Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1995, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1995, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 1995 Fréttir Snjóflóð féll úr Eminum við Bolungarvík: Drap f imm hross og skemmdi hesthúsið Fimm hross drápust og þrjú hest- hús urðu fyrir verulegum skemmd- um þegar snjóflóð féll úr austanverð- um Erninum viö Bolungarvík um níuleytið í gærmorgun. Fjórða hest- húsið slapp að mestu við skemmdir en húsin Uggja öll meðfram fjalls- hlíðinni. „Fremsta húsið er tvískipt 1 eigu tveggja manna. Flóðið lagði gaflinn niður og æddi inn í efri helminginn. Krafturinn vai' svo rosalegur að þak- ið lyftist og það var eins og steypu hefði- verið dælt inn. Þama voru fimm hross sem öll drápust. Flóöið stöövaðist hins vegar á steyptum núlhvegg þannig að hross í neöri helmingi hússins sluppu," sagöi Jó- hann Bragason á Bolungarvík en hann átti eitt húsanna sem skemmd- ust í flóðinu. Jóhann segir aö ofan við næsta hús hafi eigandinn steypt skítþrær síð- astliðið sumar. Járnabindingin í þeim hafi verið það rammgerð að flóðið stoppaði á þrónum og húsið slapp í heilu lagi. „En húsið sem ég á við annan mann er tvískipt, með hlöðu í efri hlutan- um. Stórar hlöðudymar splundruð- ust undan flóðinu sem æddi að milli- vegg og lagði hann niður til hálfs. Fjögur hross stóðu undir veggnum og sluppu þau öll. Eitt stökk yfir jöt- una og losnaði en það hefði annars drepist. Annar hestur náði að stökkva upp á jötuna án þess þó að losna meðan tveir gátu slitið sig lausa og komist fram í ganginn sem liggur út úr húsinu. Fleiri hestar voru í húsinu en alls sluppu 12 hross í okkar húsi,“ sagði Jóhann. Efri hurð á fjórða húsinu sprakk inn þannig að metradjúpur snjór var um aUt inni. Hrossin í því húsi sak- aði hins vegar ekki og var handmok- að út. Jóhann segist ekki muna eftir snjó- flóðum á þessum stað. „Það hafa komið spýjur af og til en þær hafa ekki einu sinni náð að girð- ingu sem er 30 metrum ofan við hús- in. Það var harðfenni og í gær snjó- aði töluvert. Þessi lausi snjór virðist ekki hafa tollað og því fór flóðið af stað,“ sagöi Jóhann. Þú getur svaraO þessari spurningu meö því aO hringja í síma 99-16-00. 39,90 kr. mínútan. r ö d d FOLKSINS 99-16-00 Ertu fylgjandi eða andvígur nýju kjarasamningunum? Alllr I ttafræna kerllnu m«6 tðnvalsilma g»ta n»tt th þeg»» þ)6nu»tu. Agústa Gunnarsdóttir, sálfræðingur hjá Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur, tekur son sinn, Gunnar Sturlu, 6 ára, með sér i vinnuna vegna kennara- verkfallsins. Gunnari Sturlu þykir mest gaman þegar hann fær að hjálpa mömmu við Ijósritunina. DV-mynd Brynjar Gauti Ágústa er í hópi fjölda foreldra sem lenda í vandræðum með böm sín í kennaraverkfallinu. Hún er einstæð móðir og hefur ekki önnur ráð en að taka sex ára son sinn, Gunnar Sturlu, með í vinnuna. í hádeginu sendir Ágústa hann með Tvö hrossanna sem drápust f snjóflóðinu í Bolungarvik í gær. DV-mynd Halldór Sveinbjörnsson, ísafirði Tekur sex ára son sinn með í vinnuna í kennaraverkfallinu: Stuttar fréttir Verð að leita annarra úrræða eftir helgina - segir Ágústa Gunnarsdóttir sálfræðingur strætisvagni í Laugarnesskólann þar sem hann er nemandi. Þar dvelur Gunnar Sturla í Laugarseli, heils dags skóla Reykjavíkurborgar eftir heföbundinn skóla, uns hann er sótt- ur. • „Ég er svolítið uggandi vegna ör- yggis Gunnars Sturlu á leiöinni inn í Laugarnesskóla. Ef eitthvað kemur fyrir hann veit ég ekki neitt. En hann hringir um leið og hann er kominn inn eftir.“ - Hver eru viöbrögð vinnuveitenda þinna við að hafa strákinn í vinn- unni? „Ég hef mætt skilningi enda hef ég mjög umburðarlynda vinnuveitend- ur. Svo truflar hann ekki aöra þar sem ég er með sér skrifstofu. En ég held að ég geti ekki haft þetta svona nema þessa viku. Efdr helgi verð ég aö leita annarra úrræða, jafnvel kosta pössun fyrir hann.