Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1995, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1995, Page 15
FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 1995 27 I>V íþróttir Keflavík-FH (1-0) 2-0 1- 0 Marco Tanasic (24.) eftir auka- spyrnu Helga Björgvinssonar. Tanasic skoraði með viðstöðulausu skoti fram- hjá Stefáni Arnarsyni í marki FH. 2- 0 Jóhann B. Guðmundsson (47.) eftir skemmtilegt spil Keflvíkinga inn i víta- teig FH-inga. Lið Keflavíkur: Ólafur Gottskálksson - Helgi Björgvinsson Kristinn Guðbrandsson, Karl Finnbogason - Jó- hann B. Guðmundsson, Eysteinn Hauksson (Georg Birgisson 63.), Ragnar Steinarsson, Marco Tanasic Jó- hann B. Magnússon (Róbert Sigurðsson 76.) - Ragnar Margeirsson Kjartan Einarsson ;.VHjálmar Hailgrímsson 83.). Lið FH: Stefán Arnarson - Jón Sveins- son, Auðun Helgason, Níels Dungai - Hrafnkell Kristjánsson, Ólafur Kristj- ánsson Hallsteinn Arnarson, Þor- steinn Halldórsson, Ólafur B. Stephen- sen - Hörður Magnússon, Jón Erling Ragnarsson. Keflavík: 11 markskot, 3 horn. FH: 6 markskot, 2 hom. Gul spjöld: Ragnar S.(Keflavík), Krist- inn (Keflavík), Hörður (FH). Rautt spjald: Enginn Dómari: Egill Már Markússon, ágæt- ur. Áhorfendur: Um 400. Skilyrði: Norðan garri, fór að bæta í vind þegar á leið og völlurinn mjög blautur á köflum og þungur. Maður leiksins: Marco Tanasic, Keflavík. Lék mjög vel og byggði upp ófáar sóknir Keflvíkinga í leiknum. Hann skilaði einnig varnarhlutverkinu með stakri prýði. Leikiríkvöld í kvöld klukkan 20 fara fram fjórir leikir í 7. umferö 1. deildar- innar í knattspyrnu. Þá leika Akranes-Fram, ÍBV- KR, Breiða- blik-Leiftur og Valur-Grindavík. í bikarkeppni kvenna leika ÍBA- Sindri. Gautaborg vann Eyjólfur Harðarson, DV, Sviþjóö: Gautaborg sigraði Norköping, 2-0, í sænsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. Sænski landsliðsmað- urinn Hakan Mild lék á ný með Gautaborg í leiknum eftir árs- veru í atvinnumennsku í Sviss. Sigur hjá Létti Léttir sigraði Víking frá Ólafs- vík, 4-3, í 4. deildinni í knatt- spyrnu í gærkvöldi. Bochumkaupir Bochum, lið Þórðar Guðjóns- sonar, keypti í gær Matthias Jock frá Rot Weiss Jena og er hann 9. leikmaðurinn sem liðið kaupir í sumar. Júlíus í Val - hættur við að leika erlendis Júlíus Gunnarsson handknatt- leiksmaður hefur ákveðið að vera áfram með íslandsmeisturum Vals á næsta keppnistímabili. Mikil óvissa hefur ríkt undanfarið um hvar Július mundi leika og mörg hð voru á höttunum eftir þessum snjalla leíkmanni. „Það er búið að vera ýmislegt inni í myndinni. Fyrst ætlaði ég til Svíþjóðár í skóla og leika með þar- lendu iiði. Síðan hafði þýskur um- boðsmaður samband við mig en ekkert spennandi kom út úr því. Þá ætlaði ég aftur að snúa mér til Svíþjóðar en það var orðið of seint upp á skólann að gera. Ég er mjög ánægður aö vera áfram í Val. Það er mikill hugur í liðinu og við ætl- um að