Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1995, Síða 13
MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 1995
13
Léleg f öt,
sem ekki passa
Sæluboöendur ESB tala um, aö við
ættum að fara í aðildarviðræðurr
til þess að fá aö vita, hvað okkur
byöist. Aðrir hafa likt þessu við að
máta föt. Passi þau ekki, verði eng-
in kaup gerð.
„Snillingar" þessir hafa vafalaust
aldrei tekið þátt í milliríkjastaríi í
fjölþjóða- eða alþjóðasamtökum.
Greinilega hafa þeir ekki hugmynd
um, hvað þeir eru að babla.
Heilvita menn máta ekki mis-
sniðin föt úr lélegu efni, mörgum
númerum of stór og á uppsprengdu
verði. Þeir kanna markaðinn betur.
Einmitt þetta gerist við ákvarð-
anir ríkja um aðildarumsóknir að
íjölþjóðasamtökum. Þau sækja
ekki um aðild fyrr en eftir að hafa
kynnt sér markmið, skyldur,
starfsreglur, kostnað og ábata að-
ildar. Ekki er farið í umræður „í
plati“, enda enginn mótaðili til í
slíkt.
ESB-flíkin
Við þurfum ekki vangaveltur um,
hvort ESB-aðild „passi“ okkur. Það
liggur ljóst fyrir í grundvallarsam-
þykktum bandalagsins: Rómarsátt-
mála frá 1957, Einingarlögunum frá
1987, Maastricht-sáttmálanum
1993, venjurétti ESB í dómsúr-
skurðum, sjávarútvegsstefnunni
o.fl.
Á meðal grundvallarmarkmiða
ESB (og fyrirrennara) er að skapa
einn sameiginlegan innri markað,
án innri tolla og viðskiptahindrana
með iðnvöru, vinnu, íjármagn og
þjónustu, en með sameiginlegum
tollmúr og viðskiptastefnu gagn-
vart utanbandalagsríkjum. í meg-
inatriðum höfum við þegar öðlast
aðild að þessum innri markaði með
EES og fómað fyrir það m.a. um
8% skekktum viðskiptakjörum
gagnvart utanbandalagsríkjum
meö því að lækka tolla innfluttrar
vöru frá EES um 4% og hækka tolla
innfluttrar vöra frá Bandaríkjun-
um, Japan og öðrum utanbanda-
lagsríkjum um sem næst 4%.
KjaHariim
Dr. Hannes Jónsson
♦
fyrrv. sendiherra
Aðild að ESB færði okkur sem
næst engan ábata umfram EES, en
við yrðum aö fórna til báknsins í
Brussel fullveldi okkar til frjálsra
milliríkjasamninga um tolla og viö-
skiptamál. Bandalagið gerir alla
slíka samninga fyrir hönd aðildar-
ríkjanna. Við gætum því ekki sam-
ið við Bandaríkin eöa önnur ríki
um t.d. fríverslun. Samningsum-
hoðið væri hjá ESB, ekki okkur.
Önnur svið fullveldistakmark-
anna vegna sameiginlegrar stefnu
ESB eru sameiginleg stefna í efna-
hags-, gengis-, gjaldeyris-, landbún-
aðar-, samgöngu- og sjávarútvegs-
málum. Markmiðið er, að hlutur
bandalagsins verði meiri en aðild-
arríkjanna á öllum þessum sviðum
og þau lúti reglum þess. Síðan 1993
skal einnig stefnt að sameiginlegri
stefnu í utanríkis- og öryggismál-
um.
Sjávarútvegsstefnan
Af sameiginlegu sjávarútvegs-
málastefnunni leiddi, að ESB
ákvæði fiskveiðikvóta við ísland.
Öll aðildarríkin fengju sama rétt
og við til að veiða á mifli 12 og 200
mílna, athafna sig í íslenskri land-
helgi og höfnum, fjárfesta í útgerð
og fiskvinnslu, stofna útibú á ís-
landi til útgerðar og fiskvinnslu.
Þar að auki yrðum við að fram-
selja fullveldi okkar til að gera sjáv-
arútvegs- og fiskveiðisamninga.
ESB yfirtæki þetta hlutverk.
