Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1995, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1995
9
Utlönd
Bardagar blossuðu upp sunnan Sarajevo 1 morgun:
Frekari loftárásir
ekki útilokaðar
Jnnikróaóír fríðarqæsiulióar SÞ í Bosníu
Bosníu-Serbar hafa ýmist hneppt í varðhald eða umkringt 379 friðar-
gæsluliða SÞ í kjölfar loftárása NATO á vopnabúr þeirra í síðustu viku
Einn leiðtogi Bosníu-Serba segir að hægt sé að leysa þá úr
- haldi fljótlega ef NATO lofar að gera ekki fleiri loftárásir
- SLOVcríiA t, ..
tO.; KRÓATtA
m
Skýr- Vopnasöfn- » Umkringdir
ingar: unarstaður A.
OEftirlits-
staður
tAfvopnaðir
og í naldi
Vrbanja
Q1
Frakkland 10
Gorazde 9HH
■ISl
llljas Krivoglavlcl
Qli
Bretland 33 Úkraína 12
Bare J9HI Poljine
Kanada 45 8 Úkraína 11 Frakkland 22
Frakkland 21
Rajlovac
■ 11
Frakkland 21
Frakkland 13 Úkraína 30 Frakkland 10
Frakkland 40 Rússland 13
32 eftirlitsmenn SÞ í
haldl, þar af 17 sem
notaðir eru sem
skildir
Bardagar brutust út suöur af
Sarajevo, höfuöborg Bosníu, í dögun
í morgun og kváöu við drunur úr
stórskotaliösbyssum, þungmn vél-
byssum og minni vopnum. Á undan-
fömum tveimur vikum hefur veriö
hart barist um svæði þetta þaðan
sem góö yfirsýn er yfir birgðaflutn-
ingaleiðir.
Vesturveldin neituðu í gær aö úti-
loka frekari loftárásir í Bosníu en
sögöu að öll áhersla yröi lögð á aö
leysa deiluna við sveitir Bosníu-
Serba, sem hafa tekiö hundruð frið-
argæsluliða SÞ í gíslingu, á friðsa-
man hátt.
Robert Frasure, sendifvdltrúi
Bandaríkjastjómar, er væntanlegur
til Belgrad í dag til að reyna að leysa
deiluna og fá aðstoð Slobodans Milo-
sevics Serbíuforseta sem hefur slitið
öll tengsl við pólitíska leiðtoga Bos-
níu-Serba.
Reiknað er með að Frasure reyni
að tryggja liðveislu Milosevics við að
fá gæsluliðana leysta úr haldi. Þá
mun hann einnig ætla að reyna að
fá leiðtoga þess sem eftir er af gömlu
Júgóslavíu að viðurkenna Bosníu.
Frasure mun „gera það alveg ljóst
að það verður að vinda ofan af þessu
(gíslatökumálinu)," sagði bandarísk-
ur embættismaður.
Leiðtogar ríkja heimsins hafa
keppst við að fordæma Bosníu-Serba
fyrir að halda um 370 friðargæslulið-
um SÞ í hefndarskyni fyrir loftárásir
flugvéla NATO á vopnabúr Serba
nærri Sarajevo í síðustu viku. Serbar
segjast ætla að halda gæsluliðunum
þar til þeir fái vissu fyrir því að fleiri
loftárásir verði ekki gerðar.
„Við látum ekki kúga okkur með
hótunum og krefjumst þess að gísl-
arnir verði látnir lausir án skil-
yrða,“ sagði Willy Claes, fram-
kvæmdastjóri NATO, eftir fund ut-
anríkisráðherra bandalagsins í bæn-
um Noordwijk í Hollandi í gær.
NATO er reiðubúið að gera loftárásir
að nýju, fari SÞ fram á það.
Bosníu-Serbar gáfu til kynna í gær
að það væri kannski að lækka í þeim
rostinn þegar þeir slepptu sex
frönskum hermönnum sem höfðu
verið umkringdir í brynvarinni bif-
reið sinni nærri flugvellinum í
Sarajevo. Þá fengu Frakkar að flytja
látna og særða félaga sína landleið-
ina frá Sarajevo.
Breska blaðið Sun skýrði frá því í
gær að gerðar hefðu verið áætlanir
um að sérsveitir breska hersins
myrtu tvo helstu leiðtoga Bosníu-
Serba, þá Radovan Karadzic og
Ratko Mladic. Blaðið sagði að menn
sem gætu framkvæmt verkið væru
þegar komnir til Bosníu. Stjómvöld
vísa þessu alfarið á bug.
Reuter
SUZANNE GERLEIT
hinn frábæri andlegi leiðbeinandi og kennari frá Bandaríkj-
unum, verður með námskeið næstu tvær helgar í sal
Stjómunarskólans við Sogaveg.
3.-4. júní, kl. 10.00-17.00:
AÐ VERA MEÐVITAÐUR UM SITT ÆÐRA SJÁLF
- AÐ VERÐA SITT ÆÐRA SJÁLF.
10.-11. júni, kl. 10.00-17.00:
AÐ VEKJA MÁTT SINN.
Kenndar verða viðurkenndar og vísindalega sannaðar
aðferðir til sjálfsheilunar og til heilunar öðrum.
Verð pr. námskeið kr. 6.500 en kr. 5.500 ef farið er á bæði.
Boðið er upp á greiðsludreifmgu til allt aö þriggja mánaða,
auk visa og euro.
Suzanne mun einnig verða með einkatíma. Bókanir eru í
síma 587-3724.
