Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1995, Page 29
ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR 1995
29
Leikstjórinn Hávar Sigurjónsson.
Taktu
lagið, Lóa!
Þjóðleikhúsið sýnir í kvöld á
Smiðaverkstæðinu leikritíö
Taktu lagið, Lóa! en það er eftir
Jim Cartwright, eitt þekktasta
nútímaleikskáld Breta.
í verkinu segir frá Möllu Kloff,
„kátri ekkju“ sem er óreglusöm,
skemmtanasjúk og á síðasta
snúningi með líf sitt. Dóttir henn-
ar, Lóa, er afskipt og vanrækt,
Leikhús
feimin og óframfærin. Hún hefur
lært að loka sig inni í sínum eigin
heimi, sem er heimur tónlistar-
innar. Eitt kvöldið kemur móðir-
in heim með nýjan bólfélaga.
Hann er umboðsmaður fyrir
þriðja flokks „skemmtikrafta" og
dreymir um fljótfenginn gróða.
Hann heyrir Lóu syngja og sér
samstundis gróðavon.
Leikstjóri er Hávar Sigurjóns-
son en leikendur eru Kristbjörg
Kjeld, Ólafía Hrönn Jónsdóttir,
Pálmi Gestsson, Ragnheiður
Steindórsdóttír, Hilmar Jónsson,
Róbert Amfmnsson og Jón Ólafs-
son.
Keppt hefur veriö í handbolta i
innan við 100 ár.
Þridjudagsblús
Jass-barinn við Lækjargötu
er nýr tónlistarbar sem ætlar
að bjóða upp á lifandi blús og
blústengda tónlist á þriðjudags-
kvöldum.
Það verður hijómsveitin
Blues-Express sem ríður á vað-
ið og ætla þeir Gunnar Eiriks-
Skemmtanir
son og félagar hans í sveitínni
að leika slatta af standördum
og einnig nýstárlegri útsetnmg-
ar og frumsamið efni
Spilað verður frá klukkan tiu
tíl eitt eftir miðnættí og er að-
gangur ókeypis.
Gunnar Eiríksson og félagar hans i
Danskur
handbolti
Handknattleikur er dönsk upp-
fmning. R.N. Emst liðsforingi og
Holger Nielsen íþróttakennari
mótuðu þessa íþrótt hvor í sinu
lagi á árunum 1896-1907.
Eftir það þróaðist íþróttin eink-
um í Þýskalandi. Keppt hefur
verið í handknattleik á ólympíu-
leikum síðan 1936 en þá unnu
Þjóðverjar gullverðlaun.
Blessuð veröldin
Júdó
Japaninn Jigoro Kano lagði drög
að júdó 1882. Hann var fæddur
1860 í Mikage í Setsu-héraði og
hafði lagt nokkra stund á jiu-
jitsu. Kano stundaði nám við há-
skólann í Tokyo og kynnti sér
vandlega öll afbrigði jiu-jitsu.
Loks mótaði hann árásar- og
vamarkerfi sem gerði manni
kleift að sigra aflmeiri andstæð-
ing með lipurð og mýkt.
Knattspyrna
Sú knattspyma sem iðkuö er nú
um stundir mótaðist 1863. Að
markvörðum undanskildum
máttu leikmenn nú ekki snerta
knöttinn með höndum nema í
innkasti. Kínverjar léku svipaða
knattspymu um 350 f. Krist.
Verið að moka Stein-
grímsfjarðarheiði
Á Vesturlandi er fært um Heydal í
Dölum og mn norðanvert Snæfells-
nes, Kerlingarskarð er fært og verið
er að moka Fróðárheiði. Þá er verið
að moka fyrir Klofning og um Gils-
fíörð í Reykhólasveit og vonast er til
Færðávegum
að leiðin opnist síðdegis.
Fært er til Hólmavíkur og verið er
að moka Steingrimsfíarðarheiði.
Fært er norður yfir Holtavörðuheiði
og um Norðurland til Siglufíarðar og
Ólafsfíarðar, einnig er fært til Húsa-
víkur en Mývatns- og Möðmdalsör-
æfí og Vopnafíarðarheiði era ófær.
Vegir á Austfíörðum eru flestir
færir og greiðfært er með suður-
ströndinni til Reykjavíkur.
