Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1995, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1995, Síða 10
10 LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 1995 Kom okkur á óvart að það skyldi vera kalt segja hjónin Bima Hauksdóttir og Friðrik Jónsson sem búið hafa í Namibíu í fímm ár ~m i „Þaö eina sem kom okkur eiginlega á óvart var að það skyldi vera kalt í Afríku," segja hjónin Bima Háuks- dóttir og Friðrik Jónsson sem fyrir fimm ámm lögðu land undir fót og héldu alla leið frá Siglufirði til Namibíu. Friðrik hafði fengið vélstjórastarf á hafrannsóknarskipi í Namibíu á vegum Þróunarsamvinnustofnunar íslands. „Namibíumenn áttu enga yfirmenn á skipið sem þeir fengu gamalt árið 1990 þegar landið varð sjálfstætt. Héðan fóru fimm íslenskir yfirmenn, tveir fiskifræðingar og verkefnisstjóri. Þetta var svolítið erf- itt fyrsta árið því undirmenn kunnu ekki til verka. Þeir sem komu úr sveitunum höfðu til dæmis aldrei séð sjóinn. Þróunarsamvinnustofnunin setti síðan á laggimar sjómanna- og stýrimannaskóla í Namibíu þannig að máhn standa betur nú. Það er ekki ólíklegt að eftir fjögur ár geti Namibíumenn tekið við skipstjórn,“ segir Friðrik. K' Búaí „þýskum" smábæ Friðrik og Bima búa með bömin sín fjögur, Guðbjörgu, Andra, Rann- veigu og Stefán, í bænum Swakop- mund sem er 60 þúsund manna bær á strönd Namibíu. „Ég hafði varla komið út fyrir landsteinana þegar við fluttum til Namibíu og mér þótti þetta rosalega spennandi og gaman í fyrstu og það þótti hka yngri böm- unum. En eldri stelpunni okkar, sem þá var 13 ára, fannst mjög erfitt að skhja við íslenska vini sína,“ segir Birna. Þrjú elstu bömin ganga í skóla þar sem töluð er enska en yngsta barnið gengur í þýskan leikskóla. „Namibía var áður þýsk nýlenda. Að koma í bæinn þar sem við búum er næstum eins og að koma í þýskan smábæ." Áður en Namibía, sem fór undir stjórn Suður-Afríku í lok fyrri heims- styrjaldar, hlaut sjálfstæði ríkti að- skilnaðarstefna í landinu. Blökku- mönnum var haldið norðan til í land- inu, að því er Friðrik greinir frá. Swakopmund var skipt í þrjú svæði. „Bærinn sjálfur var fyrir hvíta, blökkumenn og htaðir vom í aðskhd- um úthverfum. Það er enn efnahags- legur aðskhnaður í landinu þannig að íbúaskiptingin hefur ekki breyst mikið. Það er helst að þeir sem starfa í úraníumnámunni rétt utan við bæinn, sem reyndar er stærsta opna úraníumnáma í heimi, eigi hús í sjálfum bænum,“ greinir Friðrik frá. Lopapeysur koma að góðum notum Fjölskyldan hefur ferðast mikið um Namibíu á eigin bh og haft meðferðis tjald og svefnpoka. Strandlengjan, sem þau búa á, er eiginlega eyðimörk sem nær frá Suður-Afríku norður th Angóla. „Það er vetur í Namibíu þeg- ar sumar er hjá okkur og þá er hita- stigið nálægt tíu gráðum við strönd- ina. Rakinn er svo mikih að fólki er hrollkalt og koma því lopapeysur að góðum notum á þessum slóðum og þykkar úlpur líka, að því er þau Bima og Friðrik segja. „Mér hefur eiginlega aldrei verið eins kalt og þama úti,“ segir Bima. Henni þykir því veðurbhðan á íslandi þessa dag- ana kærkomin. Þau komu th íslands fyrir rúmri viku th að láta ferma eldri soninn og ætla að dvelja hér Guðbjörg, Stefán, Ásgrimur, Birna, Friðrik og Andri. Strútseggið, sem Ásgrimur heldur á, erfrá Namibíu. DV-mynd GVA Um borð í hafrannsóknarskipinu Benguela. fram eftir júní. Ráögert er að flytja heim um áramótin. 