Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1995, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1995, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ1995 Fréttir Fjölskylduharmleikur orðinn að sakamáli eftir sjö ára taugastríð: Af i ákærður fyrir að misnota barnabarn sitt - 28 þolendur kynferðislegs ofbeldis afa leituðu hjálpar Stígamóta á síðasta ári einu Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur 63 ára karlmanni fyrir að hafa misnotað barnabarn sitt á tæplega íjögurra ára tímabili. Hér er um að ræða margvíslega kynferðislega misnotkun og er ákæran í fimm liðum. Samkvæmt upplýsingum starfs- konu hjá Stígamótum í gær er mál þetta ekki einsdæmi, samanber ársskýrslu samtakanna. „Það er ekki óalgengt að afar eða stjúpafar séu gerendur í sifjaspells- málum. Það er eins og ekkert sé nýtt undir sólinni en því miður sjáum við ekki nema toppinn á ísjakanum hér,“ sagði starfskonan. 28 einstaklingar leituðu aðstoðar Stigamóta á síðasta ári einu vegna kynferðislegrar misnotkunar afa. Grunsemdir í framangreindu sakamáli, sem reyndar verður ekki tekið til meðferðar hjá dómi fyrr en i haust, hófust þegar stúlkan var farin að biðjast undan því að fara aftur „til afa og ömmu“. Sam- kvæmt ákæru hafði kynferðisleg misnotkun mannsins þá staðið yfir á árunum 1988-1991. Barnið var þá 6-9 ára. í einum ákæruliðnum er manninum gefið að sök að hafa farið með stúlkuna í bíl sínum nið- ur að höfninni í Hafnarfirði þar sem hann misbauð baminu kyn- ferðislega. Eftir að grunsemdir vöknuðu var leitað ásjár hjá Stígamótum vegna barnsins. í kjölfar þess var málið sent til Rannsóknarlögreglu ríkis- ins og maðurinn síðan kærður og rannsókn fór fram. Ákæra hggur nú fyrir en málflutningur fyrir dómi verður þann 21. september. -Ótt Olafsfirðingar halda um helgina upp á 50 ára kaupstaðarafmæli sitt með veglegri hátiðardagskrá sem reyndar stendur yfir í um vikutíma. Forseti íslands er væntanlegur í heimsókn á laugardag og um allan bæ hafa bæjarbú- ar verið að snyrta og fegra bæinn sinn. Starfsmenn Trévers hf. voru t.d. að lagfæra gangstéttarkanta við aðal- götu bæjarins þegar DV átti þar leið um i vikunni. DV-mynd gk Hótanir ESB rnn að kæra löndunarbann íslendinga og Norðmanna: Vona að fru Bonino íhugi málið áður en hún gerir mistök - segir Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra Garðakaup í Garðabæ: Hagkaup kaupir - ef Orkan fær starfsleyfi „Við höfum náð samkomulagi um að taka yflr verslunina en með þeim fyrirvara að samþykki fáist hjá öörum verslunum og þjónustuaðilum við Garðatorgað Orkan fái að setja upp bensín- dælu fyrir framan stórmarkað- inn,“ sagði Óskar Magnússon, forstjóri Hagkaups. Hagkaup áformar að opna stórmarkað í húsnæði Garðakaups í versla- namiðstöðinni Garöatorgi í Garðabæ. Ef allt gengur upp sagði Óskar að Hagkaup myndi opna í Garðabæ í október nk. Skeljungur er hiuthafi í bensín- sölufyrirtækinu Orkunni ásamt Hagkaupi og Bónusi og rekur stóra bensínstöð við hhðina á Garðatorgi. Óskar sagði það engu skipta. Hagkaup, og um leið Ork- an, væri aö tryggja viðskiptavin- um sínum alla þjónustu. „Við erum tala um nettar dælur einhvers staöar i kantinum. Við teljum okkur hafa fengið vilyrði frá bæjaryfirvöldum fyrir dælun- um en eftir er aö fá samþykki annarra rekstraraðila verslana- kjamans,“ sagði Óskar. Garðakaup er stærsta matvöru- verslunin i Garðabæ, um 1.500 fermetrar, og þar hafa starfað hátt í 50 manns. Óskar sagðist reikna með að Hagkaup leitaði til starfsfólks Garöakaups ef saran- ingargengjuupp. -bjb Aurskriður og Ijón á túnum Þórhallur Aamundascm, DV, SauðárkrMá; Ekkert lát er á aurskriðum í leysingunum norðanlands. I fyrrinótt féll stór skriða í Göngu- skörðum skammt vestan Sauðár- króks við bæinn Heiði. Skriðan var 200 