Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1995, Side 23
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 1995
23
Brosið á Suðumesjum:
Skólaútvarpið varð
að alvöra útvarpsstöð
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum;
„Útvarpsstöðin verður þriggja ára
í ágúst í sumar og það má segja að
rétt núna séu sveitarstjómarmenn
og aðrir að átta sig á því hvað útvarp-
ið getur gert fyrir svæðið. Brosið
hefur sannað það á þessum áram að
það á alveg rétt á sér hér sem svæðis-
útvarp eins og aðrir fjölmiðlar á
svæðinu," segir Ragnar Örn Péturs-
son, útvarpsstjóri í Keflavík.
Þeir félagarnir Ragnar Örn, Jó-
hannes Högnason og Rúnar Róberts-
son keyptu svæðisútvarpið Brosið
um áramótin af Nýjum miðli í Kefla-
vík sem rak bæði útvarpsstöðina og
Suðurnesjafréttir. Þeir eru búnir að
vinna við stööina frá upphafi og
þekkja því reksturinn mjög vel.
„Fyrri eigendur stóðu frammi fyrir
því að annaðhvort yrði útvarpinu
lokað fljótlega eftir áramótin eða
rekstrareiningunni yrði breytt. Við
höfðum trú á þessari stöð og ákváð-
um að kaupa hana eftir að hafa skoð-
að dæmið mjög vel frá upphafi. Fyrir
utan að vera eigendur erum við einn-
ig dagskrárgerðarmenn í fullu starfi
á stöðinni og tökum svona lungann
úr dagskránni," segir Ragnar Örn.
Brosið flutti sig um set á dögunum
og er nú á annarri hæð þar sem Sér-
leyfisbifr eiðir Keflavíkur eru til húsa
á Hafnargötunni. Húsnæöiö er um
100 fermetrar að stærð og hentar
ágætlega til útvarpsreksturs.
Byrjaði sem skólaútyarp
Hjá Brosinu FM 96.7 starfa 14 dag-
skrárgerðarmenn fyrir utan eigend-
ur. Útvarpið nær yfir allt Suður-
nesjasvæðið, þar sem 15 þúsund
manns búa, og inn að Hafnarfirði.
Þeir sem eru með góð útvarpstæki
geta hlustað á stöðina á nokkrum
stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Aö
sögn Ragnars á hluti Grindavíkur í
erfiðleikum með að ná Brosinu. í
athugun er að setja upp endurvarp
svo öll Grindavík geti náð stöðinni.
Þó brosið verði 3 ára í ágúst er
lengra síðan Suðurnesjamenn hófu
útvarpsrekstur. Fyrri eigendur byrj-
uðu með Brosið sem skólaútvarp í
Fjölbrautaskóla Suðurnesja 1989 og
útvörpuðu yfir jólin og páska. í dag
er stöðin rekin allan sólarhringinn
og gefur öðrum stöðvum ekkert eftir.
„Við teljum okkur ekki vera neina
eftirbáta annarra stöðva. Dagskráin
hjá okkur gefur dagskrá annarra
útvarpsstöðva ekkert eftir. Hvað
varðar dagskrárgerð erum við fylli-
lega samkeppnishæfir gagnvart hin-
um stöðvunum. Dagskráin er frá sjö
á morgnana til tíu á kvöldin alla
virka daga. Um helgar eru ýmsir sér-
þættir og næturvaktir. Ég tel það
sannað að útvarpið sé einn áhrifa-
mesti og skemmtilegasti fjölmiðillinn
Eigendur Brossins, Jóhannes Högnason, Ragnar Örn Pétursson og Runar
Róbertsson.
Hinn vinsæli útvarpsmaöur Jón Gröndal er dagskrárgerðarmaður á Bros-
inu. DV-myndir Ægir Már
sem hægt er að vinna viö. Þú getur
komið skilaboðum, fréttum og öðru
efni á framfæri svo til á sömu mínút-
unni og það gerist. Ég er búinn að
starfa við útvarp síðan 1980 og það
sem gerir starfið svona lifandi og
skemmtilegt er að þú ert alltaf að búa
til eitthvað nýtt. Það er óhætt að
segja að þú sért að matreiða ofan í
hlustendur. Þú kynnist mörgum
málum og þarft að koma þér inn í
þau, fræðast um hitt og þetta,“ segir
Ragnar Örn.
