Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1995, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1995
5
Fréttir
Ömurleg aðkoma að þremur hrossum í hesthúsi 1 Fjárborgum:
' f
Hestaeigandinn kærður
hrossin vannærð - fylgst verður með þeim daglega, segir forðagæslumaður
„Ég er búinn aö horfa upp á þessi
hross í vetur, þau fá ekki hey og það
er ekki þrifið undan þeim. Eigandinn
hefur ekki kembt hestunum og þeir
standa upp í kjúkulið í skít. Maður
getur ekki látið þetta óátalið leng-
ur,“ sagði hrossaeigandi í Fjárborg-
um á Hólmsheiði við DV.
Kallað var á lögreglu að Fjárborg-
um á sunnudag þar sem lögð var
fram kæra á hendur eiganda hross-
anna fyrir vanhirðu. Forðagæslu-
maður og dýralæknir tóku síðan
ákvörðun á mánudag um framgang
málsins.
Hægtaðbjarga
tveimur hrossanna
„Það verður fylgst með þessum
hrossum daglega, eigandinn hefur
sagst ætla að gefa þeim sjálfur," sagði
Kristinn Gíslason forðagæslumaður
í samtali við DV. Ætlunin var að
forðagæslumaður sæi um að gefa
hrossunum á kostnað eigandans en
frá því var horfið þegar hann lofaði
bót og betrun en hrossin voru mjög
illa á sig komin vegna vanhirðu.
„Að svo stöddu er ekki ástæða til
að fella hrossin. Dýralæknir og full-
trúi búnaðarmálafélagsins vildu það
Hrossin hafa ekki verið hirt né þrifið undan þeim. Aðkoman var ömurleg en eigandinn hefur nú lofað bót og betrun.
DV-mynd S
ekki. Það er hægt að bjarga tveimur
þeirra og spurning með það þriðja
sem er „ropari" - mér finnst ekki
ólíklegt að það verði fellt. Eigandinn
lofaði öllu fógru þegar dýralæknir
talaði við hann fyrir einm viku - nú
verður fylgst með daglega," sagði
Kristinn.
Kærandinn sagöi að annar eigandi
í umræddu hesthúsi hefði séð aumur
á illa hirtu hrossunum á síðustu
mánuðum og gefið þeim af sínu heyi.
Handónýtt og
myglað hey
„En menn geta ekki borgað dýrt
hey fyrir aðra í langan tíma,“ sagði
kærandinn. „Það hey sem eigandinn
hefur komið með var handónýtt og
myglað. Þess vegna kærði ég þetta
til fóðureftirlitsmanns."
Kærandinn sagði að flestir hestar
væru nú gengnir úr vetrarliárum en
hrossin þrjú væru enn í hárum
vegna vanhirðu.
„Samt getur maður séð rifbeinin
gegnum vetrarfeldinn. Það er ein-
göngu vegna dýraverndunarsjón-
armiða sem ég kæri þetta mál, menn
mega ekki fara svona með skepnur,"
sagði kærandinn. -Ótt
Flutningur ríkisstofnana út á landsbyggðina:
Æðstu embættis-
mennirnir vilja ekki
flytja til Suðurnesja
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum;
„Ég er alveg klár á því að bæði
Landhelgisgæslan og Umsýslu-
stofnun varnarmála verða fluttar
til Suðurnesja eins og lagt hefur
verið til en þetta tekur sinn tíma,“
segir Ellert Eiríksson, bæjarstjóri
Keflavíkur, Njarðvíkur og Hafna.
Á hádegisverðarfundi á Flughót-
elinu í Keflavík um helgina, sem
markaðs- og atvinnumálanefnd
Keflavíkur, Njarðvíkur og Hafna
hélt, kom fram að sumir æðstu
embættismenn ríkisstofnana, sem
talað er um að flytji til Suðurnesja,
harðneiti að fara þangað. Þing-
mönnum kjördæmisins, sveitar- og
bæjarstjómarfulltrúum á Suður-
nesjum var boðið til fundarins.
Að sögn Ellerts kemur alltaf strax
fram andstaða meðal starfsmanna
ef flytja á ríkisstofnanir frá höfuð-
borginni út á landsbyggðina þótt
það sé vilji Alþingis og stjórnvalda.
„Við erum búnir að kynna okkar
mál á fundinum en nú er spurning
um pólitískan vilja okkar þing-
manna og dugnað að koma þessum
málum í höfn,“ sagði Friðjón Ein-
arsson, framkvæmdastjóri Mark-
aðs- og atvinnumálaskrifstofu
Keflavíkur, Njarðvíkur og Hafna.
Útskriftarmen
14 k gullhálsmen meö perlu
Fallegur skartgripur í útskriftina
^ull Verð kr. 4.900 án festar
^öllin Laugavegi 49, sími 561 7740
(SielL
Símaskráin 1995
er komin út
laugardaginn 3. júní
Mýja símaskráin tekur gildi
IVIundu eftir afhendingarmidanum
og náðu í nýju símaskrána BfffiffffiTffll
y Hlýja símaskráin - naudsynleg frá 3. júní. Pósturogsími