“ Ágústa á systkini og aldraða for- eldra en óar við því róti sem eilífir flutningar hafa í fór með sér. „Þetta verður þá eilífur þeytingur. Kosturinn við aö taka hann með í vinnuna er að ég losna við þennan þeyting. En það em takmörk fyrir hvað ég get haft hann hér lengi," sagði Ágústa. „Ég hef ekki önnur ráð en að taka strákinn með mér í vinnuna. Hann situr hjá mér inni á skrifstofunni og ég læt hann lesa, skrifa og reikna. Honum leiðist náttúrlega að vera héma og lifnar helst yfir honum þeg- ar hann fær að hjálpá mér viö að ljós- rita. Ég er með sér skrifstofu svo að þetta truflar ekki vinnufélaga mína en það truflar vinnutilhögun mína. Ég verð að fresta öllum viðtölum og fundum þar til eftir hádegi," sagði Ágústa Gunnarsdóttir, sálfræðingur hjá Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur, við DV. Böraútilokuð Böm innan 12 ára fá ekki leng- ur aö koma í heimsókn á fæðing- ar- og sængurkvennadeild Landspítalans eða Fæðingar- heimilíð í Reykjavík. Tilgangur- inn er að draga úr hættu á aö komaböm smitist af svokallaöri RS-veira. Sjónvarpið greindi frá. Wng Norðuriandaráðs Þing Norðurlandaráðs hefst í Reykjavík á mánudaginn og stendur yfir fram á fimmtudag. Skv. Tímanum verður kostnaður Alþingis um 20 milljónir. Von er á 780 erlendum gestum á þingið. Ódýrari fóiksbllar Meðalstórir bílar lækka í verði um allt að 5% samkvæmt fhun- varpi fjármálaráðherra um breytingar á vörugjöldum. RÚV greindi frá þessu. Verðmætiíloðnunni Eftir er að veiöa um 515 þúsund tonn af loðnu á þeim sjö vikum sem eftir eru af vertíðinni. Skv. Mbl. era vertíöarverðmætin áætluö um 9 milljaröar. Drjúg búbót sérfræðinga Tryggingastofhun greiddi sér- fræöingura ríflega 1,1 milljarð fyrir læknisverk þeirra á síðasta ári. Skv. Tímanum fékk hver læknir að meðaltali um 3 milljón- ir í slíkar greiöslur. Flestir lækn- anna eru einnig á launum á spít- ölum auk þess sem þeir fá greiðsl- ur beint frá sjúklingum. Ófaglærðirsenija Þjónustusamband íslands, samtök ófaglærðs starfsfólks á hótelum og veitingahúsum, und- irritaöikjarasamning S síðdegis í gær. RÚV greindi frá þessu. -kaa ydduðum tannbursta Síbrotapiltur á átjánda ári stakk Steingrím Njálsson marg- sinnis með tannbursta, sem odd- ur hafði verið sorfinn á, í Síðum- úlafangelsinu þar sem þeir vora báðir í haldi, Steingrímur í af- plántm en pilturinn í gæsluvarð- haldi. Fangavörður yfirbugaöi árásarmanninn. Þriðji fanginn, afplánunarfangi sem er í haldi fyrir hnifstunguárás, réðst þá á fangavörðinn og reyndi að koraa í veg fyrir að hann skakkaði leik- inn. Atburöurinn átti sér stað á svo- kölluðum lausagangi og var Steingrímur fluttur á slysadeild. Hann hlaut áverka í andliti og á líkama. Gert var að sárum hans, sem reyndust ekki alvarleg, og þaöan var hann fluttur aftur i Síöumúlafangelsið. -pp Togaraskýrsla LÍÚ: Baldvin Þor- steinsson EA hæstur Baldvin Þorsteinsson EA er langhæstur frystitogaranna á ár- inu 1995. Þetta kemur fram í tog- araskýrslu LÍIJ. Baldvin er með fúmlega 7.600 tonna afla að verð- mæti 578 milljónir króna. Næst- mesta verðmætið var hjá Vigra RE sem var með 539 milljónir króna. Afli hans var rúmlega 5600 tonn. í þriðja ssæti var Höfrung- ur Ifi frá Akranesi með 524 millj- ónir króna eða 5800 tonn. Mestan afla ísfisktogara bar Ásbjörn RE að landi eða 5779 tonn að verðmæti 232 milljónir. Mest verðmæti ísfisktogara var hjá Gullveri NS, 272 milljónir króna. Afli skipsins var 3126 tonn. Með- alafli ísfisktogaranna dróst sam- an um tæp 5 prósent á meöan frystitogararnir juku afla sinn að meðaltali um 16 prósent. -rt Súðavlk: Landsbanki eftirlét sumarhús Landsbanki íslands eftirlét Súðvíkingum sumarhús sem voru komin á grann í Selvík við Alftavatn. Að sögn Jóns Gauta Jónssonar, sveitarstjóra í Súöavík, hafði hann samband við Sverri Her- mannsson bankastjóra til að fal- ast eftir húsunum þar sem hörg- ull var á húsum sem fullnægðu kröfum. Sverrir tók málinu vel og veitti leyfi sitt strax. Jón Gauti segir vonir standa til aö fyrstu Súðvikingarnir- flytji inníhússínívikunni. -rt Kjarvalsstaðir: Gunnarráðinn Borgarráð hefur samþykkt að ráða Gunnar Kvaran listfræöing í starf forstöðumanns Kjarvals- staða. Gunnar verður ráðinn til fjögurra ára, í stað sex ára áður. Ráöningin tekur gildi 1. mars. Áannaðþús- undstöðvaðir Lögreglan i Reykjavík stöðvaði á síöasta sólarhring vel á annað þúsund biifeiðar og kannaði ástand þeirra og ökumanna. Það reyndist almennt gott. Hér er um að ræða lið í átaki lögreglu á Suður- og Suðvestur- landi þar sem áhersla er lögð á ástandökutækja. -pp

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.