Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1995, Qupperneq 35
LAUGARDAGUR 3. JUNÍ 1995
43
Margir leggja stund á læknisfræði af því að læknisstarfið er í ættinni.
Af hverju verða
menn læknar?
Á sjúkrahúsum landsins er mik-
ill fjöldi læknanema sem hefur
ákveðið að helga líf sitt heilbrigðis-
þjónustu. Samkvæmtnákvæmum
rannsóknum Nökkva læknis eru
ástæður þessa margvíslegar.
Læknir í ættinni
Margir leggja stund á læknis-
fræði af því að læknisstarfið er í
ættinni. Það líkist andanum í her-
foringjaættum stríðsglaðra landa.
Þar verða ungir menn herforingjar
mann fram af manni. Þeir sem fara
aðra braut eru álitnir sérsinna
öfuguggar, aumingjar eða svikarar
við ættarhefðina. Sama lögmál
gildir í grónum læknaættum.
„Annar sonur minn er matsveinn,
hinn er endurskoðandi," heyrði
Nökkvi eitt sinn virtan lækni segja,
drukkinn, með tregablandinni
röddu. „Þeir höfðu báðir burði tif
að verða ágætir skurðlæknar."
Læknisbörnin verða oft ágætir
læknar enda lásu þau mikið af
læknasögum á unglingsárum,
heimsóttu foreldri sitt í vinnuna,
töluðu viö ágenga sjúklinga í síma
og hlustuðu á foreldra sína viðra
áhyggjur, sigra og vonbrigði á
sjúkrahúsunum yfir saltkjöti eða
soðningu, svo að þau þekktu vel
refiistigu heilbrigðiskerfisins.
Læknisbörnin höfðu því forskot á
hina frá upphafi. Auk þess hefur
komið í ljós að ýmiss konar heil-
brigðisstofnanavirðing, s.s. pró-
fessorsstöður, dósentsstöðUr og yf-
irlæknistign, liggur í genunum og
genguríættir.
Peningar
ogveikindi
Aðrir fara í læknisfræði út af
peningum. Þeir halda að læknis-
starfið sé vel launað og tryggi þeim
einbýlishús, upphækkaðan
kraftmikinn jeppa og óafturkallan-
leg veiðileyfi í laxveiðiá fram á
næstu öld. Slíkir læknanemar fara
fijótt að leita fanga þar sem einhver
íjárvon er, komast í ábatavænleg
héruð, veröa sér úti um aukastörf,
yfirsetur, lyfjatilraunir og kennslu.
Menn láta jafnvel spegla í sér mag-
ann vikulega í nokkur ár fyrir
smáaura. Flestir komast þó fljótt
að raun um að miklar tekjur og
mikil vinna fara saman, enda ekki
óalgengt að læknar séu í 200%
starfi og þurfi að vinna allt að 170
klst.áviku.
Sumir fara í læknisfræði vegna
eigin veikinda eða sjúkdóma hjá
nákomnum ættingjum. Slíkt kann
sjaldnast góðri lukku að stýra.
Menn átta sig fljótt á því hversu
vanþakklátt það er að lækna ætt-
menni sín og hætta því snarlega.
Sjálflækningar mistakast yfirleitt
vegna þess aö læknirinn segir sjálf-
um sér sjaldnast satt um einkenni
sín. Geðlæknir, sem ætlar sér að
Á laeknavaktiimi
leysa eigin geðflækjur, endar yfir-
leitt með sálina í enn flæktari
rembihnút en nokkurn gat órað
fyrir. Slíkir læknanemar verða oft
þokkalegustu læknar, að því und-
anskildu að þeim finnst þeir sjálfir
alltaf mun veikari en sjúkhngur-
inn. Þegar sjúklingurinn kvartar
undan þunglyndi svarar læknirinn
því til að í samanburði við þung-
lyndi hans sjálfs sé sjúklingurinn
í sjöunda sæluhimni.
Hugsjónaeldur
Aðrir fara út í læknisfræði af
hugsjón og vilja hjálpa meðbræð-
rum sínum og bæta böl mannkyns.
Því miður hefur Nökkvi ekki enn
hitt slíka hugsjónamenn en sagt er
að þeir séu til einhvers staðar.
