Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1995, Side 12
12
MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 1995
Spumingin
Er gott að búa á íslandi?
Sigríður Björk Gylfadóttir bóndi: Já,
það er allt gott við það að búa á ís-
landi, yndisleg náttúra og hreint
land.
Reynir Ólafsson öryggisvörður: Já,
mjög gott.
Leifur Blöndal húsasmiðanemi: Já,
það gerir veðráttan.
Níels Daníelsson vélvirki: Já, þaö býr
gott fólk á íslandi.
Björgvin Hólm: Það er bara hvergi
betra.
Óskar Freyr Pétursson nemi: Já, hér
er kalt og gott.
Lesendur
Lausn á kjaradeilu
kennara við ríkisvaldið!
Birgir Einarsson og Elmar Þórðar-
son kennarar skrifa:
Við viljum koma á framfæri góðri
hugmynd sem gæti vegið þungt í
samningaviðræðum kennara og rík-
isvalds, og hugsanlega leitt til lausn-
ar hennar. - Aðalhugtökin og lausn-
aratriði í þessu sambandi eru „ferli-
kennsla" og „tilvísun“. Engin ástæða
er til að ríkisvaldið þurfi að hækka
kaupið sem neinu nemur, frá því sem
nú er. Þetta kynni að ráða úrshtum
varðandi þann hnút sem hefur
myndast í samningaumræðum.
Hugmyndin með ferlikennslu í
skólum landsins er að nemendur
greiði aðeins eitt skráningargjald við
komu að hausti beint til umsjónar-
kennarans. Þetta skráningargjald er
grunngjald ferhkennslunnar. Þessi
greiðsla er síðan endurtekin við hver
mánaðamót. Ákveðin greiðsla berist
síðan á móti til kennaranna frá
menntamálaráðuneyti. Þar sem
nemandi þarf að vera hjá fleiri kenn-
urum í skólanum þarf hann tilvísun
frá umsjónarkennara og hefst þá
ferlikennsla. Nemandinn greiðir fyr-
ir hverja tilvísun sem gildir í eina
önn,
Dæmi um ferhkennslu er þegar
nemandi fer í leikfimi eða sér-
kennslu, þá greiðir hann íþrótta-
kennara eða sérkennara sérstaka
greiðslu sem kennarinn rukkar um
leið og kennslu lýkur. Síðan rukka
sér- og sérgreinakennarar mennta-
málaráðuneytið um ákveðið gjald á
móti. - Kjósi kennari að segja upp
samningi við ráðuneytið borgar
nemandinn heldur hærra ferU-
kennslugjald, en á móti þarf hann
þá ekki að greiða tilvísunargjaldið til
umsjónarkennarans.
í framhaldsskóla eða menntaskóla
kvitta nemendur bara beint fyrir
hveija kennslustund og síðan sæi
skrifstofufólk skólans um aö inn-
heimta gjaldið vð brottfór nemand-
ans eftir hvem skóladag. - Stórar
ríkisreknar stofnanir hér á landi
hafa tekið upp svipað kerfi undanfar-
in ár á íslandi. Reyndar hefur aðeins
hluti starfsmanna þar notið
greiðslna beint frá skjólstæðingum
og því eðlilegt að annað starfsfóUc en
kennarar í skólunum fengju aöeins
mánaðarkaupið sitt. Kennarar
fengju aftur á móti mánaðarkaupið,
en auk þess greiðslurnar frá nem-
endum sínum og menntamálaráðu-
neytinu.
Hér verður ekki lagt mat á hversu
hátt gjald ætti að greiða fyrir tilvís-
anir né ferlikennsluna, en við erum
sannfærðir um að kennarar myndu
sætta sig við samninga hUðstæða
þeim sem nú eru í gildi.
Haldgóðar tillögur kennaranna? - Nemendur og ráðuneyti borgi kennsluna?
Hver vill svara fyrir?
Baldur Grétarsson skrifar:
Við hjónin urðum orðlaus og hrygg
í huga er við lásum um hreinsunar-
aðgerðir í Súðavík í miðvikudags-
blaði DV 22. febrúar. Við eigum fjög-
ur böm á aldrinum tveggja til tólf
ára og fréttir af snjóflóðinu í Súðavík
og afleiðingum þess höfðu djúpstæð
áhrif á okkur.
Síðan fylgdumst við með lands-
söfnun sem gekk vonum framar. Alls
staðar virtist mannúð og mann-
gæska ríkja, og maður komst við yfir
hinum mikla samhug meðal landa
okkar.
Það virkar því eins og löðrungur
að lesa um það að eigum fólks, jafn-
vel þótt óásjálegar þyki í augnabUk-
inu, skuli ýft og ekið í hauga að því
forspurðu. Einhverjir virðast hafa
tekið að sér að ákveða fyrir fólkið
hverju skuU farga og hverju ekki,
fólk sem heyr harða lífsbaráttu við
að ná andlegum styrk og líkamleg-
um. - Er ekki búið að reyna nóg
mótlæti í bih?
Hvar er nú hugulsemin og bróður-
þeliö? - Vom peningahagsmunir
farnir aö ráöa ferð? Halda einhveijir
að þótt söfnun hafi gengið vel þá geti
peningar komið í stað muna sem
tengjast fjölskyldulífi fólks og minn-
ingu látinna ástvina? Ég tek það fram
að ég geri mér ekki grein fyrir að-
stæðum varðandi hreinsun í Súöavík
en hrekk óneitanlega við þegar ég les
um vitnisburð hlutaðeigandi fólks.
Ég vona að einhverjar raunhæfar
skýringar komi fram um þetta mál
sem hægt er aö skilja, og þá fyrst og
fremst fyrir hlutaðeigandi. - Vpn mín
er sannarlega sú að góðvUd á íslandi
risti dýpra en flatbotna fley og endist
betur en kjölfar sUkra fara.
