Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1995, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1995, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 1995 Fréttir Aleigan hirt af 21 árs stúlku í skipulögðu ráni á Barónsstíg í gær: Þessir gaurar hafa greini- lega veitt mér eftirför - segir stúlkan sem var nýbúin að taka 70 þúsund krónur út úr banka við Laugaveginn „Ég var búin að fá 60 þúsund krón- ur útborgaðar og fór í Landsbankann við Laugaveg til að sækja 10 þúsund krónur í viðbót af bankabók svo ég gæti borgað farseðilinn. Ég tók eftir þessum gaurum fyrir utan bankann og þeir hafa greiniiega veitt mér eft- irfor. Þeir komu síðan skyndilega á bílnum og hirtu allt af mér,“ sagði 21 árs stúlka úr Reykjavík í samtali við DV - en hún var rænd aleigunni, 70 þúsund krónum, og öllum per- sónuskilríkjum í skipulögðu ráni á Barónsstíg um miðjan dag í gær. Ræningjamir komu að stúlkunni á hvítum Volvo 244 og einn þeirra hljóp út úr bílnum að henni og hrifsaði skjóðu sem hún hafði framan á sér um hálsinn. Stúlkan gekk einnig með lítinn bakpoka þannig að ræningj- amir viröast hafa fylgst með því í bankaniun hvar hún lét peningana og vitað að þeir væm í skjóðunni. Reyndi að streitast á móti „Eg held að sá sem réðst á mig hafi ekki verið með vopn. Ég reyndi að streitast á móti og sneri mér við og öskraði á hann. En það gekk ekki, hann náði töskunni og stökk upp í Volvóinn sem ók strax í burtu," sagði stúlkan sem leitaði dauðskelkuð hjálpar í nærhggjandi matvömversl- xm og hringdi þaðan á lögreglu. Maöurinn sem rændi stúlkuna var grannur, um 1,90 m á hæð, brodda- khpptur og 1 snjáðum leðmjakka og þröngum gallabuxum. Tveir menn vora með honum í bílnum. Lögregl- an leitaði ræningjanna fram eftir degi í gær en leitin hafði ekki borið árangur þegar DV fór í prentun. Rán- ið er í rannsókn RLR sem óskar eftir upplýsingum vitna. Um kvöldmatar- leytið höfðu engin vitni gefið sig fram. Stúlkan, sem ekki vildi láta nafns síns getið, sagði við DV að hún hefði tekið eftir gamalh konu rétt hjá ráns- staðnum sem hefði séð atburðinn. Hún vildi endilega koma þeim skila- boðum til konunnar að gefa sig fram hjá lögreglu. -bjb Öldruð kona rænd í gær: Boðinn kjóll efUrfréttDV - tveir menn handteknir vegna ránsins „Mér finnst afar þakkarvert af Erlu að gera þetta fyrir mig en ég hefði ekki þegið kjólinn nema af því að ég þekki hana frá því aö ég vann í Breiðfirðingabúð í gamla daga og Kristján (KK) maður hennar var að spila þar. Einnig hafði ég ákveðið að fara til hennar á laugardaginn en var eiginlega búin að afskrifa þá ferð,“ segir Þorbjörg Magnúsdóttir. Þorbjörg varð fyrir þeirri óskemmtilegu lifsreynslu síðdegis í fyrradag að tveir ungir piltar hrifs- uöu af henni veskið hennar sem í vom 33 þúsund krónur, eins og fram kom í DV í gær. Sagði hún þá við DV að peningunum hefði hún verið búin að safna fyrir kjól því bráðum yrði hún áttræð. Erla Wigelund, eigandi verslunar- innar Verðhstans við Laugalæk, hafði samband við DV eftir að hún las fréttina og sagðist reiðubúin að bjóða Þorbjörgu í verslun sína.þar sem hún gæti vahð sér kjól á sinn kostnað. Hún kannaðist við hana sem viðskiptavin 1 gegnum árin og sjálfsagt væri að gera vel viö góða viðskiptavini sem yrðu fyrir ógæfu sem þessari. Sagði Erla það auka enn meira á ánægju sína að vita að Þor- björg hefði verið búin aö ákveða að koma í Verðhstann og leita að kjól. Ungir menn vom handteknir í gærdag, sterklega gmnaöir um rán- ið. Yfirheyrslur stóðu yfir hjá Rann- sóknarlögreglunni í gærkvöld. -PP Frá vettvangi ránsins á Barónsstfg i gær. Rannsóknarlögreglan leiðir stúlk- una sem var rænd aleigunni, 70 þúsund krónum í peningum sem áttu að fara i utanlandsferð. DV-mynd S Fulltrúar foreldra i Fossvoginum funduðu með lögreglumönnum forvarnardeildar lögreglu I gær. Farið var yfir stööu