Margir fara út í læknanám fyrir
tilviljun. Þeir beita útilokunarað-
ferðinni; lögfræði einkennist af
leiðinlegri innheimtu, viðskipta-
fræði er þurr bókfærsla, verkfræð-
in er bara fyrir mikla stærðfræð-
inga, nám í kvikmyndaleikstjóm,
fjölmiðlafræði, sáúræði eða sljóm-
málafræði býður upp á ævilanga
beiskju og atvinnuleit. Þá er alveg
eins gott að fara í læknisfræði.
Þessir einstakhngar eru fjölmennir
og verða oft ágætir læknar.
Sumir fara í læknisfræði í von
um status og virðingu í þjóðfélag-
inu. Þeir komast þó að raun um að
þjóðin metur þá sjaldnast að verð-
leikum; læknir hefur aldrei orðið
forsætisráðherra eða forseti, lækn-
ar komast eiginlega aldrei á þing
eða í stjórn stórfyrirtækja. Læknar
skrifa ekki um annað í blöð en
launamál og eigin beiskju, gefa
sjaldnast út bækur eða mála mynd-
ir. Helstu íþróttaafrek sín vinna
læknar í golíkeppnum hver við
annan sem þeir eru óþrey tandi viö
að halda á lofti. íslenskir læknar
hafa á seinni árum einungis borið
af öðram landsmönnum í vín-
smökkun. Aörir fara í læknisfræði
til að nálgast guðdóminn eða verða
guðir sjálfir. Menn verða þá að
vera duglegir við að halda afrekum
sínum á lofti, segja af sér hetjusög-
ur og troða sér í fjölmiðla sem þó
fer fljótlega að þreyta þessa kröfu-
hörðuþjóð.
Éggleymi
öllum stúdentum
Ahir stúdentar ganga með þá
grihu að þeir séu ógleymanlegir
kennurum sínum og samstarfsfólki
inni á deildunum. Nökkvi hitti einn
gamlan kennara sinn í erfis-
drykkju um daginn og hehsaði
honum kumpánlega. Hann tók al-
varlega í hönd Nökkva og kynnti
sig. „Það er engin þörf á þessu,“
sagði Nökkvi. „Við náþekkjumst."
Kennarinn sagðist gleyma öhum
stúdentum nema þeim sem væru
til einhverra vandræða. „Ég er al-
veg búinn að gleyma þér svo að þú
hlýtur aðhafa verið htlaus og prúö-
ur,“ sagði hann. Þá hrundi heimur
Nökkva læknis í tíunda sinn þá
vikuna.
Lausafjáruppboð
Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík, Gjaldheimtunnar í Reykjavík, lögmanna,
banka og sparisjóða fer fram nauðungarsala á ýmsu lausafé laugardaginn
10. júní 1995, kl. 13.30, í uppboðssal í tollhúsinu við Tryggvagötu (hafnar-
megin).
Eftir kröfu tollstjóra: parafínvökvi, keðjur og lásar (veiðarf.), fiskafskurður -
(dýrafaeða, fiskeldis-), parket, eldhúsinnréttingarhlutir, filmur, varahlutir,
dekk, herbalife, bílavarahlutir, steikarofn, málning, telefax, heilsuvara og
snyrtivara, bílsæti, póstkort, plastvara, fatnaður, búsáhöld, silfur, hátalarar,
segulbandstæki og hátalarar, áhöld til förðunar, borðbúnaður og eldhúsbún-
aður.
Eftir kröfu lögmanna, Gjaldheimtunnar í Reykjavík, banka, sparisjóða og
fleiri: 468 x Saga mannkyns, 1. bindi, og 195 x Saga mannkyns, 10.
