Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1995, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 1995
11
Vatnsþéttum þök
svalir, tröppur og áveðursveggi með
Aquafin-2K.
Aquafin-2K er 2ja þátta sveigjanlegt múrefni, ætlað til
vatnsþéttingar á steyptum flötum. Vatnsþétting á útitröppum
var áður vandamál, en Aquafin-2K gjörbreytti dæminu.
Við veitum 3ja ára ábyrgð á efni og vinnu.
4 ára reynsla af Aquafin-2K sannar okkur, að þar er komið efni
sem ekki flagnar af, þrátt fyrir regn, frost og umgang.
Húsahlynning hf.
Alhliöa húsaviögeröir
567 3730
894 3324
567 0 7 6 6\
Skemmtilegt hf. býður nýja þjón
ustu, Veisluna út i náttúrunni.
Fallegt uppsett tjald á skemmti-
legum stað með borðum og
bekkjum. Grill og gjallarhorn,
allt sem til þarf. Sjáum um flutn-
ing veislugesta að og frá veisl-
unni.
Fjölbreytt tölvunám fer fram í Tölvuskóla Reykjavíkur.
Tjaldalelgan Skemmtílegt hf., súni 5876777
Tölvuskóli Reykjavíkur:
Fjölbreytt nám
fyrir atvinnulausa
Tölvuskóli Reykjavíkur er fimm
ára gamall skóli sem býöur fjölbreytt
námskeiö, bæði stutt sérhæfð nám-
skeið og lengri starfsmannanám-
skeið. Ollum námskeiðum fylgja
námsgögn á íslensku og er bókaút-
gáfa orðin snar þáttur í starfsemi
skólans sem býður upp á fimmtán
tölvubókatitla sem notaðir eru víðs
vegar í skólum landsins og eru einn-
ig til sölu á almennum markaði.
Stuttu sérhæfðu námskeiðin eru 6
til 28 klst. og þar á meðal eru
Window, ritvinnsla (Word), töflu-
reiknir (Excel), gagnagrunnur (Acc-
ess), tölvubókhald (Stólpi), tölvufjar-
skipti (Intemet), glærugerð og aug-
lýsingar (PowerPoint).
Starfsmenntunamámskeiðin em
allt að 212 klukkustundir og má þar
nefna skrifstofutækni, sem er mjög
vinsælt, en það námskeið er sífellt
verið að bæta og breyta svo að það
svari kalli tímans og sé ávallt sem
hagnýtast. Þá má nefna Sérhæfða
skrifstofutækni sem er 128 klst. Það
námskeið inniheldur tölvuhluta
Skrifstofutækninnar ásamt nokkr-
um viðskiptagreinum. Loks má
nefna Bókhaldstækni, 84 klst., þar
sem meðal annars er farið í launaút-
reikninga, virðisauka og fjárhags-
bókhald á tölvu. Það er ekki aðeins
í Reykjavik sem þessi námskeið eru
haldin. Tölvuskóh Reykjavíkur hef-
ur haldið þau á einum þrjátíu stöðum
úti á landi.
Nemendum boðið
að þreyta próf
Síðastliðinn vetur fór Tölvuskóli
Reykjavíkur að bjóða fram fjölbreytt
nám fyrir atvinnulausa, til dæmis
tölvunám, bókhaldsnám og mála-
nám. Skóhnn býður öllum nemend-
um að þreyta próf eftir suma áfanga
og með því að taka próf geta atvinnu-
lausir hka útskrifast úr Skrifstofu-
tækni.
Skólinn hefur sett á laggirnar al-
menna Internet-þjónustu undir nafn-
inu Treknet. Athyglisverð nýjung er
að Treknetið býður ókeypis skrán-
ingu í netfangaskrá sem er öllum
opin. Einnig er boðið upp á sérstaka
rafpóstskráningu (e-mail) fyrir þá
sem aðeins vilja nýta sér þann þátt
Intemetsins. Námskeiðin sem Trek-
net og Tölvuskóli Reykjavíkur
standa fyrir eru sniðin að þörfum
notandans. í boði eru grunnnám-
skeið, framhaldsnámskeið og nám-
skeið í gerð heimasíðna.
Skipulegt sjálfsnám um at-
vinnumál og tækifærasköpun
Um sjö ára skeið hefur Háskóli Is-
lands starfrækt skipulegt sjálfsnám
um atvinnumál og tækifærasköpun.
Um er að ræða þjónustu sem aðstoð-
ar einstakhnga og fyrirtæki við að
skapa sér ný og sérhæfö tækifæri í
atvinnulífi á grundvehi upplýsinga
og þekkingar. Frá upphafi hefur Jón
Erlendsson verkfræðingur haft for-
stöðu með sjálfsnáminu.
