Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1995, Side 29
MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1995
45
hina söngelsku Lóu.
Taktu lagið,
. r '
Nú fer hver að verða síðastur
að bregöa sér í leikhús á þessu
leikári. Leikhúsin eru farin að
fækka sýningum og bráðum
komið að sumarleyfum. Eitt leik-
rit er þó enn í fullum gangi, lúö
vinsæla leikrit Taktu lagið, Lóa
eftir Jim Cartwright (Strætið,
BarPar), Það má með sanni segja
aö þetta hafi verið vínsælasta
leikrit vetrarins en það er sýnt á
Smíöaverkstæði Þjóðleikhússins.
Sýningar á verkinu eru komnar
í fimmtíu talsins og hefur verið
uppselt á þær allar en næsta sýn-
ing er í kvöld.
Það er Ólaöa Hrönn Jónsdóttir
sem fer með hlutverk Lóu. Aðrir
leikarar eru Kristbjörg Kjeld,
Pálmi Gestsson, Ragnheiður
Steindórsdóttir, Hilmar Jónsson
og Róbert Arnfinnsson. Leikritið
fékk góða dóraa hjá gagnrýnend-
um og var leikurum sérstaklega
hrósað fyrir sinn hlut. Leikstjóri
er Hávar Siguriónsson.___________
Gengið og siglt
inn í eldstöð
í miðvikudagsgöngu HGH verð-
ur riflað upp jarðsaga hafhar-
svæðisins en undir stórum hluta
Reykjavíkurborgar er_ tveggja
milljóna ára eldstöð. I hliðum
þessarar fomu eldstöðvar hefur
verið og verður aðalathafnas væði
Reykjavíkurhafnar. Þetta merki-
lega fyrirbrigði verður kynnt í
stuttu spjalli og i gönguferð sem
HGH stendur fyrir i kyöld.
Mæting er við Hafnarhúsið kl.
20.00. Þaðan verður farið niöur í
Miðbakkatjaldiö þar sem Ámi
Hjartarson jarðfræðingur spjall-
ar um jarðsögu svæðisins. Síðan
verður hægt að velja um aö ganga
eða sigla með ströndinni inn í
Sundahöfn og ganga, sigla eða
taka SVR til baka.
Kvótakerfi
í sjávarútvegi
Ráöstefna um fiskveiöistjómun
verður haldin á Hótel Sögu, Ár-
sal, í dag kl. 13.00 til 18.00.
Húnvetningafélagið
Félagsvist í kvöld kl. 20.301 Húna-
búð, Skeifunni 17. Síðasta vist að
sinni.
Tónleikar
John Speight, baríton, og Svein-
björg Vilhjálmsdóttir píanóleik-
ari halda tónleika í Fella- og Hóla-
kirkju í kvöld kl. 21.00.
Ferðamál
Fundur um ferðamál á vegum
Ferðamálaráðs íslands veröur í
dag á Hótel KEA, Akureyri, kl.
17.00 og 1 Varmahlíð kL 21.00.
Lifandi djass er fastur liður á KríngluMdmu a
miðvikudagskvöldum og i kvöld veröur engin
brevting á. Þá mun Trió Bjöms Thoroddsens
stiga á svið en Björn Thoroddsen gítarleikari er
einn fárra íslenskra hljóðfæraleikara sem hafa
Skemmtanir
nánast eingöngu leikið djass. Hann hefur leikið
með eigin sveitutn, auk þess að leika í öðrum
hljómsveitum, meðal annars Kuran Swing.
Tríóið, sem auk Björns er skipað þeim Gunnari
Hrafnssyni á bassa og Ásgeiri Oskarssyni á slag-
verk, mun leika tónlist úr smiðju erlendra diass-
leikara, meðal annars lög eftir Chuck Mangione,
Joseph Zawinul og Charlie Parker. Aukþess mun
tríóið leíka nýja ópusa eftir meðlimi triósins.
Gunnar Hralnsson og Björn Thoroddsen. A myndína vant-
ar Ásgeir Óskarsson.
Misjafnt
ástand vega
Ástand vega er mjög misjafnt eftir
landshlutum. Nú em allir vegir á
leiðinni Reykjavík-Akureyri greið-
færir en ef farið er frá Reykjavík í
vesturátt fer færðin að verða eríiðari
eftir því sem vestar dregur. Á Stein-
Færö á vegiim
grímsftarðarheiði er hálka og á Eyr-
aríjalh er hámarksöxulþungi bíla 5
tonn. Þegar vestar dregur er há-
marksþunginn enn minni eða 2 tonn
á Dynjandisheiði og Kollafjörður -
Flókalundur.
Á Austurlandi em einnig nokkrar
leiðir takmarkaðar við öxulþunga en
yfirleitt er þar miðað við 7 tonn.
