Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1995, Blaðsíða 24
36
FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 1995
Kvennalistakonur deila.
Hvernig skratt-
inn les Biblíuna
„Þessi umræða er farin aö
minna mig á skólaspeki miðaida
. eða það hvernig skrattinn les
Biblíuna, að því er sagt er.“
Kristín Ástgeirsdóttir, i Alþýðublað-
inu.
Eins og við jarðaför
„Ég varð engu að síður mjög
hissa og vonsvikin þegar ég
mætti á vorþing Kvennalistans
eftir kosningar og leiö eins og ég
væri að mæta í jaröarfór."
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
i Alþýðublaðinu.
Til vinstri og svo til hægri
„Ýmsum innan Kvennalistans
fmnst erfitt að sjá það fyrir sér
að sameinast til vinstri svo menn
geti farið til hægri.“
Guðný Guðbjörnsdóttir,
i Alþýðublaðinu.
Ummæli
Pappírspésar
„Það er greinilegt að þeir menn,
sem svona vinna eru engan veg-
inn starfi sínu vaxnir. Þetta eru
einhverjir pappírspésar."
Pálmi Karlsson fisksali, í DV.
Skrítin eyðsla
< „Af hverjum þúsund krónum,
sem komu inn var 1750 krónum
eytt.“
Jóhann G. Bergþórsson, i DV.
J. Edgar Hoover lét fylgjast með
rithöfundum.
Vaktaðir af FBI
Margir þekktir bandarískir rit-
höfundar hafa lent í klónum á
FBI sem hefur fylgst með þeim,
aðallega vegna þess að FBI taldi
þá kommúnista. Til dæmis þótti
ástæða til að fylgjast með Ten-
nesse Wilhams vegna þess kom-
múnískt dagblað hrósaði leikrit-
um hans og einnig vegna þess að
FBI taldi hann vera homma.
Um nóbelsverðlaunahöfundinn
Sinclair Lewis var skrifuð á veg-
um FBI150 blaðsíðna skýrsla þar
sem meðal annars kom fram aö
Blessuð veröldin
hann byggi ekki hjá eiginkon-
unni, hann hefði skrifað bók sem
þótti áróður fyrir því að hvitir og
svartir byggju saman og að hann
væri félagi í félagsskap sem vildi
takmarka bameignir.
Nóbelsverðlaunarithöfundur-
inn Pearl S. Buck hafði tekið að
sér barn sem var svart að hálfu
og að hálfu japanskt. Þetta þótti
FBI vont mál og hóf rannsókn. í
skýrslu er hún sögð hliðholl
svarta kynþættinum og þar segir
einnig að það sé alvarleg mál að
hún tilheyri félagsskapnum Am-
erican Civil Liberties Union, fé-
lagi sem FBI segir að sé komm-
únistafélag. Aðrir frægir rithöf-
undar, sem hafa orðið fyrir barö-
inu á FBI, eru m.a. Emest Hem-
ingway, Dorothy Parker, Lillian
Hellman og Allen Ginsberg.
í dag verður norðlæg átt á landinu,
sums staðar allhvasst norðvestan til
en kaldi eða stinningskaldi annars
staöar. Norðanlands verður súld eða
Veðrið í dag
rigning með köflum en skúrir eða
slydduél á Vestfiörðum. Sunnan til á
landinu verður skýjað með köflum
fram að hádegi en síöan léttskýjaö.
Hiti verður á bilinu 2 til 6 stig noröan
til en 7 til 12 stig um landið sunnan-
vert. í nótt verður norðan- og norö-
vestankaldi. Um landið norðanvert
verða dálítil snjó- eða slydduél og
hiti 0 til 3 stig. Sunnanlands og vest-
an veröur léttskýjað og hiti 3 til 7
stig. Á höfuðborgarsvæðinu verður
norðlæg átt, stinningskaldi eða all-
hvasst og skýjað með köflum fram
að hádegi en síðan léttskýjað. Hiti
verður 7 til 11.
