Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1995, Page 19
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 1995
19
Sviðsljós
Danska konungsfjölskyldan:
Flestir ná
sér í er-
lenda maka
Með trúlofun Jóakims prins, yngri
sonar Margrétar Danadrottningar,
og Alexöndru Christinu, sem er
bresk-kínversk, hafa Danir nú
fengið sína fyrstu prinsessu með
asískt blóð í æðum. En það er ekk-
ert nýtt að prinsar og prinsessur
leiti sér að maka sem talar fram-
andi tungumál.
Síðustu 1000 árin hefur 51 kon-
ungur og 2 drottningar ríkt í Dan-
mörku. Aðeins fjögur þeirra áttu
danska maka. Fyrir því liggja að
minnsta kost tvær ástæður. Ekki
er langt síðan að það var óhugs-
andi fyrir prinsa og prinsessur að
ganga í hjónabönd með öðrum en
þeim sem voru af konunglegu kyni
til að missa ekki arf. Þar að auki
voru slík hjónabönd liður í póh-
tísku spih.
Enn þann dag í dag er danskt
kóngablóð í næstum öllum evr-
ópskum furstaættum. Kristján
níundi, sem var uppi á nítjándu
öld, átti fjölda bama sem giftist inn
í furstaættir um alla Evrópu og
hann varð eins konar tengdafaðir
Evrópu.
Dóttir hans, Alexandra, giftist
Játvarði sjöunda, dóttirin Dagmar
varð keisaraypja í Rússlandi um
leið og hún giftist Alexander þriðja
og þriðja dóttirin, Thyra, giftist
þýskum hertoga. Friðrik krón-
prins, sem varð Friðrik áttundi,
kvæntist sænsku konungsdóttur-
inni Lovísu og Valdimar prins, sem
var yngstur systkinanna, kvæntist
frönsku prinsessunni Marie sem
var af Orhans-ættinni. Þriðji sonur
Kristjáns níunda, Vilhjálmur
prins, var kjörinn konungur í
Skólamynd af Alexöndru frá 1982 í Hong Kong. Alexandra er hagfræðing-
ur að mennt.
Grikklandi og varð Georg fyrsti.
Ári áður en Kristján níundi lést,
eða 1905, varð sonarsonur hans,
Karl prins, krýndur konungur í
Noregi og varð þar með Hákon sjö-
undi.
Næstum allar drottningar í sögu
Danmerkur hafa verið útlendingar
og það eru næstum því 300 ár síðan
danskur kóngur hafði danska
drottningu sér við hhö. Þjóöverjar
hafa verið duglegastir við að útvega
Dönum drottningar. Síðustu þús-
und árin hafa 23 drottningar komið
frá Þýskalandi. Fyrir árið 1871 var
Þýskaland nefnilega byggt upp af
mörg hundmð ríkjum sem hvert
hafði sína furstaætt.
Ingiríður Danadrottning er dóttir
sænska konungsins Gústafs Adolfs
sjöunda. Henrik, eiginmaður
Margrétar Þórhildar, dóttur Ingi-
ríðar, er af frönskum aðalsættum.
Synir þeirra, prinsarnir Friðrik og
Jóakim, hafa ahst upp við alþjóð-
legt andrúmsloft og kemur því eng-
um á óvart að sá yngri skuh hafa
vahð sér konuefni af erlendum
ættum.
Alexandra Manley, tilvonandi eiginkona Jóakims prins, sýnir trúlofunar-
hringinn þegar trúlofunin var kunngjörð síðastliðinn miðvikudag.
Simamyndir Reuter
kommódur - skrifborö - sófar - styttur - Ijósakrónur - málverk - sófasett - skatthol
Jk.
'3
O
'I
Antik - Utsala
Ótrúlegt verð
Opið alla helgina
Mikið
skal
seljast
Munir og Minjar
%
!
p'
Grensásvegi 3 (Skeifumegin)
sími 588-4011
styttur - sófaborö - Ijósakrónur - gólflampar - sófaborö - rúm - kistur - fataskápar
PRINCE POLO
í NÝJUM BÚNINCIBBH
Slappaðu af - þetta er Prince Polo!
Ásbjörn Ólafsson hf. Skútuvogi 11A Sími: 588 7900