Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1995, Side 15
LAUGARDAGUR 1. APRÍL 1995
15
og setti sig þaðan á kaf í vatnstunnu.
Eftir drykklanga stund steig hún upp
úr öldunum eins og margýgur úr
djúpi hafsins,. var hjálpað út yfir
tunnubarminn og leið út af sviðinu
með vatnið drjúpahdi úr hári og bað-
klæðum. Var nú orðið heldur drabb-
aralegt um að litast á tónieikapalli
og varð Atli Heimir Sveinsson að
koma með gólfklút á skafti til að
þurrka upp mesta bleytusullið,"
sagði í Þjóðviljanum.
Ófyrirsjáanlegt slys
í kjölfar tónleikanna sáu aðstand-
endur Musica nova, sem staðið hafði
að tónleikunum, sig tilneydda að láta
frá sér fara yfirlýsingu.
„Það ætti að vera óþarfi að benda
á það, að háttalag seinustu „gesta“,
þegar til kastanna kom, var algerlega
Paik við fjarstýrða músíkróbótinn
sinn sem gat skitið baunum.
Svidsljós
Charlene Tilton asamt Cherish
dóttur sinni i Olsneylandi.
Charlene
Tilton
glöð á ný
Charlene Tilton virðist vera
búin að ná sér eftir erfiðan skiln-
að og fjárhag8örðugleika. Char-
lene tapaði á sinum tíraa öllum
peningunum sem hún þénaði fyr-
ir leik sinn í sjónvarpsmynda-
flokknum Dallas. Hún hefur síð-
an grætt á sundfatnaöi og einnig
leikiö í nokkrum sjónvarps-
mvndum.
Charlene á tólf ára dóttur,
Cherish, með Johny Lee sem hún
skildi við 1984. Seinna hjónaband
Charlene, með Domenick Allen,
endaði með skilnaöi 1991.
óskylt markmiði félagsins, nánar
sagt ófyrirsjáanlegt slys.“
Atli segir að uppákoman hafi vakið
geysilega reiði. „Eg held að andstæð-
ingar Musica nova, sem voru ýmsir,
hafi nýtt sér þetta. Þeir máttu ekki
sjá neina tónlist aðra en eftir gömlu
meistarana, sem gert höfðu allt við
tónlist sem hægt var að gera. Þeir
hugsuðu til tónlistar líkt og Jón
skerínef í ljósvíkingi Laxness. Þegar
skáldið kom til hans og vildi fá styrk
til að skrifa þá sagði Jón. „Nei! það
er búið að skrifa allt sem þarf að
skrifa." Þeir hugsuðu svona. Mér
fannst þessir memi hafa asklok fyrir
himin og finnst það enn,“ segir Atli.
Þjóðviljinn sagði frá því að Charl-
otte Moorman, sem nú er látin, hafi
lýst yfir ánægju sinni yfir viðtökun-
um hér á landi - „margir hefðu að
sjálfsögðu verið lítt hrifnir eða
hneykslaðir. í heild þættu sér viðtök-
umar eftir vonum," var haft eftir
henni.
„Þetta þótti of langt gengið. Lista-
samfélagið hér var svo lokað.
Ástandið var kannski dálítið líkt því
sem það er í dag. Hérna er allt gott,
afgangur af heiminum er allur vond-
ur. í tónlistinni var það þannig að
menn stunduðu svona einhvers kon-
ar Beethoven-samkomur og allt sem
kom eiginlega eftir það var af hinu
vonda. í myndlistinni máluðu menn
eiginlega bara afdalinn og eina birki-
hríslu í forgmnni og jökulinn í bak-
granni."
Eins og fyrr sagði er Charlotte
Moorman látin en Paik, sem hóf fer-
ill sinn sem tónlistarmaður og var
reyndar menntaður í fomgrískri
tónhst, sneri sér að myndlist. Ath
segist aldrei hafa hitt hann eftir dvöl
hans hér á landi en nú sé hann einn
merkasti myndlistarmaður okkar
tima. Hann starfi sem prófessor í
Dusseldorf og hafi verið valinn af
Þýskalandi til að vera fulltrúi þess á
tvíæringnum í Feneyjum, sem er
helsta samkunda myndlistar í heim-
inum. Loks skipi verk hans öndvegi
í Pompidou-safninu í París.
Engin spenna í loftinu
„Það sem ég sakna kannski núna
er þessi spenna í loftinu sem ég hef
ekki orðið var viö. Ég hef spurt unga
listamenn og þeir segja þaö sama.
Það vanti líf í hstina. Það sé einhver
leiði í henni," segir Ath.
Hann segir að þeir sem hafi verið
móttækhegir fyrir nýlist á þessum
tíma hafi verið myndlistarmenn. Til
dæmis hafi það verið menn eins og
Jón Gunnar Ámason myndhöggvari,
Hreinn Friðfmnsson myndhstar-
maður og Þrándur Thoroddsen sem
hafi stutt sig í að fá tónhstarmennina
hingað til lands.
„Paik og Moorman hafa skihð eftir
sig merkileg spor. Menn hta svohtið
öðravísi á þetta allt saman. Eins og
Varese, einn helsti brautryðjandi
nútímatónhstar í Bandaríkjunum og
einkavinur Nínu Tryggvadóttur,
sagði: „Maður lítur ekki bara á nýju
hstina heldur gömlu líka.“ Hann var
einhvem tíman spurður að því hvaða
gömlu meistarar hefðu haft áhrif á
hann. Hann sagöi: „Enginn! Ég hef
áhrif á þá.““
-PP
Sjálfsafgreiðsla
92okt 64.80
95okt 67.60
Á Geirsgötu getur þú nú valið um:
•sjálfsafgreiðslu
og sparað krónu á hvern lítra
af bensíni og dieselolíu
(£sso) I
Oliufélagiðhf
• eða fullkomna ESSO þjónustu
með dælingu á bílinn, framrúðuþvotti,
athugun á olíu, rúðuvökva ó.fl.
Safnkortshafar fá að auki 80 aura
afslátt af lítra inn á reikning sinn.
Bensln-og þjónustustöS ESSO ■ Geirsgðtu 19 ‘ 101 Reykjavík * Bensinafgreiðsla - verslun, sími: 552 9039 ' Þjónustustöö, simi: 551 1968 ' Fax: 562 1191
YTRI stólpar
ESS0 ÞJ0NUSTA
Innri stólpar
SJÁLFSAFGREIÐSLA
ESS0 á fullri ferð
— fyrir þig!