verja titilínn og reyna við bikar,“ sagði Júlíus við DV í gær- kvöldi. ska boltanum i eftir erlendum stórstjörnum endur félagsins eru mjög óánægðir eftir að þeir Paul Ince og Mark Hug- hes voru seldir. Middlesboro vill Wright og Joninhio Middlsboro, sem komst upp í úrvals- deildina í vor, er á höttunum eftir varnarmanninum Mark Wright frá Liverpool. Búist er við að kaupin gangi eftir um helgina en Liverpool er tilbúið að selja kappann. Þá er Bry- an Robson, stjóri Middlesboro, búinn að vera í Brasilíu í 10 daga að fylgjast með brasilíska landsliðsmanninum Joniniho og er tilbúinn að borga 3,5 milijónir punda fyrir leikmanninn. Forráðamenn Chelsea ætla sér langt í úrvalsdeildinni næsta vetur. Liðið er þegar búið að kaupa Ruud Gullit frá Sampdoria og Mark Hughes frá Man. Utd. En forráðamenn Chelsea ætla ekki að láta þar við sitja og eru tilbúnir að eyða 7 milljónum punda í fleiri leikmenn. Leeds á eftir Ruben Sosa Leeds hefur haft frekar hljótt um sig á markaðnum en nú er liðið tilbúið að borga 5 milljónir punda fyrir sókn- armanninn Ruben Sosa hjá Inter á Ítalíu. Sosa hefur mikinn áhuga á að leika í Englandi. Howard Wilkinson, stjóri Leeds, telur Sosa hinn full- komna félaga við hlið Tony Yeboah sem keyptur var til liðsins í fyrra. Aston Villa keypti Draper Forráðamenn Aston Villa hafa ekki setið auðum höndum í sumar. Villa pungaði úr buddunni háum fjárhæð- um í leikmenn í síðasta mánuði og liðið bætti um betur í gær þegar það keypti Mark Draper frá Leicester á rúmar 3 milljónir punda. Þar með hefur Villa keypt fyrir rúmlega 9 milljónir punda á hálJFum mánuði. Þá er hðið einnig á eftir Hollendingnum Aaron Winter sem leikur með Lazio og Lee Sharpe frá Man. Utd. Keflvíkingar beittir - léku sóknarbolta og sigruöu slaka FH-inga, 2-0,1 gærkvöldi Ægir Már Karason, DV, Suðumesjum: Loksins fóru Kéflvíkingar að leika sóknarbolta og mjög beittar aðgerðir þeirra dugðu vel gegn bitlausum FH-ingum í 1. deildinni í Keflavík í gærkvöldi. Kelfvíkingar sigruðu, 2-0, og eru komnir með góða stöðu en FH-ingar eru hins vegar í mjög slæm- um málum eftir 6 tapleiki í röð. Pressa Keflvíkinga og beittur sókn- arleikur var FH-ingum ofviða og hin nýja leikaðferð Keflvíkinga, 3-5-2, gafst mjög vel. Keflvíkingar tóku mjög fljótlega öll völd á vellinum og þaö var aðeins spurning hvenær fyrsta markið kæmi. Marko Tanasic, besti maður vallarins, braut ísinn fyrir heimamenn og þeir bættu síðan öðru markinu við snemma í síðari hálfleik. Baráttuglaðir Keflvíkingar héldu síðan öllum sóknaraðgerðum FH-inga niðri og Ólafur Gottskálks- son markvörður varði mjög vel í tví- gang þegar á þurfti að halda. „Þetta var mjög sætur sigur og við ætluðum okkur ekkert annað. Við lékum vel í heildina," sagði Ólafur Gottskálksson markvörður en hann haföi tvöfalda ástæðu til að fagna því honum fæddist stúlkubarn klukkan 8 í gærmorgun. „Við verðum greinilega að þjappa