Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1995, Side 34

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1995, Side 34
42 LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 1995 Trimm er styrktaraðili Reykjavíkurmaraþonsins VOLVO hotel edda EIMSKIP Skandiu lengdin vitlaust mældí Nes- hlaupinu Trimmsíöan hefur eftlr bestu fáanlegum heiraildum að þátt- taka í Neshlaupinu hafi veriö um 155 manns sem er nokkru færra en í fyrra. Neshlaupið var fima- skemmtilegt að vanda og nú var loksins upplýst þaö sem margir hafa lengi vitað. Neíhilega aö vegalengdin er vitlaust mæld. Hringurinn er ekki 7 kílómetrar eins og skráð er heldur um 6,7 km. Hvað sem því líður var stemningin góö og tímamir að vanda mjög góðir. Þeir sem era kunnugir blaöamönnum fyrr og nú hafa kannski gaman af því aö Ólafur Geirsson tók þátt í 14 kíló- metra hlaupi og lauk því á 68 minútum. Ólafur vann árum saman víð blaðamennsku á DV og víðar en lífshættir hans voru þá ekki líkir þeim sem vaskír hlauparar iöka. Gott á hann. Trimmsíðan hefur hlerað aö Reykjavíkurmaraþon sæki þaö mjög fast að fá leyfi til að loka götunum þegar hlaupið fer fram. Beðið er leyfis frá lögreglunni i Reykjavik en mikill sigur væri ef leyfi fengist. í öllum stærstu borgum heims þar sem umferöar- þungi er verulega meiri en í Reykjavík tíðkast að loka götum fyrir atburöi af þessu tagi. Þórhallur missti af startinu í Húsasmiöjuhlaupinu fyrir rúmum hálfum mánuði var ræst mjög tímanlega til keppni í 10 kílómetra hlaupi. Sumir sögðu reyndar aö ræst heíði veriö 2 mínútum fyrir auglýstan tíma en á það skal ekki lagður dómur. Þórhallur Jóhannesson heitir snöfúrlegur og býsna sprettharð- ur hlaupari úr Hainarfiröi sem ætlaði að hlaupa 10 kílómetra. Þegar rásskotið reið af stóð Þór- hallur hinn rólegasti á spjalli viö kunningja sinn sem hann hitti á fömum vegi. Þegar hann áttaði sig á því hvað var að gerast voru liðnar 2 eða þrjár mínútur af hlaupinu og síðustu hlauparar aö hverfa við Kaplakrikann. Þór- hallur tók á rás og hljóp sem ákaf- ast og ftirðu lostnir silakeppir vissu ekki hvaðan á þá stóð veðr- ið þegar hann geystist brúna- þungur fram úr heilu hópunum aftarlega í hlaupinu. Þórhailur brunaði í mark í öðra sæti í sín* um aldursflokki á 42:17 og hefur því miöað við tímaskekkjuna 1 raun farið leiöina á ca 39 mínút- um. Fótaaðgerðarfræðingar: Aðstoða skokk- ara og hlaupara „Það sem við fótaaðgerðarfræðing- ar ætlum að gera er að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoni. Það á eftir að skipuleggja það í smáatriðum en við munum ráðleggja fólki fyrir hlaupið og vera til staðar meðan á hlaupinu stendur og eftir að því lýkur og ræða við þá sem eiga við fótamein að stríða," sagði Sólrún Ó. Sigurodds- dóttir fótaaðgerðarfræðingur í sam- tali við Trimmsíðuna. Fótaaðgerðar- fræðingar hafa í fjögur ár haft lög- gildingu sem heilbrigðisstétt en að sögn Sólrúnar era hlauparar, skokk- arar og íþróttamenn frekar fáséðir gestir á fótaaðgerðarstofum. „Við getum lagaö flest það sem af- laga fer í sambandi við fætur. Við skrifum ekki upp á lyfseðla en í sam- vinnu við lækna getum við tekið á hverju sem er.“ Sólrún taldi löngu tímabært að þessir tveir hópar, íþróttamenn og fótaaögerðarfræðingar, kynntust. Hún benti á að hlaup og skokk væri mikið álag á fætuma og engin ástæða til þess að pína sig áfram og hlaupa á meiöslum og skavönkum sem auð- velt gæti verið að laga. „Hlaupaskór era orðnir afar full- komnir en það mæöir einkum mikið á tánum og þar koma upp sigghnúð- ar, álagsmeiðsl og meiðsl í nöglum sem hægt er að vinna bug á.