Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1995, Side 3
FIMMTUDAGUR 6. JÚLl 1995
3
Fréttir
BÓK SEM ALLIR GRILLMEISTARAR VERÐA AÐ EIGNAST
Þorsteinn Pálsson:
Fiskistof a hef ur
hert mjög sínar
athuganir
„Fiskistofa hefur í samræmi við þá
umfjöllun sem verið hefur hert mjög
sínar athuganir. Umræða um vax-
andi svindl hefur gert það að verkum
að eftirlit Fiskistofu eykst að sama
skapi,“ segir Þorsteinn Pálsson sjáv-
arútvegsráðherra.
Fiskistofa hefur að undanfórnu
kannað mörg fiskvinnslufyrirtæki
með það fyrir augum að upplýsa
kvótamisferli. Rannsóknin hefur
beinst að bókhaldi fyrirtækjanna
með það fyrir augum að skoða sam-
ræmi á milli innkaupa á fiski og út-
seldra afurða. Komi misræmi í ljós
fá forráðamenn viðkomandi fyrir-
tækja bréf þar sem þeim er gefinn
kostur á að skýra muninn. Ef það
tekst ekki leggur Fiskistofa á gjald í
samræmi við það magn sem vantar
skýringar á. -rt
Lögreglan:
Margtígeymslum
Tuttugu manns gistu fangageymsl-
ur lögreglunnar í Reykjavík í fyrri-
nótt og er það óvenjumargt í miðri
viku. Þrír voru á vegum fíkniefna-
deildarinnar, tveir í úttekt en fímmt-
án vegna ölvunar. Aiit síðasttaida
fólkið hefur átt í erfiðleikum vegna
áfengisnotkunar. Áfengisvarnafull-
trúi lögreglunnar ræðir við fólkið
eftir nóttina og reynir að verða því
innan handar ef einhverra sérstakra
aðgerðaerþörf. -sv
Skipið sem veiddi fyrir Fiskbúðina okkar enn ekki sektað:
Andvirði af lans var
*
VAKA-HELGAFELL
Síðumúla 6, 108 Reykjavík
• Glœsilegar Ijósmyndir
afhverjum rétti.
• Spennandi uppskriftir
að grillréttum og
nýstárlegu meðlœti.
• Einfaldar og pœgilegar
leiðheiningar.
lagt í starfsmannasjóð
- vil ekkert tjá mig um málið, segir útgerðarmaður Lóms HF
„Eg vil ekkert tjá mig um málið á
þessu stigi,“ sagði Guðmundur Svav-
arsson, útgerðarmaður togarans
Lóms HF sem á yfir höfði sér sekt
og veiðileyfissviptingu vegna sölu á
þorski fráTfí hjá vigt.
Eins og DV skýrði frá í gær var
Fiskbúðinni okkar í Kópavogi gert
að greiða rúmar 1700 þúsund krónur
vegna ólögmæts sjávarafla.
Um var að ræða 11 tonn af smá-
þorski sem verslunin hafði keypt af
togaranum Lómi HF frá Hafnarfírði
án þess að aflinn færi á vigt. Fiskur-
inn var hausskorinn og ísaður í kör
og landað þannig. Fiskistofa komst á
snoðir um málið eftir að varðskips-
menn fóru um borð í Lóm og fundu
kör með hausskornum smáfiski.
Þrátt fyrir að fiskbúðin hafi verið
„sektuð" fyrir að kaupa fiskinn hefur
útgerðin samkvæmt heimildum DV
enn ekki fengið bréf frá Fiskistofu
vegna málsins. Eftir því sem næst
verður komist er um að ræða sölu
áhafnarinnar á fiskinum til fiskbúð-
arinnar án þátttöku útgerðarinnar.
Andvirðið var látið renna í starfs-
mannasjóð sem áhöfnin notaði til
ferðalaga og skemmtana. Slíkir sjóð-
ir eru alþekkt fyrirbrigði og hafa
hingað til ekki verið gerðar athuga-
semdir við þá af hálfu opinberra að-
ila.
Guðmundur Karlsson, yfirmaður
veiðieftirlits Fiskistofu, sagði í sam-
tali við DV að Fiskistofa gerði ekki
athugasemdir viö að sjómenn tækju
sér fisk í soðið. Öðru máh gegndi
þegar fiskur væri tekinn til að selja.
„Það ber að gefa upp allan þann
fisk sem seldur er. Ef um er að ræða
þorsk eða annan þann fisk sem er
undir kvóta verður að leggja fram
kvóta á móti honum,“ segir Guð-
mundur.
Samkvæmt þessu verða þau 11
tonn sem áhöfn Lóms seldi fiskbúð-
inni kvótasett. Það þýðir að Fiski-
stofa mun draga þau af þorskkvóta
skipsins. Andvirði slíks kvóta losar
eina milljón króna, miðað við mark-
aðsverð á slíkum kvóta. -rt
Togarinn Lómur HF sem áður hét
Baldur EA og var gerður út frá Dal-
vík. Fiskbúðinni okkar í Kópavogi
var gert að greiða rúmar 1700 þús-
und krónur vegna ólögmæts sjávar-
afla. Verslunin keypti smáþorsk frá
skipinu sem Fiskistofa telur að hafi
verið ólöglegt þar sem aflinn fór
ekki á vigt.
NY ISLENSK
GRILLBOK
í þessari nýju íslensku matreiðslubók er fjöldi uppskriíta að girnilegum grillréttum. Má þar nefna
skötusel á spjóti, kjúklingabita með pastasalati og svínalundir með fyllingu, auk uppskrifta að meðlæti,
góðum sósum og kryddlögum. Hér ættu því allir að finna eitthvað við sitt hæfi!
Ritstjórar bókarinnar eru þau Björg Sigurðardóttir og Hörður Héðinsson en þau sjá um uppskriftir
og matreiðslu hjá Nýjum eftirlætisréttum, matreiðsluklúbbi Vöku-Helgafells.