okkur saman. Ég er mjög sár að við skyldum ekki gera betur og það vant- aði eitthvað í okkur,“ sagði Ólafur Kristjánsson, fyrirliði FH-inga, eftir leikinn. David Platt er á leið til Man. Utd. Hlvikinga í gærkvöldi. Keflvikingar höfðu i og FH-ingar áttu ekkert svar við honum. DV mynd BG Allt eftir bókinni - á Wimbledonmótinu í tennis 1 gær Bandaríkjamennirnir Pete Samp- ras og Andre Agassi tryggðu sér sæti í undanúrslitum í einliðaleik karla á Wimbledonmótinu í tennis í gær ásamt þeim Boris Becker frá Þýskalandi og Goran Ivanisevic frá Króatíu. Sampras sigraði Japanann Matsouka, 6-7, 6-3, 6-4 og 6-2, eftir jafna byrjun og Agassi lék mjög vel þegar hann vann Hollendinginn Jacco Eltingh frekar auðveldlega, 6-2,6-3, og 6-4. Becker, sem af mörg- um er talinn sigurstranglegastur, sigraði Frakkann Cedric Pioline, 6-3, 6-1, 6-7, 6-7 og 9-7, í mjög góðum leik sem er talinn sá besti á mótinu til þessa. Ivanisevic komst í undan- úrslitin með sigri á Rússanum Yevg- eny Kafelnikov, 7-5, 7-6 og 6-3. NMíhandbolta: ísland í 5. sætinu íslenska unglingalandsliðið í handknattleik, 18 ára og yngri, hafnaði í 5. sæti á opna Norður- landamótinu í Gautaborg. íslend- ingar sigruðu Færeyinga, 25-18, í fyrradag en í leikhléi var staðan 13- 9 fyrir ísland. Markahæstur íslendinga í leiknum var Harald- ur Þorvarðarson meö 5 mörk. íslendingar unnu síðan Sló- vaka, 30-23, eftir að hafa leitt 14- 10 í leikhléi. Markahæstir voru Þröstur Helgason með 7 mörk og Einar J.ónsson með 6. í gær léku íslendingar síðan um 5. sætið við Dani og sigrauðu 25-19 í mjög góðum og skemmti- legum leik. Markahæstir í þeim leik voru Einar Jónsson með 5 mörk og Gunnar Gunnarsson með 4 mörk. Valsmenn mæta Haukum - hefja titilvörnina 13. september Valsmenn hefja titilvörn sína á Selfoss-Stjarnan, ÍR-Grótta og heimavelli gegn Haukum í 1. deild- Víkingur-Afturelding. Önnur um- inni í handbolta en búið er að raða ferð verður leikin 17. september én niður leikjum. Fysta umferðin fer þá mætast Sfjarnan-Valur, Hauk- fram 13. september. Aðrír leikir í ar-Víkingur, KR-FH, KA-Aftur- umferðinni eru FH-ÍBV, KR-KA, elding, Grótta-Selfoss og ÍBV-ÍR. Tækniskóli HK Knattspyrnudeild HK býður ungum Kópavogsbúum, 7-15 ára, upp á sér- stök námskeið í knatttækni í júlí og ágúst. Námskeiðin eru haldin á gras- völlunum við Álfatún í Fossvogsdal, fyrir og eftir hádegi. Kennarar eru Tomislav Sivic og Miodrag Kujundzic. Tekið er við skráningum á skrifstofu knattspyrnudeildar HK, sími 554-1793, alla virka daga klukkan 10 til 10.45 og klukkan 12.15 tii 12.45 og einnig er hægt að láta skrá sig á staðnum. Kennt er alla virka daga og verð er sem hér segir: 4 vikur - 1.000 krónur, 2 vikur - 700 krónur, 1 vika - 400 krónur. Knattspyrnudeild HK KOPAVOGS Kópavogsbúar Mætum á völlinn í kvöld kl. 20. BREIÐABLIK - LEIFTUR W’ _ , Afram, Breiðablik .

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.