Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1995, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1995, Blaðsíða 29
MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1995 45 hina söngelsku Lóu. Taktu lagið, . r ' Nú fer hver að verða síðastur að bregöa sér í leikhús á þessu leikári. Leikhúsin eru farin að fækka sýningum og bráðum komið að sumarleyfum. Eitt leik- rit er þó enn í fullum gangi, lúö vinsæla leikrit Taktu lagið, Lóa eftir Jim Cartwright (Strætið, BarPar), Það má með sanni segja aö þetta hafi verið vínsælasta leikrit vetrarins en það er sýnt á Smíöaverkstæði Þjóðleikhússins. Sýningar á verkinu eru komnar í fimmtíu talsins og hefur verið uppselt á þær allar en næsta sýn- ing er í kvöld. Það er Ólaöa Hrönn Jónsdóttir sem fer með hlutverk Lóu. Aðrir leikarar eru Kristbjörg Kjeld, Pálmi Gestsson, Ragnheiður Steindórsdóttir, Hilmar Jónsson og Róbert Arnfinnsson. Leikritið fékk góða dóraa hjá gagnrýnend- um og var leikurum sérstaklega hrósað fyrir sinn hlut. Leikstjóri er Hávar Siguriónsson.___________ Gengið og siglt inn í eldstöð í miðvikudagsgöngu HGH verð- ur riflað upp jarðsaga hafhar- svæðisins en undir stórum hluta Reykjavíkurborgar er_ tveggja milljóna ára eldstöð. I hliðum þessarar fomu eldstöðvar hefur verið og verður aðalathafnas væði Reykjavíkurhafnar. Þetta merki- lega fyrirbrigði verður kynnt í stuttu spjalli og i gönguferð sem HGH stendur fyrir i kyöld. Mæting er við Hafnarhúsið kl. 20.00. Þaðan verður farið niöur í Miðbakkatjaldiö þar sem Ámi Hjartarson jarðfræðingur spjall- ar um jarðsögu svæðisins. Síðan verður hægt að velja um aö ganga eða sigla með ströndinni inn í Sundahöfn og ganga, sigla eða taka SVR til baka. Kvótakerfi í sjávarútvegi Ráöstefna um fiskveiöistjómun verður haldin á Hótel Sögu, Ár- sal, í dag kl. 13.00 til 18.00. Húnvetningafélagið Félagsvist í kvöld kl. 20.301 Húna- búð, Skeifunni 17. Síðasta vist að sinni. Tónleikar John Speight, baríton, og Svein- björg Vilhjálmsdóttir píanóleik- ari halda tónleika í Fella- og Hóla- kirkju í kvöld kl. 21.00. Ferðamál Fundur um ferðamál á vegum Ferðamálaráðs íslands veröur í dag á Hótel KEA, Akureyri, kl. 17.00 og 1 Varmahlíð kL 21.00. Lifandi djass er fastur liður á KríngluMdmu a miðvikudagskvöldum og i kvöld veröur engin brevting á. Þá mun Trió Bjöms Thoroddsens stiga á svið en Björn Thoroddsen gítarleikari er einn fárra íslenskra hljóðfæraleikara sem hafa Skemmtanir nánast eingöngu leikið djass. Hann hefur leikið með eigin sveitutn, auk þess að leika í öðrum hljómsveitum, meðal annars Kuran Swing. Tríóið, sem auk Björns er skipað þeim Gunnari Hrafnssyni á bassa og Ásgeiri Oskarssyni á slag- verk, mun leika tónlist úr smiðju erlendra diass- leikara, meðal annars lög eftir Chuck Mangione, Joseph Zawinul og Charlie Parker. Aukþess mun tríóið leíka nýja ópusa eftir meðlimi triósins. Gunnar Hralnsson og Björn Thoroddsen. A myndína vant- ar Ásgeir Óskarsson. Misjafnt ástand vega Ástand vega er mjög misjafnt eftir landshlutum. Nú em allir vegir á leiðinni Reykjavík-Akureyri greið- færir en ef farið er frá Reykjavík í vesturátt fer færðin að verða eríiðari eftir því sem vestar dregur. Á Stein- Færö á vegiim grímsftarðarheiði er hálka og á Eyr- aríjalh er hámarksöxulþungi