íbúamir mjög ánægðir
„Brosið býður upp á að hægt sé að
vera með umræður um atburði hér
á svæðinu og miðla upplýsingum til
íbúa. Þá höfum við verið með beinar
útsendingar frá menningarstarf-
semi, messur, umræður um hin og
þessi málefni, fréttir og fleira sem
tengist sveitarfélögunum. Þá sendi
stöðin beint frá 17 leikjum í úrvals-
deildinni í körfuknattleik víðs vegar
um landið. Hún var með fleiri beinar
útsendingar en Bylgjan og Rás 2. íbú-
ar hafa verið ipjög ánægðir meö
þessa þjónustu og hvað útvarpið get-
ur gert margt gott fyrir svæðið. Þeg-
ar bruni varð í stóru blokkinni ruf-
um við útsendingu til að miðla upp-
lýsingum til íbúa hvert þeir áttu að
fara. Hjá okkur var þá staddur for-
maður almannavama Suðumesja í
beinni útsendingu. Þegar vitlaust
veður er og skólahald fellur niður
er gott fyrir foreldra og aðra íbúa að
hlusta á Brosið og fá upplýsingar.
Þetta er stöð sem verður að vera til
staðar og það vita sveitarstjómar-
menn.“
Þrírtekjupóstar
Að sögn Ragnars er rekstur stöðv-
arinnar fjármagnaður í þrennu lagi.
Ýmsir þættir í dagskránni em í boði
fyrirtækja. Þá eru þjónustusamning-
ar við sveitarfélögin sem kaupa
ákveðin efni og svo eru auglýsingar
seldar á almennum markaði.
„Þetta em þrír tekjupóstar sem eru
í gangi. Stöðin gengur alveg þokka-
lega. Við tókum við um áramótin sem
er rólegur tími á auglýsingamark-
aðnum hér á Suðurnesjum eins og
sumartíminn. Síðustu fjórir mánuðir
ársins eru góðir en á ársgmndvelli
verður þetta allt í lagi.“
Ragnar getur þess að í skoðana-
könnun sem Gallup gerði fyrir Bros-
ið í upphafi árs í fyrra hafi útvarps-
stöðin verið með svipaða hlustun og
Rás 2 en örlitið minni en Bylgjan.
FM var langt fyrir neðan. Urtakið
var 700 manns. „Þegar sveitarfélagið
Keflavík, Njarðvík, Hafnir var tekið
út úr vorum við 4 prósentum fyrir
ofan bæði Bylgjuna og Rás 2. Við
höfum verið að ræða það að gera
aðra könnun í haust. Brosið er í sam-
keppni við staðarblöðin og aðrar út-
varpsstöðvar," segir Ragnar Öm.
ÞJÓFAVIÐVÖRUNARKERFI
Einföld í uppsetningu og meðförum, 220V og rafhlöður.
PIR hreyfiskynjari, innibjalla, útibjalla og lyklaborð.
Hentug fyrir heimili og sumarbústaði.
KYNNINGARVERÐ
ÓLAFUR GÍSLASON & CO HF
SUNDABORG 3 SÍMI 568-4800 FAX 568-5056
ISLAND DANMORK FÆREYJAR NOREGUR SVÍÞJÓÐ
MONTANA
Emm fluttir úr Lágmúlanum.
Fellihýsi/tjaldvagnar: Landsins mesta úrval. Bjóðum
núallt að 11 gerðir tjaldvagna og 16 gerðiraf felli-
hýsum frá Evrópu og USA. Fyrsta sending uppseld,
næsta sending er tií afgreiðslu strax eftir helgi.
Verð frá kr. 227.000,-.
TJALDVAGNAR: VERÐ FRÁ KR. 227.000,-
10 sek. í tjöldun
roMAMCME- Umboðið
EVRO HF
SUÐURLANDSBRAUT 20
SÍMI: 5887171
LUXEMBORG FRAKKLAND SVISS ÍTALÍA SPÁNN
I guðanna bænum ekki leggja
símanúmerið okkar á minnið.
þú veist "...ef þú spilar til að vinna!
Fyrir þá sem þurfa a <b hri i n g j a í í íslenskar Getraunir þá erum við i i nýju símaskránn