Sólarlag í Reykjavík: 23.48
Sólarupprás á morgun: 3.17
Síðdegisflóð í Reykjavík: 00.38
Árdegisflóð á morgun: 00.38
Heimild: Almunak Húskóluns
Veðrið kl. 12 í gær:
Akureyri súld 3
Akurnes skýjað 8
Bergsstaðir alskýjaö 2
Bolungarvík rigning 3
Kefla víkurflugvöllur skýjað 5
Kirkjubæjaridaustur léttskýjað 7
Raufarhöfn rigning 3
Reykjavik úrkoma 5
Stórhöfði skýjað 6
Bergen þoka 12
Helsinki léttskýjað 13
Kaupmannahöfn alskýjað 13
Ósló rigning 13
Stokkhólmur skýjað 14
Þórshöfn skýjað 10
Amsterdam léttskýjað 16
Barcelona heiðskírt 18
Berlín skýjað 16
Chicago alskýjað 21
Frankfurt léttskýjað 14
Glasgow súld 15
Hamborg skýjaö 15
London hálfskýjaö 14
Lúxemborg skýjað 16
Madrid heiðskírt 16
Mallorca heiðskírt 19
Þórir Sigfússon knattspyrnuþjálfari:
Fékk ekki langan tíma
til umhugsunar
Ægir Már Káraaon, DV, Suðumesjum:
„Ég fékk ekki langan tima til að
hugsa mig um hvort ég vildi starfið
og ég sé ekki eftir því að hafa ráð-
ist í þetta. Ef ég ætla að leggja fyrir
mig þjálfun verður að grípa tæki-
færið þegar þaö gefst Hingaö til
hefur þetta gengiö vel, en þetta er
..•»........................
Maður dagsins
krefiandi vinna og mikið starf.
Tíminn verður síðan að leiða í ljós
hvort þjálfun fyrstu deildar liðs á
við mig,“ segir Þórir Sigfússon,
þjálfari Keílvíkinga í knattspyrnu,
en Þórir tók við starfinu af Inga
Birni Albertssyni sem var látinn
hætta. Var Þórir aðstoðarmaður
hans.
Þórir hefur aldrei áður þjálfað
meistaraflokk en hann hefur þjálf-
að yngri flokka með góðum árangri
hjá Fylki undanfarin ár og skilaöi
félaginu íslands- og Reykjavíkur-
meistaratitlum. Þórir er vel kunn-
Þórir Sigfússon.
ugur í herbúðum Keflvikinga en
hann spilaði með meistaraflokki
félagsins frá 1976 til 1980 og var
mikill markaskorari en varð fyrir
alvarlegum hnémeiöslum sem
bundu enda á féril hans.
Þórir er er fæddur og uppalinn í
Keilavík og lék með liðinu í öllum
yngri flokkum, en nú býr hann í
Árbænum i Reykjavík og líkar þaö
vel. „Það fer töluverður tími í að
keyra á milli en ég læt það ekki
hafa áhrif á mig enda er ég í
skemmtilegu starfi.“ Auk þjálfara-
starfsins starfar Þórir sem sölufull-
trúi hjá VÍS.
Þórir segist fá mikinn stuðning
frá fiölskyldunni en eiginkona
hans er knattspyrnuáhugakona og
kemur úr mikilli Valsætt. Þórir var
spurður um áhugamál: „Ég á nú
ekki mikið frí þessa dagana og aUur
aukatími fer í aö vera með fiöl-
skyldunni, en ég hef mikinn áhuga
á hestum og reyni að komast á
sumrin í bústaðinn í Grimsnesi þar
sem fiölskyldan er með hesta. Þaö
er ekkert betra en að fara á hestbak
á góðum degi og ríða upp i fiöll.“
Eiginkona Þóris er Margrét
Gunnarsdóttir framreiðslumaöur
en hún varð heimsmeistari í fagleg-
um vinnubrögðum í kokktejlblönd-
un fyrir tveimur árum. Þau eiga
eitt barn. saman, Stefaniu Ósk,
þriggja ára, en Þórir á fyrir Hildi
Maríu, 9 ára. Þá eiga þau von á
bami í september."