bíla 5 tonn. Þegar vestar dregur er há- marksþunginn enn minni eða 2 tonn á Dynjandisheiði og Kollafjörður - Flókalundur. Á Austurlandi em einnig nokkrar leiðir takmarkaðar við öxulþunga en yfirleitt er þar miðað við 7 tonn. O Hðlka og snjór H Vegavinna-aðgát @ Öxulþungatakmarkanir Có£rtð6u © Fært fjallabílum Ástand vega Myndarlegi drengurinn a mynd- inni fæddist á fæðingardeild Landspítalans 17. maí kl. 0.23. Hann var 3808 grömm aö þyngd og 53 sentimetra langur. Foreldrar hans eru Ásthildur Lind Sverrisdóttir og Matthias Sveinsson. Hann á tvær systur, Matthildi, sem er 5 ára, og Mörtu Bryndísi, sem er 2 ára. dagslffin Johnny Depp leikur Ed Wood og Martin Landau, Bela Lugosi. EdWood Bíóborgin sýnir kvikmynd um ævi Edwards D. Wood jr., sem er af mörgum talinn versti kvik- myndaleikstjóri sem uppi hefur verið. Johnny Depp leikur Wood, mann sem hafði enga reynslu eða menntun að baki þegar hann á- kvað að slá í gegn í Hollywood. Þar sem Wood hafði ekki mögu- leika á að komast að hjá stóru kvikmyndavemnum framleiddi Kvikmyndir hann myndir sínar sjálfur án þess að hafa nokkra peninga. Þetta peningaleysi má sjá í myndum hans. Wood kom sér upp liði af útjöskuðum og vondum leikumm þar sem fremstur í flokki var Bela Lugosi, útbmnninn dópisti. Með hóp af voniausum leikuram gerði Ed Wood nokkrar kvik- myndir og víst er að væri hann á lífi í dag gæti hann grætt dágóðan pening á þessum myndum sínum vegna þess hversu lélegar þær em. Auk Johnny Depp leika í mynd- inni Martin Landau (fékk óskars- verðlaun fyrir leik sinn), Sarah Jessica Parker, Patricia Arquette, Jeffrey Jones, Bill Murray, Vinc- ent D’Onofrio og G.D. Spradhn. Nýjar myndir Háskólabíó: Rob Roy Laugarásbíó: Snillingurinn Saga-bió: Englarnir Bíóhöllin: Fylgsnið Bióborgin: Tvöfalt lit Regnboginn: Kúlnahríó á Broadway Stjörnubió: Litlar konur Gengið Almenn gengisskráning LÍ nr. 134. 31. maí 1995 kl. 9.15 Eining Kaup Sala Tollgengi Dollar 62,900 63,160 63,180 Pund 100,930 101,340 102,070 Kan. dollar 45,840 46,070 46,380 Dönsk kr. 11,5860 11,6440 11,6280 Norsk kr. 10,1710 10,2220 10,1760 Sænsk kr. 8.6880 8,7320 8,6960 Fi. mark 14,6940 14,7670 14,8560 Fra. franki 12,8530 12,9180 12,8950 Belg. franki 2,2041 2,2151 2,2274 Sviss. franki 54,8900 55,1600 55,5100 Holl. gyllini 40,4400 40,6400 40,9200 Þýskt mark 45,3000 45,4800 45,8000 it. líra 0,03882 0,03906 0,03751 Aust. sch. 6,4350 6,4740 6,5150 Port. escudo 0,4291 0,4317 0,4328 Spá. peseti 0,5194 0,5226 0,5146 Jap. yen 0,75700 0,76080 0,75320 irskt pund 103,450 104,070 103,400 SDR 98,97000 99,57000 99,50000 ECU 83,4300 83,8500 84,1800 Krossgátan 1 2 T~ r to 1 r ■■■ 10 n IZ r TT 1 i 15' J mmm IÉ ir Zo j i8 Lárétt: 1 drykkur, 5 haf, 6 vitieysa, 8 nár, 10 súld, 11 súrefni, 13 ávíta, 15 lykti, 17 loga, 18 fjasi, 20 kusk, 22 jökull, 23 ákveðið. Lóðrétt: 1 krukkur, 2 eyðimörk, 3 sepi, 4 reið, 5 ætíð, 7 eftirtekt, 9 ær, 12 fláti, 14 vagn, 16 draup, 19 leit, 21 kvæði. Lausn á siðustu krossgátu. Lárétt: 1 gljúpar, 8 róa, 9 ráfi, 10 ansir, 11 að, 12 naslar, 15 dull, 17 ull, 19 ögrir, 20 el, 21 sa, 22 óragi. Lóðrétt: 1 grand, 2 lón, 3 jass, 4 úrillir, 5 pár, 6 afar, 7 riðiU, 13 auga, 14 aura, 16 fró, 18 leg, 19 ös.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.