100 íslendingar í Namibíu Friðrik og Birna voru með fyrstu íslendingunum sem komu til Namib- íu. Núna era íslendingamir þar rúm- lega eitt hundrað þegar böm og mak- ar era meðtalchr. Flugmálasfjóri Namibíu er íslendingurinn Grétar Óskarsson. Flestir íslendinganna starfa í sambandi við útgerð. „Þróunarstarfið hefur gengið mjög vel. Okkur tókst að halda úti þessu skipi þó það væri aht í msh þegar við fengum það. Svo gerðist það fyrir þremur ámm að Namibíumenn tóku átta spænska togara í landhelgi og í stað þess að gera afla og veiðarfæri upptæk gerðu þeir skipin upptæk og sendu Spánverjana heim. Namibíu- menn vhdu fá íslendinga með sér í útgerð og íslenskar sjávarafuröir reka með þeim frystihús og gera út 3 togara. Framkvæmdastjórinn og verkstjórinn í frystihúsinu era ís- lenskir. Yfirmennimir á skipunum em einnig íslenskir," segir Friðrik. Fiskurinn, sem togaramir veiða, er aðahega lýsingur en nótabátar veiða sardínur, ansjósur og makríl. Að sögn Friðriks miðast þróunar- starfið núna að því að minnka af- skiptin af rekstri skipanna en auka menntunina í staðinn eins og th dæmis með stofnun sjómanna- og stýrimannaskólans. Eiginkonur í sjálfboðavinnu Nokkrar eiginkonur íslenskra skipstjómarmanna hafa einnig tekið að sér að mennta Namibíumenn. „Konumar í Namibíu em lægra sett- ar en karlar. Þær em menntunar- lausar og þekkja ekki réttindi sín. Það eru tvær íslenskar konur í sjálf- boðavinnu að mestu leyti við að kenna þeim almenna hehbrigði og umönnun bama, einfalda matseld og ensku. Þetta veitir namibísku kon- unum sjálfstraust. Það er líka ein íslensku kvennanna sem tekið hefur að sér að hugsa um fotluð börn. Verk- efnin em í raun óþijótandi," greinir Heimkynni innfæddra í Norður-Namibíu. Birna frá. Hún segir íslendinga í Namibíu halda vel saman. Þeir hittast í bama- afmælum og stórafmælum og 17. júní og koma af og til saman th að grhla. „Þaö eru hka ahir thbúnir til hvers kyns aðstoðar ef með þarf.“ Vinsæll ferðamannastaður Það er talsvert um að íslendingarn- ir í Namibíu fái ættingja og vini að heiman í heimsókn. „Það er dýrt að fljúga hingað, það kostar í kringum 100 þúsund íslenskar krónur en hér er margt að sjá. Hér er th dæmis stór þjóðgarður sem þykir einn sá besti í heimi. Það er auðvelt að sjá mörg vilhdýr í garðinum. Best er að heim- sækja Namibíu um jólaleytið. Regn- tíminn inni í landinu er frá febrúar th aprh en þaö rignir ekki í eyði- mörkinni," segir Friðrik. Bærinn, sem Friðrik og Bima búa í, er vinsæll ferðamannabær. Hótel eru mörg og svo er einnig stórt sum- arhúsahverfi í bænum. Eitt kvik- myndahús er á staðnum en kirkjur em svo til á hveiju götuhomi og kirkjulífið er mjög öflugt. „Verðlag er nokkuð hagstætt hér en allt inn- flutt er dýrt. Verð hefur hækkað á síðustu tveimur áram en fyrst þegar viö komum fannst okkur aht svo ódýrt að við fengum hálfgert kaup- æði. Maturinn er svipaður því sem maður á að venjast, nautakjöt, svína- kjöt, kindakjöt og svo fiskur. Það er líka hægt að kaupa vhhbráð. Græn- metið og ávextirnir, sem eru á boö- stólum, er ekki eins glæshegt og maður ímyndaði sér að þessi mat- vara væri á þessum slóðum. Þetta er flutt inn frá Suður-Afríku og er svo lélegt að stundum dettur manni í hug að þeir sendi afganginn th Namibíu.“ Námuvinnsla og nautgriparækt hafa verið aðalatvinnuvegimir í Namibíu en það er skoðun Friðriks að fiskveiðar séu famar að sækja á. Það var einmitt th þess að kenna Namibíumönnum að veiða fisk sem íslendingamir komu til Namibíu. Þau hjónin leggja áherslu á að þau hafi haft tækifæri til aö lifa góðu fjöl- skyldulífi undanfarin fimm ár sem þau hafa dvahð í Namibíu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.