O Hðlka og snjór H Vegavinna-aðgát @ Öxulþungatakmarkanir
Có£rtð6u © Fært fjallabílum
Ástand vega
Myndarlegi drengurinn a mynd-
inni fæddist á fæðingardeild
Landspítalans 17. maí kl. 0.23. Hann
var 3808 grömm aö þyngd og 53
sentimetra langur. Foreldrar hans
eru Ásthildur Lind Sverrisdóttir og
Matthias Sveinsson. Hann á tvær
systur, Matthildi, sem er 5 ára, og
Mörtu Bryndísi, sem er 2 ára.
dagslffin
Johnny Depp leikur Ed Wood og
Martin Landau, Bela Lugosi.
EdWood
Bíóborgin sýnir kvikmynd um
ævi Edwards D. Wood jr., sem er
af mörgum talinn versti kvik-
myndaleikstjóri sem uppi hefur
verið. Johnny Depp leikur Wood,
mann sem hafði enga reynslu eða
menntun að baki þegar hann á-
kvað að slá í gegn í Hollywood.
Þar sem Wood hafði ekki mögu-
leika á að komast að hjá stóru
kvikmyndavemnum framleiddi
Kvikmyndir
hann myndir sínar sjálfur án þess
að hafa nokkra peninga. Þetta
peningaleysi má sjá í myndum
hans. Wood kom sér upp liði af
útjöskuðum og vondum leikumm
þar sem fremstur í flokki var
Bela Lugosi, útbmnninn dópisti.
Með hóp af voniausum leikuram
gerði Ed Wood nokkrar kvik-
myndir og víst er að væri hann á
lífi í dag gæti hann grætt dágóðan
pening á þessum myndum sínum
vegna þess hversu lélegar þær
em.
Auk Johnny Depp leika í mynd-
inni Martin Landau (fékk óskars-
verðlaun fyrir leik sinn), Sarah
Jessica Parker, Patricia Arquette,
Jeffrey Jones, Bill Murray, Vinc-
ent D’Onofrio og G.D. Spradhn.
Nýjar myndir
Háskólabíó: Rob Roy
Laugarásbíó: Snillingurinn
Saga-bió: Englarnir
Bíóhöllin: Fylgsnið
Bióborgin: Tvöfalt lit
Regnboginn: Kúlnahríó á Broadway
Stjörnubió: Litlar konur
Gengið
Almenn gengisskráning LÍ nr. 134.
31. maí 1995 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollgengi
Dollar 62,900 63,160 63,180
Pund 100,930 101,340 102,070
Kan. dollar 45,840 46,070 46,380
Dönsk kr. 11,5860 11,6440 11,6280
Norsk kr. 10,1710 10,2220 10,1760
Sænsk kr. 8.6880 8,7320 8,6960
Fi. mark 14,6940 14,7670 14,8560
Fra. franki 12,8530 12,9180 12,8950
Belg. franki 2,2041 2,2151 2,2274
Sviss. franki 54,8900 55,1600 55,5100
Holl. gyllini 40,4400 40,6400 40,9200
Þýskt mark 45,3000 45,4800 45,8000
it. líra 0,03882 0,03906 0,03751
Aust. sch. 6,4350 6,4740 6,5150
Port. escudo 0,4291 0,4317 0,4328
Spá. peseti 0,5194 0,5226 0,5146
Jap. yen 0,75700 0,76080 0,75320
irskt pund 103,450 104,070 103,400
SDR 98,97000 99,57000 99,50000
ECU 83,4300 83,8500 84,1800
Krossgátan
1 2 T~ r
to 1 r ■■■
10 n IZ
r TT 1 i
15' J mmm
IÉ ir Zo
j i8
Lárétt: 1 drykkur, 5 haf, 6 vitieysa, 8
nár, 10 súld, 11 súrefni, 13 ávíta, 15 lykti,
17 loga, 18 fjasi, 20 kusk, 22 jökull, 23
ákveðið.
Lóðrétt: 1 krukkur, 2 eyðimörk, 3 sepi,
4 reið, 5 ætíð, 7 eftirtekt, 9 ær, 12 fláti,
14 vagn, 16 draup, 19 leit, 21 kvæði.
Lausn á siðustu krossgátu.
Lárétt: 1 gljúpar, 8 róa, 9 ráfi, 10 ansir,
11 að, 12 naslar, 15 dull, 17 ull, 19 ögrir,
20 el, 21 sa, 22 óragi.
Lóðrétt: 1 grand, 2 lón, 3 jass, 4 úrillir,
5 pár, 6 afar, 7 riðiU, 13 auga, 14 aura, 16
fró, 18 leg, 19 ös.