. kWst 24 t. Staðgr. verð *
KS-201T 550x601 x 1085 200 + 0 0,57 45.980,-
KS-245T 550x 601 x 1285 245 + 0 0,60 49.990,-
KS-300E 595 x 601 x 1342 274 + 0 0,67 54.980,-
KS-350E 595 x 601 x 1542 327 + 0 0,70 64.900,-
KS-400E 595 x 601 x 1742 379 + 0 0,72 72.980,-
KF-185T 550 x 601 x 1085 146 + 37 0,97 46.990,-
KF-232T 550 x 601 x 1285 193 + 37 1,07 49.990,-
KF-263 550 x 601 x 1465 200 + 55 1,25 56.980,-
KF-245E 595 x 601 x 1342 172 + 63 1,05 ' 58.990,-
KF-355E 595 x 601 x 1742 275 + 63 1,45 72.960,-
KF-335E 595x601 x 1742 196 + 145 1,80 77.980,-
*Staðgreiðsluafsláttur er 5% Úrvalið er miklu meira, því við bjóðum alls 20 gerðir GRAM kæliskápa. Að auki 8 gerðir GRAM frystiskápa og 6 gerðir af GRAM frystikistum. Komdu í Fönix og kynntu þér úrvalið - eða hafðu samband við næsta umboðsmann okkar. Upplýsingar um umboðsmenn hjá GULU LÍNUNNI s 562 6262.
GRAM KF 355E
GOÐIR SKILMALAR
FRÍ HEIMSENDING
TRAUST ÞJÓNUSTA
jFOmx
HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI 552 4420