“ Sólrún og félagar í Félagi fótaað- gerðarfræðinga munu taka forskot á Reykjavíkurmaraþoniö með því að bjóða þjónustu félagsmanna fram við skokkara og þáttakendur í Jóns- messuhlaupinu sem fram fer í Laug- ardalnum 23. júní nk. Konur eru einráðar í starfsgrein- inni og það veröa því konur sem sitja í anddyri Laugardalslaugarinnar á Jónsmessunni og skoða ófríðar, bólgnar og aflaga tær skokkara og ráða þeim heilt um meðferð mein- anna. Báðir aðilar ættu að geta fræðst nokkuð við þetta tækifæri. Sólrún Ó. Siguroddsdóttir fótaaðgerðarfræðingur. DV-mynd GVA Hlauparar fræðast um rétta meðferð meina en fótaaðgerðarfræðingar fá að sjá ljótari og meiddari tær en finnast í nokkram kennslubókum. Við skul- um halda Næsta laugardag, 10. júni, fer hið árlega Akraneshlaup fram á Akranesi á vegum USK. Það er ræst á Akratorgi klukkan 12.00 og vegalengdir í boði era að vanda 3,5 km, 10 km og hálft maraþon. Það er almannarómur, meö réttu, að Akraneshlaupið sé sérlega skemmtilegt. Hlaupaleið- in er slétt og þægileg og þama koma harðlr skokkarar og hlaup- arar og kanna stöðu sína 1 hálfú maraþoni eftir veturinn. Aöbún- aður allur er til fyrirmyndar, búningsaðstaða ágæt og sund- laugin frábær. Nánari upplýsingar veitir Ingi- björg Óskarsdóttir í síma 4313356 Og 431 2311. Hver varrn? Margir taka þátt í almenn- ingshlaupum án þess aö komast nokkru sinni á verðlaunapall. Flestir eru ánægðir án þess en aðrir hafa bent á nauösyn þess að skilgreina upp á nýtt í hverju sigur felsL Veltum fyrir okkur eftirfarandi atriðum. Fórstu yfir marklínuna áöur en auglýsinga- borðinn um hlaupið var tekinn niður? Þú vannst. Þegar hlaupið var hálfhað, heföir þú getað staf- að nafiilð þitt með færri en þrem villum? Þú ert sigurvegari. Fór maður með sementspoka á bak- inu nokkuð fram úr þér á leið- inni? Þú vannst. Ekki spuming. Gastu komist hiálparlaust á kló- settið daginn eftir hlaupið (það má skríða)? Þú vannst. Þarna sést að með róttu hugarfari er hægt að ganga frá hverjum leik sem sigurvegari. Góða skemmtun í næsta hlaupi. Umsjön Páll Asgeir Ásgeirsson Reykjavíkurmaraþon 20. ágúst: Huga þarf vel að útbúnaði 10 km, hálfmaraþon og maraþon. Mjög mikilvægt er að hyggja að út- búnaði þegar byrjaö er aö skokka. Skórnir era mikilvægastir í því sam- bandi og vanda skyldi val þeirra. Fótlag manna sem og fótstig. Hægt er að leiðrétta rangt fótstig í byijun með réttum innleggjum. Hægt er að fara í hlaupagreiningu á nokkrum stöðum hér í bæ og ráðlegg ég öllum sem ekki hafa enn farið að nýta sér þá sérfræðiþekkingu sem til boða er á þeim stöðum. Að öðru leyti er út- búnaður að sumri til ósköp einfald- ur. Léttur jogging-galli og bómullar- sokkar eru góður kostur. Einnig eru stutterma bómullarbolir og hlýrabol- ir vinsælir ásamt stuttbuxum. Svo- 2. vika. 4/6-10/6 nefndar “tights buxur, sem era síðar hlauparabuxur, era vinsælar. Þegar hlaupið er lengri vegalengd en 10 km í einu á æfingu er gott að hafa vatn eða orkudrykk með sér. Til eru sér- stök vatnsbelti sem Mtið fer fyrir. Þú jafnar þig miklu fyrr eftir æfingar ef þú vökvar þig reglulega á leiðinni. Á viðkvæma staði s.s nára'og geir- vörtur og handarkrika sem verða fyrir núningi ættirðu að bera vasilín. Jakob Bragi Hannesson VOLVO 850 10 km 21 km 42 km Sunnudagur 8 km ról. 12 km ról. 16 km ról. eða 22 km fyrir þá sem ekki fara i Akraneshlaupið Mánudagur Hvíld Hvíld Hvíld Þriðjudagur 6km (hraðaleikur) 8km (hraðaleikur) 8km (hraðaleikur) Fyrst 2 km ról. og siðan Fyrst 2 km ról. Fyrst2kmról. ogsíðan 2 km með stuttum sprettum og síðan 4 km með stuttum 4 km með stuttum sprettum ogjoggiámilli sprettum og joggi á milli ogjoggiámilli Síðan 2 km. ról. í lokin Síðan 2 km ról. í lokin Síðan 2 km í lokin Miðvikudagur 5km 7 km ról. 12km ról. Fimmtudagur Hvíld 6 km ról. 8 km ról. Föstudagur 3 km jafnt Hvíld Hvíld Laugardagur Akraneshlaupið Akraneshlaupið Akraneshlaupið 21 km eða 3,5 km 10km 10 km jafnt eða 4 km Samt. 25,5-26 km 43 km 60-65 km

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.