Myndgátan
Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði
Fjórir leikir
í 1. deildinni
i kvöld verða fiórir leikir í 1.
deildinni i knattspymu. Sem fyrr
er Akranes ósigrandi í deildinni
og fær liðið Fram í heimsókn en
það var einmitt Fram sem sló
Akranes óvænt út úr bikar-
keppninni á dögunum. Sjálfsagt
er efst í huga Akumesinganna
íþróttir
að hefha ófaranna og verða þeir
að teljast mun sigurstranglegri.
Aðrir leikir em ÍBV-KR í Vest-
mannaeyjum og þar gæti orðið
um mjög spennandi viðureign að
ræða. í Kópavogi leikur Breiða-
blik gegn Leifri frá Ólafsfirði og
á Hlíðarenda leika Valsmenn við
Grindvíkinga.
Skák
Keppni eldri meistara og kverrna er
nýhafin í Prag í Tékklandi. Liö öldunga
skipa Vassily Smyslov, Boris Spasskij,
Viktor Kortsnoj, Vlastimil Hort og Lajos
Portisch. Judit og Zsuzsa Polgar tefla með
konum, Xie Jun, Pia Cramling og Nana
Ioseliani.
í fyrstu umferð hafði kvenfólkið betur
- Pia vann Portisch og Judit vann
Smyslov en Kortsnoj vann Ioseliani.
Þessi staða er úr skák Judittar, sem
hafði svart og átti leik, og Smyslov. Nú
iauk Judit skákinni skemmtilega:
27. - Bh4! 28. g3 e3! 29. fxe3 Bg5!, betra
en 29. - Bxg3 30. e4. Eftir þessa þrjá sterku
leiki kaus Smyslov að gefast upp. Ef 30.
e4 Bxd2 31. exd5 Be3+ og mátar.
Jón L. Árnason
Bridge
Svíar náðu takmarki sínu, að komast
á HM um Bermúdaskálina, einir
Norðurlandaþjóða, en naumt var
það. Þeir enduðu í 4. sæti á EM í
Portúgal með 541,5 stig. En Pólverjar
voru í 5. sæti með 537,5. Fjórar efstu
þjóðirnar öðluðust rétt til aö spila á
HM. Svíarnir spiluðu við Austurrík-
ismenn í 22. umferð og unnu þá,
17-13. Sigur þeirra hefði verið stærri
ef Austurríkismenn hefðu ekki grætt
13 impa á þessu spili. Sagnir gengu
þannig í lokuðum sal, a-v á hættu og
suður gjafari:
* 964
V G752
♦ G43
+ 652
♦ D8
V ÁD6
♦ ÁK652
+ KD4
♦ Á10752
V 94
♦ D107
+ 1073
Suður Vestur Norður Austur
Fallen. Berger Nilsland Strafner
pass llauf pass 1grand
pass 2 tíglar pass 2grönd
pass 31auf pass 41auf
pass 4 tíglar pass 4hjörtu
pass 61auf p/h
“ JÓ
V K1083
♦ 98
Ánoo
Opnun Bergers lofaði 16+ punkt-
um og svar Strafners á einu grandi
lofaði 4 kontrólum (Á=2, K=l).
Næstu flórar sagnir voru eðlilegar,
en lykillinn að slemmunni er sögn
Bergers á 3-spil í laufi. Vegna hinnar
hagstæðu legu í laufi gat Berger
trompað tígulinn frían og þurfti ekki
að hitta í hjartalitinn. Svíarnir spil-
uðu 5 lauf á hinu borðinu.
ísak örn Sigurðsson