bindi, Tómas Guðmundsson, ritsafn, bindi 1-10, 14 sett, Saga mannkyns,
bindi nr. 13, 630 stk., og Saga mannkyns, bindi nr. 2, 260 stk., hitaformun-
arvél, Pitney Bows 1861 pökkunarsamstæða, geislaspilari, tölvur og prentar-
ar, ýmis blóm, greni, jólaskraut, grasstrá, málverk, Rosenthal vasar, matar-
stell, borðlampi, silkimynd, skrifborð, skrifborðsstólar, hillusamstæða, tölvur
og prentarar, farsímar, svepparæktunarhillur, Steinbock rafmagnslyftari,
þokuúðunartæki, hitablásarar, tölvuvigt, hleðsluborvél, skrifborð, hár skrif-
stofustóll úr svörtu leðri, lágir skrifstofustólar úr svörtu leðri, skápar, Ikegami
camera head upptökutæki, hljómborð, afgreiðsluborð, telefaxtæki, Ijósritun-
arvélar, peningaskápur, leðurskrifstofutóll, skrifborð, vélritunarborð, skjala-
skápar, leðursófasett, spónpressa, kamtlímingarvél, sög, fræsari, spónasög,
dílaborvél, farseðlaprentari ásamt tölvu fyrir bókunarkerfi, sjónvarpstæki,
ryk- og vatnssugur, krapavél, reiðhjól, hugbúnaður, álsög, tveggjablaðasög,
standborvél, járnsög, dragvél, bekkpressubekkur, kálfpressa, stigvél, horn-
sófi úr leðri, skábekkur, róðrarvél, útskorinn járnprófíll, hljómflutningstæki,
yfirfræsari, spónsog, kæliskápur, myndavél, blikkhnífur, beygjupressa, loft-
ræstikerfi, bókalager: 40 eintök af bókinni Akureyri 1895-1930 og 300
eintök af bókinni Á tímum friðar og ófriðar 1924-1945, háþrýstiþvotta-
tæki, rafsuðutæki, háþrýstidæla, prentvél, flökunarvél, gufuofn, gufuketill,
ísskápur, reiknivélar, hjólsög, 6 vetra jarpur klár, rennibekkur, strokleður,
blýantar, gjafapappír, bréfsefni, ritfangasett, gjafakassar, föndurvara, sumar-
hús, Oddmundur RE-287, rúmlega 4 tonna trilla, hljómflutningstæki, mynd-
bandstæki, myndlykill, hátalarar, skápur undir hljómflutningstæki, sæng,
koddi, borðfótur, hitaborð, hljóðblandari, hausklofningarvél, saumavélar,
framköllunarvél, bækur, Sony tommu video editing unit, Sonyt editor, Pesa
text system, trésmíðavél, myndbönd, kæli- og frystivélar, Paraafreeze-véla-
samstaeða, sandsparslvélar, loftpressur, myndvinnslutæki, myndeffecttæki,
flygill, vélstandar fyrir gólfdúka og teppi, Ideal Kitchen eldhúsinnréttingar,
seglskútan Svalan, verkfæri, Spit borvélar, Metabo borvélar, súluborvél,
naglabyssa, mælitæki, handverkfæri, hillur og búnaður, efnislager sem sam-
anstendur af almennu raflagnaefni og töflubúnaði, sprautuklefi, uppþvotta-
vél, sax og beygjuvél, tölvubúnaður, rafsuðuvélar, trésmíðavélar, videotöku-
vél, shakevél, ísvél, rafstöð og rafsuðuvél á hjólum, árg. '88, örbylgjuofnar,
espresso kaffivélar, afgreiðslutæki fyrir vínbari, loftpressur, rennibekkur, lím-
vél, vikursíló, sogkerfi fyrir spón, sogkerfi fyrir slípivélar, lyftuborð, járnpall-
ar, málningarvinnustóll, gaseldavél, frystikistur, þvottavél, frystiskápur, kæli-
skápur, Husqvarna frystiklefi, pressa fyrir frysti Frigidaire, 1 bretti af geisla-
diskum, geisladiskastöndum og ýmsum fylgihlutum, málverk eftir Axel Ein-
arsson: Sólarlag og Þingvellir, JVC-klippisett.
Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki uppboðshald-
ara eða gjaldkera.
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn i Reykjavík
Búnaðarbanki íslands,
aðalbanki Austurstræti
525 6400
Búnaðarbanki fslands,
austurbæjarútibú við Hlemm, Rvk.
Önnur símánúraer bankansbreytast
samkvæmt nýja símanúmerakeninu.
BÚNAÐARBANKI
ÍSLANDS