Ég hygg, aö aðeins örfáir íslend-
ingar séu þeir gapuxar að taka að
athuguðu máli ESB-aðild fram yfir
víðsýna stefnu ríkisstjórnarinnar í
Evrópu-, milliríkja- og utanríkis-
málum.
Hannes Jónsson
Dr. Hannes Jónsson segir að samningsumboðið í samningum um tolla og viðskiptamál yrði hjá ESB en
ekki okkur ef við gengjum í sambandið.
„Aðild að ESB færði okkur sem næst
engan ábata umfram EES, en við yrð-
um að fórna til báknsins í Brussel full-
veldi okkar til frjálsra milliríkjasamn-
inga um tolla og viðskiptamál.“
Er myrkur í samkynhneigð?
„Samkynhneigð og kynvilla er
myrkur,“ segir Gunnar Þorsteins-
son, forstöðumaður Krossins. Er
hann skipaður dómari hér á jörð
af Drottni eða dæmir Drottinn
sjálfur?
Skrif Gunnars í Krossinum
stinga mig oft óþægilega. Hver er
þessi maður sem getur dæmt aðra
svo illþyrmilega í nafni Jesú
Krists? Hann talar um lygina og
sannleikann, myrkrið og ljósið, og
segist sjálfur ganga með Kristi í
ljósinu. Hann segir að samkyn-
hneigð sé myrkur sem kristnir
menn líði ekki og að það sé verið
að gera atlögu að lífinu ef samkyn-
hneigðir fái að ganga í hjónaband.
Öll börn Guðs?
Mér er spum, hver skapaði
Gunnar og hver skapaði samkyn-
hneigða? Var það ekki hinn sami
Guð? Erum við ekki öll börn Guðs?
Ég viðurkenni að ég er áreiðan-
lega ekki eins vel lesin í hinni helgu
bók Biblíunni og Gunnar. Þó finnst
mér oft eins ög um allt aðra Biblíu
sé að ræða en þá sem ég ólst upp
við og kynntist við fermingu en þá
bók sem Gunnar vitnar svo oft í.
Það er helst á skrifum Gunnars
að sjá að hann vilji útskúfa sam-
kynhneigð úr okkar ágæta þjóðfé-
lagi. Eru kannski fleiri sem Gunnar
KjaLaiinn
Birna Smith
húsmóðir
telur vera myrkurverur .sem hann
vill útskúfa úr þjóðfélaginu? Ég
hélt að við ættum að virða allar
persónur jafnt og dæma ekki,
hvorki eftir litarhætti, þjóðerni,
stööu eða kyni.
„Dæmið ekki, svo þér verðið ekki
sjálfur dæmdur," sagði Kristur
forðum. „Það sem þér gjörið einum
af mínum minnstu bræðrum, það
gjörið þér mér.“ Og eitt af boðorð-
unum tíu, sem ég vænti að Gunn-
ar, hinn mikli biblíufræðari, kunni
utan að, er: Elska skaltu náunga
þinn eins og sjálfan þig.
Tilgangur Krists
Ég held að við megum ekki mis-
skilja tilgang Krists með veru sinni
hér á jörðu fyrir hartnær 2000
árum. Ég held að tilgangur hans
hafi varla verið að láta dýrka sig
sem persónu, heldur gjöröir sínar.
Hann kom til þess að boöa frið
manna á milli, kenna mönnunum
að elska hver annan, hversu ólíkir
sem þeir voru, sýna hver öðrum
umburðarlyndi og kærleika.
Það er greinilegt að það dugar
skammt að sitja með Biblíuna í
fanginu alla daga, ákalla Drottinn
og segjast ganga með honum, en
geta síðan ekki sýnt meðbræðrum
sínum, sem eru kannski ekki eins
skapaðir og hann, skilning, um-
burðarlyndi og kærleika.
Margir hafa sagst koma í nafni
Drottins og falið sig á bak við hahn,
en hafa allt annað en frið í huga.
Það er greinilega engin trygging
fyrir því að maðurinn sé boðberi
ljóss og friðar, þótt hann vitni stöð-
ugt í Biblíuna.
Sá sem boðar frið þarf fyrst að
finna frið innra með sér sjálfum.