9 9*1 7*00
Verð aðeins 39,90 mín.
>lSj
1 j Læknavaktin
2 j Apótek
3j Geng'
Children's International Summer Villages
fllþjóðlegar sumarbúðir barna
CISV eru alþjóðleg friðarsamtök, óháð stjómmálum, trúarbrögðum eða kynþætti, sem tengjast
Sameinuðu þjóðunum í gegnum UNESC0, Dr. Doris T. Allen, bandarískur bámasálfræðingur
stofnaöi CISV áriö 1951, en hugmynd hennar var sú að börn frá ólíkum löndum kæmu saman
og lærðu að lifa í sátt á grundvelli umburðarlyndis og jafnréttis, lærðu að hugsa og draga
ályktanir í anda alþjóöavitundar og vinna þannig aö friöi í heiminum.
í sumar fara íslensk böm í sumarbúðir til: Noregs,Slóvakíu, Bandaríkjanna, Kanada, Svíþjóðar,
Finnlands, Ítalíu og Englands, auk þess sem sumarbúöir verða hérlendis í sumar.
Unglingaskipti CISV á íslandi vib CISV í Frakklandi
í sumar verða unglingaskipti við Chamberý í Frákklandi, fyrir krakka á aldrinum 12 -14 ára.
í unglingaskiptum er dvaliö á heimilum, tvær vikur í hvoru landi. Hvor hópur er 8 -10 unglingar,
sem fara ásamt fararstjórum. Fararstjórarnir sjá um dagskrá alla dagana, ásamt unglingunum.
Það er ennþá laust pláss í unglingaskiptin, sem verða í júlí. Þetta er kjörið tækifæri til að
kynnast unglingum í öðru landi og einnig mjög góður undirbúningur fyrir þá sem hafa hug
á að veröa skiptinemar seinna.
Frekari upplýsingar veitir unglingaskiptanefnd CISV:
Sigurbjörg Magnúsdi, s. 554 1190 - inga Teitsd:, s. 564 2044 - Guðrún Frederiks., s. 565 7636
Einnig má skrifa eftir upplýsingum tít CISV á íslandi,
Pósthólf 86,
210 Garðabær.
Akureyrarblað
fJSSSSSJSSjrjJjrffJ/fSSSSSJJrSfÆÆý
Aukablað
AKUREYRI
Fergie verður að
vinna fyrir sér
Stuttar fréttir
Ennleitað
Björgunarsveitir leita enn að
lifandi fólki í rústum húsa eftir
jarðskjálftann á Sakhalín-eyju.
Blairfasturfyrir
Tony Blair,
leiðtogi breska
Verkamanna-
flokksins, sagði
í gær að stjóm
flokks síns
mimdi standa
dyggan vörö
um hagsmuni
Bretlands innan Evrópusam-
bandsins og aldrei gefa eftir neit-
unarvald í mikilvægum málum.
Rússihjá NATO
Utanríkisráðherra Rússlands
hittir starfsbræður sína í NATO
í dag og verður gengið frá aðild
Rússa að samningnum um sam-
Starfumfrið. Reuter
Sarah Ferguson eða Fergie, her-
togaypjan af York, segir í nýju tíma-
ritsviðtali að hún verði að fækka
góðgerðarferöum
sínum um heiminn
verulega svo hún
hafi tíma til að
vinna fyrir sér og
dætrum sínum
tveimur, Eugenie
og Beatrice. Fergie
skildi við Andrés
prins fyrir þremur
árum. Síðan hefur hún komist í
heimsfréttimar vegna háttalags sem
hneykslað hefur ófáa aðdáendur
bresku konungsflölskyldunnar. En
hún hefur einnig unnið að ýmsum
göfugum verkefnum; samið sögur
um þyrluna Budgie, sem verið er að
gera sjónvarpsþætti eftir, og tvær
bækur um stúlkuna Amöndu sem
ferðast mikið og dreymir irni að
veröa ráðunautur við gerð kvik-
myndar um Viktoríu drottningu.
En Fergie tjáir sig einnig um ljúfa
lífið. „Stundum skammast ég mín
þegar ég lít um öxl og rifja upp hegð-
un mína undanfarin ár en ég hef
þroskast og lært. Ég hef öðlast end-
umýjað verömætamat og nýt hverr-
ar ánægjustundar með dætrum min-
um,“ segir hertogaynjan. En hún
heimsækir líka sálfræðing reglulega.
„Það hjáipar mér að halda sálarró
og horfast í augu við vandamálin.“
Reuter
Miövikudaginn 14. júní nk. mun Akureyrarblað
fylgja DV.
Þar verður m.a. fjallað um Akureyri sem
ferðamannabæ, rætt við fólk í ferðaþjónustu
og margt fleira.
Eins og venjan er verður í þessu 15. Akureyrarblaði
hugað að mannlífi í bænum. Þá verður farið í
heimsókn í fyrirtæki, rætt við fólk í atvinnulífinu
og fólkið á götunni.
Þeir sem hafa hug á að auglýsa í þessu aukablaði
vinsamlega hafi samband við Sonju Magnúsdóttur,
auglýsingadeild DV, hið fyrsta í síma 563-2722.
Vinsamlega athugið að síðasti skiladagur auglýsinga
í þetta aukablað er fimmtudaginn 8. júní.
ATH.I Bréfasími okkar er 563-2727.
Athugið! Akureyrarblaðinu er dreift með DV um allt landið en
sérstök áhersla er lögð á dreifingu þess á Akureyri og nágrenni.