Eftirmálln í Súðavik:
Offari í hreinsunarstarf i
Berglind G. Magnúsdóttir, Kópavogi,
skrifar:
Nú í vetur hefur fólk í Súðavík
þurft að líða ólýsanlegar þjáningar
vegna miskunnarleysis náttúmafl-
anna. Fólk eins og ég, sem ekki þekk-
ir slíkt svartnætti af eigin raun, skU-
ur ekki til fuUs þann nístandi sárs-
auka sem fólkið upplifir.
Mér var þó ljóst aö þeir persónu-
legu munir, sem fyndust í rústunum,
myndu skipta marga miklu úr því
sem komið væri. Að skynja t.d.
tengslin við horfin, heittelskuð börn
sín, með þessa hluti í höndunum,
hlaut að verða viðkomandi óendan-
lega dýrmætt. Það hvarflaði ekki að
mér annað en að tilUtssemi og sam-
ráð við þá sem misst höfðu heföi for-
gang þegar hreinsunarstarf hæfist.
Nú, þegar fréttir berast af ótrúlegu
offari í hreinsunarstarfi í Súðavík,
þar sem menn virðast jafn hugsunar-
lausir og stjórnlausir og náttúruöfl-
in, er ég bæði undrandi, hneyksluð
og reið. Hvaðan koma þeir eiginlega
sem standa fyrir og taka þátt í þess-
um harkalegu aðgerðum? - Það eina
sem mér dettur í hug er að þarna séu
vélmenni á ferð. Framferði þeirra er
óskUjanlegt.
Ég votta öllum sem missu ástvini
sína á vofveiflegan hátt í vetur mína
dýpstu samúö og bið þess að Guð
gefi þeim styrk, frið og huggun.
I.J. skrifar:
Mér finnst ömurlegt að Stöð 2
skuli senda tvo menn til Bandaríkj-
anna tii að lýsa úrslitaleik í NBA-
körfu, en eyðileggja hann í leið-
inni. Ætla þeir aldrei að gera sér
grein fyrir því að Einar Bollason á
ekki að koma nálægt því aö lýsa
loik - maðurinn er sérfræðíngur
sem á að halda erindi um körfu-
boltamenn en allt sem hann sagði
þarna úti hefði hann rétt eins getaö
sagt hér á íslandi. - Valtýr Björn
reyndi að „bijótast í gegn" en tókst
illa þvi að Einar yfirtók fljótlega
linuna urn allt sem hann veit - En
maður þarf nú ekki alltaf að segja
aiit sem maður veit! Þegar verið er
að lýsa leik vill maður heyra hvað
er að gerast á þessu eða hinu
augnablikinu - hver skorar, hver
fær víti, hver braut á hverjum,
o.sinc Fornar frægðarsögur eiga
heima annars staðar og því á Einar
ekki að koma nálægt lýsingum, og
er „ofnotaður" á þeim vettvangi en
„ónotaöur" þar sem hann er sér-
fræðingur. f von um að skynsam-
legri nýting finnist fyrír menn
iþróttadeildar Stöðvar 2.
Lögreglanverði
vopnuð
Þórhallur hringdi:
Eftir það sem á undan er gengið
hér á höfuðborgarsvæðinu með
ránum og ofbeldi er augljóst að
þessum glæpamönnum, sem hér
gera sig líklega til að ráðast á fólk
og stunda innbrot, stendm- ekki
minnsta ógn af lögreglunni. Lög-
reglan er líka óvopnuð, gagnstætt
því sem gerist meðal annarra
þjóða. Þessum glæponum má al-
veg sýna í tvo heimana, og þvi
er nauðsynlegt að halda þeim í
skeQum með vopnaðri lögreglu.
kennarar?
Pétur Þorsteinsson hringdi:
Mér fmnst þeir gerast helst til
drjúgir með sig, kennararnir.
Þeir segjast sakna þess að al-
menningur skuli ekki láta heyra
meira frá sér varðandi verkfallið.
Satt að segja þykist ég vita aö al-
menningi sé rétt sama hversu
lengi kennarar veröa í verkfalli
úr því sem komið er. Aðalatriðiö
er að ríkisvaldið guggni ekki og
fari að bjóða kennurum meira en
samið hefur verið um við aðra.
Jón Baldviner
bestur
Jón Halldórsson skrifar:
Ég hlýddi á eldhúsdagsumræð-
ur á Alþingi. - Þar töluðu margir
sem talist geta vel máli farnir,
enda atvinnumenn í ræðuflutn-
ingi úr ræðustóli. Höfuð og herð-
ar yfir aðra ræöumenn bar þó
Jón Baldvin Hannibalsson utan-
ríkisráðherra. Fór þar saman frá-
bær flutningur ræðunnar og
snjallt orðaval sem bar vitní
skýrri og rökfastri hugsun. -
Þessu vU ég leyfa mér að koma á
framfæri, þótt ég sé ekki flokks-
bróöir Jóns Baldvins. En sann-
gimi hlýtur þó að ráða þegar til
kastanna kemur.
við Leffsstöð
Sigríður hringdi:
Mig langar til að koma á fram-
færi besta þakklæti til Bifreiða-
geymslunnar við Leifsstöð en þar
skildi ég bil minn eftir er ég fór
utan nýlega. Er ég kom heim á
konudaginn var mér afhentur bíll-
inn ásamt fallcgri rós. BíIIinn var
eins og nýr eftii* að hafa verið lek-
inn og þveginn og bónaðui* sem ég
greiddiað sjálfsögðufyrir. En alúð-
in sem fylgir móttöku og afhend-
ingu bifreiðanna er frábær.