Ástand vega
Eö Hálka og snjór
án fyrirstööu
Lokaö
B Vegavinna-aögát 0 Öxulþungatakmarkanir
m Þungfært © Fært fjallabílum
Þessi sæti strákur fæddist laug-
ardaginn 11, febrúar kl. 6.27 á fæð-
ingardeild Landspítalans. Dreng-
urinn var 3235 grömm þegar hann
var vigtaður og 53 sentímetrar á
lengd. Foreldrar snáðans eru Jean-
atte Castioni og Gisli Öm Þórólfs-
son. Þetta er fyrsta barn þeirra.
Masatoshi Nagase í hlutverki
íslandsfarans.
Á köldum
klaka
Stjörnubíó sýnir um þessar
mundir nýjustu mynd Friðriks
Þórs Friðrikssonar, Á köldum
klaka. Guðlaugur Bergmunds-
son, kvikmyndagagnrýnandi DV,
er einn þeirra sem hafa séð
myndina og hann hafði m.a. þetta
um hana að segja:
„Eins og svo oft áður er það
náttúra landsins og kvikmynda-
takan sem hér era sfiörnumar.
Kvikmyndir
Það var hárrétt ákvörðun hjá
Friðriki Þór að láta söguna gerast
að vetrarlagi þegar landið tekur
á sig enn hrikalegri myndir en á
sólríkum sumardegi. Fegurðin og
hrikaleikinn njóta sín með ein-
dæmum vel í myndatöku Ara
Kristinssonar. Þar skal sérstak-
lega -nefna þegar Hirata gengur
út í tunglbjarta nóttina uppi á
fíöllum. Það er eins og hann hafi
stígið inn í heim andanna."
Nýjar myndir
Háskólabíó: Ekkjuhæð
Laugarásbíó: Corrina, Corrina
Saga-bíó: Leon
Bíóhöllin: Aflijúpun
Stjörnubíó: Á köldum klaka
Bíóborgin: Afhjúpun
Regnboginn: Barcelona
Gengið
Almenn gengisskráning LÍ nr. 46.
21. febrúar 1995 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollgengi
Dollar 65,750 65,950 67,440
Pund 103,950 104,270 107,140
Kan. dollar 46,980 47,170 47,750
Dönsk kr. 11,2580 11,3030 11,2820
Norsk kr. 10,1100 10,1500 10,1710
Sænsk kr. 9,0110 9,0470 9,0710
Fi. mark 14,3360 14,3930 14,2810
Fra. franki 12,7760 12,8270 12,8370
Belg.franki 2,1676 2,1662 2,1614
Sviss. franki 52,5900 52,8000 52,9100
Holl. gyllini 39,6300 39,7900 39,7700
Þýskt mark 44,4600 44,5900 44,5500
It. lira 0,04100 0,04120 0,04218
Aust. sch. 6,3110 6,3420 6,3370
Port. escudo 0,4286 0,4308 0,4311
Spá. peseti 0,5093 0,5119 0,5129
Jap. yen 0,67490 0,67690 0,68240
Irskt pund 103,430 103,940 105,960
SDR 97,78000 98,27000 99,49000
ECU 83,4600 83,8000 84,1700
Símsvari vegna gengisskráningar 623270.
Krossgátan
Lárétt: 1 úlfypja, 6 heimili, 8 einfaldur,
9 svelgur, 10 kropp, 12 ónáöaöi, 15 dygga,
17 dauði, 19 lunboðssvæði, 20 grind, 21
hugur.
Lóðrétt: 1 hámark, 2 land, 3 gróður, 4
samþykkir, 5 skel, 6 fæöingu, 7 mælir,
11 pinna, 13 útlims, 14 lengdarmál, 16
erlendis, 18 mannsnafn.
Lausn á siðustu krossgátu.
Lárétt: 1 sýr, 4 eski, 8 ofur, 9 kal, 10 last-
ar, 11 lækur, 13 tá, 15 iður, 17 fis, 18 nugg-
uöu, 20 org, 21 árum.
Lóðrétt: 1 sollin, 2 ýfa, 3 rusk, 4 ertur, 5
skarfur, 6 kartið, 7 ilm, 12 æður, 14 ásum,
16 ugg, 19 gá.