Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1995, Síða 24
24
ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR 1995
Sviðsljós
Roxette gerir allt
vitlaust í Kína
Sænski poppdúettinn Roxette lék
fyrir fuUu húsi í Peking um helgina
og geröi þvílíka stormandi lukku aö
annaö eins hefur ekki sést í háa herr-
ans tíð, aö minnsta kosti ekki í Kína.
Áheyrendur dönsuðu milli sætarað-
anna, veifuðu logandi kveikjurum
og tóku undir af öllum lífs og sálar
kröftum.
„Þetta eru fyrstu stóru tónleikamir
frá því breska sveitin Wham kom
hingaö áriö 1985. Þetta var stórkost-
legt,“ sagði Zhao Tonghui, 25 ára.
Aðdáendur Svíanna greiddu sem
svarar rúmum fimm þúsundum
króna fyrir miðann, en það eru með-
allaun verkamanns í Kína og létu sig
ekki muna mikið um það.
Áður en hægt var að halda tónleik-
ana þurftu rokkaramir að leggja lög
sín og texta inn til samþykkis hjá
yfirvöldum og tók sú umfjöllun
marga mánuði. Söngkonan Marie
Fredriksson sagði þó að ekki hefði
þurft að gera neinar breytingar á
venjulegri sýningu sveitarinnar.
Popptónlist nýtur mikilla vinsælda
meðal allra nýríku Nonnanna sem
nú eru í Kína. „Svona tónleikar ættu
að vera oftar,“ sagði blaðakonan fer-
tuga Wang Xiaoming sem lét dóttur
sína plata sig á hstviðburðinn.
Tajaðu vjð okkur um
BILARETTINGAR
BILASPRAUTUN
Varmi
Auðbrekku 14, sími 64 21 41
VINNIN LAUG/i (T)i (í
GSTÖLUR RDAGINN . 18.2.1995
D® (T)
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1.5 at 5 2 2.442.850
o 4 815^ 41. PIÚS 3 123.590
3. 4 af 5 115 7.410
4. 3af 5 4.339 450
Heildarvinningsupphæd: 8.184.760
m . ÆM BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR
* , *
Per Gessle og Marie Fredriksson, öðru nafni sænski poppdúettinn Roxette, fóru í túristaleik þegar þau voru í
Kína fyrir helgi og skoðuðu m.a. Kinamúrinn mikla og létu taka af sér mynd.
GJAFAHANDBÓK
FERMINGAR-
GJAFAHANDBÓK
Miðvikudaginn 22. mars mun hin sívinsæla
FERMINGARGJAFAHANDBÓK fylgja DV.
Hún er hugsuð sem handbók fyrir lesendur sem eru
í leit að fermingargjöfum. Þetta finnst mörgum þægi-
legt nú, á dögum tímaleysis, og af reynslunni þekkj-
um við að handbækur DV hafa verið afar vinsælar.
Skilafrestur auglýsinga er til 13. mars en með tilliti
til reynslu undanfarinna ára er auglýsendum bent á
að hafa samband við Selmu Rut Magnúsdóttur eða
Ragnar Sigurjónsson, auglýsingadeild DV, hið fyrsta
í síma 563 27 00 svo að unnt reynist að veita öllum
sem besta þjónustu.
ATH.I Bréfasími okkar er 563 27 27.
Paul Newman:
Lætur aldurinn
ekkert á sig fá
Paul Newman lætur sjötugsaldur-
inn ekkert vera að þvælast fyrir sér
þegar kappakstur og kvikmyndaleik-
ur eru annars vegar. Hann gerði sér
lítið fyrir um daginn og sigraði í
frægum kappakstri í Daytona. Fyrir
vikið komst hann í heimsmetabók
Guinness sem elsti vinningsökumað-
ur í akstri þessum.
„Hætta skal leik þá hæst stendur,"
sagði Newman þegar hann var
spurður hvort hann ætlaði að hætta
kappakstri. Hann viðurkenndi að sú
hugsun hefði hvarflað að sér. Hann
hefur þó sagt það áður en jafnharðan
skotist út á kappakstursbrautina á
ný.
Og það hefur sosum líka flogið að
Newman að hætta kvikmyndaleik og
hann spyr hvort nokkur góð frum-
samin handrit séu í umferð.
Paul Newman hefur fengið mjög
lofsamlega dóma fyrir leik sinn í
myndinni Nobody’s Fool og er því
jafnvel spáð að hann verði tilnefndur
til óskarsverðlauna. Newman er hins
vegar lítt hrifmn af verðlaunastússi,
segist þó ætla að mæta 27. mars verði
hann tilnefndur.
En það eru ekki aðeins kappakstur
og kvikmyndaleikur sem hafa ofan
af fyrir Paul Newman. Hann starfar
af kappi innan matvælafyrirtækis
síns, Newman’s Own, og lætur allan
ágóða renna til líknarmála um heim
allan. Newman hefur þegar opnað
sumarbúðir fyrir fársjúk börn í kast-
aia á írlandi og á næsta ári verða
teknar í notkun búðir í Frakklandi
og í Orlando á Flórída.
Michael eign-
asttvíbura
Michael J. Fox, kvikmyndaleik-
arinn drengjalegi, er syngjandi
sæll og glaður nú um stundir og
lái honum hver sem viil. Stráksi
og eiginkona hans, Tracy Pollan,
voru nefnilega að eignast tvíbura
í síðustu viku, tvær litlar og ynd-
islegar stúlkur sem heita Aquin-
nah Kathleen og Schuyler Franc-
es. Það má því reikna með vöku-
nóttum á Fox-heimilinu á næst-
unni.
Maria og
Amold í leik
Amold Schwarzenegger vöðva-
búnt og Maria Shriver eiginkona
hans eru mikið hamingjufólk og
vilja láta gott af sér leiða. Hún á
heldur ekki langt að sækja góð-
mennskuna og náungakærleik-
ann, verandi af Kennedyslektinu.
Hjónakornin gera ráð fyrir að
taka enn einu sinni þátt i íþrótta-
leikum fatlaðra sem móöir Mar-
iu, Eunice, stendur fyrir.
TedDanson
að altarinu
Ted Danson, kvennabósaleikari
úr Staupasteini, hefur nú ákveðið
að ganga í hjónaband. Að þessu
sinni er kærastan hans leikkonan
Mary Steenburgen en ekki er svo
mjög langt síðan aö hann og
Whoopi Goldberg voru harð-
ákveðin í aö láta pússa sig saman.
Hvaö um þaö, Ted bað stúlkunn-
ar á 42 ára afmælisdegi hennar
fyrir skömmu og gaf henni for-
kunnarfagran hring. Ted er 47
ára. Þau hafa bæði verið gift áður
og eiga tvö böm hvort.
bláar linsur
Elisabet Taylor er með einhver
bláustu augu sem um getur. Leik-
konunni Sherilyn Fenn, sem ieik-
ur Betu í nýrri pínuþáttaröð, var
þvi mikill vandi á höndum. Hún
ætlar ekki aö setja i sig fjólubláar
linsur, heldur beita samlitum
farða óspart. „Ég er ekki Elísabet
Taylor. Ég leik hana,“ sagöi
Sherilyn sem horfði á myndir
stórstjörnunnar til að búa sig
undir hlutverkið.