mála en búist er við að nágrannavörslu verði komiö á fót strax eftir helgi. DV-mynd GVA Aukin löggæsla í Fossvoginum í kjölfar kynferðisbrota í dalnum: Nágrannavarsla af stað í næstu viku Sjómannadeilan: Topparnir kallaðir til f undar - viðræður íyrir vestan Ríkissáttasemjari kahaði á þá Guðjón A. Krisijánsson, Helga Laxdal og Sævar Gunnarsson frá sjómönnum og Þórarin V. Þórar- insson og Kristján Ragnarsson frá útgerðarmönnum til ftrndar klukkan 15.30 í gær. „Þar sem útgerðarmenn höfh- uðu ekki öllu í þeim tillögum sem við lögöum fram í gærkvöld er víst ætlunin aö ræða eitthvað saman um þetta. Efþeir ætla bara að rökræða máhn áfram gerist ekkert. Ef þeir aftur á móti hafa eítthvaö fram að færa getur það orðlö eftú til að kalla saman samninganeftidir deiluaðila og halda sáttafundi áfram,“ sagði Guðjón A. Kristjánsson, forseti Farmannasambandsins, í samtah við DV rétt áður en hann fór á ftmdinn í gær. Fundinum lauk án árangurs en sjómenn og útgerðarmenn á Vest- fjörðum funduðu einnig í gær. Þeim fundi lauk undir kvöld og var boöað til nýs fundar á þriðju- dag. Ekki var rætt um fiskverð á fundinum en leiöréttingar rædd- ar, eins og viðmælandi blaðsins orðaði það. Lögregla og fuhtrúar nefndar sem skipuð var á fjölmennum fundi for- eldra í Fossvogsskóla í fyrrakvöld hittust í gær til aö fara yfir hvemig best mætti koma í veg fyrir aö kyn- ferðisleg ofbeldisverk gegn bömum ættu sér staö í hverfinu eins og ítrek- að hefur gerst seinasta hálfa árið. Að sögn Ómars Smára Ármanns- sonar, yfirmanns forvamardehdar lögreglunnar, vora lögð drög aö ná- grannavörslu sem hann bjóst við aö tæki tíl starfa í næstu viku. Ákveð- inn framkvæmdahópur var byggður upp og mun hann sjá um verkefna- skiptingu. Fariö var yfir málefni Fossvogsins almennt og einnig at- burðina sem vom tilefni fundarins í fyrrakvöld. Nefndarmenn ítrekuöu áhyggjur sínar yfir ástandinu en lög- reglan lýsti því yfir aö haldið yrði uppi auknu efdrhti í hverfinu eins og seinustu daga. Að sögn Ómars Smára er gengið út frá því að sá sem framdi verknað- ina sé enn ófundinn á meðan stað- festar upplýsingar um annað hafa ekki komið fram. -pp Stuttar fréttir Sautján manns sóttu um starf framkvæmdasfjóra Verðbréfa- þings Islands sem nýlega var aug- lýst laust. Nöfh umsækjenda eru ekki birt þar sem trúnaði var heitið við þá af forráðamönnum Verðbréíaþings. Seölabankinn keypti krónur sl. fimmtudag með því að selja gjald- ejTi fyrir 2 milljónir dohara. Við það styrktist gengi krónunnar um 0,1%. Engin krónukaup fóru fram í gær heldur keypti bankinn töluvert af gjaideyri. Uppnám I Vinnuskóla Símalínur til Vinnuskóla Reykjavíkur hafa veriö rauðgló- óánægju foreldra með tilhögun skólansþetta sumarið. Óánægjan snýst einkum um flutning bama mihi hverfa og aö htiö hafi verið ferið eftir óskum bama og for- eldra þeirra um vinnutímann. Iðntæknistofnun, iðnaöarráðu- neytið og Aflvaki Reykjavíkur hafa gefið út tvær bækur. Bæk- urnar nefnast Stoftiun fyrirtækja og Handbók hugvitsmannsins. BreyttarreglurUN Stjóm Lánasjóös íslenskra námsmanna, LÍN, hefur náð sam- an um nokkrar breytingar á út- hlutunarreglum sjóösins sem gilda fyrir næsta skóla ár. Islensk fyrirtæki og einstakl- ingar eru enn að fá bréf frá Níger- íu með boðum um arðvænleg viö- skiptL Dæmi em um fyrirtæki sem fá bréfin itrekað og önnur sera era ekki einu sinni starfandi lengur. Verkfahsvörslu við togarann Slgh lauk síðdegis í gær og hélt hann úr höfn um kvöldið. Sam- kvæmt RÚV telja vélstjórar að engu að síður hefði útgerð Siglis gert sig seka um verkfellsbrot sem tekið yrði á síðar. Samiðumsíldveiði íslensk og feereysk sljómvöld komust í gær að samkomulagi um skiptingu kvóta í SDdarsmug- unni svoköhuðu. íslendingar fá að veiða 185 þúsund tonn og Fær- eyingar 65 þúsund tonn. -bjb
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.