í þessu námi fá þátttakendur, ein-
stakhngar og fyrirtæki aðstoð við að
afla sérhæíðra upplýsinga um hvers
kyns ný tækifæri, stór eða smá eftir
atvikum. Að auki eru þátttakendur
aðstoðaðir við að afla almennrar
þekkingar á rekstri og viðskiptum.
Jón segir að nú nái upplýsingaþjón-
ustan til áttatíu þúsund erlendra að-
ila.
Megintilgangurinn meö sjálfsnám-
inu er að virkja sem flesta til skipu-
legrar og sívirkrar vinnu viö að efla
sjálfa sig með það fyrir augum að
vera undir það búinn að mæta hvers
kyns áfóllum (t.d. samdrætti, at-
vinnumissi o.fl). Eins að vinna á sí-
virkan hátt aö því að finna eða skapa
ný tækifæri fyrir sig eða vinnuveit-
anda sinn. Þá er þátttakendum hjálp-
að að finna og afla hvers kyns rita
og sambanda. Ritin eru nýtt til sjálfs-
náms, en það fer fram á einstakhngs-
grundvehi eða í 5-6 manna hópum.
Gert er ráð fyrir að hver þátttakandi
sé með 1-2 tækifæri eða hugmyndir
í skoðun á hverjum tíma, ýmist fyrir
sjálfan sig eða vinnuveitanda sinn
eða báða. Skoðun þessara hugmynda
sé leiðarljósið í annarri þekkingar-
öflun.
Með þessari aðferð er hægt að
koma tilteknum fróðleik til skila fyr-
ir htinn hluta af þeim tilkostnaði sem
fylgir venjulegri kennslu. Á móti
kemur aö ekki geta allir nýtt sér
þjónustu þessa. Aðferðin krefst þess
að viðkomandi hafl góða málakunn-
áttu og mikinn áhuga á því sem hann
er að gera.
FRÍSTUNDANÁM
Kvöldnámskeið í Miðbæjarskóla og Gerðubergi
ÍSLENSKA:
íslenska, stafsetning og málfræði. ítarleg yfirferð. íslenska
fyrir útlendinga; I, II, III, IV (í I. stig er raðað eftir þjóðerni
nemenda). íslenska fyrir útlendinga I - hraðferð. Kennt fjög-
ur kvöld í viku.
ERLEND TUNGUMÁL:
(byrjenda- og framlialdsnámskeid) ■
Danska, norska, sænska, enska, þýska, hollenska, franska,
ítalska, spænska, portúgalska, gríska, búlgarska, rússneska,
japanska, arabíska.
Talflokkar í ýmsum tungumálum. Áhersla lögð á tjáningu
daglegs máls, lesnar smásögur, blaðagreinar o.s.frv.
VERKLEGAR GREINAR:
Fatasaumur, bútasaumur, skrautskrift, postulínsmálun, bók-
band, stjörnuspeki, silkimálun, glerskurður, teikning, málun,
módelteikning, teikning og litameðferð fyrir 13-16 ára.
AÐSTOÐ VIÐ SKÓLAFÓLK
OG NÁMSKEIÐ FYRIR BÖRN:
Stærðfræði á grunnskóla- og framhaldsskólastigi. Nemendur
mæta með eigið námsefni og fá aðstoð eftir þörfum. Fámenn-
ir hópar. Stafsetning og málfræði. ítarleg yfirferð.
DANSKA, NORSKA, SÆNSKA, ÞÝSKA
fyrir 6-10 ára gömul börn til að viðhalda kunnáttu þeirra í
málunum.
Byrjendanámskeið í þýsku.
NÝ NÁMSKEIÐ:
Trúarbragðasaga - yfirlitsnámskcið: Fjallað verður um helstu
trúarbrögð heims. Kennari: Dagur Þorleifsson.
Listasaga: Fjallað verður um helstu tímabil listasögunnar frá
upphafi myndgerðar fram á okkar daga. Kennari: Oddur
Albertsson.
Glerskurður: Kennari: Ingibjörg Hjartardóttir.
Módelteikning: Kennari: Kristín Arngrímsdóttir.
Ritlist: Kennarar: Elísabet Brekkan og Árni Árnason.
Svæðanudd: 60 stunda námskeið. Kennari: Gunnar Friðriks-
son.
Öskjugerð: Kennari: María Karen Sigurðardóttir.
Innritun fer fram í Miðbæjarskólanum, Fríkirkjuvegi 1,
dagana 14. og 15. september kl. 17.00-20.00.