metrar á lengd og um 80 metrar þar sem hún var breíö- ust. Míkill framburöur fylgdi hlaupinu sem féll á tún og bit- haga. Minni skriða féll þama skammt frá nýlega. Bæjarhús á Heiöi voru ekki í hættu. Hins vegar ollu þær miklu tjóni að sögn Búa Agnarssonar, bónda á Heiði. Tveir hektarar túns farið undir aur. Lömb vom þarna á beit en ekki vitað hvort þau lentu í skriðunni. Fé leitaöi skjóls í hvömmum neðst á svæðinu þegar skriðan féll. Mikið vatn er í fjall- inu vestan Tindastóls og því von á fleiri skriöum. Á Heiði er fjárbú, um 200 kindur, auk hrossa. „Það er á kristaltæru að við höfum heimildir til að banna landanir þegar alvarlegur ágreiningur er fyrir hendi. Það er engin leið til að knýja fram samninga nema beita þeim ráð- um sem við höfum til aö gera mönn- um grein fyrir að það þarfað seroja um þetta,“ segir Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra vegna hótaná Emmu Bonino, talsmanns Evrópu- sambandsins í sjávarútvegsmálum, þess eölis að Norðmenn og Islending- ar verði kærðir vegna löndunar- banns þjóðanna á þau veiðiskip ESB sem stunda veiðar í Síldarsmugunni. Þorsteinn segist ekki hafa áhyggjur af þessum hótunum. Samningurinn um evrópska efnahagssvæðið sé al- veg skýr í þessúm efnum. „Ég tel kæru í þessu máli fráleita og vona satt best aö segja að frú Bon- ino íhugi málið vandlega og komist að ítarlegri niðurstöðu áður en hún gerir mistök í þessum efnum," segir Þorsteinn. „Það er ljóst af okkar hálfu að við teljum að Evrópusambandið eigi engan sögulegan rétt til veiöa á þessu svæði. Þeir kvótar sem verða á end- anum settir hljóta fyrst og fremst að falla í hlut strandþjóðanna. Við leggj- um á það megináherslu að réttur strandþjóðanna og sögulegur réttur til veiðanna verði viðurkenndur," segirÞorsteinn. -rt Stuttar fréttir Irving vill Staldrið Irving Oil hefur sýnt áhuga á að kaupa söluskálann Staldiið við Breiðholtsbraut. Samkvæmt Viðskiptablaðinu hafa Irving- feðgar boðið Staldrinu 70 milljón- ir króna. Karlar í fæðingarorlof Karlmaður, starfandi hjá því opinbera, ætlar að láta á það reyna fyrir dómstólum hvort hann eígi rétt á fæðingarorlofl. Samkvæmt RÚV nýtur hann stuðnings jafnréttisráðs og BSRB. Ótimabærar viðræður Halldór Ásgrímsson utanríkis- ráðherra telur ótímabært að hefia viðræður við Evrópusam- bandið um kvóta í Síldarsmug- unni en samkvæmt RÚV telja Norðmenn það óumflýjanlegt. Vaxtalækkun Vextir ríkisvíxla lækkuðu í út- boði í gær. Aukinn þrýstingur er á viðskiptabankana að lækka vexti til almennings, ekki síst eft- ir að Seðlabankinn lækkaði vexti til þeirra. ArnartilGrænlands Skagstrendingur hf. hefur selt frystitogarann Arnar HU til Grænlands. Við það lækka skuld- ir fyrirtækisins um 500 milljónir samkvæmt fréttum RÚV. Kúskel á 400 milljónir Vestfirskur skelfiskur hf. á Flateyri hefur gert þriggja ára samning við Bandaríkjamenn um sölu á kúskel. Samkvæmt Mbl. er verðmæti samningsins um 400 milljónir. Friðarstólpi fundinn Fríðarstólpi fannst á æfinga- svæði lögreglunnar í Saltvík ný- lega en stólpanum, sem reistur var við Hallveigarstaði árið 1986 af japönskum friðarsamtökum, var stolið þaðan fyrir fjórum árum. Mbl. greindi frá þessu. Essofærlóð Olíufélagið hf., Esso, hefur fengið vilyrði borgaryflrvalda fyrir lóð undir bensín- og þjón- ustumiðstöð við Breiöholtsbraut í Norðlingaholti. Egillformaður Egill Jónsson þingmaður hefur verið skipaður stjórnarformaöur Byggðastofnunar og Stefán Guö- mundsson þingmaður varafor- maöur. , -bjb Þú getur svaraö þessari spurningu meö því aö hringja í síma 904-1600. 39,90 kr. mínútan. r ö d d jpr ■ ■■ ■■ FOLKSINS -1600 J* Jj Nei _2j Á að heimila innflutning á ís? Alllf I »tafr»n» ktrflnu m>6 tónvalnlma g«ta nýtt »ti þ«»»a þ)6nu»tu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.