Þann frið finnur einungis sá sem
lítur inn á viö, eflir og bætir eigin
persónu, þá hopa fordómar og um-
burðarleysi á hæl og rými skapast
fyrir ljós og kærleik.
Birna Smith
„Það er greinilegt að það dugar skammt
að sitja með Biblíuna 1 fanginu alla
daga, ákalla Drottin og segjast ganga
með honum, en geta síðan ekki sýnt
meðbræðrum sínum, sem eru kannski
ekki eins skapaðir og hann, skiln-
ing..
Rýmri afgreiðslutími ATVR
Þjónustu-
fyrirtæki
„Að undan-
förnu hafa
ýmis opinber
fyrirtæki ver-
ið einkavædd
til hagsbóta
fyrir neyt-
andann. Enn
eru þó til
nátttröfl í
, „ Baldvln Hatstcinsson,
kerfinu Og er löj^rsðingurFétagsisl.
ÁTVR eitt af stériumpmanna.
þeim nátttröllum. Um áraraðir
hefur það verið eitt af einkennum
verslunar með áfengi að neytand-
anum er gert eins óhægt um vik
og mögulegt er að nálgast áfengi.
Veikburða tilraunir forsvars-
manna ÁTVR til að svara kafli
neytenda hafa verið framkvæmd-
ar með hangandi hendi. Verslun
með áfengi er ekkert ööruvísi eða
merkilegri en hver Önnur versl-
un. Áfengi og neysla þess er liluti
af menningu okkar, eins og ann-
arra þjóðfélaga, hvort sem mönn-
um likar það betur eöa verr.
Verslun alls staðar í heiminum
hefur verið að breytast hægt en
örugglega í átt til meíra fijáls-
ræðis. íslendignar hafa ekki fariö
varhluta af þessari breytingu.
Eitt af megineinkennum þessa
fijálsræðis er lengri afgreiðslu-
tími verslana. Þó svo að fyrir-
tæki, sérstaklega þjónustufyrir-
tæki á borö við ÁTVR, séu í eigu
hins opinbera er ekki þar með
sagt að þau þurfi í engu að svara
kröfum neytenda eða kafli
tímans. Þaö er eðlileg ogsjálfsögð
kurteisi við kúnnann að fylgja
þeim breytingum sem orðiö hafa
alls staðar í heiminum og lengja
afgreiöslutíma verslana ÁTVR
eins og allra annarra verslana."
Eykur drykkju
„Það er
staðreynd að
eftir því sem
áfengi er aö-
gengilegra og
auðveldaraaö
nálgast það,
eykst drykkj-
an að sama
skapi Það er .. „ „ „
, . , Jon K. Guöbergooon.
þ VI alger starismaður Áíengis-
Óþarfi að vamaráðsrikislns.
lengja afgreiðslutíma ÁTVR. Sér-
staklega eins og ástandið er orðið
í vímuefnamálum í dag. Það eitt
segir mér að þaö sé óþarfi að auö-
velda aðgang aö áfengi því eins
og við vitum er áfengi undanfari
annarra vímuefna. Við heyrum
daglega fréttir af því ástandi sem
virðist'fara dagversnandi í vímu-
efnamálum og hið opinbera ætti
því frekar aö auka forvarnir en
aö rýmka afgreiðslutíma áfengis-
sölunnar. Rannsóknir sýna að
eftir því sem erfiöara er aö nálg-
ast áfengi því minna er drukkiö.
Það eru einnig margir sem segja
að ef áfengi hefði verið fundiö upp
núna yrði það flokkað með ólög-
legum vímuefnum.
Aðalatriöið er þaö að áfengi má
ekki vera sjálfsagður hlutur sem
menn stinga í innkaupakörfuna
með öðrum vörum eins og mjólk-
inni. Börn og unglingar hafa nú
þegar allt of mikið af áfengi fyrir
augunum. Það má ekki opna nýj-
an kamar eða flytja inn nýja teg-
und af dömubindum með vængj-
um þá þarf að skála fyrir því. Það
er sama hvort þaö er veriö að
jaröa eöa skíra, alltaf verða menn
að skála. Ég held aö þetta sé ekki
gott, því sjálfsagöara sem áfengið
er og því auðveldara sem er að
nálgast það, því meira er drukk-
ið." -GMB